Morgunblaðið - 12.05.2001, Blaðsíða 68
EKKERT atriði er svo
smávægilegt að það sé
ekki tínt til í vikunni fyrir
söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva. Á meðal
þess sem rætt hefur verið í
Danmörku og Þýskalandi
með blöndu af gamni og al-
vöru eru framtennur ís-
lenska söngvarans Kristjáns
Gíslasonar. Hann lætur sér
slíkt í léttu rúmi liggja enda
þýðir ekkert að vera með
neinn fýlusvip þegar augu 700
blaðamanna eru hvarvetna og
öll umfjöllun telst af hinu góða.
Veðjað á Ísland
Kristján og Gunnar Ólason, sem
syngur lagið „Angel“ með honum
fyrir hönd Íslands, hafa haft í nógu
að snúast síðustu viku. Ekkert tæki-
færi hefur verið látið ónotað til að
koma sér á framfæri og tækifærin
hafa verið næg. Bein útsending í
sjónvarpi þar sem rætt er hvað minni
þá helst á Danmörku, keppt við hina
dönsku Rollo og King í Tívolí þar
sem þeir höfðu reyndar stórt hvítt
lukkudýr upp úr krafsinu, ótal viðtöl
og myndatökur, að ógleymdum
aðdáendunum, sem eru á hverju
strái. Einn þeirra, formaður aðdá-
endaklúbbs keppninnar í Danmörku,
færir þeim lukkudýr, syngur lagið
fyrir þá á íslensku og segist búinn að
leggja 2.000 ísl. kr. undir íslenskan
sigur. Gunnar og Kristján þakka fyr-
ir sig með því að syngja fyrir for-
manninn.
„Það skiptir máli að vera opinn og
hress, að vera til í allt og láta vel í sér
heyra,“ segir Gunnar. „Sumir hinna
keppendanna hafa blaðamannahjörð
og sjónvarpsvélar stöðugt í kringum
sig og allt sem þeir gera vekur at-
hygli. Við hugsuðum með okkur hvað
við gætum gert til að ná athygli og
komumst að þeirri niðurstöðu að
best væri bara að syngja.“ Og það
hafa þeir gert svikalaust, Gunnar og
Kristján bresta í söng á blaðamanna-
fundum, á kajanum fyrir utan hót-
elið, á veitingastöðum; hvar sem
áhorfendur er að finna.
Íslensku keppendurnir hafa verið
spurðir um allt á milli himins og jarð-
ar, og þá ekki síst hvers vegna Krist-
ján hafi ekki látið rétta í sér fram-
tennurnar? „Fólk hefur meira að
segja komið til mín til að ræða þetta,
einn blaðamaður lýsti því yfir að sér
fyndist það sjarmerandi að vera ekki
með fullkomnar tennur. Ég hef
reyndar oft verið spurður að þessu
og ákvað fyrir löngu að láta ekki
rétta þær,“ segir Kristján og glottir
svo skín í hinar umtöluðu tennur.
„Fólk er nærri því undantekning-
arlaust ótrúlega jákvætt og hrósar
okkur í bak og fyrir. Það er hins veg-
ar útilokað að meta það hversu mikil
alvara býr að baki. Og jafn erfitt er
að meta hvort svona keppni kemur
manni til góða vilji maður koma sér á
framfæri erlendis, það er þó að
minnsta kosti ljóst að hún skemmir
ekki fyrir.“
Beðið eftir áhorfendunum
Æfingar hafa staðið alla vikuna
fyrir hálftómum sal og segjast Krist-
ján og Gunnar orðnir óþreyjufullir
að syngja fyrir áhorfendur. „Áður en
við komum út hugsuðum við mikið
um það hvernig yrði að syngja í
svona stórum sal,“ segir Kristján.
„Þegar við stigum fyrst á svið hvarf
hins vegar allur taugaóstyrkur, við
nutum þess að syngja og viljum nú
bara vinda okkur í lokakvöldið. Það
verður auðvitað ekkert komist hjá
einhverjum óstyrk þegar á hólminn
er komið en það á nú við um alla.“
Þeir eru hógværir þegar að því
kemur að meta möguleika lagsins,
segjast vonast til þess að lenda í einu
af tíu efstu sætunum. Gunnar er
hrifnastur af rússneska laginu;
„þetta er hljómsveit sem hefur verið
að spila fyrir 100.000 manns á tón-
leikum“, en Kristján af því hollenska;
„einföld útsetning, raddir, berfættar
söngkonur og kassagítar“. Þeir eru
hins vegar sammála um að Frakk-
land og Svíþjóð séu sigurstrangleg-
ust, auk þess sem Kristján er þess
fullviss að Malta muni lenda ofarlega
á lista.
