Morgunblaðið - 06.03.2001, Qupperneq 76
FÓLK Í FRÉTTUM
76 ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ VAR hlýlegt andrúmsloft
sem ég gekk inn í á fimmtudags-
kvöldið þar sem ég var mættur á
hinn dönskukennda Poll til þess að
hlýða á tríóið Guitar Islancio leika
listir sínir. Það var og vel við hæfi að
á næsta borði við mig sátu Sjálend-
ingar að sumbli og skrafi, gefandi
hinni skandinavísku stemmningu
staðarins aukið vægi fyrir vikið.
Fólk var margt en yfirleitt ekki ölv-
að heldur virtust flestir vera komnir
til þess að „hygge sig“ og hlýða á
þjóðlagatónlist af bestu gerð.
Þeir Gunnar, Björn og Jón hófu
leik á stemmu frá 12. öld, „Sæll Jes-
ús sæti“, í C-dúr og þrátt fyrir að
maður skynjaði að gott eitt væri í
vændum þá var auðheyrður nokkur
hrynstirðleiki eins og algengt er
þegar um eins konar upphitun er að
ræða. Byrjendabragur var þó eng-
inn á leik félaganna og í næsta lagi,
„Góða veislu gjöra skal“, var tríóið
komið í framúrskarandi hryn sem
og í meistarastykki Django Rein-
hardt, „Minor Swing“, þar sem
Björn og Gunnar sýndu „úr hverju
þeir eru gerðir“, svo notað sé orða-
lag þekkts knattspyrnuþjálfara.
Hljómurinn í gítar Björns var feiki-
góður, hlýr, þykkur og skýr. Aftur á
móti þótti mér miður hversu gítar
Gunnars hljómaði grunnur og á
köflum harður þrátt fyrir afbragðs
meðhöndlun hans á gripnum.
Hljóðfæri Gunnars hefði líka að
skaðlausu mátt vera lítið eitt hærra
stillt í hljóðblöndun. Kontrabassi
Jóns mallaði mátulega í dýpri hluta
hljóðmyndar eins og vera ber og féll
einkar vel inn í heildarmyndina.
Gunnar og Björn eru afar ólíkir
gítarleikarar og var sérdeilis
skemmtilegt að verða vitni að sam-
leik þeirra. Björn er gríðarlega
öruggur og tæknilega snjall með af-
ar fallegan tón og á köflum þótti
mér sem hann væri hreinlega of
öruggur; valdið á hljóðfærinu var
hreinlega það mikið að hugtök eins
og háski, kjarkur og óvissa voru víðs
fjarri, sem í mínum huga er ekki
endilega vel, einkum þegar djass
eða skyldar stefnur eru annars veg-
ar. Gunnar myndi líklega teljast
talsvert lakari gítarleikari en Björn
út frá einhverjum afdönkuðum
tækni- og akademíusjónarmiðum en
frá mínum bæjardyrum séð er hann
ekki síðri, bara öðruvísi. Hann hefur
vissulega ekki sömu tækni og Björn
en bætir það margfalt upp með hinu
mikla „músíkaliteti“ sem hann er
gæddur. Hann leikur oft fáar, en
þeim mun áhrifameiri, nótur og
innsæið er gríðarlegt. Gunnar var á
stundum hálfstirður í hröðum flétt-
um en lék dásamlega er hann „sól-
aði“ í hægum ballöðum á borð við
„Nuages“ eftir Django og eigin
smíð, „Borgarblús“, sem er og af-
bragð. Björn átti stórleik þetta
kvöld og þrátt fyrir að ég hafi á
stundum háskans saknað þá telur
það lítið þegar yfir mann er ausið
slíkri snilld sem Björn bauð upp á til
að mynda í gullfallegu lagi úr eigin
smiðju, „Tango“, sem og í þjóðlög-
um á borð við „Krummi svaf í
klettagjá“ og „Fagur galaði fuglinn
sá“. Í því síðarnefnda sýndi Björn
reyndar kynngimagnaða tilburði
sem oft hafa verið kenndir við
„slap“-tækni í bassaleik.
Það fór heldur lítið fyrir Jóni
Rafnssyni í leik tríósins eins og oft
vill verða með þá sem sinna hjart-
slætti tónlistarinnar, hryninu. Hann
skilaði sínu í flestu afar vel, hélt sig
að mestu við einfaldleikann og batt
hlutina vel saman. Jón virkaði þó lít-
ilsháttar óöruggur á köflum en varla
svo að orð sé á gerandi.
