Morgunblaðið - 12.05.2001, Blaðsíða 70
FÓLK Í FRÉTTUM
70 LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Vinsamlegast athugið að gengið er inn frá Austurvelli
á meðan á framkvæmdum í Austurstræti stendur.
Galdradauði
(Death by Magic)
S p e n n u m y n d
Leikstjóri: Lorraine Senna. Aðal-
hlutverk: Charlie O’Connelly og
Peter Firth. Bandaríkin, 2000.
Sam-myndbönd. (90 mín.)
Bönnuð innan 16 ára.
ÉG held að myndaröðin um Há-
lendinginn þar sem Christopher
Lambert fer með titilhlutverkið hafi
fyrir löngu full-
nægt allri þörf fyr-
ir skopstælingu á
upphaflegu hug-
myndinni, svo
slæmar hafa mynd-
irnar verið árum
saman. Eigi að síð-
ur er Galdradauði
auglýst sem alveg
eins og Hálending-
urinn, nokkuð sem í mínu tilfelli
verður að teljast einkar óaðlaðandi
tilhugsun. Áhersla er lögð á brellur
og hraða atburðarás, og það verður
að segjast eins og er að myndin tek-
ur seinni hlutum Hálendingsmynda-
raðarinnar nokkuð fram. En því mið-
ur er það lítið hrós.
Heiða Jóhannsdótt ir
MYNDBÖND
Hálendingurinn
snýr aftur
H
ILMAR Jensson og
Skúli Sverrisson eru
nú á ferð um Evrópu
með kvartett banda-
ríska trommuleikar-
ans Jims Blacks og léku meðal
annars á tónleikum í Barcelona í
síðustu viku. Kvartettinn, sem
Chris Speed er fjórði maður í, er
væntanlegur hingað til lands á
næstunni, en áður en af því verður
hyggjast þeir félagar taka upp
breiðskífu í Þýskalandi.
Jim Black hefur leikið með ýms-
um hljómsveitum og tónlistar-
mönnum á síðustu árum, þar á
meðal Ellery Eskelin, Chris
Speed, Tim Berne, Dave Douglas,
Uri Caine og Pachora, en meðal
félaga hans í þeirri sveit er einmitt
Skúli Sverisson. Á síðasta ári sendi
Black frá sér fyrstu skífuna þar
sem hann er í stýrishúsinu, Alas-
NoAxis, sem Winter & Winter gef-
ur út. Á þeirri plötu leika með hon-
um þeir Hilmar Jensson, Chris
Speed og Skúli Sverrisson en lögin
á plötunni eru öll eftir Black og
samin fyrir þennan hóp hljóðfæra-
leikara. Þeir félagar kynntust fyrst
í Boston fyrir mörgum árum og
fyrir 10 árum tóku þeir upp plötu á
Íslandi sem aldrei hefur komið út.
Tónleikaferðin um Evrópu sem
nú stendur yfir er einmitt farin til
að kynna plötuna, en hún hófst 21.
apríl síðastliðinn og lýkur með
tónleikum í Tjarnabíói 16. maí
næstkomandi en 13. til 15. maí
verður sveitin við upptökur í
München í Þýskalandi á vegum
Winter & Winter.
Ég spjallaði við þá félaga
Jim Black, Chris Speed, Hilm-
ar og Skúla eftir tónleikana
baksviðs og spurði þá hvort
nýja platan yrði mikið frábrugðin
þeirri sem þeir væru að kynna á
tónleikaferðinni. Þeir sögðu að
nýja platan væri rökrétt framhald
af þeirri fyrri nema hvað að á
þeirri nýju væru afmarkaðri lög og
aðalviðbótin meiri elektróník þó að
það sé ekki mikill munur.
Þeir eru búnir að vera á ferð um
Evrópu og hafa haldið tónleika á
Ítalíu, í Hollandi, Þýskalandi,
Austurríki og nú á Spáni og segj-
ast hafa fengið mjög góðar við-
tökur, en næstu tónleik-
ar eru á
Ír-
landi. „Það hefur
gengið mjög vel að spila nýju
tónlistina og lögin hafa breyst eftir
því sem við spilum þau. Vissir kafl-
ar halda sér alltaf en heildin breyt-
ist á hverjum tónleikum fyrir sig,“
segja þeir.
