Morgunblaðið - 05.05.2001, Page 30
LISTIR
30 LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJULISTAHÁTÍÐ 2001 verð-
ur haldin í Hallgrímskirkju í
Reykjavík dagana 24. maí til 4. júní.
Yfirskrift hátíðarinnar er „… og
múrar falla …“ Með því er lögð
áhersla á hlutverk listarinnar í því
að fella ósýnilega múra á vettvangi
trúar og kirkju. Fjölbreytni, ný-
sköpun og gæði eru einkunnarorð
hátíðarinnar.
Kirkjulistahátíð er haldin annað-
hvert ár á móti Listahátíð í Reykja-
vík og er hátíðin í ár sú áttunda.
Af dagskráratriðum má nefna
Uppstigningaróratóríuna Lobet
Gott in seinen Reichen eftir J.S.
Bach, í flutningi Mótettukórs Hall-
grímskirkju, Kammersveit Hall-
grímskirkju og fjóra einsöngvarar.
Óratórían Jósúa eftir Händel verður
flutt 27. maí af Schola cantorum,
einsöngvurum og barokkhljómsveit
og Nancy Argenta sópransöngkonu,
sem kölluð er „helsti Händel-sópran
okkar tíma“, Gunnari Guðbjörnssyni
tenór, Matthew White kontratenór
frá Kanada og Magnúsi Baldvins-
syni bassa. Das Orchester damals
und heute frá Köln í Þýskalandi
mun halda tónleika í kirkjunni 29.
maí. Einleikari á orgelið er James
David Christie, einleikari á viola d́a-
more og fiðlu er Antoinette Lohman,
en hljómsveitarstjóri er Michael
Willens. Tónleikar með Gillian Weir
orgelleikara verða 31. maí og söng-
hópurinn Nordic Voices frá Osló
flytur efnisskrá kórtónlistar.
Kirkjan vettvangur list-
sköpunar unga fólksins
Listavaka ungs fólks í listum
verður 2. júní, þar sem kirkjan verð-
ur vettvangur listsköpunar og list-
flutnings þeirra í tónlist, myndlist,
listdansi og óhefðbundnari greinum
listanna frá kl. 18 fram til kl. 8 að
morgni hvítasunnudags.
Mótettukór Hallgrímskirkju lýk-
ur hátíðinni með tónleikum með efn-
isskrá kórverka eftir þekkt tónskáld
tuttugustu aldar.
Þá verða á hátíðinni myndlistar-
sýningar, ráðstefna um kirkjuarki-
tektúr og auk þess verður helgihald
Hallgrímskirkju með hátíðarsniði.
Stjórn Kirkjulistahátíðar 2001
skipa Kristján Valur Ingólfsson for-
maður, Axel Hallkell Jóhannesson
leikmyndahönnuður, Guðrún Nordal
bókmenntafræðingur, Hörður Ás-
kelsson organisti og dr. Sigurður
Árni Þórðarson. Framkvæmdastjóri
er Inga Rós Ingólfsdóttir sellóleik-
ari. Listrænn stjórnandi er Hörður
Áskelsson organisti Hallgrímskirkju
í Reykjavík.
Áttunda Kirkjulistahátíðin haldin í Hallgrímskirkju
Listin fellir ósýnilega múra
Gillian Weir er meðal listamanna sem fram koma á Kirkjulistahátíð.
ÚLFHILDUR
Guðmundsdóttir
lýkur burtfarar-
prófi í klassískum
píanóleik frá FÍH
með tónleikum í
sal FÍH, Rauða-
gerði 27, í dag,
laugardag, kl. 17.
Kennari hennar
er Svana Víkings-
dóttir.
Úlfhildur leikur ýmis verk eftir
Bach, Moszkowski, Beethoven,
Schubert og Debussy. Einnig kemur
fram á tónleikunum Þóranna Dögg
Björnsdóttir nemandi á píanó.
Burtfarar-
próf frá
FÍH
Úlfhildur
Guðmundsdóttir
ROPI er yfirskrift myndlist-
arsýningar sem opnuð verður
Nýlistasafninu í dag, laugar-
dag, kl.16.
