Morgunblaðið - 12.05.2001, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2001 31
Á NÆSTU þremur árum ætlar
breska heilbrigðisráðuneytið að
ráðstafa tíu milljónum punda í að
þjálfa tíu þúsund hjúkrunarfræð-
inga til enn frekari útgáfu lyfseðla.
Að sögn fréttavefjar breska út-
varpsins, BBC, er undirbúningur
þjálfunarinnar þegar hafinn og
munu þeir fyrstu ljúka henni næsta
vor. Að henni lokinni munu hjúkr-
unarfræðingarnir mega gefa út lyf-
seðla vegna frjóofnæmis, bruna og
eyrnabólgu. Einnig munu þeir fá
aukin réttindi til að vinna að
heilsueflingu eins og til dæmis með
því að ávísa vítamínum til barns-
hafandi kvenna.
Hjúkrunarfræðingar
ávísi nikótínlyfjum
Auk þeirra tíu þúsund hjúkrun-
arfræðinga sem nú stendur til að
þjálfa munu 20 þúsund héraðs-
hjúkrunarfræðingar og starfsmenn
heilsugæslunnar, sem þegar hafa
hlotið þjálfun samkvæmt núgild-
andi lögum, einnig geta ávísað lyfj-
um sem innihalda nikótín eins og
plástrum, tyggjói og innúða.
Betri þjónusta
við sjúklinga
Heilbrigðisráðherra Bretlands,
Hunt lávarður, telur að fyrirhuguð
rýmkun á leyfi hjúkrunarfræðinga
til að ávísa lyfjum sé „mjög mik-
ilvægt skref“ fram á við til þess að
bæta aðgengi sjúklinga að þeim
lyfjum sem þeir þurfa á að halda.
Einnig telur hann að með þessu
móti nýtist þekking hjúkrunar-
fræðinga betur og að læknar hafi
betri tíma til að sinna alvarlegri til-
fellum.
Breyting í rétta átt
The Royal College of Nursing
telur ákvörðun heilbrigðisráðu-
neytisins spor í rétta átt en Mark
Jones, RCN, ráðgjafi á sviði hjúkr-
unarfræði, telur þó að ekki sé nógu
langt gengið með breytingunni og
að það valdi hjúkrunarfræðingum
áhyggjum. Sjúklingar hefðu hag af
að enn lengra væri gengið varðandi
rýmkun á leyfunum, sérstaklega
þeir sem haldnir eru langvinnum
sjúkdómum eins og astma, sykur-
sýki og kransæðasjúkdómum því
sérhæfðir hjúkrunarfræðingar
gætu fylgt eftir þeirra meðferð.
Samkvæmt opinberum tölum í
Bretlandi fer um þriðjungur af
tíma heimilislækna í viðtöl vegna
þessara sjúkdóma þannig að hið
opinbera væri einnig að missa af
tækifærum til hagræðingar.
Íslenskir hjúkrunar-
fræðingar ávísa ekki lyfjum
Á Íslandi gilda þær reglur að
hjúkrunarfræðingum er óheimilt
að ávísa lyfjum. Einungis læknar
hafa leyfi til þess.
Breytingar ákveðnar á starfssviði hjúkrunarfræðinga í Bretlandi
Fá rýmri
heimildir til að
ávísa lyfjum
Í Bretlandi hafa hjúkrunarfræðingar haft
takmarkaða heimild til að ávísa lyfjum og
samkvæmt fréttavef BBC stendur nú til að
rýmka þá heimild frekar. Markmið þessara
breytinga er meðal annars að draga úr að-
skilnaði verksviða lækna, hjúkrunarfræð-
inga og annarra heilbrigðisstétta.
Presslink
Auk rýmri heimilda til að ávísa lyfjum er gert ráð fyrir að breskir hjúkr-
unarfræðingar geti betur sinnt ófrískum konum.
Mænurann-
sóknir lofa
góðu fyrir
slasaða
The Daily Telegraph.
VÍSINDAMENN telja sig hafa
uppgötvað leið til að fá taugar til
að gróa aftur í skemmdri mænu,
og vekur þetta vonir um með-
ferð fyrir lamaða sjúklinga.
Mannúðarsamtökin Action
Research í Bretlandi, sem stóð
straum af kostnaði við vinnu vís-
indamannanna, segja uppgötv-
unina vera „spennandi þátta-
skil“ og að hún kunni að verða
prófuð í klínískum tilraunum.
Dr. James Fawcett, við Cam-
bridge-háskóla, stjórnaði verk-
inu. Í ljós kom, að þegar tiltekið
ensím var sett í örvef í rottum
fóru taugar að gróa á ný. Þegar
heila- eða mænuskemmdir
verða eru þær varanlegar og
batna ekki með þeim hætti sem
sár gróa. Skemmdar tauga-
trefjar vaxa ekki aftur og tengsl
við aðrar taugafrumur eru rofin.
Dr. Fawcett segir að ein af
ástæðum þess að taugatrefj-
arnar vaxi ekki aftur sé sú, að
örvefur á sársvæðinu myndi
mólekúl sem komi í veg fyrir
endurvöxt. Ensímið vinnur úr
sumum þessara mólekúla og
rannsóknirnar sýna að vöxtur
hefst á ný. Greint er frá rann-
sóknunum í tímaritinu Nature
Neuroscience.
TENGLAR
.............................................
Tímaritið Nature Neuroscience:
www.nature.com/neuro/