Morgunblaðið - 12.05.2001, Síða 22

Morgunblaðið - 12.05.2001, Síða 22
VIÐSKIPTI 22 LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ SÝNING WORLD PRESS PHOTO 2001 á bestu fréttaljósmyndum ársins 2000 stendur yfir í Kringlunni frá 2. maí til 14. maí. Samhliða sýningu World Press Photo í Kringlunni verður ljósmyndasýning Morgunblaðsins sem ber heitið ANDLIT manns og lands. Á sýningunni er úrval ljósmynda fréttaritara og ljósmyndara Morgunblaðsins á landsbyggðinni. Sýningin er liður í samkeppni um bestu ljósmynd fréttaritara frá árunum 1999 og 2000.   AÐALFUNDUR Samtaka at- vinnulífsins, SA, verður haldinn á þriðjudaginn í næstu viku. Hefð- bundin aðalfundarstörf munu fara fram fyrir hádegi, en eftir hádegi verður opin dagskrá undir yfir- skriftinni „Ísland í fremstu röð“ og hefst hún á að formaður samtak- anna, Finnur Geirsson, forstjóri Nóa-Síríuss hf., flytur ræðu. Finn- ur hefur verið formaður frá því á stofnfundi samtakanna í septem- ber 1999, en fundurinn á þriðju- daginn er fyrsti reglulegi aðal- fundur samtakanna. Að lokinni ræðu formanns mun forsætisráð- herra, Davíð Oddsson, flytja ávarp, en að því búnu mun fram- kvæmdastjóri samtaka atvinnulífs- ins á Írlandi, Turlough O’Sullivan, ræða um „írsku leiðina“. Loks mun Guðjón Rúnarsson, formaður skattahóps SA, fylgja úr hlaði skýrslu skattahópsins. Formaður kosinn með póstkosningu Í samtali við Morgunblaðið sagði Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, að kosning formanns væri nú með nýju sniði miðað við það sem þekkst hefði hjá samtökum í atvinnulífinu. Nú færi kosningin þannig fram að öll fyr- irtæki í Samtökum atvinnulífsins fengju senda atkvæðaseðla og sendu þau atkvæði sín til baka í pósti. Hann sagði atkvæðagreiðslu þegar hafna og að mikil þátttaka væri í kosningunni þrátt fyrir að einungis einn frambjóðandi, núver- andi formaður samtakanna, hefði lýst yfir framboði. Tuttugu manna stjórn samtak- anna sagði hann kosna af 100 manna fulltrúaráði í upphafi aðal- fundarins og að ekki væri útlit fyr- ir annað nú en að tillaga kjör- nefndar yrði samþykkt. Írar hafa uppskorið mikinn hagvöxt Ari sagði mikla áherslu vera lagða á málefnastarf innan sam- takanna og þess sæjust glöggt merki á aðalfundinum. Gefnar yrðu út tvær prentaðar skýrslur, annars vegar um skattamál og hins vegar um nokkra aðra mála- flokka sem samtökin leggi áherslu á. Ari sagði skattamálin þunga- miðjuna í málefnastarfinu nú, enda mikilvægt að vinna að bættu um- hverfi fyrirtækja á því sviði. Framkvæmdastjóri samtaka at- vinnulífsins á Írlandi hefði verið fenginn til að greina frá þeirri leið sem Írar hefðu valið, en þeir hygð- ust árið 2003 vera komnir með al- mennan tekjuskatt fyrirtækja nið- ur í 12,5%. Írar legðu einnig áherslu á nýsköpun og menntun og hefðu uppskorið mikinn hagvöxt síðustu ár. Af öðrum málaflokkum nefndi Ari að Samtök atvinnulífsins legðu áherslu á að innleiða samkeppn- ishugsun í menntakerfið. Veita þyrfti svigrúm til skólagjalda fyrir aukna þjónustu og leita þyrfti nýrra leiða fyrir rekstrarform skóla. Hann sagði einnig að sam- tökin teldu að hið opinbera ætti að veita nemendum fé til menntunar og þeir ráðstafi því til þeirra skóla sem þeir velji sér. Með umhverfisgjöldum en á móti