Ótrúlega gaman
Hvorugur hefur tekið þátt í
söngvakeppninni áður, Kristján hef-
ur hins vegar einu sinni sungið í und-
ankeppninni á Íslandi þar sem hann
komst í 2. og 10. sæti.
„Áður en við komum vissum við
takmarkað hvað við vorum að fara út
í. Við vissum að við ættum að syngja
á stærra sviði en við hefðum nokkurn
tíma sungið á áður, sitja fyrir svörum
á blaðamannafundum og vera mynd-
aðir í bak og fyrir,“ segir Gunnar.
„Við gerðum okkur auðvitað enga
grein fyrir umfanginu. Þetta er búin
að vera ótrúlega skemmtileg vika,
við höfum verið að nærri því allan
sólarhringinn en það er þess virði,“
bætir Kristján við. „Svona nokkuð
gleymist aldrei, heima er maður bara
prenthönnuður en hér svífur fólk á
mann og biður um eiginhandarárit-
un. Eftir helgi tekur svo vinnan við
að nýju hjá prenthönnuðinum og
hljóðfærasalanum.“
En því fer þó fjarri að tónlistin sé
lögð á hilluna, þeir stefna að því að
gefa út plötu síðla sumars, þar sem
þeir starfa m.a. með lagahöfundi
„Angel“ (Birtu), Einari Bárðarsyni.
Hann er þegar farinn að þreifa fyrir
sér um útgáfu í Evrópu enda ekki
eftir neinu að bíða þegar tækifæri
gefst til að ræða við plötuútgefendur
og fjölmiðlafólk hvaðanæva á
stærstu söngvakeppni sem samband
evrópskra sjónvarpsstöðva hefur
nokkurn tíma staðið fyrir.
Brostið í söng
Íslensku keppendurnir í söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstöðva hafa látið vel í sér
heyra í Kaupmannahöfn síðustu daga og
hafa ekki látið neitt tækifæri ónotað til að
syngja fyrir gesti og gangandi.
Kristján og Gunnar í Nýhöfn í
blíðskaparveðri.
Atkvæðaseðill er á bls. 58
Morgunblaðið
/Ásdís
*
+
,
*
,
-
. /$&
0
12 $&
0" $&
$3!
0
0
0
. 0
0
$3!
4 5)
67"#!""
"
8 9
(""
.$
. !
8 "&
.7"&
.2
!2)$
2
:# "
=
+ &"
&;
<
=;>LA
MN<+
6 : 9"?
""
"
6 @"
4 $?2 "6
"!L4
9
N3PQ O
(>!
&% "! @"
6
$&/" @2(
=)!"
""
$&/"
/!6
:!A
""
BA /!
""
( ?2 "<
% "!5$ 5& A 12+3 !4
4 4
5 *>
R
#&('
#&()
#&((
#&(&
#&&"
#&&#
#&&!
#&&$
#&&
#&&
#&&'
#&&)
#&&(
#&&&
!"""
!""#
ÉG KOMST að því núna um daginn
að enn einu sinni er búið að breyta
reglunum um
hverjir keppa
aftur að ári.
Núna eru það
15 efstu löndin í
keppninni í
kvöld, al-
gjörlega óháð
árangri síðustu
ára. Reyndar
eiga Spánn,
Bretland, Þýskaland og Frakkland
fast pláss í keppninni vegna þeirra
fjármuna sem þau leggja í keppn-
ina og því gæti farið svo að 19 lönd
kepptu aftur næst. Við skulum líta
á stöðu mála og spá í spilin.
Enginn séns
Portúgalska lagið ætti ekki að fá
stig, en vegna gríðarlegs fjölda
Portúgala í Frakklandi, fá þeir 12
stig þaðan. En það verða líka þau
einu. Lag Íra er í sama hópi. Ætti
ekki skilið að heyrast aftur, en næl-
ir sér líklega í örfá stig hér og þar,
en tapar ballöðukeppninni við
Frakkland og Noreg örugglega.
Lagið frá Tyrklandi er falleg
ballaða, sungin á tyrknesku og
ensku, en á því miður litla mögu-
leika í kvöld, nema söngvarinn fái
atkvæði fyrir hvað hann er sætur.
Margir aðdáendanna kunna
ágætlega að meta framlag Hol-
lands. Það eru því miður samt að-
allega þeir hollensku, og útkoman í
kvöld á örugglega eftir að valda
mörgum vonbrigðum. Stelpan
syngur sitjandi á sviðinu lag sem er
alls ekki nógu dramatískt til þess
að það gangi. Söngkonan er heldur
engin Kate Bush og þetta virkar
því fremur sem leti en stíll!
Erfiðu lögin
Lag Lettlands er sérstök
„kántrýsveifla“ sem erfitt er að
gera sér í hugarlund að nái til
áhorfenda. Maður veit þó aldrei.
