Morgunblaðið - 05.05.2001, Side 24

Morgunblaðið - 05.05.2001, Side 24
VIÐSKIPTI 24 LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ EKKI verður annað séð en eina leið- in fyrir Ísland til að tengjast evrunni sé með því að ganga í Evrópusam- bandið, að sögn Más Guðmundsson- ar, aðalhagfræðings Seðlabanka Ís- lands. Hann segir að einhliða tenging krónunnar við evruna sé óraunhæfur kostur. Arnar Jónsson, sérfræðingur í gjaldeyrisviðskiptum hjá Landsbanka Íslands, tekur í sama streng. Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, segir að þegar til lengri tíma sé litið kunni að vera mun betri kostur að taka upp evruna hér á landi en að halda uppi eigin peningastefnu og eigin gjaldmiðli. Már, Arnar og Þórður voru spurð- ir um hugsanlega tengingu íslensku krónunnar við evruna eða upptöku hennar í tilefni af ummælum for- svarsmanna nokkurra stórra fyrir- tækja í Morgunblaðinu í gær þar sem það sjónarmið kom fram að Ís- land yrði að komast inn í stærra myntsvæði. Miklar sveiflur á gengi krónunnar gætu dregið úr trú er- lendra fjárfesta á fjárfestingum í ís- lenskum markaði og vektu jafnvel spurningar um stöðu krónunnar sem sjálfstæðs gjaldmiðils. Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar hf., sagði til að mynda að ekki væri hægt að vera með gjald- miðil sem enginn vildi. Þá kom fram í máli Guðmundar Haukssonar, sparisjóðsstjóra SPRON, að að hans mati væri tími íslensku krónunnar liðinn. Samtök iðnaðarins sendu í gær frá sér ályktun þar sem segir að upptaka evrunnar myndi leiða til varanlegri stöðugleika fyrir íslensk fyrirtæki og stuðla að hagvexti og háum lífskjörum í landinu. Einhliða tenging yrði strax rofin Már Guðmundsson segir að ein- hliða tenging íslensku krónunnar við evruna myndi engu breyta. Hún yrði strax rofin á gjaldeyrismörk- uðum. Hann segir að einhliða teng- ing sé ákveðið form á einhliða fast- gengisstefnu. Eftir sem áður yrði hér gjaldeyrismarkaður og Seðla- bankinn myndi nota gjaldeyrisforða sinn og vexti til að verja gengið. Með þessu væri komið upp sama kerfi og farið var úr í mars síðastliðnum, nema hvað staðan væri verri, því þá væri reynt að halda genginu mun fastar en áður. Reynslan að undan- förnu hafi sýnt að fyrir litlar og miðlungsstórar þjóðir sé mjög erfitt í hinum nýja heimi frjálsra fjár- magnsflutninga að vera með ein- hliða fastgengisstefnu. Til viðbótar kæmi sá ókostur, við að krónan væri tengd evrunni, að þá væri krónan tengd við það sem sé einungis um þriðjungur af utanríkisviðskiptum Íslands, svo lengi sem breska pund- ið sé ekki komið þarna inn. Már segir að Suðaustur-Asíulönd hafi tekið upp einhliða tengingu gagnvart Bandaríkjadal á sínum tíma. Það hafi verið einn af þeim þáttum sem hafi stuðlað að fjár- málakreppunni í þeim heimshluta fyrir nokkr- um árum. Einhliða teng- ing íslensku krónunnar við evruna væri því glap- ræði. „Það sem kemur hins vegar til greina, og er allt annað mál, er að fara alla leið og leggja íslenku myntina af,“ segir Már. „Þá þyrfti ekki gjaldeyris- markað hér, evran yrði í umferð og evrópski Seðlabankinn myndi þá stýra peningastefnunni. Hættan á gjaldeyriskreppu væri endanlega horfin. Þetta er skref sem ég sé ekki að hægt sé að taka nema með því að ganga í Evrópusambandið,“ segir Már. Engin einföld lausn til á því vandamáli sem upp hefur komið Arnar Jónsson segir enga ein- falda lausn á því vandamáli sem upp hafi komið á gjaldeyrismarkaði að undanförnu. Einhliða tenging krón- unnar við evruna sé ekki talin trú- verðug því fleiri en Íslendingar þyrftu þá að styðja hana. Það sé því ekki raunhæfur kostur. Eini raun- hæfi kosturinn sé að taka upp evr- una, en það sé ekki einfalt mál þar sem Ísland sé ekki í Evrópusam- bandinu, sem sé fyrst og fremst póli- tísk ákvörðun. „Skoðun forsvarsmanna íslenskra fyrirtækja hefur grundvallaráhrif á þróunina. Ef skoðun þeirra er að verða sú sem fram kom í viðtali við nokkra þeirra í Morgunblaðinu í gær, þá eykst eflaust þrýstingurinn í þessum efnum.