Morgunblaðið - 18.04.2001, Qupperneq 44
44 MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
H
UGMYNDIR um nýt-
ingu fallvatna til raf-
orkuframleiðslu á
þessum slóðum eru
ekki nýjar af nálinni
og um 1970 voru uppi tillögur um
mikla vatnsmiðlun í Þjórsárverum í
tengslum við Búrfellsvirkjun og aðr-
ar fyrirhugaðar virkjanir í Þjórsá. Á
árunum 1970 til 1973 var unnið að
verkhönnun á virkjunarkostum í
Efri-Þjórsá og þá gert ráð fyrir að
meginmiðlun árinnar yrði miðlunar-
lón sem takmarkaðist að sunnan-
verðu með stíflum við Norðlingaöldu.
Hæð miðlunarlóns var áætluð 581 m
yfir sjávarmáli, eða um 325 gígalítrar
og mest 593 m y.s. eða um 1.630 Gl.
Ýmsir náttúrufræðingar og stofnanir
á sviði náttúruverndar lögðust þá ein-
dregið gegn þessum fyrirætlunum,
enda hefði það sökkt stærstum hluta
Þjórsárveranna og aðeins litlum
hluta gróðurs þeirra verið hlíft. Var
og talið að svo stórt lón myndi hafa
gífurleg áhrif á varp heiðagæsarinnar
í verunum.
Sögulegt samkomulag
fyrir tuttugu árum
Því fer hins vegar fjarri að með því
hafi verið kveðnar niður deilur um
Þjórsárverin og mögulega nýtingu
þeirra til framleiðslu á raforku eða
nýtingar af öðru tagi. Áfram var
karpað um þessi mál og komust þau
oftlega til kasta Náttúruverndarráðs,
undanfara Náttúruverndar ríkisins, á
ofanverðum áttunda áratugnum. Þær
deilur voru of víðfeðmar til að unnt sé
að gera grein fyrir þeim hér, en segja
má að þeim hafi lokið með samkomu-
lagi Náttúruverndarráðs og Lands-
virkjunar árið 1981 um „friðland í
Þjórsárverum“. Það samkomulag
takmarkaði mjög möguleika Lands-
virkjunar til framkvæmda á svæðinu,
en er um leið talið einn mesti sigur
sem talsmenn náttúruverndar hafa
unnið hér á landi.
Friðlýsing Þjórsárvera, sem stað-
fest var 3. desember 1981 felur í sér
að heimilað verði að byggja uppi-
stöðulón neðst í Þjórsárverunum,
með stíflu við svonefnda Norðlinga-
öldu. Með auglýsingunni var tilkynnt
um sérstaka nefnd Náttúruverndar-
ráði til ráðuneytis um málefni frið-
landsins, s.k. Þjórsárveranefnd. Síð-
an segir: „Ennfremur mun [Nátt-
úruvernd ríkisins] fyrir sitt leyti veita
Landsvirkjun undanþágu frá frið-
lýsingu þessari til að gera uppistöðu-
lón með stíflu við Norðlingaöldu í allt
að 581 m y. s., enda sýni rannsóknir
að slík lónsmyndun sé framkvæman-
leg án þess að náttúruverndargildi
Þjórsárvera rýrni óhæfilega að mati
[Náttúruverndar ríkisins]. Rann-
sóknir þessar skulu gerðar á vegum
ráðgjafanefndar samkvæmt 1. tl.
Skal nefndin ennfremur fjalla um
endanleg mörk umræddra mann-
virkja, ráðstafanir til að draga úr
óæskilegum áhrifum þeirra á vist-
kerfi Þjórsárvera og hugsanlega end-
urskoðun á vatnsborðshæð miðlunar-
lónsins.“
Allt tilbúið fyrir
umhverfismat
Rannsóknir þær sem kveðið er á
um í friðlýsingunni fóru fram á veg-
um prófessors Þóru Ellenar Þór-
hallsdóttur á árunum 1981 til 1991 og
gerð var grein fyrir þeim í loka-
skýrslu 1994 og talsvert um fjallað á
sínum tíma. Síðan þá hefur Lands-
virkjun staðið fyrir frekari rannsókn-
um á þessu svæði og hjá fyrirtækinu
hefur verið unnið í samræmi við það
að framkvæmdir fari í mat á um-
hverfisáhrifum. Þar á bæ telja menn
að þau gögn sem safnast hafa í hinum
víðtæku rannsóknum á undanförnum
árum séu nægur efniviður í slíkt mat.
