Morgunblaðið - 06.03.2001, Síða 74
DAGBÓK
74 ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Bakkafoss, Calypso og
Goðafoss koma í dag.
Bjarni Sæmundsson fer
í dag.
Hafnarfjarðarhöfn: Sel-
foss kom í gær. Stella
Pollux fór í gær.
Fréttir
Kattholt. Flóamarkaður
í Kattholti, Stangarhyl
2, opinn þriðjud. og
fimmtud. frá kl. 14–17.
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs. Hamraborg
20a. Fataúthlutun kl.
17–18.
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur, Sól-
vallagötu 48, Reykjavík.
Skrifstofan er opin
miðvikud. frá kl. 14–17.
S. 551-4349. Fataút-
hlutun og fatamóttaka
er opin annan og fjórða
hvern miðvikudag í
mánuði, kl. 14–17 s. 552-
5277.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9 opin
handavinnustofa, búta-
saumur, bókband og
öskjugerð, kl. 9.30 dans-
kennsla, kl. 13 opin
smíðastofan, trésmíði/
útskurður.
Aflagrandi 40. Enska
kl. 10 og kl. 11. Versl-
unarferð í Hagkaup
Skeifunni verður farin
7. mars kl. 10 kaffiveit-
ingar í boði Hagkaups.
Skráning í afgreiðslu s.
562-2571.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9–
9.45 leikfimi, kl. 9–12
tréskurður, kl. 9–16
handavinna kl. 10 sund,
kl. 13–16 leirlist, kl. 14
dans.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðjud. og fimmtud. kl.
13–16.30, spil og föndur.
Leikfimi í íþróttasal á
Hlaðhömrum, þriðjud.
kl. 16. Sundtímar á
Reykjalundi kl. 16 á
miðvikud. Uppl. hjá
Svanhildi í s. 586-8014
kl. 13–16.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Kl. 10
samverustund, kl. 14
félagsvist.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 10 hár-
snyrting, kl. 13 föndur
og handavinna.
Félagstarf aldraðra
Garðabæ. Spilað í
Kirkjulundi á þriðjudög-
um kl. 13.30.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Bridge og saumur kl.
13:30. Línudans í fyrra-
málið kl. 11, byrjendur
velkomnir.
Á fimmtudag verður
bingó kl.13:30. Haust-
ferð FEBH 1. okt. til
Prag, Bratislafa, Búda-
pest og Vínar, skráning
og upplísingar í Hraun-
seli síma 555-0142.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Leikhópurinn
Snúður og Snælda
sýna, „Gamlar perlur“ á
miðvikud. kl. 14 og sun-
nud. kl. 17. Miðapant-
anir í símum 588-2111,
568-9082 og 551-2203.
Skák í dag kl. 13.30 og
alkort spilað kl. 13.30.
Starfsmaður frá Skatt-
stofu Reykjavíkur að-
stoðar félagsmenn við
gerð einfaldra skatt-
framtala föstudaginn 9.
mars, vinsamlegast
pantið tíma á skrifstofu
FEB í síma 588-2111.
Laugardaginn 10. mars
nk verður haldið annað
fræðsluerindið á vegum
Félags eldri borgara:
Svala Thorlacius hrl.
talar um erfðamál. Elín
Guðjónsdóttir, Sigrún
Þórarinsdóttir og Sig-
rún Ingvarsdóttir,
félagsráðgjafar hjá
Félagsþjónustu
Reykjavíkur, ræða um
algengustu erfðamál
sem berast félagsþjón-
ustunni. Fræðslufund-
irnir hefjast kl. 13.30.
Allir velkomnir. Uppl. í
síma 588-2111 frá kl.
10–16.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
opin vinnustofa, tré-
skurður og fleira, kl. 10
leikfimi, kl. 12.45 Bón-
usferð.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9-16.30 vinnustofur
opnar m.a . glerskuður,
kl. 13. boccia. Aðstoð
frá skattstofunni verður
veitt miðvikud. 21.
mars, skráning
hafin. Myndlistarsýning
Ólafs Jakobs Helgason-
ar stendur yfir. Allar
veitingar í kaffihúsi
Gerðubergs. Upplýs-
ingar um starfsemina á
staðnum og í s. 575-
7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Leikfimi kl. 9.05, kl.
9.50 og kl. 10.45, kl.
9.30 silkimálun, handa-
vinnustofa opin, kl. 14
boccia, kl. 14.30 enska,
þriðjudagsganga fer frá
Gjábakka kl. 14.
Ávaxtadagur verður
fimmtud. 8. mars undir
yfirskriftinni „úr ávöxt-
um skulum við orku fá“
dagskrá hefst kl. 14.
M.a. flytur Laufey
Steingrímsdóttir mat-
vælafræðingur erindi.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulíns-
málun, kl. 10 jóga og
ganga, kl. 13–16 handa-
vinnistofan opin, leið-
beinandi á staðnum, kl.
