Morgunblaðið - 18.04.2001, Blaðsíða 18
AKUREYRI
18 MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
GÍFURLEG aðsókn var að skíða-
svæðinu í Hlíðarfjalli um páskana og
á páskadag var þar slegið met. Þann
dag voru seldir 1.730 lyftumiðar,
sem er mesta sala á einum degi, en
gamla metið var 1.713 miðar seldir á
páskunum fyrir tveimur árum.
Guðmundur Karl Jónsson for-
stöðumaður sagði að þegar mest var
á sunnudag hefðu um 3.500 manns
verið í fjallinu og 10–12 þúsund
gestir hefðu komið þangað um há-
tíðarnar en þessa daga voru seldir
tæplega 5.000 lyftumiðar. Fyrir ut-
an þetta hefðbundna skíðafólk var
hópur fólks á gönguskíðum, auk
þess sem fjölmargir lögðu leið sína í
fjallið, svona rétt til að sýna sig og
sjá aðra og án þess að stíga á skíði.
Guðmundur Karl sagði að helgin
hefði gengið stórslysalaust fyrir sig
þrátt fyrir fjölmenni og aðeins tví-
vegis hefði sjúkrabíll þurft að koma
í fjallið. Mikil umferð stórra bíla
fylgdi þessari miklu aðsókn og er
vegurinn upp að Skíðastöðum mjög
illa farinn og nánast ónýtur og telur
Guðmundur Karl nauðsynlegt að
ráðast í endurbætur á honum.
Það stefnir í metár í Hlíðarfjalli
en frá því að opnað var hinn 18. nóv-
ember sl. hefur verið í opið í 112
daga í fjallinu en metið frá 1978 er
130 skíðadagar á einum vetri. Guð-
mundur Karl sagði stefnt að því að
hafa opið fram í maí og þá aðallega
um helgar og því gæti metið fallið í
ár.
„Ég hef trú að það komi margir á
skíði í næsta mánuði og þá ekki síst
vegna þess hvað skíðavertíðin hefur
verið erfið fyrir sunnan.“
Í gær voru mörg hundruð manns
á skíðum enda veðrið með besta
móti. Guðmundur Karl sagði að
margir sem tengdust Andrésar And-
ar-leikunum væru þegar komnir í
bæinn og yrðu fram á helgina.
Morgunblaðið/Kristján
Mikill fjöldi fólks á öllum aldri naut veðurblíðunnar í Hlíðarfjalli á páskadag.
Metsala í lyftumið-
um á páskadag og
útlit fyrir metár
Gífurleg aðsókn í Hlíðarfjall um páskana
HIÐ árlega Akureyrarmaraþon
verður að þessu sinni haldið laugar-
daginn 9. júní nk. sem er nokkru fyrr
á sumrinu en verið hefur. Fram-
kvæmd hlaupsins er sem fyrr í hönd-
um Ungmennafélags Akureyrar og
hefur undirbúningsnefnd unnið
hörðum höndum undanfarnar vikur
við skipulagningu.
Hlaupið hefst og endar á Akureyr-
arvelli. Þrjár vegalengdir eru í boði,
þ.e. hálfmaraþon (21 km), 10 km og 3
km skemmtiskokk. Er Akureyrar-
maraþon jafnframt Íslandsmeistara-
mót í hálfmaraþoni og má þar búast
við flestum sterkustu hlaupurum
landsins meðal þátttakenda. Hlaupa-
leiðirnar eru að stærstum hluta inn-
an bæjarmarkanna og þykja ein-
hverjar þær skemmtilegustu
hérlendis. Lítið er um brekkur, um-
ferð er ekki til trafala og hin ann-
álaða eyfirska veðurblíða tryggir oft-
ar en ekki gott veður, segir í
fréttatilkynningu. Þátttakendum í
hlaupinu hefur heldur farið fækk-
andi undanfarin ár en nú er mark-
miðið að breyta þeirri þróun. Akur-
eyrarmaraþon á með réttu að vera
annað fjölmennasta hlaupið á eftir
Reykjavíkurmaraþoni og fastur
punktur í bæjarlífinu líkt og Andrés-
arleikarnir, Pollamótið o.fl. Mark-
viss kynning á hlaupinu er að hefjast
þessa dagana og er ætlunin að ná til
skokkara um allt land, auk þess sem
vonast er til að bæjarbúar láti sjá sig
í meiri mæli en verið hefur.
Hægt verður að skrá sig í hlaupið
á ýmsum stöðum, m.a. á heimasíð-
unum visir.is og hlaup.is. Einnig
munu liggja frammi þátttökublöð í
sportvöruverslunum á Akureyri og
víðar en þessir þættir verða ræki-
lega auglýstir þegar nær dregur. Þá
má nefna að heimasíða Akureyrar-
maraþons er komin í loftið. Á henni
verða ýmsar hagnýtar upplýsingar
um hlaupið, saga Akureyrar-
maraþons, helstu úrslit fyrri ára,
fróðleiksmolar um hlaup almennt
o.fl. Slóðin er: www.ufa.is/marathon.