Segjast forsvarsmenn Landsvirkjun-
ar tilbúnir að hlíta leikreglum í einu
og öllu og taka niðurstöðu umhverf-
ismatsins, hver svo sem
hún verður. Þeir leggja
hins vegar mikla áherslu
á að fá umræddar fram-
kvæmdir í umhverfismat.
Í þessum efnum er rétt
að undirstrika að það er
skilningur Landsvirkjunar að rann-
sóknir og undirbúningur vegna lóns-
myndunar séu í raun hluti friðlýsing-
arinnar.
En forsvarsmenn Landsvirkjunar
hafa einnig kynnt mismunandi lóns-
hæðir í Norðlingaöldulóni í því skyni
að ná sátt um framkvæmdina. Þannig
hefur fyrirtækið upp á síðkastið sýnt
fram á áhrif fernskonar lónshæðar;
581 m, 579 m, 578 m og loks 575 m y.s.
Þótt í fyrstu virðist ekki muna mikið
um þá sex metra sem skilja fyrstu og
fjórðu lónshæðina að, sýna rannsókn-
ir Landsvirkjunar og fleiri fram á
gríðarleg áhrif jafnvel minnstu yfir-
borðslækkunar á umhverfið.
Þannig er gert ráð fyrir að lónshæð
upp á 581 m yfir sjávarmáli myndi
fara yfir hreiðurstæði u.þ.b. 573
heiðagæsapara, eða um 8% af þeim
stofni sem verpir á þessum slóðum og
elur þar upp ungviði sitt. Samsvar-
andi tölur fyrir 579 m er 365 hreið-
urstæði, eða 5% stofnsins. Sé farið að-
eins einum metra neðar fer fjöldi
hreiðurstæða niður í 239 eða 3,3%. Sé
svo miðað við minnstu mögulegu
lónshæð, eða 575 m, yrði óverulegur
fjöldi hreiðurstæða undir vatnsborð-
inu.
Þegar tölur Landsvirkjunar eru
skoðaðar frekar hvað gróður undir
vatni viðkemur, kemur í ljós að alls
tæplega 17 km² eða 9,3 km² í friðlandi
færi undir vatn, yrði lónið 581 m y.s.
Miklu minna eða 7,2 km² færu undir
vatn ef lón upp á 575 m hæð yrði fyrir
valinu og alls um 1,4 km² í friðland-
inu.
Þá kemur einnig í ljós að lónsflötur
lóns upp á 581 m yrði 62 km², en 28,5
km² miðað við 575 m y.s. Það munar
því sýnilega mjög um hvern metra í
þessum efnum.
Landsvirkjun vill einnig meta um-
hverfisáhrif af 6. áfanga Kvíslaveitu,
en með honum yrði tveimur upptaka-
kvíslum Þjórsár veitt í Kvíslavatn.
Segja má að hugmyndir þessa efnis
séu tilkomnar vegna viðleitni Lands-
virkjunar til að lækka yfirborð Norð-
lingaöldulóns. Viðbúið er að vatns-
rennsli Þjórsár skerðast nokkuð við
framkvæmdirnar, eða um 810 m á sek
skv. upplýsingum frá Landsvirkjun.
Deilt um túlkun og mat á
umhverfisáhrifum
Þótt texti friðlýsingarinnar sýnist
býsna skýr og augljós við fyrstu sýn,
hefur engu að síður komið til deilna
um túlkun hans milli Náttúruverndar
ríkisins og Landsvirkjunar. Rök
Landsvirkjunar hníga til þess að á
síðustu árum hafi orðið svo mikil
breyting á umhverfismálum, t.d. með
lögum um mat á umhverfisáhrifum,
að ekki eigi lengur við að Náttúru-
vernd ríkisins segi af eða á um fram-
kvæmdir á þessum slóðum. Lands-
virkjunarmenn vilja fremur að málið
lúti sömu lögmálum og aðrar fram-
kvæmdir; fari einfaldlega í umhverf-
ismat og í ljósi niðurstaðna þess verði
ákveðið hvort framkvæmt verði eður
ei. Þessu hafna hins vegar forsvars-
menn Náttúruverndar ríkisins og
benda á að málið sé í eðlilegum far-
vegi. Þjórsárveranefnd muni skila
áliti sínu á næstu dögum og í fram-
haldi af því muni stofnunin síðan
kveða upp sinn úrskurð. Það sé skýr
skylda hennar gagnvart lögum að
taka afstöðu til hugmynda um fram-
kvæmdir á hinu friðlýsta svæði, þá
ábyrgð hyggist menn
axla.
