Morgunblaðið - 12.05.2001, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 12.05.2001, Blaðsíða 57
GREINARGERÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2001 57 MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi greinargerð frá Heimi Má Péturssyni, upplýsingafulltrúa Flugmálastjórnar Íslands: „Fimmtudaginn 3. maí flutti Karl Th. Birgisson blaðamaður pistil í þættinum Spegillinn á Rás 2. Nokkr- ar alvarlegar rangfærslur voru hafð- ar í frammi í pistlinum sem nauðsyn- legt er að leiðrétta. Karl segir að eftirlit Flugmálastjórnar í Vest- mannaeyjum yfir verslunarmanna- helgina síðustu hafi ekki verið eins og það „átti að vera“. Eftirlit Flug- malastjórnar í Vestmannaeyjum var nákvæmlega eins og það átti að vera samkvæmt áætlun. Eftirlitið fólst fyrst og fremst í því að koma í veg fyrir að farþegar væru á flughlaði að óþörfu og kæmu ekki nálægt hreyfl- um í gangi á leið inn eða út úr flug- vélum. En umferðin um flugvöllinn er mjög mikil um þessa helgi, sér- staklega á föstudeginum og mánu- deginum. Þá var haft eftirlit með því að fólk án réttinda væri ekki að fljúga farþegaflug. Karl fullyrðir að „mikilvæg við- haldsgögn hafi vantað“ þegar TF- GTI, flugvélin sem fórst í Skerjafirði 7. ágúst 2000, var skráð til flutninga- flugs hjá Flugmálastjórn Íslands. Flugmálastjórn hefur í sérstakri greinargerð gert grein fyrir þeim vinnubrögðum sem beitt er við skráningu flugvéla og hvaða gögn þarf að leggja fram. Öll gögn sem eiga að fylgja umsóknum sem þess- um voru til staðar við skráningu flugvélarinnar. Í pistlinum er sagt að Flugmála- stjórn hafi „neitað að svipta félagið (Leiguflugi Ísleifs Ottesen) rekstr- arleyfum“. Eftir slysið í Skerjafirði var gerð ítarleg úttekt á rekstri flug- félagsins sem lauk í desember. Eftir að skýrsla RNF kom út gerði Flug- málastjórn aftur sérstaka úttekt á flugfélaginu. Í þeim úttektum kom ekkert fram sem gaf Flugmálastjórn lagalega forsendu til að svipta flug- félagið flugrekstrarleyfinu. Flug- málastjórn óskaði eftir lögreglu- rannsókn á fullyrðingum sem fram komu í fjölmiðlum um að flogið hafi verið með of marga farþega í einni ferð hjá Leiguflugi Ísleifs Ottesen á mánudegi síðustu verlsunarmanna- helgar. Verði sú lögreglurannsókn að dómsmáli gæti það leitt til svipt- ingar leyfis í refsiskyni. Það er nauð- synlegt að fram komi að stofnunin hefur ekki heimildir til að svipta flugfélög tímabundið flugrekstrar- leyfi eða beita sektum í refsingar- skyni. Hins vegar getur Flugmála- stjórn kyrrsett flugvélar tímabundið leiði skoðun í ljós að viðhaldi þeirra er alvarlega ábótavant, ákvæðum um reglubundnar skoðanir hefur ekki verið framfylgt, eða ef flugmað- ur eða flugmenn flugvéla hafa ekki tilskilin réttindi. Þá getur Flugmála- stjórn svipt flugrekanda rekstrar- leyfi tímabundið þar til hann hefur gert nauðsynlegar endurbætur á framkomnum athugasemdum. Upplýsingagjöf Flugmálastjórnar Karl Th. Birgisson segir að flug- málastjóri hafi „dregið í efa gildi gagna sem aðstandendur hinna látnu þurftu sjálfir að hafa fyrir að afla frá bandarískum stofnunum“. Aðstandendurnir hafa ekki lagt nein gögn fyrir Flugmálastjórn og þar af leiðandi hefur stofnunin ekki lagt mat á slík gögn. Þeir hafa hins vegar óskað eftir ýmsum gögnum frá Flug- málastjórn og fengið þau gögn sem til eru. Flugmálastjórn varð við ósk- um ættingjanna um að fá að hlusta á samskipti flugmanns TF-GTI við flugturninn í Vestmannaeyjum, Reykjavík aðflug og flugturninn í Reykjavík. Þá fengu þeir einnig að skoða ratsjármyndir af fluginu. En áður hafði Flugmálastjórn birt upp- skrifað afrit af samskiptunum í greinargerð sem dreift var til fjöl- miðla, sem Félag íslenskra flugum- ferðarstjóra hefur nýlega kært flug- málastjóra fyrir að birta. Það er því ljóst að stofnunin hefur gengið eins langt og framast er unnt í upplýs- ingagjöf sinni til ættingjanna og al- mennings. Í pistlinum segir Karl Th.: „…þá fabúlerar flugmálastjóri um evrópsk flugöryggissamtök og reglur sem hvergi eru til.