Morgunblaðið - 18.04.2001, Blaðsíða 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2001 13
Ekta augnhára- og augnabrúnalitur, er
samanstendur af litakremi og geli sem
blandast saman, allt í einum pakka.
Mjög auðveldur í notkun. Fæst í
þremur litum og gefur frábæran
árangur. Hver pakki dugir í 20 litanir.
Útsölustaðir: Apótek og
snyrtivöruverslanir
Ath. naglalökk frá Trind fást í tveimur stærðum
Allar leiðbeiningar á íslensku
Fást í apótekum og snyrti-
vöruverslunum um land allt.
3
au
gn
sk
ug
ga
r
sa
m
an
Me
ð
næ
rðu
ára
ngr
i
Með því að nota TRIND naglanæringuna færðu
þínar eigin neglur sterkar og heilbrigðar svo
þær hvorki klofna né brotna.
handáburðurinn
með Duo-liposomes.
Ný tækni í framleiðslu
húðsnyrtivara, fallegri,
teygjanlegri, þéttari húð.
Sérstaklega græðandi.
EINSTÖK GÆÐAVARA
Dreifing: S. Gunnbjörnsson ehf. Sími 565 6317
Útsölustaðir: Snyrtivöruverslunin Nana, Rvík, Líbía, Mjódd, Hringbrautar Apótek, Rima Apótek,
Grafarvogs Apótek, Lyf & heilsa, Álfabakka, Lyf & heilsa, Háteigsvegi 1, Borgarapótek, Álftamýri, Fína
Mosfellsbæ, Gallerí Förðun, Keflavík, Sauðárkróks Apótek, Stykkishólms Apótek, Árnesapótek, Selfossi.
Hafnarapótek, Höfn, Hornafirði.
NÝ
TT NÝTT
Frábærar vörur á frábæru verði.
Gerið verðsamanburð.
Vatnsþynnanlegt vax- og
hitatæki til háreyðingar. Vaxið
má einnig hita í örbylgjuofni.
Einnig háreyðingarkrem,
„roll-on“ eða borið á
með spaða frá
Nýjung
Ný
ju
ng Þýskar förðunarvörur
ATH. nú! Frá Tana Maskara Stone (Köku-maskari). Þessi (svarti) gamli
góði með stóra burstanum. Uppl. í smáblaði sem fylgir augnbrúnalitnum.
A
ugnháranæ
ring
=
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá fyrirtæk-
inu Mötu ehf., sem er dreifingaraðili
á grænmeti og ávöxtum, með ofan-
greindri fyrirsögn:
„Í fréttum Ríkisútvarpsins sl. mið-
vikudagskvöld var skýrt frá því að
Baugur, sem rekur verslunarkeðj-
urnar Hagkaup, Nýkaup, Bónus og
10–11, hygðist hefja eigin innflutn-
ing á vínberjum, kiwi og fleiri ávöxt-
um. Í fréttinni kom fram að Mata
hefði hingað til selt Baugi vínber og
kiwi og að stjórnendur verslunar-
keðju Baugs héldu því fram að með
eigin innflutningi væri hægt að
lækka verð út úr verslunum Baugs.
Það er hreint kostulegt að verða
vitni að því hvernig forsvarsmenn
Baugs reyna með þessum hætti að
slá sig til riddara í augum neytenda á
kostnað Mötu. Einfaldast er að
spyrja: „Hvers vegna hafa stjórn-
endur Baugs ekki fyrir löngu lækkað
verð á ávöxtum út úr verslunum sín-
um?“ Nóg hefur svigrúmið verið því
að samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins síðastliðinn fimmtudag hef-
ur álagning verslana Baugs á ávöxt-
um og grænmeti a.m.k. verið á bilinu
60 til 80%. Hins vegar leitast Jón Ás-
geir, forstjóri Baugs, við að sann-
færa neytendur um að hún sé ein-
ungis 28% (mbl.is síðastliðinn
fimmtudag). Ef útreikningar Morg-
unblaðsins eru réttir er ljóst að
Baugur er vísvitandi að blekkja
neytendur.
Það er dapurlegt sjónarspil þegar
Baugssamsteypan, sem er risavaxin
á íslenskan mælikvarða, reynir að
hvítþvo sig á kostnað þeirra sem
minna mega sín. Er það nokkur til-
viljun að nú þegar athygli sam-
keppnisyfirvalda og fjölmiðla beinist
að álagningu á grænmeti og ávöxtum
í smásöluverslun, grípi stjórnendur
Baugs til þess úrræðis að beina at-
hyglinni frá eigin álagningu með því
að skella skuldinni á aðra?
Í ljósi umræðu undanfarinna daga
er nærtækt að álíta að væntanleg
verðlækkun í verslunum Baugs sé
fyrst og fremst til marks um að yf-
irmenn samsteypunnar sjái sig
knúna til að láta undan þrýstingi al-
menningsálitsins.“
Yfirlýsing frá Mötu ehf.
Er Baugur að blekkja
neytendur?
FRÉTTAÞORSTANUM verður að
svala jafnvel þótt maður sé staddur
fjarri heimkynnunum í framandi
landi. Þetta á að minnsta kosti við
um ferðalanginn sem tyllti sér uppi
við vegg Hallgrímskirkju í blíðunni.