Í SÚM sal og á palli er
Anna Líndal að velta fyrir sér
gjaldföllnu gildismati og not-
ar til þess myndband, ljós-
myndir, mublur, þræði, hand-
verk og skrautmuni.
Í Gryfjunni sýnir Ólöf Nor-
dal skúlptúr og gagnvirk
myndverk.
Sýningin er tileinkuð minn-
ingu forustufjárins á Hrafn-
kelsstöðum í Hrunamanna-
hreppi, Eitli, Rósu og Sokka,
og hjarða þeirra.
Í Forsal sýnir Valka (Val-
borg S. Ingólfsdóttir) leir-
styttur og vatnslitamyndir.
Þar kennir ýmissa grasa en
félagsleg samvirkni manna og
dýra hefur oft orðið að um-
fjöllunarefni í verkum henn-
ar.
Sýningin er opin alla daga
nema mánudaga, kl. 12-17.
Sýningin stendur til 3.júní.
Ropi
í Nýlista-
safninu
KÓR Átthaga-
félags Stranda-
manna í Reykja-
vík heldur tón-
leika í Víðistaða-
kirkju í Hafn-
arfirði,
sunnudag, kl. 17.
Kórinn flytur
innlend og erlend
lög. Á seinni
hluta tónleikanna
tekur ástin völdin en þá flytur Berg-
þór Pálsson með kórnum lagasyrpu
úr óperettunni Brosandi land, eftir
Léhar, í þýðingu Guðmundar Inga
Kristjánssonar. Auk þess syngur
Bergþór nokkur einsöngslög.
Stjórnandi kórsins er Þóra Vigdís
Guðmundsdóttir og undirleikari á
tónleikunum er Jón Sigurðsson.
Bergþór
Pálsson
Ástin í Víði-
staðakirkju
TÓNLEIKAR kóra Grafarvogs-
kirkju verða í kirkjunni á
morgun, sunnudag, kl. 17. Kór-
arnir eru Kór Grafarvogs-
kirkju, undir stjórn Harðar
Bragasonar, Krakkakór og
Barna- og unglingakór, undir
stjórn Oddnýjar Þorsteins-
dóttur.
Einsöngvarar eru Anna Sig-
ríður Helgadóttir, Jóhann Frið-
geir Valdimarsson og Sigurður
Skagfjörð og er söngur þeirra
framlag í orgelsjóð kirkjunnar.
Aðgangseyrir er kr. 500 og
rennur í orgelsjóðinn.
Tónleikar
til styrktar
orgelsjóði
Kór Grafarvogskirkju ásamt prestum sóknarinnar.
LISTAMENNIRNIR Cecilia Zwick
Nash, Poul Halberg og Steen E.
Koerner mynda einstakt tríó. Þau
ferðast um í heimi ljóða Jørgens
Nash og gefa þeim líf með hljóðum,
söng, orðum, tónlist og dansi. Í dag
kl. 17.00 flytja þau dagskrá í Nor-
ræna húsinu, sem sérstaklega var
sett saman fyrir heimsókn þeirra til
Íslands.
Danska leikkonan Cecilia Zwick
Nash kom til Íslands haustið 2000 og
tók þátt í dagskrá í Listasafni
Reykjavíkur í tilefni af sýningu for-
eldra hennar þar. Þá óskuðu margir
meðal áheyrenda eftir að hún héldi
tónleika hér á landi.
Cecilia Zwick Nash og tónlistar-
maðurinn Poul Halberg flytja vísna-
og leikhústónlist, ljóð og hljóðljóð,
eftir föður leikkonunnar, Jørgen
Nash, ásamt ýmsu öðru að ekta
dönskum hætti. Með þeim verður
Steen E. Koerner dansari og dans-
höfundur með meiru.
Cecilia Zwick Nash er fædd árið
1968, dóttir listamannanna Lis Zwick
og Jørgen Nash. Hún lærði leiklist í
Århus Teater og sló í gegn í útskrift-
arsýningunni „Oda, kona Satans“. Sú
sýning var síðar sett upp í Konung-
lega leikhúsinu í Kaupmannahöfn.