“ Þarna er s.s. fullyrt að flugmálastjóri ljúgi því að til séu samtökin Joint Aviation Authorities (JAA) og þar sem þessi samtök séu ekki til, séu flugöryggisreglur þeirra heldur ekki til. En flugmálastjóri sit- ur í stjórn þessara samtaka. Í beinni og vondri þýðingu myndu þessi sam- tök getað heitið „Sameiginlegu flug- málayfirvöldin“ á íslensku. Þessi samtök voru stofnuð árið 1990 af flugmálastjórnum ríkja í Evrópu en fullgild aðildarríki eru nú 22. Meg- intilgangur samtakanna er að semja samhæfðar reglur sem leiða til auk- ins flugöryggis svo og að fylgjast með hvernig til tekst að koma þeim á, þannig að um gagnkvæma viður- kenningu ríkjanna geti verið að ræða. Eins og Íslendinga er siður var því haft í huga að hafa nafngift- ina á íslensku gagnsæja, svo nafnið segði sem mest um tilgang þessarar samvinnu. Ísland í fararbroddi Frá því JAA var stofnað hefur verið unnið að því að móta reglur sem byggjast á lögmálum gæða- stjórnunar fyrir viðhaldsstöðvar, flugrekendur og flugskóla. Reglurn- ar varðandi viðhaldsstöðvarnar kall- ast JAR-145 og voru þær innleiddar að fullu á Íslandi árið 1994. Regl- urnar fyrir flugreksturinn kallast JAR-OPS 1 og voru teknar upp fyrir stærri flugrekendur á Íslandi árið 1998. Reglur fyrir flugskóla og þjálf- un flugmanna nefnast JAR-FCL og þeim var komið á hér á miðju ári 1999. Undanfarin tæp tvö ár hefur verið unnið að því að móta nýjar flugrekstrarhandbækur fyrir smærri flugrekendur. Íslendingar eru í hópi þeirra JAA-ríkja sem lengst eru komin í gildistöku regln- anna og munu JAR-OPS 1-reglurnar taka gildi fyrir smærri flugrekendur í október. Mörg ríki í Evrópu hafa hins vegar ekki enn komið þessum reglum í framkvæmd hjá stærri flugrekendum, hvað þá þeim smærri. Ástæðurnar fyrir þessu eru að þessar reglur, hvort sem um er að ræða viðhaldsstöðvar eða flugrek- endur, kalla á nýjan hugsunarhátt og breytt vinnubrögð á mjög mörg- um sviðum. Semja þarf nýjar flug- rekstrarhandbækur upp á hundruð síðna og menn verða að tileinka sér þær. Það hefur því ekkert upp á sig að innleiða þessar reglur með til- skipun. Það verður að undirbúa gild- istökuna mjög vel, svo reglurnar nái tilgangi sínum og vinna með öllum þeim sem málið snertir. Ég er í daglegum samskiptum við menn sem sækja fundi hjá Flugör- yggissamtökum Evrópu og hef enga ástæðu til að trúa því ekki að sam- tökin séu til og að þau sinni þeim við- fangsefnum sem að framan greinir. Í pistli sínum sakar Karl marga menn um lygi og segir beinlínis: „…yfir- menn flugöryggismála hafa verið staðnir að því að ljúga út og suður.“ Hriktir nú í glerhúsum. Yfirmenn Flugmálastjórnar hafa veitt allar þær upplýsingar sem óskað hefur verið eftir og svarað spurningum fjölmiðlafólks og annarra eftir bestu getu. Rangt að ekkert hafi verið gert Undir lok pistils síns segir Karl Th.: „Nöturlegasta niðurstaðan er þó samt sú, að það hefur ekkert gerzt í þessu máli og þessu kerfi sem tryggir að það sem gerðist um síð- ustu verslunarmannahelgi gerist ekki aftur um þá næstu.