Morgunblaðið/Ásdís
Fréttirnar heima
og að heiman
„RÁÐUNEYTIÐ er sammála því
mati OECD að tímabært sé að
huga að lækkun fyrirtækjaskatta
með það að meginmarkmiði að
styrkja stöðu atvinnulífsins og
þannig stuðla að auknum hag-
vexti,“ segir m.a. í vefriti fjár-
málaráðuneytisins nýlega þar sem
fjallað er um skýrslu OECD, Efna-
hags- og framfarastofnunar Evr-
ópu, um stöðu og horfur í íslensk-
um efnahagsmálum.
Í skýrslu OECD segir að skatta-
kerfið hér fái í heild ágæta ein-
kunn en greint var frá nokkrum
atriðum skýrslunnar í frétt í Mbl.
nýverið. Bent er þó á að skattlagn-
ing fjármagns sé ekki hlutlaus,
lagt er til að eignaskattar og
stimpilgjöld verði lögð niður og
bent er á leiðir til að bæta skatt-
lagningu vöru og þjónustu. Fjár-
málaráðuneytið segist geta tekið
undir flest sjónarmiðin í skýrslu
OECD en bendir á að nú þegar
séu stimpilgjöld og álagning eign-
arskatta til endurskoðunar.
„Í þessu samhengi er þó mik-
ilvægt að horfa til almennrar stöðu
efnahagsmála og þá sérstaklega
ríkisfjármála. Þá er ráðuneytið
sammála því mati OECD að sala á
Landssímanum og bönkunum
tveimur muni hafa jákvæð áhrif á
fjármálamarkaðinn, m.a. með því
að laða að erlent fjármagn og
þannig hamla gegn útstreymi fjár
og neikvæðum áhrifum þess á
gjaldeyrisstöðuna,“ segir í vefrit-
inu.
Ráðuneytið er ósammála þeirri
skoðun OECD að hætta sé á að
gengi krónunnar lækki enn frekar
og telur engar efnahagslegar for-
sendur fyrir þeirri þróun.
Fjármálaráðuneytið um hugmyndir OECD
Lækkun fyrirtækja-
skatta athugandi
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt íslenska ríkið til að
greiða rúmlega þrítugum karlmanni
hálfa milljón í bætur fyrir að hafa
verið látinn sitja óþarflega lengi í
gæsluvarðhaldi.
Maðurinn var handtekinn í
tengslum við innflutning á 969 e-
töflum sem fundust á hollenskri
konu þegar hún kom til landsins
þann 7. júlí 1999. Konan var þá
dansmær á nektardansstað sem
maðurinn rak en við yfirheyrslur
hjá lögreglu bar hún að hún hefði
flutt inn eiturlyfin fyrir manninn.
Konan var í fyrra dæmd í þriggja og
hálfs árs fangelsi fyrir smyglið.
Maðurinn var fyrst úrskurðaður í
gæsluvarðhald frá 16.–28. júlí og var
sá úrskurður staðfestur af Hæsta-
rétti. Að kröfu lögreglunnar í
Reykjavík framlengdi Héraðdómur
Reykjavíkur gæsluvarðhaldið til 18.
ágúst en Hæstiréttur stytti það til 6.
ágúst. Alls sat maðurinn því í
gæsluvarðhaldi í 22 daga.
Maðurinn fór fram á 7,9 milljónir
í bætur og byggði kröfu sína á því
að gæsluvarðhaldið hafi reynst hon-
um þungbært að mörgu leyti. Hann
hafi m.a. misst allt samband við fjöl-
skyldu sína, í kjölfar gæsluvarð-
haldsins hafi hann neyðst til að selja
sinn hlut í nektardansstaðnum og
þar með misst starf sitt sem fram-
kvæmdastjóri og því orðið af tekjum
í 6 mánuði. Þá hafi hann liðið and-
lega þjáningu vegna gæsluvarð-
haldsins sem hafi auk ákæru um að-
ild að fíkniefnainnflutningi skaðað
mannorð hans enda hafi málið verið
mikið til umfjöllunar í fjölmiðlum.
Sýknaður af ákæru um
fíkniefnainnflutning
Maðurinn var í febrúar í fyrra
sýknaður af ákæru um aðild að
smygli e-taflnanna 969 til landsins. Í
niðurstöðum héraðsdóms segir þó
að þegar maðurinn var úrskurðaður
í gæsluvarðhald hafi legið fyrir rök-
studdur grunur um að hann hefði
framið refsiverðan verknað.
Hins vegar hafi rannsókn lögregl-
unnar ekki bætt miklu við það sem
fyrir lá þegar stefnandi var úr-
skurðaður í gæsluvarðhald. Grunur
um sekt mannsins byggðist á fram-
burði hollensku stúlkunnar og
kunningja mannsins en búið var að
yfirheyra þau þegar maðurinn var
úrskurðaður í gæsluvarðhald. Því
hafi ekki verið ástæða til að úr-
skurða manninn í jafnlangt gæslu-
varðhald og gert var þann 16. júlí.
Jafnframt hafi ekki verið nægjan-
legt tilefni til að krefjast framleng-
ingar á gæsluvarðhaldinu. Héraðs-
dómur dæmdi því manninum
200.000 krónur í bætur vegna tekju-
taps en 300.000 krónur í miskabæt-
ur.
Arngrímur Ísberg héraðsdómari
kvað upp dóminn.
Sat of lengi í
gæsluvarðhaldi
Dæmd hálf milljón í bætur