Morgunblaðið - 12.05.2001, Page 29
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2001 29
Nú er um að gera að grípa
tækifærið og gera það sem
við köllum GÓÐ KAUP!
Bútasaumshátíð
verður haldin 13 og 14 maí á vegum Íslenska búta-
saumsfélagsins í Hússtjórnarskóla Reykjavíkur, Sólvalla-
götu 12 . Þar ætlum við að kynna eftirfarandi:
Tvær nýjar efnalínur frá Thimbleberries.
Tvær nýjar bækur frá Thimbleberries.
Nýja reglustiku.
Tvö ný mánaðarteppi, annað er frá Thimbleberries
og er nú sýnt í fyrsta skipti.
Tilboð á „Quilters Journal“ frá Thimbleberries.
Og síðast en ekki síst þá verðum við með sýnikennslu í
notkun á bútasaumsmótum frá Mati Michell.
Mörkinni 3 - 108 Reykjavík - Sími 578 7477
virka@virka.is - www.virka.is
Við óskum Íslenska búta-
saumsfélaginu til hamingju
með þetta framtak.
Honda CRV 12/98, sjálfsk.,
mikið af aukahl., ek. 25 þ. km,
silfurgr. V. 1.890 þús. Sk. ód.
Subaru Impreza 2.0 12/99,
sjálfsk., álfelgur, vindskeið,
ek. 22 þ. km, blár. V. 1.550
þús. (Einnig aðrar árg.)
M. Benz E-280 4Matic 1/99,
sjálfsk., topplúga o.fl., ek. 22
þ. km, blár. V. 4.350. Sk. ód.
M. Benz E-240 Classic,
6/98, sjálfsk., 17" álfelgur,
topplúga o.fl., ek. 36 þ. km,
svartur. V. 3.390. Sk. ód.
BMW 523ia steptronic 4/99,
sjálfsk., 18" álfelgur, leður
o.m.fl., ek. 21 þ. km, grár. V.
3.980 þús. Sk. ód.
Lexus RX 300 12/00, sjálfsk.,
sóllúga, leður, grár. V. 4.790
stgr., sem nýr! Einnig is-200.
Honda Civic 1.4 Si 8/98,
sjálfsk., 2x vindskeið o.fl., silf-
urgr., ek. 24 þ. km. V. 1.190,
bílalán 900. (Einnig 1.5 vtec)
M. Benz ML-230 7/98, 5 gíra,
allt rafdr., álfelgur, krómað
sílsarör, vínr., ek. 57 þ. km. V.
3.390. Sk. ód.
BMW 318ia 4/99, sjálfsk., allt
rafdr., grænn, ek. 22 þ km,
glæsilegur bíll. V. 2.200, bíla-
lán 1.350.
Jeep Grand Cherokee Lar-
edo 99-2000, vel útbúnir.
Range Rover 4.6 Hse, 11/96,
sjálfsk., leður, sóllúga o.fl,
svargrár, ek. 77 þ. km. V.
3.980. Sk. ód. (Einnig 2.5 Dse)
Mikil sala! Skráðu bílinn á
www.litla.is
Funahöfða 1 - Fax 587 3433
www.litla.is
Sími 587 7777
Fjöldi bifreiða á tilboðsverði
ÝMIS fyrirtæki eru að hækka verð
á vörum um þessar mundir.
Þann 1. maí síðastliðinn hækkaði
Nathan & Olsen hf. nánast allar
innfluttar vörur.
„Hækkunin nemur frá 3 og upp í
9% eða að meðaltali 5,5%. Morg-
unkornið sem við seljum einna mest
af hækkaði um 5,5% og allur sykur
um 4,5%. Ástæða hækkunarinnar er
eingöngu gengislækkun krónunnar.
Með þessari hækkun er fyrirtækið
samt sem áður að taka hluta hennar
á sig,“ segir Þorsteinn Gunnarsson,
markaðsstjóri Nathan & Olsen hf.
12,5% hækkun
á þurrmjólk
Nýlega hækkaði Austurbakki hf,
SMA gold-þurrmjólk og Estee-
vörur fyrir sykursjúka sem nemur
12,5%. Að sögn Auðar Guðmunds-
dóttur, deildarstjóra dagvörudeild-
ar, er ástæða hækkunarinnar ein-
göngu hækkun á dollara. Þrátt fyrir
hækkunina er fyrirtækið að taka
hluta af hækkuninni á sig.
Flestar vörur hækka
frá 7,5 til 10%
Velflestar vörur hjá Dreifingu
ehf. hækkuðu nýverið í verði sem
nemur 7,5 til 10%.
„Við settum mjög litlar verð-
hækkanir út í verðlagið á síðasta ári
þrátt fyrir mikla hækkun á doll-
aranum. Það er alls ekki svo að við
séum að auka okkar álagningu held-
ur erum við búin að taka á okkur
allt að helmingi af hækkun doll-
arans,“ segir Ómar Scheving, fram-
kvæmdastjóri Dreifingar ehf.