“ Til lengri tíma litið kann að vera betri kostur að tengjast evrunni Þórður Friðjónsson segir að spurningin um tengingu krónunnar við evruna eða upptöku hennar sé í raun tvíþætt. Annars vegar þegar horft sé til allra næstu missera og ára og hins vegar þegar horft sé til lengri tíma. Hann segir að þegar horft sé til nokkuð margra ára sýn- ist honum að margt bendi til þess að það kunni að vera erfitt að halda krónunni sem sjálfstæðum gjaldmiðli. Þess vegna þurfi að skoða mjög vandlega hvort það sé skynsamlegt að taka upp evruna með einhverjum hætti. Til þess þurfi að hugsa til þess að lít- ið gjaldmiðlasvæði eins og krónan sé og í nútímafjármálaumhverfi sé ekki víst að það sé hagfellt fyrir þjóðfé- lagið að viðhalda sjálfstæðri mynt. Þetta liggi í hlutarins eðli vegna þró- unar á alþjóðamörkuðum og megi í því sambandi benda á að mjög mörg lönd sem hafi veika gjaldmiðla horfi mjög til þess að tengjast með ein- hverjum hætti sterkari gjaldmiðla- svæðum. Í því efni sé augljóst að gjaldmiðlarnir þrír evra, dollar og jen verði ráðandi og aðrir gjaldmiðl- ar við hliðina á þeim muni eiga erfitt uppdráttar þegar til lengri tíma sé litið. „Þegar litið er til skamms tíma er ekki svo einfalt mál að tengjast evr- unni. Við erum ekki aðilar að Evr- ópusambandinu og þyrftum þess vegna að leita sérstakra samninga um upptöku evrunnar. Slíkar samn- ingaumleitanir yrðu erfiðar á meðan evrusvæðið hefur ekki fengið á sig meiri frambúðarmynd en nú er. Hætt er við því að evrópski seðla- bankinn myndi telja stækkun Evr- ópusambandsins og það að snúa sér að þeim löndum sem hafa ekki tekið upp evruna brýnari verkefni. Norð- menn hafa velt þessu fyrir sér og leitað eftir samningum af einhverju tagi. Þó að það sé tæknilega hægt að taka upp evruna með annaðhvort myntráði einhvers konar eða með því að lögleiða evruna með einhliða hætti, þá eru vandamál fólgin í því. Við hefðum engar upplýsingar eða nokkra möguleika á að koma okkar sjónarmiðum á framfæri hvað varð- ar peningastefnuna. Niðurstaðan er því sú að í bráð er varla hægt að sjá að það séu raun- hæfir möguleikar á að tengjast evr- unni með einhverjum þeim hætti sem viðhlítandi væri fyrir okkur. Hins vegar þurfum við að horfa til þess að til lengri tíma kann þetta að vera mun betri kostur en að halda uppi eigin peningastefnu og eigin gjaldmiðli.“ Að sögn Þórðar þarf að að gera ákveðnar ráðstafanir í þá veruna að styrkja gjaldeyrisforðann verulega, til að hægt sé að nota hann til að bregðast við einhverjum sveiflum, ef ákvörðun verður tekin um að halda krónunni. Sömuleiðis er mikilvægt að þjóðin greiði niður skuldir í meiri mæli en gert hafi verið. Með því að renna styrkari stoð- um undir fjárhagslegt sjálfstæði þjóðarinnar myndi gjald- miðillinn styrkjast. Samtök iðnaðarins segja upptöku evrunnar leiða til stöðugleika Samtök iðnaðarins sendu í gær frá sér ályktun um efnahagsmál. Þar segir að gengi krónunnar hafi fallið hratt. Áhrifa rúmlega 30% lækkunar á gengisvísitölu krónunn- ar á einu ári sé þegar farið að gæta í hærra verðlagi og muni gera það í auknum mæli á komandi mánuðum, jafnvel þótt lækkun krónunnar gangi að einhverju leyti til baka. „Nú ríður á að launin haldist stöð- ug til þess að ekki komi til víxlverk- unar launa og verðlags sem leiðir til stighækkandi verðbólgu. Þá er mik- ilvægt að líta á þessa þróun sem eðlilega aðlögun krónunnar og inn- lends verðlags að miklum viðskipta- halla. Því er brýnt að bregðast ekki við falli krónunnar með því að hækka vexti sem eru enn allt of háir miðað við þarfir atvinnulífsins. Hægst hefur þegar á vexti inn- lendrar eftirspurnar og það hefur leitt til minnkandi innflutnings sem gefur fyrirheit um að draga muni úr viðskiptahallanum og að þrýstingur- inn á krónuna taki enda. Þessi mikla sveifla