Það er athyglisvert í
þessu sambandi, að rifja
upp átökin fyrir ríflega
tveimur árum í tengslum
við hugmyndir um Fljóts-
dalsvirkjun á Austurlandi og miðlun-
arlón á Eyjabökkum. Þá var ein
helsta krafa umhverfisverndarsinna
að framkvæmdin sætti mati á um-
hverfisáhrifum, en Landsvirkjun
hafnaði því ásamt stjórnvöldum og
vísaði til þess að virkjunarleyfi hefði
verið veitt áður en lög um umhverf-
ismat tóku gildi. Nú virðist þessu al-
gjörlega öfugt farið; Lan
krefst þess að fá umhver
náttúruverndarsinnar legg
dregið gegn því.
Stofnunin umsagnar
lögum samkvæm
Árni Bragason, forstjóri
verndar ríkisins, færir þess
afstöðu stofnunarinnar: „T
séð getur Landsvirkjun se
umhverfismat. Það væri h
fáránleg ráðstöfun, þar sem
in er lögum samkvæmt u
aðili í slíku mati og því e
urinn með slíku vandséðu
skýrt ferli um gang þessa
stjórnkerfinu og ákvarða
má kæra til æðra stjórn
sem er umhverfisráðherr
Árni.
Þótt forstjóri Náttúruv
ekki tilbúinn að skera hér
um afstöðu stofnunarinna
mynda Landsvirkjunar, f
milli mála að hann hefur
vara við áformunum.
„Við skulum átta okkur
Þjórsárverin eru mikilvæg
urlendið í hálendi Íslands
votlendi með ótvírætt
verndargildi. Alþjóðareglu
um verndargildi, skipti vot
fyrir 1% tiltekins fuglastof
"
!
$
Lands
kvæmd
Þjórsárveranefnd mun í næstu viku skila álit
6. Björn Ingi Hrafnsson skrifar að gífurlegi
sjónarmið náttúruverndarsinna sem segj
Geysilega
hagkvæmur
kostur fyrir
Landsvirkjun
OECD OG AUÐLINDAGJALD
ÚTRÁS ÍSLENZKRA FYRIRTÆKJA
RÁÐHERRASKIPTI
Ingibjörg Pálmadóttir hefur ver-ið farsæll heilbrigðis- og trygg-ingaráðherra í sex ár. Í ráð-
herratíð hennar hafa orðið róttækar
breytingar á rekstri sjúkrahúsanna
í Reykjavík, sem hafa verið samein-
uð í eitt. Sú breyting hefur verið og
er umdeild en öllum, sem til þekkja,
er ljóst, að það þurfti kjark og áræði
til hjá heilbrigðisráðherra að leggja
út í svo umfangsmiklar breytingar.
Innan heilbrigðiskerfisins og á
sjúkrahúsunum takast á margvís-
legir og flóknir hagsmunir og æðsti
yfirmaður þessara stofnana hefur
ekki alltaf átt sjö dagana sæla með-
an á þessum breytingum hefur stað-
ið. Hver svo sem afstaða manna er
til breytinganna á rekstri sjúkra-
húsanna fer ekki á milli mála, að það
er ákveðið afrek hjá fráfarandi heil-
brigðisráðherra að tryggja fram-
gang þessa máls.
Ingibjörg Pálmadóttir og Morg-
unblaðið hafa ekki verið sammála
um kosti þess að byggja upp einka-
rekinn valkost í heilbrigðiskerfinu.
Því miður er ekki að sjá, að breyting
verði á þeirri afstöðu hjá eftirmanni
hennar, Jóni Kristjánssyni, eða
Framsóknarflokknum yfirleitt.
Í ráðherratíð Ingibjargar Pálma-
dóttur hefur orðið til ný atvinnu-
grein á Íslandi, sem endurspeglast í
starfsemi Íslenzkrar erfðagreining-
ar. Þótt frumkvæðið að því hafi ver-
ið í annarra höndum hafa þær deil-
ur, sem af þessari starfsemi hafa
leitt, mætt mjög á heilbrigðisráð-
herra. Ingibjörg Pálmadóttir hefur
tekizt á við þau viðfangsefni af
þeirri lipurð, sem einkennt hefur
ráðherrastörf hennar.
