Morgunblaðið - 12.05.2001, Side 26
ERLENT
26 LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SKÓLASTARF Í ÁSLANDI
Kynningarfundur
Hafnarfjarðarbær og Íslensku menntasamtökin kynna fyrirhugað
skólastarf í Áslandi á almennum fundi í Hafnarborg
næstkomandi mánudag, 14. maí, kl. 20:00.
Fundurinn er einkum ætlaður foreldrum og öðrum aðstandendum
þeirra barna sem munu stunda nám í grunnskólanum en aðrir
áhugasamir eru að sjálfsögðu velkomnir.
Á fundinum munu aðstandendur ÍMS og ráðgjafar þeirra
kynna skólastarfið og faglega hugmyndafræði þess.
Að kynningu lokinni verða almennar umræður og fyrirspurnir úr sal.
Hafnarfjarðarbær
www.hafnarfjordur.is
Íslensku menntasamtökin
www.ims.is
FÍDEL Castro, forseti Kúbu,
viðurkenndi í gær að hann væri
frægur fyrir að tala of mikið – en
fór engu að
síður yfir
sett ræðu-
tímamörk.
Staddur í
fyrstu opin-
beru heim-
sókn sinni til
Malasíu
flutti Castro
fyrirlestur
um hnatt-
væðingu. Tjáði Kúbuleiðtoginn,
sem hafði verið úthlutað 30 mín-
útna ræðutíma, áheyrendum
sínum í gegnum túlk að honum
hefði verið gefinn hálftími
„vegna þess að ég er frægur fyr-
ir að tala of lengi“. Hann talaði í
45 mínútur. Var meginboðskap-
ur ræðunnar sá, að hnattvæð-
ingin stefndi í að svipta þjóðir
heims fullveldi sínu.
Eftirlauna-
löggjöf
samþykkt
ÞÝZKA þingið afgreiddi loks í
gær löggjöf sem umbyltir eftir-
launakerfinu í landinu, eftir ára-
langa togstreitu þýzkra stjórn-
málamanna um það hvernig
stokka skyldi upp kerfið. Það
stefnir nú í þrot vegna þess hve
hlutfall eftirlaunaþega í saman-
burði við vinnandi fólk fer sí-
hækkandi, bæði vegna lækkandi
fæðingartíðni og hækkandi líf-
aldurs. Þýzka kerfið hefur hing-
að til byggzt á „gegnum-
streymi“, þ.e. þeir sem vinna í
dag greiða eftirlaun þeirra sem
hafa lokið starfsferli sínum. Með
breytingunum á að reyna að
forða þroti kerfisins með því að
ýta undir einstaklingsbundinn
lífeyrissparnað svo að þeir sem
vinna í dag standi sjálfir undir
stærri hluta eftirlauna sinna.
Hætt við
Wagner-
tónleika?
SKIPULEGGJENDUR menn-
ingarhátíðar sem fram fer í
Jerúsalem í sumar hafa farið
þess á leit við píanóleikarann og
hljómsveitarstjórann heims-
kunna, Daniel Barenboim, að
hann íhugi að hætta við að færa
upp hluta óperunnar Die Walk-
üre eftir þýzka tónskáldið Rich-
ard Wagner á hátíðinni, eins og
boðað hefur verið. Óopinbert
bann hefur verið við lýði í Ísrael
við flutningi tónlistar Wagners,
„uppáhaldstónskálds Adolfs
Hitlers“.
Þokast í mál-
um skaða-
bótasjóðs
BANDARÍSKUR alríkisdóm-
ari ákvað í gær að vísa frá dómi
kærumálum hópa fólks sem
þýzkir nazistar þvinguðu til
vinnu í síðari heimsstyrjöldinni.
Þar með var rutt úr vegi veiga-
mestu lagalegu hindruninni fyr-
ir því að greiðslur geti hafizt úr
skaðabótasjóði sem þýzka ríkið
og þýzk fyrirtæki hafa sett á fót
sérstaklega til að koma skaða-
bótum til fólks sem lenti í nauð-
ungar- eða þrælkunarvinnu á
nazistatímanum og ekki hefur
hlotið aðrar skaðabótagreiðslur.
STUTT
Talar
of mikið
Fídel Castro
ÞAÐ fyrirsjáanlegasta við Norður-
Kóreu er hvað hún er óútreiknanleg.
Í síðustu viku fylgdumst við með því
þegar sonur „hins dáða leiðtoga“
Kim Jong Il var handtekinn eftir að
hafa reynt að ferðast til Japans á
fölsuðu vegabréfi (að sögn til að fara
með son sinn í Disney-skemmtigarð-
inn í Tókýó). Næsta dag hétu stjórn-
völd því að halda bann við eldflauga-
tilraunum til 2003 og jafnframt að
halda áfram að selja eldflaugatækni
til landa á borð við Íran. En það er
fleira sem tekur ekki breytingum í
Norður-Kóreu: vanþróað efnahags-
lífið.
