Morgunblaðið - 05.05.2001, Page 32
NEYTENDUR
32 LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞEGAR verð á ferskum jarðarberj-
um var kannað í Reykjavík sl. mið-
vikudagsmorgun kom í ljós að kíló-
verðið var frá 1.145 krónum og upp í
1.745 krónur. Í ljós hefur nú komið
að álagning smásala þennan morgun
var frá 68,4–157%.
Þegar kílóverð á jarðarberjum í
Reykjavík var borið saman við verð
í Ósló og Kaupmannahöfn kom í
ljós að verðið var miklu hærra í
Reykjavík en í hinum borgun-
um. Munaði allt að 241% á verði
jarðarberja í Kaupmannahöfn
og Reykjavík þegar miðað var
við hæsta verð í báðum borgum.
Engir tollar eru lagðir á innflutt
jarðarber hérlendis.
Þegar verð á jarðarberjum í
lágvöruverðsverslununum Rema
1000 í Ósló og Bónusi var skoðað sl.
miðvikudag kom í ljós að jarðarber
voru 223% dýrari í Bónus.
Guðmundur Marteinsson fram-
kvæmdastjóri Bónuss segist kaupa
jarðarber í gegnum Ávaxtahúsið.
Hann segist hljóta að setja spurn-
ingamerki við þau jarðarber sem
Ávaxtahúsið sé að bjóða Bónus til
sölu í ljósi þessa mikla verðmunar
sem fram kom í könnuninni. „Bónus
mun nú kanna hvort Ávaxtahúsið sé
að leita allra hugsanlegra leiða til að
fá ódýrustu og bestu berin til lands-
ins.“
Bónus hafði 16,9%
upp úr sölu jarðarberja
Guðmundur segir að rýrnun á
jarðarberjum nemi 20–25% og þegar
upp er staðið sé Bónus að hafa 16,9%
upp úr sölu á jarðarberjum fyrstu
fjóra mánuði ársins og þá sé rýrn-
unin ekki talin með. Hann segir að á
tímabili í febrúar og fram í apríl hafi
hann jafnvel selt jarðarber undir
kostnaðarverði til að mæta sam-
keppni. Þegar könnunin var gerð á
hádegi sl. miðvikudag kostaði 200 g
bakki af jarðarberjum
229 krónur með virðisaukaskatti í
Bónus en innkaupsverðið var að
sögn Guð-
mundar 136
krónur með
virðisauka-
skatti sem þýðir þá 68,4% álagningu.
Síðar þann sama dag lækkaði verð
á jarðarberjum í Bónus niður í 189
krónur og verðið á 200 gramma
bökkum með jarðarberjum hefur
lækkað enn frekar því á fimmtudag
fór það niður í 159 krónur. Aðrar
verslanir Baugs, eins og Nýkaup, fá
hollensku jarðarberin frá Kings á
sama innkaupsverði og Bónus.
Þegar jarðarber voru keypt í Ný-
kaupi sl. miðvikudagsmorgun kost-
aði 200 g bakki 349 krónur. Sé inn-
kaupsverðið 136 krónur með
virðisaukaskatti nemur álagning
Nýkaups 157%.
Að sögn Árna Ingvarssonar kaup-
manns í Nýkaupi fylgir kostnaðar-
verð á grænmeti og ávöxtum heims-
markaðsverði sem þýðir að í sumum
tilfellum er verið að borga með vör-
unni og í öðrum tilfellum er álagning
hærri. Verð segir hann að þurfi því
að skoða í stærra samhengi en í
örfáa daga.
Hann segir að kostnaðarverð á
jarðarberjum hafi farið lækkandi
undanfarna daga og það endur-
speglist í smásöluverði. Fyrir há-
degi sl. miðvikudag lækkuðu berin
úr 349 krónum í 299 krónur í Ný-
kaupi og á fimmtudag í 199 krónur.
Verðið lækkar
á næstunni
Ávaxtahúsið flytur jarðarber til
landsins fyrir verslanir Baugs.
Einar Þór Sverrisson
framkvæmdastjóri
Ávaxtahússins segir
að jarðarberin sem
þeir séu að flytja
inn séu ræktuð í
gróðurhúsum í
Hollandi og
uppskeran ný.
„Við erum ólíkt
Dönum og Norðmönn-
um að flytja berin til
landsins með flugi og flutnings-
kostnaðurinn getur stundum numið
allt að 25% af innkaupsverðinu.“
Þegar Einar er spurður hvers-
vegna Ávaxtahúsið flytji ekki inn
jarðarber frá Spáni þar sem þau
virðast vera miklu ódýrari segir
hann að ástæðan sé einföld, berin
séu ekki nógu góð þegar þau komi
hingað til lands.
„Mat okkar er að spönsk jarðar-
ber, eftir flutning frá Spáni og til
Belgíu og þaðan með flugi heim,
standist ekki þau gæði sem við vilj-
um bjóða.“
Fyrirtækið Bananar/Ágæti hefur
að undanförnu einnig verið að flytja
jarðarber til landsins frá Hollandi.