Ég get ekki látið hjá líða að minn-
ast á frábærar útsetningar félag-
anna á hinum ýmsu perlum tónlist-
arsögunnar, einkum var ég hrifinn
af meðhöndlun tríósins á þjóðlaginu
við vísur Vatnsenda-Rósu, „Augun
mín og augun þín“. Þrátt fyrir
kynngi fyrrnefndra laga var flutn-
ingurinn á því lagi sennilega há-
punktur tónleikanna. Listilega gert.
Guitar Islancio flutti 15 lög þetta
kvöld og þrátt fyrir að allt hafi ekki
verið í hæsta gæðaflokki er sjaldan
sem ég hef verið jafnánægður með
tónlistardagskrá í léttari kantinum
hér heima. Björn og félagar voru
líka stórskemmtilegir í kynningum
á milli laga og ég er sannfærður um
að tónleikagestir hafi haldið afar
sáttir heim að tónleikum loknum.
Enginn
byrj-
enda-
bragur
TÓNLIST
H l j ó m l e i k a r
Tónleikar Guitar Islancio,
Pollinum, Akureyri, fimmtudags-
kvöldið 1. mars. Fram komu Björn
Thoroddsen, Gunnar Þórðarson,
og Jón Rafnsson.
POLLURINN
Morgunblaðið/Kristján
„Gunnar og Björn eru afar ólíkir gítarleikarar og var sérdeilis
skemmtilegt að verða vitni að samleik þeirra.“
Orri Harðarson
,!/#/% !$!B
$/4L/% !,!B
,!4M% !$!B
$4"/% !$!B
,!/76/% ! $!!B
$/7I/% ! $!!B
,!/6L/% ! $!!B
Í HLAÐVARPANUM
Háaloft
geðveikur
svartur gamanleikur
Ath. síðustu sýningar
29. sýn. í kvöld þri. 6. mars kl. 21 uppselt
„Áleitið efni, vel skrifaður texti,
góður leikur og vönduð umgjörð.“ (SAB Mbl)
Eva
- bersögull sjálfsvarnareinleikur
18. sýn. fim. 8. mars kl. 21.00 örfá sæti laus
„...textinn er bæði skemmtilegur og sannur í allri
sinni tragi-kómik...ég skora á [konur]að fjölmenna
og taka karlana með...“ (SAB Mbl.)
Nemendaleikhúsið
sýnir
STRÆTI
eftir Jim Cartwright
!
"#$% &
GJ# &
"$J# '(
&
<
"#J# '(
)
*'+","
-
",."
-- '
/
0112 00
16G#$32245
*6 "$#"G32245
G6"2#$32245
"$6 "1#"G32245
""6##$32245
"6 %#"G32245
*
-67 )
(
"
- "0)"G )
66
(
"$'
8,
4
*7
'
-)
*' ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stóra sviðið kl. 20.00:
9:;< 3;4 3;3 =>'
?1* :61 8 *J# 1
&"2J#
4 <3@</;?5 '
?1
' (
-
-
- "$J# & "1J# &#J# AB 9C=553; CC'
1
(""J#"% "1 "*J#"% "1
& ",8$% )
& &0J#"% "1 "J%"% "1 '(
&*J%"% '(
322/?=;@ 2D53;/35","
/ 47+'1
10
7, "E$%& )
"*"67 )
Smíðaverkstæðið kl. 20.00:
4 <3@</;?5 '
?1
-1J# &GJ# &""J# "%J# "0J# &"*J# & "J# J# 0J# & GJ# &#$J# Litla sviðið kl. 20.30:
?B&9 C/?C'
F
+( G-9' 1
8GJ# "$J# 1
&"2J# "1J#
HHH"
*
"
I
*
"
(
"$'
- 1
( "J!
""%JE&
-"J ""%J,"
6G
$
6 "$
$ '(
6""
$
6 "1
$- )
( 7
"
-1
"%K.1'-)
)
"
8#,8"
HHH"
'"
552 3000
Opið 11-19 virka daga
Á SAMA TÍMA SÍÐAR KL. 20
fös 9/3 laus sæti
SJEIKSPÍR EING OG
HANN LEGGUR SIG KL. 20
lau 10/3 laus sæti
fös 16/3 laus sæti
Síðustu sýningar!
