Morgunblaðið - 12.05.2001, Síða 13

Morgunblaðið - 12.05.2001, Síða 13
ÞEIR voru niðursokknir í vinnu sína, starfsmenn Gatnamálastjóra í Að- alstræti á dögunum þegar ljósmyndari Morgunblaðs- ins átti leið um miðbæinn, en eins og vegfarendur hafa tekið eftir eru fram- kvæmdir í Kvosinni nú í fullum gangi. Á meðan á þeim stendur þurfa vegfar- endur að fara ýmsar krókaleiðir til að komast leiðar sinnar þar sem götur og gangstéttir hafa víða verið grafnar í sundur. Framkvæmdirnar ganga vel samkvæmt upplýsingum frá Gatnamálastjóra. Skipulag göngu- og akst- ursleiða verður svipað og áður en gatan fær nýjan svip, meðal annars munu tré lífga upp á umhverfið. Gert er ráð fyrir að fram- kvæmdum í Aðal- og Aust- urstræti verði að mestu lokið fyrir 17. júní. Borg- arbúar ættu því að geta gengið óhindrað um miðbæinn á þjóðhátíð- ardaginn á þessum götum, sem eins og mannfólkið verða eflaust komnar í sitt fínasta púss. Morgunblaðið/Jim Smart Urð og grjót í Aðal- stræti Miðborgin HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2001 13 KRINGLUMÝRARBRAUT frá Sæbraut að Miklubraut er sá þjóðvegur á höfuðborgar- svæðinu sem hefur hæsta slysatíðni en flest óhöpp verða á Fjarðarbraut, frá Engidal um miðbæ að Reykjanesbraut. Af gatna- mótum á höfuðborgarsvæðinu eru það gatnamót Suður- landsvegar og Breiðholts- brautar við Rauðavatn sem eru með hæstu slysatíðnina en óhappatíðni er hæst á gatnamótum Reykjanes- brautar og Hafnarfjarðarveg- ar við Kaplakrika. Þetta er meðal niðurstaðna í nýrri úttekt á slysastöðum á þjóðvegum sem Línuhönnun vann fyrir Vegagerðina. Forsendur úttektarinnar Í úttektinni eru helstu gatnamót og stofnvegir á höf- uðborgarsvæðinu kannaðir með tilliti til óhappa- og slysa- tíðni en undir fyrri skilgrein- inguna falla öll óhöpp, slys og dauðsföll. Þau óhöpp sem hafa meiðsl á fólki í för með sér eru hins vegar kölluð slys. Skilgreint er net svokallaðra hnútpunkta og leggja í stofn- brautakerfi höfuðborgar- svæðisins og samanstendur það af 34 leggjum og 21 hnút- punkti. Hnútpunktur er það kallað þar sem mætast tveir eða fleiri „meiriháttar“ leggir eða þjóðvegir stofnbrauta- kerfisins. Þetta þýðir að ekki eru öll gatnamót á höfuðborg- arsvæðinu tekin fyrir heldur eingöngu þau sem mest mæð- ir á í umferðarkerfinu. Þegar reiknuð eru út óhöpp og slys fyrir leggi er tekið til- lit til umferðarmagns og segja tölurnar til um óhöpp og slys á hverja milljón ekna kíló- metra. Fyrir hnútpunkta er sömuleiðis tekið tillit til um- ferðarmagns með því að gefa upp fjölda óhappa og slysa á hver milljón ökutæki sem aka um gatnamótin. Þannig geta umferðarlitlar götur og gatnamót haft svipaða slysa- og óhappatíðni og þar sem umferð er mun meiri. Misjafnt er milli sveitar- félaganna síðan hvenær tölur eru, sem unnið er upp úr. Al- mennt er miðað við umferð- artölur frá árinu 1997 þar sem heildstæðasta gagnasafnið fyrir sveitarfélögin er að finna fyrir þetta ár. Slysatölur úr Reykjavík eru frá árunum 1994–1998, úr Kópavogi frá árunum 1992–1997, úr Garða- bæ frá árunum 1992–1995 og úr Hafnarfirði frá árunum 1992–1996. Vegakaflar Þegar meðfylgjandi töflur eru skoðaðar sést að nyrsti hluti Kringlumýrarbrautar er með áberandi hæstu slysa- tíðni. Í úttektinni kemur fram að ástæður þessa séu meðal annars mikil umferð og mikill umferðarhraði ásamt fjölda óvarinna vinstribeygju- strauma. Þessi atriði leggist á eitt og því sé mikið um slys miðað við umferðarmagn á þessum vegkafla. Í skýrslunni segir ennfremur að ekki komi á óvart að Miklabrautin sé með háa slysatíðni enda sé hún gífurlega umferðarþung með mörgum litlum og stórum gatnamótum. Þá er það sagt stinga í stúf að Sæbrautin meðfram Sund- unum komist ofarlega á blað en talið er líklegt að hár um- ferðarhraði og útafkeyrslur ásamt fjölda gatnamóta með óvörðum vinstribeygjum hafi þar sitt að segja. Þá komi gangandi vegfarendur þar við sögu. Sé litið á óhappatíðnina kemur í ljós að Fjarðarbraut sem er gamli þjóðvegurinn um miðbæ Hafnarfjarðar er þar efst á blaði. Í skýrslunni kemur fram að aragrúi gatna- móta er á veginum auk þess sem útsýni og rými er tak- markað á köflum. Nyrsti hluti Kringlumýrarbrautarinnar kemur fast á eftir en þar sker- ast margar umferðarmiklar götur og mikið er um óvarðar vinstri beygjur. Gatnamót