Jim Black lýsir tónlistinni sem
lögum og áferðum. Í nýju tónlist-
inni sé meiri elektróník og fleiri
litir en hann segist ekki alveg bú-
inn að ákveða hvernig nýja platan
verði í heild sinni. „Aðalmunurinn
er að fyrir fyrstu plötuna æfðum
við ekki nema þrisvar til fjórum
sinnum saman og fórum svo beint í
stúdíó en á nýju plötunni verður
meiri tónleikablær, hún er dýpri
og meiri hraði og litur. Nýja plat-
an verður minni tilraunamennska.“
Black segist mjög ánægður með
Evrópuferðina þótt
þetta hafi verið mjög
stíft prógramm. „Þetta
er minn fyrsti túr sem
foringi með mitt eigið
verkefni og mér finnst
allt þetta ferðalag vel
þess virði bara til að
koma Hilmari og Skúla á
svið. Það eru forréttindi
að spila með þeim og þeir
eru sífellt að koma á
óvart.“
Á tónleikunum um kvöld-
ið voru um það bil sjötíu
manns í salnum og góð
stemmning fyrir því sem
fram fór. Fyrst á svið var
spænskt „noise“-tvíeyki sem
var mjög slappt. Jim Black-
kvartettinn tók lög af nýja og
gamla diskinum en á nýju lög-
unum er meiri hávaða-jazz-
„ambient“ blær. Einnig tóku
þeir þrælgott lag sem var í
frumskógarhörðum anda en al-
mennt meiri hraði og meira
„noise“ í nýju lögunum.
Lög og áferðir
Kvartett Jims Blacks, með þá Skúla Sverr-
isson og Hilmar Jensson innan borðs, er á
leið hingað til lands til að ljúka tónleikaferð
um Evrópu. Erna Björt Árnadóttir hitti þá
kvartettfélaga að máli í Barcelona.
Skúli Sverrisson og Hilmar Jensson
í góðri sveiflu.
Ljósmynd/Erna Björt Árnadóttir
UNGLINGAPOPPSTJARNAN
breska, Billie Piper, og fjölmiðla-
gúrúinn Chris Evans eru nú í brúð-
kaupsferð eftir leynilega giftingu
þeirra í Las Vegas á sunnudaginn.
Þau borguðu um 35 þúsund krón-
ur fyrir athöfnina sem tók innan
við stundarfjórðung í Little
Church of the West í Las Vegas,
þar sem m.a Bob Geldof og Paula
Yates gengu í það heilaga, auk
Noel Gallaghers og Meg Math-
ews, og Richard Gere og Cindy
Crawford. Engir fjölskyldu-
meðlimir voru viðstaddir at-
höfnina, einungis nokkrir vin-
ir. Séra James Hamilton
pússaði parið saman og segir það
hafa verið í sæluvímu.
Billie sló fyrst í gegn með laginu
„Because We Want To“ árið 1998
þegar hún var nýorðin 15 ára en
hún var uppgötvuð eftir að hafa
tekið þátt í fyrirsætukeppni.
Billie og Chris byrjuðu saman í
desember þegar hún kom fram í
morgunþættinum hans Virgin Rad-
io til að kynna eina af smáskífum
sínum. Ástin blómstraði strax, Bill-
ie og Chris urðu óaðskiljanleg, og
hefur orðrómurinn um giftingu
verið viðloðandi þau þrátt fyrir
mikinn aldursmun. Fréttin um trú-
lofunina kom svo í apríl en sagt er
að hin átján ára söngkona hafi beð-
ið hins heittelskaða plötusnúðs á 35
ára afmælinu hans í París.
Chris á eitt hjónaband að baki
auk tólf ára dóttur úr öðru sam-
bandi.
Ást í útsendingu
Billie og Chris eru
gengin í það heilaga.
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Oxygen face
Símar 557 2000 og 557 7100
Skemmuvegi 36 Bleik gata
Kópavogi
Þakrennur
og rör
úr Plastisol-
vörðu stáli.
Heildarlausn á
þakrennuvörnum
í mörgum litum.