Morgunblaðið - 06.03.2001, Blaðsíða 79
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2001 79
UM TJARNARBÍÓ hljóma tromp-
ettónar og hvítklæddar, rjóðar álfa-
stelpur dansa fram á svið er þær
æfa opnunaratriði Platonovs eftir
rússneska leikritahöfundinn Anton
Pavlovich Tsjekhov. Það er Herra-
nótt og frumsýning þá um kvöldið
og Ólafur Darri Ólafsson (eða „Of-
urbangsinn“, eins og leikararnir
kalla hann) brosir svo breitt að
skeggið nemur við eyrnasnepla áður
en hann hefur upp raust:
„Leikritið er gleðileikur og fjallar
um Platonov sem lendir, eins og svo
margir aðrir, í þeirri aðstöðu að
þegar líður á lífið áttar hann sig á að
hann er ekki á þeim stað sem hann
hafði ætlað sér, – eða öllu heldur
þeim stað sem aðrir höfðu ætlað
honum.“
Nafnlausi gamanleikurinn
Verkið er samið af Tsjekhov undir
lok 19. aldarinnar en þótti ekki upp
á marga fiska hjá samtímamönnum
hans svo það féll í gleymskunn-
ar dá þar til handrit af verkinu
fannst í bankahólfi í Mosvku
árið 1920, 18 árum eftir andlát
Tsjekhovs. Handritið var hins
vegar titillaust og hefur verk-
ið gengið undir ýmsum nöfn-
um síðan, s.s. „Villihunang“,
„Don Juan í Rússlandi“ og
fleira, en algengast er að
nefna verkið eftir aðalsögu-
hetjunni, honum Platonov.
Grétar Már Amazeen, sem leikur
hinn glaðlynda, en jafnframt drykk-
felda Triletski ofursta, þykir verkið
hafa elst vel: „Það eru skemmtilegar
skírskotanir í verkinu sem eiga enn
fyllilega við. Allir eru ástfangnir af
öllum og þeir eldri eru ekki sparir á
siðaprédikanirnar til þeirra yngri,
enda um sígilt viðfangsefni að ræða:
ástir, framhjáhald, svik og hluti sem
tíðkast hafa á öllum tímum og eiga
ekki hvað síst við í nútímasam-
félagi.“
Fékk bakteríuna á Herranótt
Nemendur MR sjá um allt sem
við kemur leikritinu, nema ef undan
er skilinn þáttur Sigurðar Kaiser
sem hefur yfirumsjón með leik-
mynd, búningum og ljósum. Jafnvel
Ólafur sjálfur er gamall MR-ingur
og fékk, að eigin sögn, leiklistar-
bakteríuna einmitt á sýningu sem
þessari:
„Það eru sjö ár síðan ég var í
Herranótt síðast,“ segir Ólafur
Darri og kemur þar
með upp um að hann
var „fallisti“, eins og
þeir kallast sem
þurfa að endurtaka
bekk, því hann er
sjálfur nýorðinn 28
ára: „Já, ég var „fall-
isti“, – en eins og
menn segja: það er
gott að falla, því þá
getur maður tekið oft-
ar þátt í Herranótt,“
játar Ólafur Darri og
skeggjaður vanginn
bólgnar í breiðu brosi.
Grétar Amazeen
kvartar ekki undan leikstjórninni:
„Samstarfið er frábært. Ólafur
Darri er sjálfur á þrítugsaldri og er
því ekki mikið eldri en við og er þar
að auki frábær í mannlegum sam-
skiptum.“
Sömu sögu hefur Ólafur að segja:
„Það hefur verið mjög gaman að
vinna með krökkunum. Mér fannst
sjálfum gaman að leika í Herranótt
á sínum tíma og finnst líka afskap-
lega gaman að koma aftur, bara
núna sem „þessi fullorðni“. Það er
svo skemmtileg stemmning sem
myndast þegar svona stór hópur
vinnur að sameiginlegu verkefni og
leggur allt sem þarf í sölurnar til að
geta komið því á koppinn. Það er
líka svo gaman að vinna með svona
ungu fólki sem er fullt af lífskrafti.“
Ólafur Darri er vanari að standa
uppi á sviði en leikstýra, en þetta er
önnur uppfærslan sem hann stýrir:
„Ég prófaði fyrst að leikstýra í fyrra
þegar ég setti upp leiksýningu með
Verslunarskólanum. Mér fannst það
mjög gaman en langaði að prófa
þetta aftur til að vera fullviss um að
leikstjórn væri eitthvað sem væri
fyrir mig. Svo hafði ég einfaldlega
samband við stjórn Herranætur og
spurði hvort þau hefðu áhuga, – og
þau höfðu hann greinilega, og ég er
voða feginn,“ segir Ólafur og hlær
enn á ný. Sannkallaður „Ofur-
bangsi“.