Cecilia hefur leikið í Det Danske Tea-
ter, Århus Teater, Folketeatret og
Betty Nansen. Frá 1993 hefur hún
leikið í Konunglega leikhúsinu. Cec-
ilia hefur auk þess leikið í kvikmynd-
um og sjónvarpi, m.a. hlutverk Lauru
í sjónvarpsþáttunum „Bryggaren“
sem sýndir voru í sjónvarpi hér á
landi ekki alls fyrir löngu.
Poul Halberg er fæddur í Kaup-
mannahöfn 1959. Hann er fjölhæfur
tónlistarmaður, leikur á gítar, semur
og syngur. Hann hefur starfað með
mörgum þekktum tónlistarmönnum
síðustu 25 árin og má þar m.a. nefna
Lis Sørensen, Sanne Salomonsen og
Flemming „Bamse“ Jørgensen. Poul
Halberg hefur einnig leikið með vin-
sælum hljómsveitum en á þeim lista
eru nöfn á borð við Halberg Larsen
& Ray Dee Ohh, Moonjam og Dream
Machine. Poul Halberg samdi tónlist-
ina sem flutt verður á tónleikunum.
Steen E. Koerner er fæddur 1968.
Hann er sjálfmenntaður „electric-
boogie“ dansari og danshöfundur og
hefur unnið að ýmsum verkefnum á
hip hop sviðinu, jafnt í Danmörku
sem á alþjóðlegum vettvangi. Hann
er listrænn stjórnandi danshópsins
Out of Control og hefur tekið þátt í að
skapa margar hip hop sýningar fyrir
leikhús. Á tónleikunum mun Steen
túlka ljóð Jørgens Nash og tónlist
Pouls Halbergs með tæknilegum lát-
bragsleik.
Ljóð með
hljóðum, söng
og dansi
Dönsku listamennirnir Cecilia Zwick Nash, Poul Halberg og Steen E.
Koerner verða með dagskrá í Norræna húsinu í dag kl. 17.
HLÍF Ásgrímsdóttir opnar
myndlistarsýninguna Innnivera í
Gallerí Sævars Karls í dag, laug-
ardag, kl. 14. Á sýningunni verða
vatnslitmyndir, ljósmyndir og
skúlptúr.
Hlíf hefur verið afkastamikill
listamaður frá því að hún lauk
framhaldsnámi við Bildkonstaka-
demin í Helsinki 1996, bæði haldið
sýningar og stundað kennslu við
Listaháskólann og Myndlistaskól-
ann í Reykjavík.
Þetta er fimmta einkasýning
Hlífar, hún hefur tekið þátt í
mörgum samsýningum bæði hér
heima og erlendis frá árinu 1992.
Innivera
hjá Sævari
Karli
TANNLÆKNAFÉLAG Íslands af-
henti nýlega Margréti Hallgrímsdótt-
ur þjóðminjaverði f.h. Nesstofusafns,
styrk að upphæð ein milljón króna.
Tilefnið er að Nesstofusafn hefur tek-
ið við minjasafni félagsins til eignar,
skráningar og geymslu.
Fyrir nokkrum árum fór minja-
safnsnefnd TFÍ þess á leit við þjóð-
minjavörð að Nesstofusafn tæki við
minjasafni félagsins. Á síðasta ári af-
henti Læknafélag Íslands safninu
húsnæðið að Bygggörðum 7 á Sel-
tjarnarnesi. Framkvæmdum vegna
endurbóta á húsnæðinu er nú að ljúka
og verða þar geymslur og starfsað-
staða fyrir safnið. Munir minjasafns
TFÍ hafa þegar verið fluttir í þetta
húsnæði. Þar með skapast aðstaða til
að skrá munina en það verk verður
unnið af minjasafnsnefnd TFÍ.
Við sama tækifæri og styrkurinn var
afhentur þjóðminjaverði var stéttar-
félagstal Tannlæknafélagsins opnað
með formlegum hætti á netinu. Slóð
tannlæknatalsins er www.tannsi.is.
Lækningaminjasafnið í Nesstofu
er opið frá 15. maí –15. september á
þriðjudögum, fimmtudögum, laugar-
dögum og sunnudögum kl. 13-17.
Styrkur til Nesstofu