Talið er að um ein milljón manna
hafi látist í hungursneyðinni í Norð-
ur-Kóreu á árunum 1995-1997. Nú
óttast Matvælastofnun Sameinuðu
þjóðanna að önnur hungursneyð sé
yfirvofandi – framleiðsla á helstu
landbúnaðarafurð landsins, korni,
mun líkleg minnka í 1,8 milljónir
tonna en 4,8 milljónir þarf til að veita
íbúum landsins þann litla dag-
skammt sem þeir fá nú. Til að bæta
gráu ofan á svart gengu matvæla-
birgðir landsins til þurrðar í janúar
og matvælaaðstoð frá Suður-Kóreu
tekur enda í þessum mánuði.
Matvælastofnun SÞ hefur heitið
því að sjá börnunum í landinu, sem
eru sex milljónir, fyrir fæðu en hinir
fullorðnu, 17 milljónir, verða að
bjarga sér sjálfir. (Svokölluð „Herinn
fyrst-áætlun“ tryggir að hinn fjöl-
menni her og embættismannakerfið
fá forgang að matvælum.) Margir
Norður-Kóreubúar þurfa að draga
fram lífið með því að leita að ætileg-
um rótum og laufum og elda súpur úr
kálstilkum og grænmetisleifum. Þeir
sem lifa af verða vannærðari en
nokkru sinni fyrr. Í dag er vöxtur 2⁄3
hluta barna í landinu heftur vegna
vannæringar og það hlutfall mun
fara hækkandi.
Hinnar litlu uppskeru í Norður-
Kóreu er ekki að vænta fyrr en í lok
júní og hún verður væntanlega enn
minni en í fyrra. Á sama tíma eru
Suður-Kóreumenn að minnka fram-
lag sitt af áburði til hrísgrjónaræktar
úr 300.000 tonnum í 200.000 tonn.
Jafnvel þetta skerta framlag var um-
deilt meðal almennings í Suður-Kór-
eu, sem telur að setja eigi það skilyrði
fyrir aðstoð að samskipti Kóreuríkj-
anna batni.
Þessar hræðilegu aðstæður eru af-
leiðing „juche“-stefnunnar, hinnar
undarlegu tegundar sósíalisma sem
framfylgt er í Norður-Kóreu. Höf-
undur stefnunnar var faðir núver-
andi leiðtoga landsins og Kim Jong Il
hefur haldið merki hennar á lofti í
nær 900 bókum og greinum.
Þrátt fyrir að marx/lenínismi hafi
þurft að víkja fyrir „juche“ árið 1967
héldu Sovétmenn efnahagslífinu í
Norður-Kóreu uppi allt fram til 1991.
Eftir hrun Sovétríkjanna fór að halla
undan fæti og allt fór svo í kaldakol í
kjölfar endurtekinna flóða og þurrka
árin 1995, 1996 og 1997. Þrátt fyrir að
Kim Jong Il hafi ekki hátt um það op-
inberlega hlýtur meira að segja hann
að vera orðinn sannfærður um að
„juche“ sé ekki farsæl stefna. Þess
vegna hefur hann snúið sér til Kína í
von um aðstoð.
Það sem Kim sækist eftir frá Kína
eru nákvæmar leiðbeiningar um
hvernig Norður-Kórea megi rétta úr
kútnum. Í fyrri ferð sinni þangað á
síðasta ári spurði hann forsetann Ji-
ang Zemin hvernig unnt væri að fær-
ast í átt að markaðshagkerfi en við-
halda samt einræðisstjórn. Það
kvaðst Jiang forseti geta gert með
ánægju. Í fyrsta lagi þyrfti að kveða
niður alla andstöðu með harðri hendi
um leið og hún léti á sér kræla. Í öðru
lagi ætti að taka hlutabréfamark-
aðina og sérstöku efnahagssvæðin í
Kína til fyrirmyndar. Í seinni ferð
Kim Jong Il til Kína, skömmu eftir
sögulegan fund hans með Kim Dae
Jung forseta Suður-Kóreu í júní á
síðasta ári, fylgdi forsætisráð-
herrann Zhu Rongji honum til
Shanghai og sýndi honum hluta-
bréfamarkað borgarinnar og hið
gríðarstóra Pudong-þróunarsvæði.