“ Flugmála- stjórn hefur ekki ástæðu til að rengja niðurstöður rannsóknar- nefndar flugslysa um orsakir flug- slyssins í Skerjafirði, þar sem orsök- in er rakin til skorts á eldsneyti til hreyfils flugvélarinnar. Það nötur- legasta sem það hafði í för með sér var að flugvélin fórst og fimm manns létust, þeirra á meðal flugmaðurinn. Nú stendur yfir lögreglurannsókn á málinu og rétt að bíða eftir henni. Það er líka fullyrðing út í loftið að Flugmálastjórn hafi ekkert gert til að efla eftirlit á hátíðum eins og Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Karl Th. hefur ekki spurst fyrir um það atriði hjá stofnuninni. Það rétta er að unnið er að tillögum þar að lút- andi sem verða kynntar þegar þær liggja fyrir. Enda hafa yfirmenn Flugmálastjórnar marglýst því yfir að tillit verði tekið til tillagna Rann- sóknarnefndar flugslysa í öryggis- átt. Það er hins vegar ljóst að eft- irlitið mun ekki felast í því að yfirheyra hvern einasta flugmann um það hvort hann hafi nægjanlegt bensín á flugvélinni til þeirra ferðar sem hann er að leggja upp í. Rangfærsla um framkvæmdastjóra Karl Th. heldur því fram í pistli sínum að Pétur K. Maack, fram- kvæmdastjóri flugöryggissviðs, sé í fullu starfi annars staðar, eða eins og pistlahöfundur sagði orðrétt: „...sá náungi er líka í fullu starfi annars staðar.“ Hið rétta í þessu máli er að Pétur er lánaður með sérstökum samningi frá Háskóla Íslands til Flugmálastjórnar og hann vinnur fulla vinnu hjá stofnuninni. Hann kennir hins vegar námskeið í gæða- stjórnun á haustönn í Háskóla Ís- lands, tvisvar í viku, tvo tíma í senn. Í lokin fullyrðir Karl Th. að Pétur standist hvorki menntunar- né þekk- ingarkröfur til starfsins. Pétur er einn færasti sérfræðingur á Íslandi í gæðastjórnun og það er sóst eftir sérþekkingu hans út fyrir landstein- ana. Það var óskað eftir honum í starfið vegna færni og þekkingar hans, enda er unnið ötullega að því að koma upp gæðastjórnunarkerfi hjá Flugmálastjórn. Lýkur hér yfirferð yfir rang- færslur í umræddum pistli. Flugör- yggi hefur verið og verður alltaf í fyrirrúmi hjá Flugmálastjórn Ís- lands. Umræða og gagnrýni á störf hennar sem sett er fram af yfirvegun og þekkingu er til þess fallin að auka flugöryggi í landinu. Allar reglur í fluginu byggjast á þeirri hugsun að um samvinnu sé að ræða og að traust ríki á milli fólks. Það er erfitt að öðlast flugréttindi, flugrekstrar- réttindi og réttindi til viðhalds flug- véla og það er engin tilviljun. Kröf- urnar eru miklar og síðan er það skoðað með úttektum hvort aðilar eru traustsins verðir. Alveg eins og vönduð umræða um flugöryggismál stuðlar að auknu ör- yggi, grefur illa upplýst og stóryrt umræða undan flugöryggi og þar með tiltrú almennings. Það er alvar- legt mál. Innan skamms er von á skýrslu frá Alþjóðaflugmálastofnun- inni (IACO) um úttekt sem hún gerði á starfsemi Flugmálastjórnar Íslands í september 2000. Sú skýrsla verður gerð opinber þegar hún ligg- ur fyrir.“ VÖNDUÐ OG ÓVÖNDUÐ UMRÆÐA UM FLUGÖRYGGI Morgunblaðið/Pétur P. Johnsson ÞINGVALLAHLAUPIÐ fer fram í 5 skipti, laugardaginn 12. maí. Þingvallavatnshlaupið er lengsta skipulagða hóphlaup landsins. Frá upphafi hefur hlaupið verið lengt á hverju ári og nú er fyrirhugað að hlaupa viðstöðulaust samtals 68,5 km. Lagt verður af stað frá Nes- búð við Nesjavallavirkjun kl. 8.45 um morguninn og hlaupið sem leið liggur réttsælis um- hverfis Þingvallavatn og suður fyrir Úlfljótsvatn í samræmi við tíma og vegalengdaáætlun sem er að finna á vefnum (http://www.raunvis.hi.is/~ag- ust/thvhl01.htm). Nokkrir