Morgunblaðið - 12.05.2001, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 12.05.2001, Blaðsíða 16
SUÐURNES 16 LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ KARLAKÓR Keflavíkur heldur tónleika í Ými, húsi Karlakórs Reykjavíkur að Skógarhlíð 20, sunnudaginn 13. maí kl. 17. Efnisskrá tónleikanna er fjöl- breytt. Hún samanstendur af ís- lenskum og erlendum lögum. Má þar nefna hefðbundin karla- kóralög, verk úr óperum, valsa- syrpu og dægurlög. Frumflutt verður lagið Heimkoman eftir Pálmar Þ. Eyjólfsson. Stjórnandi kórsins er Smári Ólason tónlistarmaður. Smári hef- ur starfað sem tónlistakennari og yfirkennari, organisti, kórstjóri og sjálfstætt sem tónvísinda- maður. Undirleik á píanó annast Ester Ólafsdóttir tónlistarmaður. Einsöngvarar með kórnum eru Steinn Erlingsson, Rúnar Guð- mundsson, Smári Ólason og Sveinn Sveinsson. Karlakór Keflavíkur er stofn- aður 1. des 1953. Hann hefur sungið víða um land og einnig í sjö löndum, bæði austan hafs og vestan. Karlakór Keflavíkur syngur í Ými í Reykjavík. Karlakórinn syngur í Ými Keflavík ALÞJÓÐLEGT andrúmsloft ríkir á göngudeildinni við Bláa lónið þessa dagana, en auk Íslendinga eru gestir frá Færeyjum, Noregi, Ítalíu og Dan- mörku í meðferð við Bláa lónið. Samtals er von á 70 erlendum með- ferðargestum í göngudeildina við Bláa lónið á þessu ári og er það tölu- verð aukning frá árinu 2000 þegar fjöldi erlendra meðferðargesta vegna psoriasis og exems var 41 og 35 er- lendir gestir sóttu meðferðina árið 1999, segir í fréttatilkynningu frá Bláa lóninu. 30 Danir væntanlegir Frændur okkar Danir eru meðal þeirra sem nú bjóða meðferð við Bláa lónið sem meðferðarkost og eru um 30 Danir væntanlegir á þessu ári. Frá árinu 1995 og fram til dagsins í dag hafa 24 Danir sótt psoriasis-meðferð við Bláa lónið. Í Danmörku velja einstök ömt hvaða meðferðarkosti sjúklingar sem búsettir eru í viðkomandi amti geta valið um. Í dag hafa 10 ömt af 14 gert íbúum sínum kleift að sækja meðferð við Bláa lónið. Árið 1999 varð Ring- köbing Amt fyrst danskra amta til að bjóða Bláa lónið sem meðferðarval- kost. Færeysk heilbrigðisyfirvöld bjóða meðferð við Bláa lónið sem meðferð- arvalkost fyrir þarlenda psoriasis- sjúklinga. Frá árinu 1995 hafa 115 Færeyingar sótt meðferðina við Bláa lónið og eru 20 sjúklingar væntanleg- ir á þessu ári. Á árinu 2000 sóttu 17 erlendir psoriasis-sjúklingar meðferð við Bláa lónið og eru þeir frá Þýskalandi, Eng- landi, Svíþjóð, Noregi, Finnlandi, Hollandi, Belgíu, Spáni, Portúgal, Ítalíu, Sviss, Austurríki, Póllandi og Bandaríkjunum. Að sjúklingum frá Færeyjum og Danmörku undan- skildum eru um 20 erlendir meðferð- argestir væntanlegir á þessu ári. Göngudeildin við Bláa lónið Von á 70 erlendum meðferðargestum Bláa lónið GERÐAHREPPUR heiðraði í gær Guðna Ingimundarson fyrir störf í þágu byggðarlagsins. Hann hefur meðal annars unnið ötullega að því að koma upp vélasafni Byggðasafns Gerðahrepps. „Við erum hér samankomin til að þakka merkum manni fyrir hans mikla framlag til þessa byggðar- lags. Maðurinn er Guðni Ingimund- arson, eða Guðni á Garðsstöðum eins og hann er kallaður í daglegu tali,“ sagði Sigurður Ingvarsson, oddviti Gerðahrepps, við athöfn í Byggðasafni Gerðahrepps í gær þegar Guðni var heiðraður. Var Guðna afhent listaverk sem minnir á gamla hertrukkinn sem hann á og er þekktur fyrir. Sigurður gat sérstaklega um framlag Guðna til byggðasafnsins. „Hver maður sem lítur hér yfir véla- safnið sér hversu gífurlegum tíma hann hefur varið til að gera kol- ryðgaða og illa farna hluti eins og nýja. Hér sjá allir hversu mikill snill- ingur er á ferð,“ sagði oddvitinn. Morgunblaðið/Golli Sigurður Ingvarsson oddviti afhenti Guðna Ingimundarsyni listaverk að gjöf og konu hans, Ágústu Sigurðardóttur, blómvönd. Heiðraður fyrir framlag til byggðasafnsins Garður „ÞAÐ er skoðun mín að þetta svæði sé nokkuð sérstakt og frek- ar óróasamt. Verkefni lögregl- unnar eru margbreytileg og það eru oftast miklar annir,“ segir Karl