Það eru gatnamót Suður- landsvegar og Breiðholts- brautar sem eru afgerandi verst en þar er um að ræða eins konar hlið inn í borgina af Suðurlandi. Í skýrslunni segir að ökumenn sem koma þaðan séu kannski ekki farnir að átta sig á að komið sé inn í borgarumferðina og það valdi hlutfallslega mörgum slysum. Gatnamót Miklubrautar, Vesturlandsvegar, Sæbrautar og Reykjanesbrautar er nú búið að laga þar sem slaufur voru kláraðar fyrir fáeinum árum og af- og aðreinakerfið bætt til muna. Ef litið er á óhappatíðnina eru gatnamót Reykjanes- brautar og Hafnarfjarðarveg- ar við Kaplakrika í efsta sæti. Í úttektinni segir að þetta komi á óvart þar sem um er að ræða ljósastýrð T-gatnamót sem samkvæmt kenningunni ættu að vera nokkuð örugg. Flest óhöpp sem tengjast gatnamótum Kringlumýrar- brautar og Bústaðavegar verða skv. skýrslunni á brúnni yfir Kringlumýrar- braut eða við hana enda sé þar mikil umferð og allnokkur þrengsli. Auk þess sé yfirsýn þeirra er upp á brúna koma takmörkuð og úrbóta því þörf. Hægt að fækka slysum mikið Í niðurstöðum skýrslunnar segir að til að árangur náist í fækkun slysa á þjóðvegum á höfðuborgarsvæðinu þurfi Vegagerðin og sveitarfélögin að vinna náið saman til að tryggja sem bestan árangur. Þá segir: „Það er ljóst að mik- ið má gera til að fækka slys- um með minniháttar aðgerð- um sem þurfa ekki að kosta mikið.“ Bent er á úrræði á borð við lagfæringar á að- og afrein- um, uppsetningu girðinga til að hindra gangandi umferð og að loka gatnamótum eða tak- marka beygjustrauma. Eins er bent á endurskoðun still- inga umferðarljósa og að vanda skilti og yfirborðs- merkingar. Skýrsla Vegagerðarinnar um slysa- og óhappastaði á Stór-Reykjavíkursvæðinu Úrbætur þurfa ekki að kosta mikið                     !    "#   $% &     '&( )   !*& +') ,)' -                                                 !         " . . . . . . . . . .  .  .         / / / / 0 / / / / / / " 1)2 3& 4(552 3& 4!6 ' *&  #      $#  %   #  &  '' #        (    " & ,)7 '&( ) /&8 &0     79)&'   7+') ,)7"# 78'1%')     7      !  7  7"  79)&' +') ,)' 7" & ,)' 8'1%') 7! % & /7 5  0 8'1%') 7 '&( ) 7:  ' 8'1%')  7"'%  8'1%')  7$% &   /;)  0 .  . . . . . . . . . . .  . . .         " 1)2 3& 4(552 3& / / / / / / / / 0 / 0 / 4!6 ' *&  #      $#  %   )       &  '' #        ( Höfuðborgarsvæðið AÐSTÖÐU til hjólabretta- iðkunar verður komið upp til bráðabirgða á íþrótta- svæði HK við Snælands- skóla samkvæmt sam- þykkt bæjarráðs Kópa- vogs í vikunni. Að sögn bæjarstjóra má búast við að hjólabrettamenn geti farið að nýta sér aðstöð- una þegar í sumar. Eins og Morgunblaðið hefur greint frá hefur tólf ára gamall hjólabretta- strákur, Daníel Bergmann Sigurðsson, unnið að því að yfirvöld í Kópavogi kæmu upp slíkri aðstöðu í bænum og óskaði hann eftir því að aðstaðan yrði fyrir hendi í sumar. Nú virðist honum hafa orðið að ósk sinni því eftir um- fjöllun erindis hans í nefndum og ráðum bæj- arins hefur bæjarráð sam- þykkt að setja upp að- stöðu á fyrrnefndum stað til bráðabirgða auk þess sem leitað verður eftir svæði undir framtíðarað- stöðu fyrir hjólabretti í Kópavogi. Verða tæknilegir ráðgjafar Að sögn Sigurðar Geir- dal bæjarstjóra verður þegar hafist handa við að koma aðstöðunni upp. „Hvort það verður eftir eina, tvær eða þrjár vikur veit ég ekki nákvæmlega en þetta á að verða tilbúið í sumar,“ segir hann. Hann segist ekki geta svarað því nákvæmlega hvað felist í þeirri aðstöðu sem til stendur að setja upp enda segist hann ekki vera besti maðurinn til að svara því. „Þessir strákar verða náttúrulega tækni- legir ráðgjafar okkar. Við fáum að vísu upplýsingar og myndir að utan en hjólabrettamennirnir sjálf- ir verða að vera okkur innan handar með þetta,“ segir hann. Sigurður segir framtak Daníels vera gott dæmi um hvernig taka eigi á málum sem þessum. „Ég fer fram á það að svona erindi séu tekin fyrir, al- veg sama hvort þau koma frá Rotaryklúbbnum eða hjólabrettastrákum. Er- indið fer á dagskrá, það er tekið formlega fyrir í öll- um nefndum og afgreitt þannig. Það er mikilvægt að á þessum aldri fái krakkar trú á að ef menn reki erindi sín formlega og skikkanlega sé tekið eitt- hvert mark á þeim.“ Hjólabretta- aðstaða í Snæ- landsskóla Kópavogur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.