Morgunblaðið - 18.04.2001, Qupperneq 59
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2001 59
✝ Lína Arngríms-dóttir fæddist á
Ísafirði 13. ágúst
1912. Hún lést á
Droplaugarstöðum 8.
apríl síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Arngrímur
Bjarnason ritstjóri og
Guðríður Jónsdóttir
húsmóðir. Seinni
kona Arngríms var
Ásta Eggertsdóttir
Fjeldsted. Lína átti
sjö alsystkini og ell-
efu hálfsystkini.
Hinn 6. júní 1939
giftist Lára Sveini Hjálmarssyni, f.
29. september 1901, d. 28. febrúar
1985. Foreldrar hans voru Hjálmar
Guðnason og Guðfinna Jónsdóttir.
Lína og Sveinn bjuggu á Svarfhóli í
Hvalfjarðarstrandarhreppi til árs-
ins 1976, en þá fluttu þau búferlum
til Reykjavíkur þar sem þau bjuggu
Reynisdóttur, og eiga þau tvö börn.
b) Sveinn Líndal, í sambúð með Ing-
unni Kristínu Ólafsdóttur. c) Alda
Hrönn, í sambúð með Jóni Sigurðs-
syni. d) Bára Hildur, í sambúð með
Arnari Ægissyni. 4) Friðrik Axel, f.
8. júní 1947, kvæntur Lovísu Sig-
urðardóttur. Eiga þau fjögur börn.
Þau eru: a) Sóley Björk. b) Krist-
jana, í sambúð með Hjalta Páli Ing-
ólfssyni. c) Grétar Már. d) Áslaug
Harpa. 5) Hjálmar, f. 8. mars 1949,
kvæntur Ástu Haraldsdóttur. Eiga
þau tvo syni; Jón, kvæntan Dagmar
Sigrúnu Guðmundsdóttur, og
Kjartan, í sambúð með Melkorku
Árnýju Kvaran. 6) Arngrímur, f. 8.
mars 1949. Á hann tvö börn, Óla
Heiðar og Höllu Rún. 7) Þórður, f.
29. október 1951, d. 1990. Var hann
í sambúð með Margréti Samsonar-
dóttur og eignuðust þau tvo syni,
Örn og Hauk. Fyrir átti Þórður
með Ásdísi Hansdóttur soninn Við-
ar, í sambúð með Völu Jónu Garð-
arsdóttur, og eiga þau eina dóttur.
8) Óskírð stúlka, f. 29. október
1951, d. 29. október 1951.
Útför Línu verður gerð frá Hall-
grímskirkju í Saurbæ í dag og hefst
hún klukkan 14.
til dauðadags. Þau
eignuðust átta börn.
Þau eru: 1) Guðríður, f.
6. júní 1936, gift Krist-
jáni Þorsteinssyni.
Þeirra sonur er Stein-
ar Jónas, í sambúð með
Evu Þorsteinsdóttur.
2) Guðfinna Soffía, f.
22. desember 1944,
gift Brandi Jónssyni.
Eiga þau fjögur börn.
Þau eru: a) Salvör
Lilja, gift Birni Þorra
Viktorssyni, og eiga
þau þrjú börn. b)
Sveinn. c) Jón, kvænt-
ur Bergnýju Dögg Sófusdóttur, og
eiga þau tvær dætur. d) Heiðdís
Björk, í sambúð með Jóni Ingiberg
Guðjónssyni, og á hann einn son. 3)
Sóley Guðrún, f. 22. desember 1944,
gift Jóhanni Gunnari Jóhannessyni.
Eiga þau fjögur börn: Þau eru: a)
Jóhannes Rúnar, kvæntur Hugrúnu
Þú áttir líf, þú áttir augnablik.
Þú áttir kjark, þú sýndir aldrei hik.
Þú áttir styrk, þú hafðir hreina sál.
Þú áttir ljós, þú áttir barnsins mál.
Þinn tími leið, þú kvaddir lífið skjótt.
Það komu él, það dimmdi eina nótt.
Þú barðist vel, þú lagðir lífi lið.
Þú loksins fannst hjá Guði einum frið.
(Höf. ók.)
Í dag kveðjum við elskulega ömmu
okkar, Línu Arngrímsdóttur. Það er
með sorg og söknuði sem við kveðjum
hana þó við vitum að hún hafi verið
hvíldinni fegin. Nú er hún komin til
afa, tvíburanna sinna og allra hinna
sem farnir eru og henni þótti svo
vænt um.