Að sögn Mána Ásgeirssonar sölu-
stjóra hjá Bönunum/Ágæti fluttu
þeir inn spönsk jarðarber fram að
páskum og þá segir hann að kílóið
hafi sums staðar verið selt á um þús-
und krónur.
Hann segir að gæði spánskra
jarðarberja þegar komið er fram að
mánaðarmótum apríl-maí séu ekki
boðleg og því hafi þeir farið að leita á
hollenska markaði. Máni bendir
ennfremur á að innan tíðar fari úti-
ræktuð ber að koma á markað í Hol-
landi og þá lækki verðið en fram til
þessa hafa ber verið til sölu sem
ræktuð eru í gróðurhúsum þar í
landi.
Matthías Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri Nóatúns segist
treysta því að birgjar þeirra hafi
verið að bjóða þeim besta fáanlegt
verð fyrir hollensk jarðarber en 200
g bakki af jarðarberjum kostaði það
sama og í Nýkaupi sl. miðvikudag
349 krónur.
Matthías segir að Nóatún hafi
fram að páskum reynt að selja
spönsk jarðarber sem hann segir að
hafi ekki staðist gæðakröfur versl-
unarinnar.
Þegar Matthías er spurður
hversu há álagning Nóatúns sé á
jarðarberjum segir hann að miðað
við rýrnun sé ekki hægt að tala um
háa álagningu. Enn fremur bendir
hann á að jarðarber séu mikil sam-
keppnisvara.
Innflytjendur telja gæði spánskra jarðarberja lítil
Morgunblaðið/Golli
Álagning smásala var
á bilinu 68,4–157%
Í GÆR var opnað nýtt bakarí,
Kökumeistarinn, í Nýkaupi í
Kringlunni. Það er Jón Rúnar
Arelíusarson sem rekur bakaríið
en hann á einnig bakarí með sama
heiti í Hafnarfirði.
Jón segist leggja upp úr því að
bjóða viðskiptavinum Nýkaups
brauð sem eru bökuð eins og í
gamla daga.
Deigið er lagað sólarhring áður
en brauðin eru bökuð til að þau fái
nægan tíma til að brjóta sig. Hann
notar ekki hvítan sykur í bakst-
urinn, heldur maltósu og ekki
smjör og olíur.
Gríska sveitabrauðið
vinsælast
Jón segir að vinsælasta brauðið
sitt sé gríska sveitabrauðið en það
er sykurlaust súrdeigsbrauð.
Ávallt verður nýbakað brauð á boð-
stólum en flest verður bakað á
staðnum í Nýkaupi.
Auk brauða hyggst Jón vera
með hefðbundið bakkelsi svo og
veislutertur og eftirrétti. „Fólk á
að geta komið við og náð sér í tertu
fyrir saumaklúbbinn eða eftirrétt
fyrir matarborðið. Við verðum svo
með sérþjónustu fyrir þá sem vant-
ar tertu fyrir hátíðleg tækifæri
eins og skírn, fermingu eða brúð-
kaup.“
Jón var Íslandsmeistari í köku-
skreytingum fyrir nokkrum árum
en hann fór í framhaldsnám í köku-
gerð til Danmerkur. Hann hefur
keppt með kokkalandsliðinu er-
lendis og tekið þátt í ýmsum öðrum
einstaklingskeppnum og dæmt
sjálfur.
Pastasalat eða
fyllt horn í hádeginu
Í hádeginu mun Kökumeistarinn
bjóða upp á ýmsa rétti eins og t.d.
pastasalöt, franska eggjaköku,
frönsk, fyllt horn og ýmsa aðra
smárétti. Árni Ingvarsson, kaup-
maður í Nýkaupi, segir að með
þessu nýja bakaríi í versluninni
verði aukið við vöruvalið til muna
og ýmsar spennandi nýjungar á
boðstólum. Hann bendir ennfrem-
ur á að ekki sé lengur um sjálfs-
afgreiðslu að ræða heldur fái fólk
fulla þjónustu í þessu nýja bakaríi.
Kökumeistarinn í Nýkaupi
Brauð bökuð á
gamla mátann
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bakaríið Kökumeistarinn var opnað í Nýkaupi í Kringlunni í gær. Það
er Jón Rúnar Arelíusarson sem rekur bakaríið.
Í GÆR var verslunin Iðunn opnuð
í Kringlunni þar sem verslunin
Knickerbox var áður til húsa.
Verslunin selur kvenfatnað og
leggur mesta áherslu á þýsk
merki eins og Gardeur og Seiden
Sticker en er einnig með hollensk
og ítölsk vörumerki. Eigendur
verslunarinnar eru Njáll Þor-
steinsson, Lovísa Marinósdóttir og
Helgi Njálsson.
Verslunin Iðunn er einnig til
húsa á Skerjabraut 1, Seltjarn-
arnesi.
Verslunin Iðunn
í Kringluna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Helgi Njálsson, einn þriggja eigenda verslunarinnar Iðunnar, sem
opnuð var í gær á annarri hæð í Kringlunni.
Gullsmiðir