Hækkun um
miðjan mánuðinn
Viggó Sigurðsson, eigandi Ásvík-
ur ehf. og innflytjandi Dr. Beck-
mann-varanna, segir að fyrirtækið
hafi ekki hækkað vöruverð síðan
fyrir áramót. Tvær nýjar sendingar
hafi komið síðan þá og nú sjái fyr-
irtækið sig knúið til að hækka. „Við
ætlum að bíða aðeins fram yfir
miðjan mánuðinn og fylgjast þannig
betur með þróuninni á genginu.
Þegar sá tími rennur upp munum
við hækka samkvæmt gengisþró-
un,“ segir Viggó.
Verðhækkun
nemur 5 til 12%
Ásbjörn Ólafsson ehf. hækkaði
10. maí flestallar vörur sínar um 5
til 12%.
Aðspurður segir Kjartan Steins-
son, fjármálastjóri Ásbjörns Ólafs-
sonar ehf., að ástæða hækkunar-
innar sé breyting á gengi
krónunnar frá áramótum og inn-
lendar kostnaðarhækkanir. „Hækk-
unin er minni en við ráðgerðum í
byrjun vikunnar vegna þess að
gengi krónunnar hefur styrkst,“
segir hann.
Gæludýravörur hækka
Íslensk tækni hf. selur gæludýra-
vörur og hækkaði í síðasta mánuði
verð á flestum vörum sínum um 3,5
til 10%.
„Við áttum von á að þurfa að
hækka verð aftur því krónan fór að
hrynja en gerðum það ekki og erum
enn í biðstöðu. Ástæða hækkunar-
innar í síðasta mánuði var að við
höfðum ekki fylgt gengislækkun
krónunnar eftir og vonuðumst til að
gengið myndi styrkjast en gátum
svo ekki beðið lengur,“ segir Gunn-
ar Vilhelmsson framkvæmdastjóri.
Taka mið af gengisþróun
4. maí síðastliðinn sendi Slátur-
félag Suðurlands út tilkynningu um
væntanlega verðhækkun á innfluttri
matvöru þó með þeim fyrirvara að
jákvæð þróun yrði á gengismálum.
„Síðustu daga hefur þetta að
miklu leyti gengið til baka og því er
ekki alveg ljóst hver þróunin verð-
ur. Ég sé ekki betur en það verði
einhver hækkun á næstunni sem þá
muni taka mið af gengisþróuninni,“
segir Gunnar G. Gunnarsson, deild-
arstjóri innflutningsdeildar Slátur-
félags Suðurlands.
Hækkun tekur
gildi í næstu viku
„Við sendum út tilkynningu þar
sem kom fram að ef gengið héldi
áfram að breytast áskildum við okk-
ur þann rétt að breyta verði á
vörum í samræmi við gengið,“ segir
Októ Einarsson, markaðsstjóri
Daníels Ólafssonar ehf. Hann bætir
við að hækkunin muni taka gildi í
næstu viku og verði að öllum lík-
indum í kringum 6 til 9%.
Kellogg’s-vörur
hækka um 10%
„Við höfum tilkynnt um hækkun
á öllum innflutningsvörum Nóa-Sir-
íus, þ.e. vörum sem við erum að
kaupa í pundum sem eru þá Kell-
ogg’s og Cadbury’s-vörur. Hækk-
unin mun taka gildi 21. maí og nema
10%,“ segir Hjalti Jónsson, mark-
aðsstjóri Nóa-Siríus. „Fyrirtækið er
að taka hluta af hækkuninni á sig
en við erum að vona að íslenskan
krónan muni styrkjast. Verðskráin
verður skoðuð aftur eftir sex vikur,“
segir Hjalti. Framleiðsluvörur fyr-
irtækisins munu jafnframt hækka
um 5% 21. maí. „Gengisþróun er
auðvitað aðalskýringin en okkar að-
alhráefni eru meira og minna keypt
í dollurum og pundum. Þá var
launahækkun um áramótin sem að
hluta til kemur inn í þetta líka.“
Hækkun frá tæplega 5 til 12%
Íslensk-Ameríska hækkaði ný-
lega verð á flestum vörutegundum
vegna gengisþróunar undanfarna
daga. Hækkunin er frá 4,6% til
12%.
„Sem dæmi má nefna að vörur
frá Pierre Robert hækkuðu um
4,6%, BKI-kaffi hækkaði að með-
altali um 6,8% og vörur frá P&G
hækkuðu um 9,6%,“ segir Pálína
Magnúsdóttir, markaðsstjóri hjá Ís-
lensk-Ameríska.
Verðhækkanir
nema frá 3 til 12,5%