Undir lok ráðherratíðar Ingi-
bjargar Pálmadóttur urðu miklar
sviptingar í tryggingamálum vegna
dóms Hæstaréttar í máli Öryrkja-
bandalagsins. Í þeim sviptingum fór
ekki á milli mála löngun og vilji
tryggingaráðherra til þess að beita
áhrifum sínum í þágu hinna verst
settu í samfélaginu.
Með vali Jóns Kristjánssonar til
þess að taka við einu erfiðasta ráð-
herraembætti í ríkisstjórninni hefur
Framsóknarflokkurinn lagt það
starf á herðar eins síns bezta þing-
manns. Jón Kristjánsson er þing-
maður sem hefur sinnt starfi sínu af
hógværð og tekið málefnalega og já-
kvæða afstöðu. Hann byggir á
traustum grunni og langri reynslu
og mun áreiðanlega farnast vel í
starfi.
Í nýrri skýrslu OECD, Efnahags-og framfarastofnunarinnar, um
efnahagsmál á Íslandi er hvatt til
þess að auðlindagjald verði tekið upp
í sjávarútvegi, við framleiðslu raf-
orku og við úthlutun fjarskiptarása.
Þessar hugmyndir OECD eru sér-
stakt fagnaðarefni frá sjónarhóli
Morgunblaðsins enda hefur blaðið í á
annan áratug barizt fyrir nákvæm-
lega sömu hugmyndum.
Þá er einnig ástæða til að benda á
að skýrsla hinnar svonefndu Auð-
lindanefndar byggist í megindráttum
á sömu sjónarmiðum og fram koma í
skýrslu OECD.
Rökin fyrir þessum hugmyndum
hafa svo oft verið rakin, að ástæðu-
laust er að endurtaka þau. Athyglis-
vert er að smátt og smátt er að skap-
ast afar víðtæk samstaða um þessar
hugmyndir.
Endurskoðunarnefnd sjávarút-
vegsráðherra er enn að störfum. Þótt
óþolinmæði gæti hjá mörgum er mik-
ilvægt að nefndin fái frið til þess að
ljúka verki sínu, sem er að hluta
tæknilegs eðlis.
Hins vegar verður að telja líklegt
að pólitískar ákvarðanir í þessu efni
verði teknar síðar á þessu ári og að ný
lagasetning liggi fyrir að minnsta
kosti fyrri hluta næsta árs og vonandi
fyrr. Miðað við yfirlýsingar forystu-
manna ríkisstjórnarinnar verður að
telja líklegt að þær byggist á hug-
myndum Auðlindanefndar, sem jafn-
framt eru áþekkar tillögum OECD.
Íslenzkt viðskiptalíf er að gjör-breytast. Ísland er ekki lengur
eini vettvangur fyrirtækja heldur
leita þau nú fanga víða um heim.
Kaup Baugs hf. á stórri verzlunar-
keðju í Bandaríkjunum eru skýrt
dæmi um þetta. Þau kaup ein munu
gjörbreyta þessu íslenzka verzlun-
arfyrirtæki í alþjóðlegt fyrirtæki.
Til viðbótar er ljóst að forráðamenn
Baugs standa einnig í stórræðum í
Bretlandi og hafa lagt þar út í fjár-
festingu í stórri verzlunarkeðju, sem
gæti jafnvel átt eftir að verða enn
ábatasamari en viðskiptin í Banda-
ríkjunum.
Það þarf dirfsku til að takast slík
verkefni á hendur. Margar spurn-
ingar vakna. Hefur þetta tiltölulega
litla íslenzka fyrirtæki stjórnunar-
legt bolmagn til þess að takast á við
svo mikil verkefni og það á tiltölu-
lega skömmum tíma? Ljóst er að for-
ráðamenn Baugs telja sig hafa yfir
mannvali að ráða til þess að stjórna
fyrirtækinu í Bandaríkjunum.
Baugur varð til með þeim hætti að
markaði ákveðin þáttaskil í íslenzku
viðskipta- og fjármálalífi. Hingað til
hafa Íslendingar talið sig geta rekið
flugstarfsemi í öðrum löndum og
hafa þekkingu til að reka sjávarút-
vegsfyrirtæki á alþjóðavettvangi.
Það er nýtt að Íslendingar telji sig
geta rekið smásöluverzlanir með
góðum árangri annars staðar og í
stærri stíl en við höfum þekkt hing-
að til.
Þess vegna verður afar forvitni-
legt að fylgjast með því, hvernig til
tekst hjá forráðamönnum Baugs í
því umfangsmikla verkefni sem þeir
hafa tekizt á hendur beggja vegna
Atlantshafsins.