Morgunblaðið - 18.04.2001, Síða 82
FÓLK Í FRÉTTUM
82 MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4543-3700-0029-4648
4543-3700-0036-1934
4543-3700-0034-8865
4507-4100-0006-6325
4548-9000-0056-2480
4543-3700-0027-8278
4507-4500-0028-0625
4507-2800-0004-9377
4507-4500-0030-3021
! "#
"$% &'
()( )$$$
Sjáðu alla fegurðina
á mbl.is!
Í þættinum Fólk - með Sigríði Arnardóttur á
SkjáEinum á miðvikudagskvöldum kl. 21 verða
stúlkurnar sem keppa kynntar sérstaklega.
Ungfrú Reykjavík 2001 verður haldin 18. apríl 2001 á Broadway
Plötusnúður: Páll Óskar
Kynnir: Bjarni Ólafur Guðmundsson
Stílisti: Lovísa Guðmundsdóttir
Keppendur sýna föt frá Collections, og koma fram á baðfötum frá
Speedo og á síðkjólum.
Matseðill:
Drottningarsalat með léttreyktum kalkún, rækjum og fetaosti.
Grísalundir með döðlufyllingu og púrtvínssósu, bornar fram með ristuðu
grænmeti og fondant-kartöflum.
Eftirréttaþrenna (ís, terta, ávextir)
Verð:
Kr. 5.500 – matur og skemmtun
Kr. 2.500 – skemmtun
Húsið opnað kl. 20 fyrir matargesti (matur kl. 21)
Húsið opnað kl. 22 e.d.
Fegurðarsamkeppni
Íslands á mbl.is
Á Fólkinu á mbl.is eru upplýsingar um Fegurðarsam-
keppni Íslands. Ungfrú Reykjavík verður valin 18. apríl
nk. og 23. maí verður Ungfrú Ísland krýnd með viðhöfn
á Broadway.
Í fyrsta skipti verður mbl.is-stúlkan valin og geta allir
þeir sem fara inn á Fólkið tekið þátt í valinu. Stúlkurnar
sem hljóta titilinn fá vegleg verðlaun; gjafakörfu frá
Clarins og Compaq Ipaq lófatölvu fyrir athafnakonuna
frá Tæknivali.
ALMENNUR
DANSLEIKUR
með Geirmundi Valtýssyni
í Ásgarði, Glæsibæ,
í kvöld, miðvikudagskvöldið
18. apríl
Húsið opnað kl. 22.00.
Allir velkomnir!
Í TILEFNI af sumarkomu ætlar
Bravó, í samvinnu við Thomsen og
Radíó-X, að halda brjálað sumarteiti
í kvöld á Kaffi Thomsen.
Uppi og niðri og
allt um kring
Á efri hæð koma tvær hljómsveitir
fram. Úlpa frá kl. 23 og Gus Gus frá
miðnætti. Sá þaulreyndi plötusnúður
Árni Einar tekur síðan við. Á neðri
hæð sér hins vegar Mosi um fjörið.
Magnús Leifur Sveinsson gítar-
leikari og söngvari Úlpu segir þá
félaga vera að kynna efni af fyrstu
plötu þeirra sem þeir eru að taka upp
þessa dagana, en kemur út í júlí eða
ágúst. En von er á smáskífu á næstu
vikum.
„Við erum reyndar líka að kynna
efni af næstu plötu eftir það því það
eru glæný lög sem komast ekki á
þessa plötu.
Þetta er einsog við erum, við semj-
um mikið, og erum kannski komnir
aðeins á undan okkur,“ segir Magn-
ús Leifur.
Plata og tónleikar
eru tvennt ólíkt
Með honum í sveitinni eru Har-
aldur Örn Sturluson trommuleikari,
Aron Vikar Arngrímsson bassaleik-
ari og Bjarni Guðmann gítarleikari,
og eru þeir sammála Magnúsi Leifi
um að tónleikar og plata eru ekki það
sama hjá Úlpu, heldur tvennt ólíkt.
„Við munum ekki reyna að apa
upp eftir plötunni og stemmningin
verður allt öðruvísi. Við höfum tekið
upp nokkur lög í æfingahúsnæðinu
okkar sem hafa verið leikin í óháðu
þáttum, Sýrðum rjóma og Karate.“
Tónleikarnir verða aðallega til-
einkaðir sumrinu og fylgjandi betri
tíð með blóm í haga sem kemur á
miðnætti. „Við lofum einstökum tón-
leikum. Það verður hörku keyrsla í
kvöld og vínkynning og fleira gaman
í gangi.“
Úlpa og Gus Gus á Thomsen
Bravó boðar
betri tíð
Haraldur Örn, Aron Vikar, Magnús Leifur og Bjarni
lofa keyrslu í kvöld.
Meat Loaf: Til heljar og aftur
Meat Loaf: To Hell and Back
T ó n l i s t a r m y n d
Leikstjórn: Jim McBride. Handrit:
Ron McGee. Aðalhlutverk: W. Earl
Brown, Zachary Throne. (90 mín.)
Bandaríkin 2000. Sam-myndbönd.
Öllum leyfð.
ÁRIÐ 1989 var frumsýnd athygl-
isverð tónlistarmynd, Great Balls of
Fire, um nokkur ár í stormasamri
ævi rokkarans
óstýriláta Jerry
Lee Lewis. Leik-
stjóri myndarinn-
ar, Jim McBride,
var þá sjóðheitur,
hafði gert Breath-
less og The Big
Easy, óvenjulega
krimma eftir leik-
stjóra sem hafði
náð að skapa sér sinn eigin stíl. En
svo hvarf maðurinn sporlaust og ku
hafa unnið fyrir sér með gerð sjón-
varpsmynda. Myndin um lífshlaup
Kjöthleifs er sjónvarpsmynd og jú
önnur tónlistarmyndin hans.
Í kjölfar velgengni þáttanna Be-
hind the Music hefur orðið til hálf-
gert æði fyrir ævisögum tónlistar-
manna. Skiljanlegt því lífshlaup
þeirra er nær undantekningarlaust
langtum meira spennandi en hefð-
bundið lífshlaup. Kynlíf, eiturlyf,
rokk og ról og þar fram eftir göt-
unum. Og samkvæmt mynd þessari
um Meat Loaf virðist líf hans hafa
verið sápuóperu líkast, endalausar
hæðir og lægðir, ekkert þar á milli.
McBride framreiðir af fag-
mennsku, heldur manni við efnið og
ekki spillir að Brown er glettilega
trúverðugur sem Meat Loaf. Niður-
staðan er því ágætis afþreying, sér-
staklega fyrir unnendur Meat Loafs
og gömlu sígildu leðurblökuplötunn-
ar.
Skarphéðinn Guðmundsson
MYNDBÖND
Lífshlaup
Kjöt-
hleifs
ATVINNA
mbl.is