Á langri ævi ömmu hafa skipst á
skin og skúrir. Hún var ung að árum,
aðeins níu ára, þegar móðir hennar
lést frá átta ungum börnum. Þá átti
hún því einstaka láni að fagna að fjöl-
skyldan hélst saman og ólst hún upp
með systkinum sínum öllum, allt þar
til hún fór í vist til Reykjavíkur um
tvítugt. Ekki leið á löngu þar til amma
kynntist afa og saman hófu þau bú-
skap á Svarfhóli í Svínadal. Þau urðu
þeirrar gæfu aðnjótandi að eignast
átta börn og komust sjö þeirra til full-
orðinsára. Sérstakt þykir að af þess-
um átta börnum voru þrennir tvíbur-
ar, en annan yngsta tvíburann, litla
stúlku, misstu þau eftir tæpan sólar-
hring. Öll börnin eignaðist hún heima
og var því ekki tækninni fyrir að fara
eins og nú er á háþróuðum sjúkra-
húsum. Má því segja að álagið hafi
verið mikið og vinnutíminn langur því
hvorki voru til þvottavélar né bréf-
bleiur. Það varð ömmu líka mikið áfall
þegar hún missti Þórð, yngsta son
sinn, aðeins 38 ára að aldri eftir erfið
veikindi. Eftir tæplega fjörutíu ára
búskap fluttu amma og afi til Reykja-
víkur og áttu þar heimili þeirra eftir
það.
Ömmu var mikið í mun að halda
sinni stóru fjölskyldu saman og best
leið henni þegar sem flestir afkom-
endanna voru í kringum hana. Verst
þótti henni að missa af stórviðburðum
í fjölskyldunni. Má sem dæmi nefna
að þegar við systur náðum stúdents-
áfanganum lét amma útskrifa sig fár-
sjúka af sjúkrahúsi til að geta notið
dagsins með okkur.
Margar minningar okkar systra
eru tengdar ömmu. Var það fastur lið-
ur á sunnudögum að heimsækja
ömmu og afa eða að fá þau í heimsókn
til okkar. Ávallt var vel tekið á móti
okkur og ósjaldan fengum við að fara
tvær saman út í sjoppu að kaupa okk-
ur góðgæti. Sátum við svo og horfðum
á Stundina okkar í sjónvarpinu.
Ógleymanleg helgi er þegar við feng-
um að gista hjá ömmu og afa. Var þá
margt til gamans gert og allt látið eft-
ir okkur.
Nú í seinni tíð urðu heimsóknirnar
til ömmu margar þar sem hún dvaldi
á hjúkrunarheimilinu Droplaugar-
stöðum er heilsu hennar fór að hraka.
Kætti það hana mjög þegar skelli-
bjöllurnar komu í heimsókn, því þótt
vel hafi verið hugsað um hana á
hjúkrunarheimilinu beið hún ávallt
eftir heimsóknum sinna nánustu. Oft
fórum við systur með ömmu til læknis
og erum við nú þakklátar fyrir þær
dýrmætu stundir og það traust sem
hún sýndi okkur því hún vildi helst af
öllum hafa okkur með sér í slíkum
ferðum.
Við þökkum ástkærri ömmu okkar
fyrir allt sem hún var okkur og fyrir
allar þær stundir sem við nutum ná-
vistar hennar. Munum við sakna þess
að heimsækja ömmu ekki framvegis
því hún skipaði stóran sess í okkar lífi.
Í bænum okkar biðjum við góðan Guð
að blessa hana og varðveita og minn-
ing hennar lifir áfram með okkur
Alda Hrönn og Bára Hildur.
Fallegan vordag hinn áttunda apríl
kvaddi amma Lína þennan heim.
Ekki hefði verið hægt að velja sér
betra ferðaveður til langferða. Við
kveikjum á kerti og óskum ömmu
Línu góðrar ferðar. Við vitum að nú
líður henni miklu betur og að vel verð-
ur tekið á móti henni. Hugur okkar er
fullur af þakklæti fyrir að hafa fengið
að kynnast henni og hafa hana svo
lengi hjá okkur.
Það hefur verið fastur punktur í til-
verunni að keyra til ömmu og syngja
á leiðinni: „Amma Lína, hvar ertu?“
Alltaf urðu miklir fagnaðarfundir
þrátt fyrir misgóða heilsu síðustu
mánuðina.
Hún hafði einstakt lag á að laða að
sér langömmubörnin og var alltaf
glöð þegar nýtt barn bættist í hópinn.
Við minnumst samverustunda frá
barnæsku. Á Svarfhóli í Svínadal, þar
sem þau bjuggu amma og afi, var allt-
af gaman að fá að vera eftir á sunnu-
dögum og fá að dvelja yfir vikuna. Á
daginn lékum við okkur krakkarnir
en þegar farið var að sofa þá kenndi
amma Lína barnabænirnar á kodd-
anum.
Árin liðu, þau fluttu suður og sett-
ust að í Vesturberginu. Alltaf fannst
ömmu gaman að fara um gamla dal-
inn sinn í góðu veðri. Hún var stolt af
sinni gömlu sveit og átti þaðan góðar
minningar og góða nágranna.