í gengi krónunnar og hækk- un á verðlagi er erfið fyrir íslensk fyrirtæki í alþjóðlegri samkeppni um aðföng, fjárfestingu og markaði og leiðir berlega í ljós hvað íslenska krónan er dýru verði keypt. Upptaka evrunnar myndi leiða til varanlegri stöðugleika í samkeppn- isgrundvelli íslenskra fyrirtækja og treysta forsendur þess að hagvöxtur og lífskjör í landinu haldist há og sjálfbær,“ segir í ályktun Samtaka iðnaðarins. Einhliða tenging við evru er óraunhæf Morgunblaðið/Árni Sæberg Evrópski Seðlabankinn myndi stýra peninga- stefnunni Augljóst að evra, dollar og jen verða ráðandi gjaldmiðlar NORSKI seðlabankinn tók upp verðbólgumarkmið í peninga- málastefnu í mars á þessu ári eins og Seðlabanki Íslands. Sér- fræðingar eru sammála um að það að taka upp verðbólgumark- mið sé nauðsynleg afleiðing af stefnu ríkisstjórnarinnar um að tengja hluta af olíusjóðnum við fjárlögin. Norska ríkisstjórnin beindi þeim tilmælum til Seðlabanka Noregs að setja verðbólgu- markmið framar gengismark- miðum í mars sl. í tengslum við þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að nota vextina af olíusjóðnum svokallaða. Markmið Seðlabanka Noregs er að verðbólga í Noregi verði 2,5% með prósentustigs fráviki í hvora átt og er það hluti af lang- tímamarkmiði fyrir tímabilið 2002–2005. Fyrra markmið seðlabankans var að halda geng- inu stöðugu gagnvart evrunni. 2,5% verðbólga er ívið hærra markmið en er í Svíþjóð og á evrusvæðinu en í samræmi við markmið t.d. í Bretlandi. Ný stefna í peningamálum og fjár- lagamálefnum er góður grund- völlur fyrir stöðugleika í geng- ismálum, litla verðbólgu og stöðuga þróun í framleiðslu og atvinnumálum, að því er komið hefur fram í máli norska fjár- málaráðherrans, Karl Eirik Schjøtt-Pedersen. Markmið seðlabankans um verðbólgu var áður 2%, í samræmi við mark- mið Seðlabanka Evrópu. Vaxta- stigið hefur haldist óbreytt og ekki komið til neinna vaxta- lækkana á þessu ári. Sérfræð- ingar búast við vaxtalækkun í fyrsta lagi í október. Aukin notkun olíupeninganna á árunum 2002–2005 veldur því að Seðlabanki Noregs verður að taka tillit til fleiri þátta í pen- ingamálastefnu sinni. Bankinn býst við að verðbólgan verði nær 2% árið 2003 og hafi í för með sér lægri vexti. Verðbólgu- markmið afleiðing af tengingu við olíusjóðinn Ósló. Morgunblaðið. VERÐBÓLGUSPÁR þriggja fjár- málastofnana gera ráð fyrir að vísi- tala neysluverðs hækki um 1–1,1% milli apríl og maí. Íslandsbanki-FBA spáir að verð- bólgan hækki um 1,0%, aðallega vegna gengislækkunar íslensku krónunnar. Lækkun krónunnar veld- ur hækkunum á mat og drykkjarvör- um og liðurinn ferðir og flutningar hækkar töluvert vegna hækkana á nýjum bílum og bensíni. Ef spá ÍSFBA rætist mun vísitala neyslu- verðs hafa hækkað um 3,1% á fyrstu fjórum mánuðum ársins sem er mesta hækkun síðan 1990 á sama tímabili. Kaupþing spáir 1,1% hækkun á neysluverðsvísitölunni. Veldur þar mestu 7% hækkun á bensínverði en það hefur áhrif til 0,3% hækkunar neysluverðsvísitölunnar. Lækkun á gengi krónunnar veldur einnig verð- hækkunum á neysluvöru eins og mat- vöru, fatnaði og bílum. Þá hafa ferða- skrifstofur hækkað verð á ferðum til útlanda og í verðbólguspá Kaupþings segir að gengisþróunin að undan- förnu skili sér af fullum þunga út í verðlagið nú og á næstu mánuðum. Greiningardeild Búnaðarbankans spáir 1,0–1,1% hækkun neysluverðs- vísitölu milli apríl og maí. Helstu or- sakavaldarnir eru hækkun á nýjum bílum, hækkun á bensíni og hækkun á fasteignaverði sem veldur 0,1– 0,15% hækkun á vísitölunni. Auk þessa er gert ráð fyrir að almenn hækkun verði vegna hækkunar á gengisvísitölu krónunnar sem skilar sér í hærra innflutningsverði hér- lendis. Gangi spáin eftir verður verð- bólga á ársgrundvelli 5,1–5,2%. Hagstofa Íslands birtir vísitöluna föstudaginn 11. maí. Spáð um 1% hækkun verðbólgu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.