umhverfissköttum Ari Edwald sagði Samtök at- vinnulífsins vilja að atvinnulífið sýndi ábyrgð í umhverfismálum sem meðal annars kæmi fram í að fyrirtæki greiddu þann kostnað sem af starfsemi þeirra hlytist. Sem dæmi um þetta væri gjald á spilliefni til að standa undir kostn- aði við förgun þeirra. Samtökin væru hins vegar algerlega mót- fallin álagningu umhverfisskatta til tekjuöflunar fyrir opinbera að- ila. Þá nefndi Ari að samtökin vildu ná auknum jöfnuði milli karla og kvenna í atvinnulífinu. Þetta væri þýðingarmikið til að koma í veg fyrir þá sóun sem fylgdi því að hæfileikar sumra einstaklinga fengju ekki notið sín. Þá nefndi Ari að Samtök at- vinnulífsins legðu áherslu á sjálf- stæði Atvinnuleysistryggingasjóðs til að hann fengi gegnt því lög- bundna hlutverki sínu að greiða út atvinnuleysisbætur þegar á reyndi, en sjóðurinn sé eingöngu fjár- magnaður með atvinnutrygginga- gjaldi vinnuveitenda, bæði opin- berra aðila og einkafyrirtækja. Hann sagði samtökin ítreka mót- mæli sín við því að ríkisvaldið sölsi sjóðinn undir sig og færi fasteignir hans og lausafé í ríkissjóð. Loks sagði Ari að Samtök at- vinnulífsins hvettu til frekari hag- ræðingar í lífeyriskerfinu og að smærri sjóðir leiti leiða til stækk- unar og sameiningar við aðra sjóði. Á næstu árum verði tíma- bært að ræða frekari samþættingu lífeyrissjóðakerfis og almanna- tryggingakerfis með frekari hag- ræðingu í huga. Fyrsti aðalfundur Samtaka atvinnulífsins haldinn næstkomandi þriðjudag Áhersla á bætt skatta- umhverfi fyrirtækja UM NÍU milljóna króna tap var af rekstri Sæplasts fyrstu þrjá mánuði ársins samkvæmt óendurskoðuðu milliuppgjöri sem stjórn félagsins hefur nú fjallað um. Í tilkynningu til Verðbréfaþingsins segir að í áætlunum félagsins hafi verið gert ráð fyrir um fimm milljón króna tapi á tímabilinu þannig að afkoman sé svipuð og ætlað var. Rekstrarhagnaður fyrir af- skriftir og fjármagnsliði var 47 milljónir króna en var fyrir sama tímabil í fyrra um 73 milljónir króna. Tekjur Sæ- plasts hf. og dótturfélaga á Ís- landi, Kanada, Noregi og Ind- landi voru 548 milljónir króna fyrstu þrjá mánuði ársins en voru 463 milljónir fyrir sama tímabil í fyrra. Tekjur minni en áætlanir gerðu ráð fyrir „Þrátt fyrir að tekjur séu hærri nú en á síðasta ári eru þær nokkuð undir áætlunum félagsins. Starfsemi félagsins á Íslandi, í Noregi og á Indlandi var rekin með hagnaði en hins- vegar varð nokkuð tap af rekstrinum í Kanada sem skýr- ist fyrst og fremst af því að sal- an þar var 20% minni en gert var ráð fyrir.“ Eigið fé var 669 milljónir króna og hafði lækkað um 12,6 milljónir króna frá áramótum. Eiginfjárhlutfall samstæðunn- ar var 28,9% en var um áramót 30%. Skuldir félagins voru 1.648 milljónir króna og hafa hækkað um tæpar 67 milljónir frá áramótum. Veltufjárhlutfall þann 31. mars sl. var 1,4 og veltufé frá rekstri var rúmar 50 milljónir króna fyrstu þrjá mánuði ársins og er það í sam- ræmi við áætlanir en var rúmar 52 milljónir króna fyrir sama tímabil árið 2000. Stjórn Sæ- plasts hf. telur ekki að þessar niðurstöður gefi tilefni til end- urskoðunar á rekstraráætlun ársins 2001. Þriggja mánaða upp- gjör Sæplasts hf. Afkoma sam- kvæmt áætlun

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.