Sem fyrr segir er boðið upp á
þrjár vegalengdir:
Íslandsmót í hálfmaraþoni.
Hálfmaraþon (21 km): Hlaupið er
jafnframt Íslandsmót í hálfmara-
þoni. Keppt er í karla- og kvenna-
flokki og alls 6 aldursflokkum (13–15
ára, 16–39 ára, 40–49 ára, 50–59 ára,
60–69 ára og loks 70 ára og eldri).
10 km hlaup: Keppt er í karla- og
kvennaflokki og alls sex aldursflokk-
um (13–15 ára, 16–39 ára, 40–49 ára,
50–59 ára, 60–69 ára og loks 70 ára
og eldri).
Skemmtiskokk (3 km): Keppt er í
einum flokki karla og einum flokki
kvenna.
Þrjár mismunandi
vegalengdir í boði
Akureyrarmaraþon verður haldið 9. júní
SKÁTAMESSA verður í Glerár-
kirkju á Akureyri á morgun, sumar-
daginn fyrsta, kl. 11. Skátar eru beðn-
ir að mæta við verslunarmiðstöðina
Sunnuhlíð kl. 10 en þaðan leggur
skrúðganga af stað kl. 10.30 með
skáta og Lúðrasveit Akureyrar í
broddi fylkingar.
Skátar setja svip sinn á guðsþjón-
ustuna með söng við gítarundirleik.
Inga Eydal syngur einsöng og Ásta
Sigurðardóttir flytur hugvekju. Ung-
ir skátar, foreldrar, gamlir skátar og
allir aðrir sem vilja fagna sumarkom-
unni eru hvattir til að fjölmenna.
Skátamessa í
Glerárkirkju
SVALBARÐSKIRKJA: Ferming-
arguðsþjónusta sumardaginn fyrsta,
19. apríl, kl. 11. Kirkjuskóli laugar-
daginn 21. apríl kl. 11. Kyrrðarstund
sunnudagskvöldið 22. apríl kl. 21.
Fermingarbörn í Svalbarðskirkju
sumardaginn fyrsta:
Anna Gréta Sveinsdóttir,
Laugartúni 9,
Dagbjört Hermannsd, Beck,
Neðri Dálksstöðum,
Gunnar Björn Jónsson,
Smáratúni 9,
Gústaf Línberg Kristjánsson,
Smáratúni 7,
Heiðar Hlöðversson,
Laugartúni 25,
Hjörtur Atli Guðmundsson,
Laugartúni 18,
Sindri Már Mánason,
Hallandi I,
Katla Hólm Vilbergsdóttir,
Hallandi I.
Grenivíkurkirkja: Kirkjuskóli
laugardaginn 21. apríl kl. 13.30.
Svalbarðskirkja
Fermingar-
guðsþjónusta
VEITINGAHÚSIÐ Bautinn á Ak-
ureyri fagnar 30 ára afmæli um þess-
ar mundir. Af því tilefni hafa eigend-
ur hans ákveðið að bjóða öllu starfs-
fólki Bautans síðastliðin 30 ár til
afmælisskemmtunar í Bjargi næst-
komandi sunnudag, 22. apríl, kl. 19. Í
frétt frá fyrirtækinu eru þeir sem
þiggja vilja boðið beðnir að tilkynna
þátttöku í síma 462 1818 í síðasta lagi
í dag. Að sögn Stefáns Gunnlaugs-
sonar á Bautanum eru starfsmenn
fyrirtækisins í gegnum tíðina hátt í
800, þar af hefur einn starfað þar frá
fyrsta degi, fyrir utan eigendurna.
Bautinn býður
starfsfólki til veislu
Sumar-
fagnaður
Hlífar
ÁRLEGUR sumarfagnaður
Kvenfélagsins Hlífar verður
haldinn á morgun, sumardaginn
fyrsta í safnaðarsal Glerárkirkju
og hefst hann kl. 15.
Í anddyri verður sýning á
handverki eftir Margréti Bald-
ursdóttur, Hlífarkonu. Kvenna-
kór Akureyrar syngur undir
stjórn Björns Leifssonar, sr.
Hannes Örn Blandon leikur á
gítar og Sara Blandon syngur.
Þá verður veislukaffi í boði og
happdrætti.
Að vanda rennur allur ágóði til
styrktar barnadeildar Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri.
Sýningu
að ljúka
SÝNINGU Iðunnar Ágústsdótt-
ur myndlistarmanns í blóma-
skálanum Vín í Eyjafjarðarsveit
lýkur á morgun, sumardaginn
fyrsta. Á sýningu Iðunnar er á
milli 30 og 40 ný olíumálverk og
nokkrar pastelmyndir unnar
með þurrkrít og olíukrít.
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