WAKE ME UP before you go go
mið 7/3 kl. 21.00 örfá sæti laus
lau 10/3 kl. 24.00 UPPSELT
sun 11/3 kl. 20 örfá sæti laus
530 3030
Opið 12-18 virka daga
SNIGLAVEISLAN KL. 20
Frumsýn. mið 21/3 UPPSELT
fim 22/3 A&B kort gilda UPPSELT
lau 24/3 kl. 16, C&D kort, UPPSELT
sun 25/3 E kort gilda, UPPSELT
þri 27/3 F&G kort gilda, UPPSELT
mið 28/3 H&I kort gilda, UPPSELT
fim 29/3 örfá sæti laus
fös 30/3 UPPSELT
lau 31/3 kl. 16 laus sæti, Aukasýning
sun 1/4 örfá sæti laus
mið 4/4 nokkur sæti laus
fim 5/4 nokkur sæti laus
lau 7/4 UPPSELT
sun 8/4 nokkur sæti laus
mið 11/4 laus sæti
fim 12/4 laus sæti - Skírdagur
lau 14/4 laus sæti
Á sýningardögum er miðasalan opin fram að sýn-
ingu og um helgar opnar hún í viðkomandi leik-
húsi kl. 14 ef sýning er um kvöldið. Hópasala er í
síma 530 3042 frá kl. 10-16 virka daga.
midasala@leik.is — www.leik.is
Stóra svið
MÓGLÍ e. Rudyard Kipling
Sun 11. mars kl. 14 - UPPSELT
Sun 18. mars kl. 14 - UPPSELT
Lau 24. mars kl. 13 - UPPSELT
Sun 25. mars kl. 14 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
Lau 31. mars kl 13 - UPPSELT
Sun 1.apríl kl 14
Sun 8. apríl kl 14
Sun 22. apríl kl 14
Sun 29. apríl kl 14
SKÁLDANÓTT e. Hallgrím Helgason
Lau 10. mars kl. 19 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
Fim 15. mars kl 20 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
Lau 24. mars kl 19
Menningarverðlaun DV
Sýningum lýkur í mars
ÍD
KRAAK EEN OG KRAAK TWEE
eftir Jo Strömgren
POCKET OCEAN e. Rui Horta
Fös 9. mars kl 20 - 3 sýning
Litla svið
ÖNDVEGISKONUR e. Werner Schwab
Fim 8. mars kl 20
Fös 9.mars kl 20
Sun 18. mars kl 20
ABIGAIL HELDUR PARTÍ e. Mike Leigh
Lau 10. mars kl. 19 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
Fim 15. mars kl 20
Lau 24. mars kl 19
SÍÐUSTU SÝNINGAR
PÖNKTÓNLEIKAR – FRAM KOMA:
FALLEGA GULRÓTIN OG RASS
Mið 7. mars kl 21
BARBARA OG ÚLFAR – SPLATTER:
PÍSLAGANGAN
Lau 17. mars kl 19
– VEGNA FJÖLDA ÁSKORANNA
Hliðarsvið
BEÐIÐ EFTIR GODOT e. Samuel Beckett
Þri 6. mars kl. 20
Forsýningar, miðaverð kr. 1.000.
Frumsýning haustið 2001 í nýjum sal
Borgarleikhússins.
Ertu í saumaklúbbi? Skráðu klúbbinn á
póstlistann á www.borgarleikhus.is og
fáðu glæsileg leikhústilboð fyrir hópinn
vikulega. Mánaðarlega er einn sauma-
klúbbur dreginn út og öllum meðlimum
boðið á leiksýningu í Borgarleikhúsinu.
Á SIRKUS í kvöld, kl. 22.30, ætlar
spunakvartettinn a(superscript: d)-
(a)n’ak að spinna tilraunakenndan
tónlistarvef fyrir gesti og gang-
andi. Það hefur verið nokkur
broddur í tilraunatónlist undan-
farið og þar hafa ungir og efnilegir
djassarar heldur betur verið dug-
legir, hafa þar komið til sveitir eins
og Drum’n’Brass og Anus svo ein-
hverjar séu nú nefndar. Þessi nýj-
asta og undurfurðulega nefnda
sveit er annars skipuð þeim Davíð
Þór Jónssyni (hljómborð), Róbert
Sturlu Reynissyni (rafgítar, „My
first Sony“), Helga Svavari Helga-
syni (trommur, slagverk, hljóð-
smali) og Hrafni Ásgeirssyni (saxó-
fónn).
„Þetta er svona spariverkefni hjá
okkur,“ segir Hrafn. „Það verður
frítt inn svo við getum einbeitt okk-
ur algerlega að því spila beint frá
hjartanu. Við komum allir úr ólík-
um áttum tónlistarlega og kvöldið á
eftir að bera þess merki.“
Morgunblaðið/Jim Smart
Hrafn Ásgeirsson, einn meðlima a(superscript: d)-(a)n’ak.
Af fingrum fram
Tilraunadjass á Sirkus