Enginn efast um að Jiang Zemin
viti hvernig viðhalda eigi einræðis-
stjórnarfari. En er hann endilega
best til þess fallinn að gefa ráð um
hvernig koma eigi efnahagslífinu í
Norður-Kóreu á réttan kjöl? Senni-
lega ekki: Norður-Kórea er ekki
Kína. Ólíklegt er að stefnubreyting-
arnar sem áttu sér stað í Kína á síð-
ustu tveimur áratugum eigi eftir að
virka í Norður-Kóreu. Þess er senni-
lega langt að bíða að „hinn dáði leið-
togi“ geti sannfært fylgismenn sína
um að hlutabréfamarkaður, með til-
heyrandi kröfur um markaðsvæð-
ingu og jafnvel einkavæðingu, sam-
ræmist á nokkurn hátt hinu
umrædda „juche“. Eitt af mestu af-
rekum kínverskra stjórnvalda undir
forystu Deng Xiaoping var einmitt að
láta sér skiljast að umbætur væru
óhjákvæmilegar.
Efnahagssvæði virka í Kína –
einkum hin fimm sérstöku efnahags-
svæði og Pudong-þróunarsvæðið í
Shanghai – vegna þess að frá byrjun
var litið á þau sem nokkurs konar
rannsóknastofur fyrir efnahagsleg-
ar, félagslegar og jafnvel pólitískar
tilraunir. Helsti kostur svæðanna var
að þar var hægt að gera tilraunir með
markaðsöflin á takmarkaðan – og
þessvegna pólitískt viðunandi – hátt,
áður en farið var að fylgja þeim um
allt landið.
Deng Xiaoping, sem hleypti efna-
hagssvæðunum af stokkunum, skildi
að með því að opna kínverskt efna-
hagslíf fyrir umheiminum skapaðist
óhjákvæmilega hætta á því að
„óheppileg“ áhrif bærust inn í landið.
En hann sætti sig við þessa áhættu
sem verðið er gjalda þyrfti til að bæta
lífskjör þjóðar sinnar. Hann hafði
rétt fyrir sér: spilling og glæpastarf-
semi jukust og framfarasinnaðar og
frjálslyndar hugmyndir skutu rótum
– en síðast en ekki síst urðu Kínverj-
ar margs vísari um umheiminn.
Íbúar Norður-Kóreu eru hins veg-
ar algjörlega einangraðir. Einu út-
varpstækin sem leyfð eru í landinu er
aðeins unnt að stilla á innlendar
stöðvar. Fáir landsmenn fá að heim-
sækja höfuðborgina Pyongyang, á
meðan milljónir Kínverja ferðast og
stunda nám erlendis á hverju ári.
Þegar stjórnvöld föluðust eftir leið-
sögn í viðskiptastjórnun frá sænsk-
um sérfræðingum var meira að segja
óskað eftir því að þjálfunin færi fram
við skilyrði sem líktust aðstæðum í
Norður-Kóreu eins mikið og auðið
yrði. Stjórnendanámskeiðið verður
því ekki haldið í Stokkhólmi eða ann-
arri frjálsri borg, heldur í Hanoi, höf-
uðborg kommúnistaríkisins Víet-
nam.
Leiðtogar Norður-Kóreu, frá Kim
Jong Il og niður allan valdastigann,
virðast hafa lítinn sem engan skilning
á þeim áhrifum sem fylgja opnun
efnahagslífsins. Ólíkt Deng munu
þeir telja þau óviðunandi. Því miður
er útlit fyrir að hin langþreytta þjóð í
Norður-Kóreu muni enn um sinn fá
lítið annað að borða en súpu úr kál-
stilkum og grassalat.
Reuters
Hermenn og óbreyttir borgarar ganga framhjá áróðursspjöldum í
Pyongyang, höfuðborg Norður-Kóreu, í byrjun mánaðarins.
Eldflaugar, Mikki mús
og Norður-Kórea
Eftir David Wall
David Wall er sérfræðingur um mál-
efni Asíu við Konunglegu alþjóða-
málastofnunina.
Þessar hræðilegu að-
stæður eru afleiðing
„juche“-stefnunnar,
hinnar undarlegu teg-
undar sósíalisma sem
framfylgt er í Norður-
Kóreu.
© Project Syndicate
RÚSSNESKI auðjöfurinn Borís
Berezovskí tilkynnti úr sjálfskipaðri
útlegð sinni í Frakklandi í gær að
hann hefði ákveðið að láta fé renna
til 163 mannréttindasamtaka, í því
skyni að styrkja þróun borgaralegs
réttarsamfélags í Rússlandi.
Fögnuðu ýmsir talsmenn mann-
réttindasamtaka sem starfað hafa í
Rússlandi þessum tíðindum, en aðrir
lýstu tortryggni og vísuðu til þess að
fyrri athafnir Berezovskís hefðu
beinlínis grafið undan lýðræðinu.
Styrkir
mannrétt-
indasamtök
Moskvu. AP.
♦ ♦ ♦