Það getur stundum verið mönnum þungbært að ræðahjartans mál, en það er stutt í gleðina í Platonov.
Morgunblaðið/Ásdís
Álfameyjar og drykkfelldir en glaðværir Rússar: Leik-
arar Herranætur 2001 á æfingu á Platonov.
sýnir Platonov á Herranótt
Á föstudaginn frumsýndi Leikfélag
MR Platonov. Ásgeir Ingvarsson
ræddi rússneska rómantík við Ólaf
Darra Ólafsson leikstjóra og Grétar
Amazeen leikara.
Don Juan
í Rússlandi
Leikfélag Menntaskólans í Reykjavík
Sími 461 4666 samfilm.is
FYRIR 990 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Sýnd kl. 8. Sýnd kl. 10.
Sýnd kl. 6. Vit nr. 204
Aðeins sameinaðir
gátu þeir sigrað!
Frá Jerry Bruckheimer framleiðanda "Armageddon" og "Rock"
Sýnd kl. 8 og 10. vit nr.166.
Sýnd kl. 6. Ísl tal.
Vit nr.194.
Keflavík - sími 421 1170 - samfilm.is
FYRIR 990 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Kvikmyndir.com
1/2 Kvikmyndir.is
1/2 MBL
Rás 2
Sýnd kl. 10. Vit nr. 190.
Snilligáfa hans
ÓUMDEILANLEG
Illska hans
ÓLÝSANLEG
Nafn hans...
MYND EFTIR RIDLEY SCOTT
ANTHONY HOPKINS
JULIANNE MOORE
H.K.DV
Sýnd kl. 8 .
Sýnd kl. 8 og 10.20.
betra en nýtt
Mel Gibson Helen Hunt
What Women Want
Sýnd kl. 5.45 og 10.
ÓFE hausverk.is
Snilligáfa hans
ÓUMDEILANLEG
Illska hans
ÓLÝSANLEG
Nafn hans...
MYND EFTIR RIDLEY SCOTT
ANTHONY HOPKINS
JULIANNE MOORE
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20.
Nýr og glæsilegur salur
Sýnd kl. 8.
H.K.DV
1/2
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
Mel Gibson Helen Hunt
Frábær gamanmynd.
Loksins... maður sem hlustar.
Vinsælasta mynd Mel Gibson til þessa.
Yfir 20.000 áhorfendur.
Missið ekki af þessari
SV Mbl
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
What
Women
Want
Stærsta mynd ársins er komin
ANTHONY HOPKINS JULIANNE MOORE
Snilligáfa hans
ÓUMDEILANLEG
Illska hans
ÓLÝSANLEG
Nafn hans...
MYND EFTIR RIDLEY SCOTT
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B. i. 16.
HL MblH.K. DV
Kvikmyndir.is
MAGNAÐ
BÍÓ
Sýnd kl. 6.
Mel Gibson Helen Hunt
Frábær gamanmynd.
Loksins... maður sem hlustar.
Vinsælasta mynd Mel Gibson til þessa.
Yfir 20.000 áhorfendur.
Missið ekki af þessari
What
Women
Want
Sýnd kl. 8 og 10.30.
Sýnd 5.45, 8 og 10.15
Geoffrey Rush
Kate Winslet
Michael Caine
Joaquin Phoenix
Fjaðurpennar
Frá leikstjóra myndarinnar Óbærilegur léttleiki tilverunnar
3 Óskarsverðlaunatilnefningar
m.a. besti leikari í aðalhlutverki Geoffrey Rush.
FRUMSÝNING
Óskarsverðlaunatilnefningar
. . ti l i ri í l l t r i ffr .
3
Besta mynd ársins: National Board of Reveiw
Besta mynd ársins á yfir 40 topp 10 listum!
Missið ekki af þessari!
ATH: Vertical Limit er sýnd í Regnboganum
SV Mbl Kvikmyndir.is Kvikmyndir.com