14 boccia. Dans kl. 18.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
leikfimi, kl. 9.45 banka-
þjónusta, kl. 13 handa-
vinna.
Hraubær 105. Kl. 9–
16.30 postulínsmálun,
kl. 9–12 glerskurður, kl.
9.45 boccia, kl. 11 leik-
fimi, kl.12.15 versl-
unarferð í Bónus, kl.
13–16.30 myndlist. Mið-
vikudaginn 14. mars
koma fulltrúar frá
skattinum og aðstoða
við skattaframtal.
Uppl. í s. 587-2888.
Norðurbrún 1. Kl. 9–17
hárgreiðsla, kl. 10–11
boccia, kl. 9–16.45 opin
handavinnustofan, tré-
skurður. Aðstoð við
skattaframtal verður
mánudaginn 12. mars
kl. 9 tímapantanir hjá
ritara s. 568-6960.
Vesturgata 7. Kl. 9.15–
12 bútasaumur, kl. 9.15–
15.30 handavinna, kl. 11
leikfimi, kl. 13 búta-
saumur, tréútskurður
og frjáls spilamennska.
Miðvikud. 7. mars kl.
13.15 verður bingó,
rjómapönnukökur með
kaffinu.Allir velkomnir.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan,
kl. 9.30 glerskurður,
myndlist og morg-
unstund, kl. 10 leikfimi,
kl. 11 boccia, kl. 13
handmennt og keramik,
kl. 14 félagsvist.
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Spilað í kvöld kl.
19. Allir eldri borgarar
velkomnir.
Félag ábyrgra feðra
heldur fund í Shell-
húsinu, Skerjafirði, á
miðvikudögum kl. 20,
svarað í síma 552-6644 á
fundartíma.
ÍAK. Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.20 í Digra-
neskirkju.
Eineltissamtökin halda
fundi að Túngötu 7 á
þriðjudögum kl. 20.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra. Leik-
fimi í Bláa salnum,
Laugardalshöll, kl. 12.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, Hátúni 12. Í
kvöld kl. 20 bingó.
Kvenfélag Langholts-
sóknar. Afmælisfundur
verður haldinn í safn-
aðarheimilinu í kvöld og
hefst kl. 20. Gestir fund-
arins verða konur úr
Kvenfélagi Laug-
arnessóknar. Félags-
konur eru hvattar til að
koma í íslenskum bún-
ingi og taka með sér
gesti.
Hringurinn verður með
félagsfund í félagsheim-
ilinu á Ásvallagötu 1,
miðvikudaginn 7. mars
kl. 18.30.
Hana-nú Kópavogi
Fundur verður í Hlát-
urklúbbi Hana-nú í
handavinnustofunni í
Gullsmára kl. 20 í kvöld.
Kvenfélagið Fjallkon-
urnar, aðalfundurinn er
í kvöld kl. 20 í safn-
aðarheimili Fella- og
Hólakirkju.
ITC-deildin Irpa heldur
fund í kvöld kl. 20 í
fundarsal Sjálfstæð-
ismanna í
Grafarvogi að Hverafold
5 á 2. hæð. Uppl. hjá
Önnu í s. 863 3798.
Kvenfélag Seljasóknar
heldur fund þriðjudag-
inn 6. mars kl. 19:30.
Kvenfélag Háteigs-
sóknar. Fundur verður
þirðjudaginn 6. mars kl.
20 í safnaðarheimilinu.
Í dag er þriðjudagur 6. mars 65.
dagur ársins 2001. Orð dagsins: Jes-
ús segir við hann: „Þú trúir, af því
þú hefur séð mig. Sælir eru þeir,
sem hafa ekki séð og trúa þó.“
(Jóh. 20.)
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
HVERT ár hefur hingað til
verið evrópskt (alþjóðlegt)
tungumálaár í almennings-
bókasöfnum á Íslandi: Þau
bjóða viðskiptavinum sín-
um upp á úrval bóka, tíma-
rita, blaða og annars efnis á
Norðurlandamálum, ensku
og ýmsum öðrum evrópsk-
um málum, svo sem þýsku,
frönsku, ítölsku, spænsku
og fleiri málum auk ást-
kæra ylhýra málsins okkar.
Einnig bjóða þau til láns
námskeið í þessum og
fjölda annarra tungumála á
snældum, myndböndum,
hljóð- og mynddiskum og
margmiðlunardiskum.
Auk þessa gefst notend-
um almenningsbókasafna
aðgangur að Netinu á al-
menningsbókasöfnum þar
sem hægt er að nálgast
fjölda tungumála, orðabóka
og ýmiss konar landkynn-
ingar- og menningarefni,
þó aðallega á ensku.
