Morgunblaðið - 18.04.2001, Síða 6

Morgunblaðið - 18.04.2001, Síða 6
FRÉTTIR 6 MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ FYRSTI starfsdagur Jóns Krist- jánssonar, nýs heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra, var í ráðuneytinu í gær. Í samtali við Morgunblaðið kvaðst Jón hafa notað daginn til að fara yfir þau verkefni sem framund- an væru og í framhaldi af því myndi hann huga að frekari forgangsröðun á ýmsum langtímaverkefnum í ráðu- neytinu. Jón Kristjánsson tók við lykla- völdum af Ingibjörgu Pálmadóttur í gærmorgun en hún hefur gegnt embætti heilbrigðisráðherra síðustu sex árin. „Ég reikna ekki með bylt- ingum enda höfum við Ingibjörg verið samherjar og ég verið formað- ur fjárlaganefndar þann tíma sem hún starfaði sem heilbrigðisráð- herra,“ sagði Jón. Hann sagðist þekkja nokkuð til verkefna ráðu- neytisins en sagði það verða með fyrstu verkefnum sínum að heim- sækja ýmsar stofnanir í heilbrigð- iskerfinu, stóru sjúkrahúsin og heilsugæslustöðvar. Þá sagðist Jón hafa undirbúið fund með forstjóra Tryggingastofnunar ríkisins og í dag ræðir hann við skrifstofustjóra ráðu- neytisins um verkefni þeirra. Hann sagði mikilvægt að hlusta á það sem menn hefðu til málanna að leggja og sagði ýmsa hafa óskað eftir fundi með sér sem nýjum ráðherra. Ingibjörg Pálmadóttir sagðist í samtali við Morgunblaðið ekki hafa afráðið hvað hún tæki sér fyrir hend- ur en hún lætur nú af þingmennsku sem og ráðherraembættinu. Þarf að halda vel á spöðunum Heilbrigðisráðherrann nýi kvaðst leggja áherslu á að fjármunir heil- brigðiskerfisins nýttust sem best og að aðhaldi væri beitt. Miklir fjár- munir færu í rekstur heilbrigðis- og tryggingakerfisins. „Við þurfum að taka upp nýja tækni og ný lyf til að starfsfólk heilbrigðiskerfisins geti unnið sem best starf og þar eigum við mjög hæft starfsfólk. Það ber sig líka saman við alþjóðlegan vinnu- markað og við þurfum á allan hátt að halda vel á spöðunum í heilbrigðis- kerfinu.“ Jón hefur óskað eftir því að Þórir Haraldsson, sem verið hefur aðstoð- armaður Ingibjargar Pálmadóttur, verði aðstoðarmaður sinn og hefur hann samþykkt það. Kvað Jón Þóri hafa unnið gott starf og því hefði hann lagt mikla áherslu á að halda í hann. Breytt nefndaskipan rædd næstu daga Þingflokkur Framsóknarflokksins kemur saman til fundar einhvern næstu daga til að huga að breyttri skipan manna í þingnefndir. Jón Kristjánsson situr í fjórum nefndum og segir Kristinn H. Gunnarsson, formaður þingflokksins, að búast megi við nokkrum breytingum í nefndaskipaninni. Á fundi þingflokksins á skírdag var fjallað um þá tillögu Halldórs Ásgrímssonar, formanns Framsókn- arflokksins, að Jón Kristjánsson tæki við sem heilbrigðisráðherra af Ingibjörgu Pálmadóttur. Kristinn sagði nokkrar umræður hafa orðið um málið en þingflokkinn hins vegar einróma hafa stutt tillögu formanns- ins. Fyrr um daginn hafði Halldór Ás- grímsson rætt við fulltrúa framsókn- armanna í Reykjavík sem ályktað höfðu um stöðu Reykjavíkurkjör- dæmis en ekki stungið uppá ráð- herraefni. Þá höfðu framsóknar- menn á Reykjanesi safnað á þriðja hundrað undirskriftum þar sem minnt var á Hjálmar Árnason, þing- mann flokksins í Reykjaneskjör- dæmi, sem mögulegan ráðherra. Jón Kristjánsson hefur setið í fjárlaganefnd, þar sem hann er for- maður, heilbrigðis- og trygginga- nefnd, utanríkismálanefnd og sam- göngunefnd. Kristinn sagði að nýr þingmaður, Magnús Stefánsson, myndi taka sæti í fjórum nefndum þannig að ekki yrði lögð meiri vinna á þá þingmenn sem fyrir væru. Sagði Kristinn að fundað yrði mjög fljótlega vegna breytinga í nefndum. Fyrsti starfsdagur Jóns Kristjánssonar sem heilbrigðisráðherra í gær Morgunblaðið/Kristinn Ráðherrabílstjórarnir kvöddu Ingibjörgu Pálmadóttur, fráfarandi heilbrigðisráðherra, eftir ríkisráðsfundinn. Morgunblaðið/Árni Sæberg Ingibjörg Pálmadóttir, fráfarandi heilbrigðisráðherra, afhendir Jóni Kristjánssyni, nýjum heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, lyklana að heilbrigðisráðuneytinu, en fyrsti formlegi