hlauparar hyggjast hlaupa alla leiðina, en auk þess munu aðr- ir sem þess óska slást í hópinn og hlaupa hluta leiðarinnar að eigin vali. Bílar sem kunna að verða skildir eftir á hlaupaleið- inni verða sóttir í lok hlaups- ins. Hlaupinu lýkur við Nesbúð þar sem unnt verður að fá veitingar. Álfur SÁÁ mun fylgja hlaupurunum. Þingvalla- hlaupið fer fram í dag INNLENT KIWANISKLÚBBAR í Garðabæ, Hafnarfirði og Kópa- vogi gangast fyrir skemmtun og dansleik fatlaðra búsettra í bæjarfélögunum í Kirkjulundi, safnaðarheimili Vídalínskirkju, sunnudaginn 13. maí og hefst skemmtunin kl. 17. Á síðasta ári stóðu Kiwanis- klúbbarnir Setberg í Garðabæ og Eldborg, Hraunborg og Sól- borg í Hafnarfirði fyrir sameig- inlegri skemmtun fyrir fatlaða en nú bætast Kiwanisklúbbarn- ir Eldey og Harpa í Kópavogi í hópinn. Áætlað er að skemmt- unina muni sækja um 200 fatl- aðir einstaklingar. Auk Kiwan- isklúbbanna koma margir aðilar að samkomunni, leggja til tónlist og skemmtiefni, veit- ingar, gjafir, aðstöðu og marg- víslegt vinnuframlag. Kiwanis- félagar munu sjá um flutning fatlaðra að og frá samkomustað eftir þörfum. Öllum sem styrkt hafa samkomuna eru færðar bestu þakkir. Skemmtun fyrir fatlaða SMÁRAHLAUPIÐ í Kópavogi fer fram sunnudaginn 13. maí og þá í sjöunda sinn. Hlaupið verður frá Smáraskóla kl. 13, skráning við skólann frá kl. 11. Hlaupnir verða 7 km og 2,5 km. Allir þátttakendur fá verð- launapeninga og boli. Þátttöku- gjald fyrir fullorðna er kr. 800 og fyrir börn kr. 600. Fjölskyld- ur fá 20% afslátt. Sundlaug Kópavogs býður þátttakendum í sund eftir hlaupið. Smárahlaup í Kópavogi VÍKURVAGNAR ehf. eru með kerrusýningu í dag 12. maí frá kl. 10-16 og á morgun 13. maí frá kl. 13-16, á Dvergshöfða. Mikið úrval af kerrum verður á sýn- ingunni ásamt bílum frá Heklu. Víkurvagnar tóku við Brenderup- og Monoflex-um- boðunum síðastliðið sumar. Á sýningunni verður kynningar- verð á Víkurvagnakerrum og kerrum frá Brenderup. Há- landa-kraftakarlarnir verða á staðnum með aflraunir og uppá- komur og veitingar verða í boði Egils Skallagrímssonar. Kerrusýning SMÁAUGLÝSINGAR DULSPEKI Huglækningar/ heilun Sjálfsuppbygging. Samhæfing líkama og sálar. Áran. Fræðslumiðlun. Halla Sigurgeirsdóttir, andlegur læknir. Uppl. í síma 553 8260 f.h. FÉLAGSLÍF Fuglaskoðunarferð laugard. 12. maí kl. 9:00. Fararstjóri Einar Þorleifsson, verð 1.800. Þorlákshöfn — Selvogur sunnud. 13. maí kl. 10:30. Um 4 klst. ganga. Fararstjóri Sig- urður Kristjánsson, verð 1.800. Brottför í báðar ferðir frá BSÍ og Mörkinni 6. Hvítasunna með FÍ: Eiríksjökull 1.—3. júní, Hvannadalshnúkur 1.—4. júní. Pantið strax á skrifstofu, s. 568 2533. Aukaferð á Víkna- slóðir 23. júlí, fólk af biðlistum hafi samband sem fyrst. Auka- trússferð um Laugaveginn í júlí. www.fi.is, textavarp RUV bls. 619. Sunnudagsferð 13. maí kl. 13: Reykjavegurinn, 2. áfangi: Stóra-Sandvík — Eldvörp — útilegumannakofarnir. Aðeins um 3 klst. ganga. Kjörið að byrja þessa 10 ferða raðgöngu. Brottför frá BSÍ, stansað í Hafn- arfirði v. kirkjug. og Fitjum. Verð 1.500 kr. f. félaga og 1.700 kr. f. aðra. Bókið tímanlega í hvíta- sunnuferðir, Jónsmessunæt- urgönguna og sumarleyfis- ferðir. 1. 1.—4/6 Látrabjarg — Rauði- sandur — Sjöundá. 2. 2.—4/6 Goðaland — Básar. 3. 2.—4/6 Fimmvörðuháls — Básar. 4. 2.—4/6 Fimmvörðuháls, skíða- ferð inn á jökla. 5. 22.—24/6 Jónsmessunætur- ganga yfir Fimmvörðuháls. Sjá Á döfinni á heimasíðu: www.utivist.is og textavarp bls. 616.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.