Það er næsta hlálegt að
nú þegar haldið skal sér-
stakt evrópskt tungumála-
ár skuli vera búið að leggja
stein í götu safnanna og
einstaklinga við innkaup
erlends (þ.á m. evrópsks)
efnis í bókaformi, þar sem
eru hertar og/eða nýjar
reglur um gjaldtöku og
eyðublaðaútfyllingar við
innflutning. Undanfarið
hafa verið nefnd ótal dæmi
um óhagræði þessa og
margir, bæði einstaklingar
og söfn, hafa neyðst til að
endursenda bækur og rit
vegna þess að gjaldtakan
er þeim ofviða. Fyrir utan
svo auðvitað töfina, vafstrið
og kerfishremmingarnar
sem þessu fylgja.
Þær breytingar sem á
þessum málum urðu sl.
haust hafa fært okkur Ís-
lendinga aftur til 19. aldar-
innar þegar menn þurftu að
bíða vor- eða haustskipa
eftir gæðum og gögnum frá
útlandinu.
Það er aukinheldur afar
undarlegt að á sama tíma
sem yfirvöld menningar- og
menntamála hvetja til
notkunar Netsins og ann-
arrar tölvutækni skuli þeir
framsæknu, sem farnir
voru að tileinka sér mögu-
leikana til innkaupa um
veraldarvefinn á efni frá er-
lendum vefbókaverslunum,
s.s. Amazon og Barnes and
Noble í Ameríku og margra
slíkra á Norðurlöndunum
og víðar í Evrópu, nú þurfa
að hætta því – og jafnvel
endursenda efni með afsök-
unarbeiðnum! Ekkert hef-
ur heyrst um þessi mál frá
stjórnvöldum þessa lands,
aðeins æmt frá viðkomandi
embættismönnum sem
skýla sér bak við yfirlýsing-
ar um að þeir séu aðeins að
gera skyldu sína.
Það er kaldhæðnislegt að
almenningsbókasöfn á Ís-
landi skuli þurfa að hætta
við innkaup erlendra (mest
evrópskra) bóka og ann-
arra rita á evrópskum
tungum vegna evrópskra
reglugerða á evrópsku
tungumálaári 2001!
Bókapési.
Fyrirspurn til RÚV
HELGI Hjörvar stofnaði
sjóð til minningar um Daða
Hjörvar son sinn fyrir
mörgum árum. Úr sjóðnum
var veitt til þess er talaði
fegursta málið í Ríkisút-
varpinu. Veitt var úr sjóðn-
um þrisvar. Hvenær voru
síðast veitt verðlaun úr
honum og hvenær verða
þau veitt næst?
H.P.
Gervikosning
KONA hafði samband við
Velvakanda og langaði að
þakka fyrir bréf sem birtist
í Morgunblaðinu 23. febr-
úar sl. og heitir Gervikosn-
ing, eftir Gísla Ragnarsson.
Í þessu bréfi koma fram
mjög góðar upplýsingar um
það hvernig borginni er
stjórnað. Það væri gott að
fá meira af svona upplýs-
ingum.
Tapað/fundið
Gullkeðja
tapaðist
GULLKEÐJA með krossi
(trú, von og kærleikur) tap-
aðist í desember sl. Keðjan
hefur mikið tilfinningalegt
gildi fyrir eigandann.
Fundarlaun. Skilvís finn-
andi er vinsamlegast beð-
inn að hafa samband í síma
552-6920.
Bækur töpuðust
23. DESEMBER sl. töpuð-
ust þrjár bækur í fríhöfn-
inni í Keflavík. I-II bindi af
sjálfsævisögu Guðmundar
Kjærnested og bókin Karl-
ar eru frá Mars, konur frá
Venus. Vinsamlegast hafið
samband í síma 481-1406
eftir kl. 18.
Gullhálsmen
tapaðist
LAUGARDAGINN 3.
febrúar sl. tapaðist í eða við
Perluna stórt hálsmen úr
gulli með rauðum steinum.
Gripurinn hefur mikið til-
finningalegt gildi. Vinsam-
legast hafið samband í síma
898-0189. Fundarlaunum
heitið.
Nokia 3210
tapaðist
GRÁR Nokia 3210 GSM-
sími tapaðist, annaðhvort á
miðvikudag eða fimmtu-
dag. Upplýsingar í síma
896-0655.
Nokia 3310 tapaðist
AÐFARANÓTT laugar-
dagsins 3. mars sl. tapaðist
Nokia 3310 milli 3.30 og
4.30, líkast til í bifreið á leið
frá miðbænum upp í Þver-
holt (í Reykjavík).
Símans er sárt saknað og
skilvís finnandi vinsamleg-
ast hafi samband í síma
557-5380 sem fyrst.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Bókasöfn og evrópskt
tungumálafár
Víkverji skrifar...