vinnudagur hans var þar í gær. Reikna ekki með bylt- ingum SIV Friðleifsdóttir umhverfisráð- herra segist telja eðlilegt að fram- kvæmdir við byggingu verslunar- miðstöðva fái nánari skoðun en núverandi lög gera ráð fyrir. Hún segist þó ekki telja þörf á að slíkar framkvæmdir fari í lögformlegt um- hverfismat, heldur eigi frekar að skoða þann möguleika að breyta skipulags- og byggingalögum þann- ig að áhrif af byggingu verslunar- miðstöðva hljóti nánari skoðun en samkvæmt núgildandi reglum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og Sigurður Geirdal, bæjarstjóri í Kópavogi, hafa bæði lýst því yfir að æskilegt sé að mat á umhverfisáhrifum fari fram þegar bygging stórbygginga eins og versl- unarmiðstöðva er fyrirhuguð. Að sögn Sivjar virðast margir telja að verslunarmiðstöðvar fari í hefðbundið umhverfismat í öðrum löndum en starfsfólki í umhverfis- ráðuneytinu sé hins vegar ekki kunnugt um það. „Fullyrt er að í Danmörku fari verslunarmiðstöðvar í umhverfismat en þær fara ekki í umhverfismat eins og við þekkjum það, svokallað lögformlegt umhverf- ismat. Þetta er allt annað ferli hjá þeim sem fer fram í gegnum skipu- lagsferlið. Ég tel að athuga þurfi við endurskoðun á skipulags- og bygg- ingalögum hvort að við eigum að fara sömu leið og Danir og skoða víðtækar en gert er í dag afleiðingar verslunarmiðstöðva. En það er þá gert í gegnum skipulags- og bygg- ingalög sem er ekki svokallað hefð- bundið lögformlegt umhverfismat eins og margar framkvæmdir þurfa að fara í gegnum.“ Ráðherra segir ákveðnar greinar í skipulagslögum snúa að verslunar- miðstöðvum þar sem m.a. eru skoð- uð áhrif á gatnaframkvæmdir og á umhverfið almennt. „Ég tel æski- legt að skoða þetta í gegnum skipu- lags- og byggingalögin. Það er hægt að fara í gegnum mjög góða skoðun þannig. Verslunarmiðstöðvar hafa auðvitað gríðarleg áhrif á umhverfi sitt, eins og til dæmis samgöngur, og það þyrfti að skoða mjög vel af- leiðingar staðsetningar á verslunar- miðstöðvum sem eiga að draga til sín mikið af fólki og umferð áður en þær eru byggðar. Þannig að mér finnst þessi umræða mjög þörf og æskileg.“ Siv segir að nýbúið sé að endur- skoða lög um mat á umhverfisáhrif- um og að gerðar hafi verið víðtækar breytingar á þeim sem m.a. hafa haft þau áhrif að lögin eru nú með- færilegri og almenningur hafi meiri áhrif á framkvæmdir eftir þær breytingar. Umhverfisráðherra um byggingu verslunarmiðstöðvar Ekki þörf á lögform- legu umhverfismati UM 20 innbrot voru tilkynnt til lögreglunnar í Kópavogi um helgina. Helst var brotist inn í einbýlishús og bifreiðar en fyr- irtæki urðu einnig fyrir barðinu á þjófum samkvæmt upplýsing- um frá lögreglunni í Kópavogi. Tjón eigenda er mismikið en nemur í sumum tilvikum hundruðum þúsunda króna. Svo virðist sem þjófarnir hafi einkum verið á höttunum eftir sjónvörpum og hljómflutnings- tækjum. Um 20 inn- brot í Kópa- vogi um helgina LÖGREGLAN á Ólafsvík rannsakar nú innbrot í veitinga- staðinn Vegamót í Miklaholts- hreppi á Snæfellsnesi. Sam- kvæmt upplýsingum frá lögreglunni var talsverðum verðmætum stolið m.a. miklu magni af matvörum og vind- lingum en eigendur veitinga- hússins höfðu nýlega endurnýj- að birgðir. Þrír peningakassar sem í voru um 70.000 krónur voru brotnir upp sem og söfnunar- kassi og allt fé hirt. Þjófurinn eða þjófarnir höfðu ennfremur á brott með sér sælgæti, leik- föng, dömubindi og tvo kassa af skeifum. Þeir skildu hins vegar eftir áfengan bjór en talsvert magn var af honum á vörulager veitingahússins. Þeir sem urðu varir við mannaferðir við Vegamót um kl. 4 aðfaranótt sl. laugardags eru beðnir um að hafa samband við lögreglu. Helgin var erilsöm hjá lög- reglunni, á Ólafsvík bar talsvert á ölvun og ólátum um helgina og hátt í 40 ökumenn voru stöðv- aðir vegna hraðaksturs. Þá var fartölvu stolið úr bát sem lá við bryggju í Ólafsvík- urhöfn en innbrotið uppgötvað- ist að morgni föstudagsins langa. Matvöru, vindlingum og skeifum stolið Brotist inn í Vegamót
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.