Við þökkum ömmu Línu fyrir sam-
fylgdina á okkar hjartans stundum,
við brúðkaup okkar og skírnir barna
okkar. Stundum kom hún meira af
vilja en mætti til að geta verið með
okkur. Við þökkum fyrir allar stundir
og eigum eftir að sakna þeirra. Við
kveðjum ömmu og biðjum Guð að
geyma hana.
Salvör Lilja, Björn Þorri,
Anna Lilja, Guðfinna Kristín og
Magnús Þorri.
Elsku amma, okkur langar að
kveðja þig með þessum erindum:
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Takk fyrir allar góðu stundirnar.
Guð veri með þér.
Sóley, Kristjana, Grétar
og Áslaug.
Fyrstu verulegu kynni mín af Línu
Arngrímsdóttur móðursystur minni
voru sumarið 1959, en þá var ég í
fyrsta sinn heilt sumar í sveit á Svarf-
hóli í Svínadal hjá Línu og manni
hennar Sveini Hjálmarssyni. Þetta
var aðeins upphafið að miklum og
góðum kynnum við hana og fjölskyldu
hennar og fyrsta sumarið af mörgum
sem ég var í sveit hjá Línu og Sveini.
Þó ekki sé langt síðan að ég var í
sveitinni hjá Línu hefur margt
breyst. Á þeim tíma var erfitt að búa í
sveit, tæknin var af skornum
skammti og enn þörf fyrir margar
hendur ungs fólks til að vinna hin
ýmsu störf. Mannmargt heimili þýddi
vitaskuld mikið álag á húsmóðurina
sem sá að miklu leyti ein um heim-
ilisreksturinn og sérstaklega átti það
við um sumartímann.
Mér er enn í minni þegar við
krakkarnir komum fylktu liði af tún-
unum með hrífurnar um öxl þegar að
ilminn af nýbökuðum kleinum lagði á
móti okkur. Það var tilbreyting þeirra
daga. Og þess gætti Lína vel að við
fengjum gott atlæti í hvívetna. Fórn-
fýsi hennar var einstök og oft var
vinnudagurinn hennar langur en
aldrei var kvartað. Aðalatriðið var að
allir væru ánægðir. Og að sá ánægj-
unni í kringum sig var kannski sér-
grein Línu. Það ríkti allsstaðar
ánægja.
En eins og hjá öllum var líka mót-
læti í lífinu. Lína missti eitt barn við
fæðingu, en það var tvíburasystir
Þórðar, hennar yngsta barns. Þórð
missti hún síðar þegar hann lést á
besta aldri frá eiginkonu og þrem
mannvænlegum börnum.
Lína og Sveinn seldu jörð sína árið
1976 og fluttust til Reykjavíkur þar
sem þau bjuggu í Vesturbergi 48.
Sveinn lést árið 1985.
Lína er búin að vera heilsulítil í
mörg ár, en þó að líkaminn gæfi sig þá
gerði hugurinn það ekki. Hún var allt-
af jákvæð og aldrei sveik minnið.
Minni hennar var slíkt að ég undraði
mig oft, því þó að stundum liði langur
tími frá því að ég síðast heimsótti
hana, virtist henni allt sem talað var
síðast í fersku minni.
Eftir Línu og Svein er stór hópur
sterkra og heilsteyptra afkomenda
sem hafa komist vel til manns.
Ég vildi með þessum fátæklegu
orðum minnast mikillar persónu.
Ég votta börnum, barnabörnum og
öðrum aðstandendum samúð mína.
Dagþór Haraldsson.
LÍNA
ARNGRÍMSDÓTTIR $ &
A 1
6 + 2)8 $G 8
,+.)<=
2& -+*"
&
#. + #
!+ ))
&" + )) !+ )2 #
7)+ + # '+) "%))
/+ +/ /+ +/+ +/
)2.+/ H)).-+ #.* (
2 &
&
6
282<L
2& -+*"
"
() 4 / 5 ,
'3 "##
. 4)
/ )2.+/
/+ +/ #./+ +/+ +/ (
2
&
&
1 %A1
+),M<
+ +/H
3
6+ )2 2)#
. 6+ )2# ./- .! " ))
6 6+ )2# -+)2 ))
!.6+ )2# &"
+ ))
#./+ +/ (
6) 7 8 8))
)
$1
0
1 :..)<<
2& (
)+2 (
9 5 5 7
8 474 8) &
&
) )
(!1
6 + )6+ +
)928
"+/# .L
'D+*#.(
&"(-))
)2
(-# ! +$+ "+!..2 )))
% " -)) + (.*+ #
/+ +/ #./+ +/+ +/ (