NÚ STYTTIST í það að boðaðverkfall sjómanna verði að
veruleika. Ekkert virðist ganga í
samningaviðræðum útvegsmanna og
sjómanna og finnst Víkverja það satt
að segja lítt skiljanlegt að það skuli
vera nánast árviss viðburður að stefni
í verkfall sjómanna og stjórnvöld
skuli hafa þurft að grípa inn í deil-
urnar með misvinsælum aðgerðum.
Víkverji telur það skyldu sjómanna
og útvegsmanna að ná sáttum eins og
nánast allir aðrir aðilar vinnumark-
aðsins gera. Það eru ekki bara hags-
munir sjómanna og útvegsmanna að
samningar náist, heldur þjóðarinnar
allrar.
Verði verkfall nú, er ljóst að mikið
tekjutap verður vegna þess að loðnu-
kvótinn næst ekki. Ekki er hægt að
„geyma“ loðnuna í sjónum, því hún
drepst að lokinni hrygningu. Einnig
getur verkfallið sett stórt strik í veið-
ar okkar á úthafskarfa á Reykjanes-
hrygg. Loks setur verkfallið fisk-
verkafólk í mikinn vanda, því það
missir vinnuna, berist enginn fiskur
að landi.
Víkverji hvetur útvegsmenn og
sjómenn til að ná sáttum sem fyrst
öllum landsmönnum til hagsbóta.
x x x
MÁLFAR okkar Íslendinga erVíkverja mikið áhugamál. Allt
of oft verður hann var við ranga mál-
notkun og klaufalega. Oft eru áhrif
enskunnar áberandi, en Víkverji vill
þó ekki setja samasemmerki milli
góðrar ensukunnáttu og slakrar mál-
vitundar. Skýringin liggur frekar að
mati í Víkverja í slakri íslenzkukunn-
áttu. Víkverji rakst um daginn á aug-
lýsingu frá flatbökufyrirtæki. Í til-
boði frá því var meðal annars sagt að
hægt væri að fá tvö álegg með bök-
unni fyrir ákveðið verð. Álegg er hins
vegar ekki til í fleirtölu í málvitund
Víkverja, en kannski hefur þetta átt
að þýða að um einhvers konar egg úr
áli væri um að ræða.
Við notum ýmis orð án þess að vita
hvernig þau hafa orðið til. Það á til
dæmis við orðið stígvél, sem stundum
hefur verið útskýrt sem vél til að
stíga í. Það mun hins vegar vera
rangt. Samkvæmt heimildum Vík-
verja kemur orðið stígvél fyrst fyrir í
íslenzku í Nikulásarsögu. Þar er sagt
að konungur hafi dregið stígvél á fót
byskupi. Orðið stígvél er til í þýzku og
hinum Norðurlandamálunum með
mismunandi hætti. Þetta skemmti-
lega orð mun vera komið úr latínu og
þar nefndist þessi skófatnaður esti-
vale, sem merki uppháir sumarskór.
x x x
ANNAÐ skemmtilegt orð er munyngra í íslenzku og komið inn í
hana með allt öðrum hætti. Þetta er
orðið hundaklifberi og var það meðal
annars notað um landeyður eða
slæma menn. Þetta orð er ættað úr
dönsku og kom þannig inn í málið að
menn hér á landi fréttu af því að í
Danmörku væru til menn sem hefðu
af því lífsviðurværi að klippa hunda.
Þetta þótti mörlandanum alveg
fáránlegur atvinnulegur og hinn löð-
urmannlegasti, enda höfðu hundar þá
líklega aldrei verið klipptir á Íslandi.
Orðið hundeklipper breyttist því í
hundaklifbera og var notað um land-
eyður eins og áður sagði, því varla var
hægt að hugsa sér löðurmannlegri
vinnu en að klippa hunda.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 erkifífl, 8 fægja, 9 hljóð-
færi, 10 vindur, 11 hvell-
andi, 13 vagn, 15 ástand,
18 þunn skýjahula, 21 tré,
22 ljúki, 23 menga, 24
velmegunin.
LÓÐRÉTT:
2 setur í gang, 3 hávaði, 4
bjálka, 5 gramur, 6 háðs,
7 sjóða, 12 heiðurs,
14 bókstafur, 15 kjöt, 16
skræfa, 17 flakks, 18
dynk, 19 reiðri, 20 ein-
kenni.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 grand, 4 hroll, 7 undur, 8 ósmár, 9 gæf, 11 gort,
13 árás, 14 aflar, 15 skóp, 17 afar, 20 ung, 22 rómur, 23
róandi, 24 kerfi, 25 tjara.
Lóðrétt: 1 grugg, 2 andar, 3 durg, 4 hróf, 5 ormur, 6
lurks, 10 æxlun, 12 tap, 13 ára,
15 strók, 16 ólmur, 18 flaka, 19 reifa, 20 urði, 21 græt.