Hermannsson, aðstoðaryfir- lögregluþjónn í Keflavík. Lögsaga lögreglustjóraemb- ættisins er stór. Hún nær yfir fimm stór sveitarfélög og er nokk- uð langt á milli þeirra. Embættið hefur 38 stöður lögreglumanna og eiga 27 þeirra að ganga vaktir. Karl segir að ekki sé hægt að manna allar stöður. Eins og er vanti til dæmis þrjá lögreglu- menn. Þá sé erfitt að fá lærða lög- reglumenn til starfa. Nú eru 25 á vöktum og eru 10 þeirra án lög- regluprófs. Sex hafnir eru í þessum sveit- arfélögum og eru tvær þeirra með stærstu útgerðarhöfnum lands- ins. Strandlengja lögsögunnar nær frá sýslumörkum Grindavík- ur og Selvogs, vestur allan Reykjanesskaga og inn Faxaflóa, allt að mörkum Vatnsleysustrand- arhrepps og Hafnarfjarðar. „Mál sem koma til afgreiðslu hjá emb- ættinu vegna slysa á sjó eru alltíð og kalla á tímafrekar rannsóknir. Einnig kallar nálægðin við Kefla- víkurflugvöll á aukna löggæslu, svo sem vegna umferðar sem honum fylgir og afskipta af varn- arliðsmönnum. Þá er áætlað að í Bláa lónið komi um fjögur hundruð þúsund gestir á þessu ári og það hefur í för með sér vinnu fyrir lögregluna, svo sem við um- ferðareftirlit og allt annað sem svona mannfjölda fylgir,“ segir Karl. Mikið um ofbeldisbrot Tuttugu og tveir skemmtistaðir eru í þessum fimm sveitarfélög- um. „Þessi mikli fjöldi skemmti- staða er meiri en víðast hvar er í öðrum lögsagnarumdæmum og oftast er skemmtanahald í þeim öllum á sama tíma um helgar. Lögreglan sér um eftirlit með vín- veitingahúsum. Á þessu svæði eru mjög margar líkamsárásir kærðar og á undanförnum árum hafa þær hvergi verið fleiri nema hjá lög- reglunni í Reykjavík. Sama á við um önnur ofbeldisbrot, svo sem kynferðisbrot ýmiss konar,“ segir aðstoðaryfirlögregluþjónninn. Nálægðin við höfuðborgar- svæðið hefur, að sögn Karls, það í för með sér að afbrotalið, fíkni- efnaneytendur og fleiri slíkir hóp- ar sækja á Suðurnesin og nokkuð er um að slíkt fólk setjist að í sveitarfélögunum þar. Sérstak- lega hefur verið áberandi að það sæki í minni sveitarfélögin þar sem það telur sig vera óhult fyrir afskiptum og eftirliti lögreglu. Lögreglan í Keflavík hefur lagt mikið upp úr forvarnavinnu ýmiss konar. Segir Karl Hermannsson að hún hafi töluverð afskipti af börnum, meðal annars vegna úti- vistarbrota og tekist hafi ágætt samstarf við félagsmálayfirvöld, skóla og foreldra um þau mál. Suðurnesin frekar óróasöm og miklar annir hjá lögreglunni Mikið um ofbeldisbrot Morgunblaðið/Golli Karl Hermannsson, aðstoðar- yfirlögregluþjónn í Keflavík. Suðurnes BAGGA opnar myndlistarsýn- inguna Konur í meirihluta í Gallerý Hringlist, Hafnargötu 29 í Keflavík, í dag laugardag. Á sýningunni eru eingöngu akrýl- myndir unnar á síðastliðnum vetri. Bagga var í sjö vetur í Baðstofunni Keflavík og hefur einnig sótt ýmis önnur námskeið. Þetta er fyrsta einkasýning Böggu en hún hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum. Sýningin er opin til 26. maí á opnunartíma Gallerý Hringlist, mánudaga til föstudaga frá klukkan 13 til 18 og laugardaga frá kl. 10 til 16. Konur í meirihluta Keflavík VORTÓNLEIKAR hljóm- sveita, kóra og lengra kominna nemenda í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar hefjast eftir helgina. Mánudaginn 14. maí, kl. 19.30, í Fumleikhúsinu: Létt- sveit og samspilshópar. Stjórn- endur eru Karen J. Sturlaugs- son og Eyþór Kolbeins. Miðvikudaginn 16. maí, kl. 19.30, í Kirkjulundi: Yngri strengjasveit, eldri strengja- sveit, kór og bjöllukór. Stjórn- endur eru Hjördís Einarsdótt- ir, Unnur Pálsdóttir og Úlfar Ingi Haraldsson. Fimmtudaginn 17. maí, kl. 19.30, í Ytri-Njarðvíkurkirkju: Lengra komnir nemendur. Þriðjudaginn 22. maí, kl. 19.30, í Kirkjulundi: Lúðra- sveitir A, B og C. Stjórnendur eru David Nooteboom, Lára L. Magnúsdóttir og Sturlaugur J. Björnsson. Skólaslit verða á sal Fjöl- brautaskóla Suðurnesja laug- ardaginn 26. maí kl. 16. Vortón- leikar tónlistar- skólans Reykjanesbær
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.