Það sama má segja um lagið frá
Bosníu-Hersegóvínu. Mjög spes
lag, með svipaðri stemmningu og
framlag þeirra ’99, en ekki eins
sterkt.
Pólska framlagið reynir að vera
sumarstuðlagið í ár en mistekst
það hrapallega. Gæti þó höfðað til
einhverra en tapar að öllum lík-
indum fyrir mun betri lagasmíðum
og flytjendum. Þess má geta að
margir hafa beðið stílista íslenska
hópsins, Svavar Örn, um eigin-
handaráritun, enda eru þeir Piasek
um margt svipaðir yfirbragðs.
Svavar Örn er þó ögn hógværari
en Piasek, sem telur sig hið mesta
kyntröll og stærstu stjörnu Pól-
lands. Litháen er nú með í keppn-
inni í þriðja sinn og ég vona að nú
takist þeim að halda sér inni í
keppninni. Það er þó heldur ólík-
legt, en skoðanir eru mjög
skiptar um ágæti lagsins „You
Got Style“. Mér finnst það virka,
flutningurinn er mjög lifandi, en
mörgum finnst það bara falskt!
Rétt örugg inni
Lag Króatíu stefnir á topp 5 en
nær ekki í gegn, bæði vegna stað-
setningar og þess að það eru betri
lög í sama stíl. Þýska söngkonan
Michelle er algjör norn, heimtaði
að nafna sín frá Hollandi breytti
nafninu, heilsaði ekki hinni 16 ára
Lindsay, og strunsaði út úr ráðhús-
boðinu. Fær reyndar talsverða at-
hygli í vikublöðunum hér, fyrir
hjónabönd og skilnaði en ekki
hæfileika.
Flytjendur Eistlands, þeir Tanel
og Dave, eru sérstakur dúett. Tan-
el er ungur og sætur, kærasti og
fyrrum bakrödd söngkonunnar
Ines sem keppti í fyrra. Dave er um
fimmtugt, frá Aruba og hefur unn-
ið með Tom Jones. Lagið heldur
líka að það sé Sexbomb!
Á mörkum topp 10
Ísraelska lagið er skemmtilegt
lag og þjóðlegt, eitt af örfáum lög-
um sem ekkert er sungið á ensku.
Lögbundin ísraelsk hópkóreógraf-
ían með lambaða-töktum gæti
sveiflað því ofar.
Söngvari Möltu, fótboltastrák-
urinn Fabrizio, syngur lagið „An-
other summer night“ sem keppir
um sumarsmellsatkvæðin við lög
Spánar, Slóveníu, Bretlands og
Grikklands og gæti unnið þá
keppni. Held samt ekki.
Spánn leitar á sömu mið með
Enrigue Iglesias-hermikrákunni
David Civera. Virkar vel á sviði, er
grípandi, en tapar líklega barátt-
unni um atkvæðin. Enn á ný reyna
Svíar að vinna með ABBA-lagi og
tveimur söngkonum. Í þetta sinn
endurvinna þeir belgíska lagið frá
1996 og blanda inn í það töktum úr
„Winner Takes It All“. Það lag sem
flestir veðja á, en ég held að áhorf-
endur sjái í gegnum lagið. Stúlk-
urnar eru líka ansi óstyrkar á svið-
inu, sér í lagi sú ljóshærða.
Örugg inni á topp 10
ÍSLAND. TwoTricky-flokkurinn
á eftir að gera góða hluti. Þau líta
ljómandi vel út á sviðinu, eru sjálfs-
örugg og ágætlega staðsett í upp-
hafi keppninnar og það er ekkert
lag í sama stíl. Helst að hægt sé að
flokka það með danska laginu.
Rússland á eftir að koma mikið á
óvart með hljómsveit sem nefnist
Múmínálfurinn! Falleg melódía
og sérstakur söngvarinn eiga eftir
að höfða til mun fleiri en talið er,
sbr. Lettland í fyrra.
Breska stúlkan Lindsay er sæt
og viðkunnanleg og hún getur
sungið. Mjög grípandi lag og gæti
verið í toppslagnum. Lagið
„Energy“ frá Slóveníu, er strax á
eftir í röðinni og leitar á sömu mið
og því er mikil hætta á að hvorugt
lagið nái inn í toppbaráttuna.
Söngkonan Nuša Derenda er þó
rosagóð og það gæti ráðið úrslit-
um.
Toppslagurinn
Eftirlæti flestra „júróaðdáenda“,
m.a. mitt, er franska lagið sem flutt
er af kanadískri söngkonu, Nat-
asha Saint-Pier. Þetta er ofsalega
falleg ballaða sem minnir á gömlu
Celine Dion lögin, t.d. á „Pour que
tu m’aimes encore“. Hefði líklega
unnið dómnefndakeppni en gæti
tapað á símakosningu.
Norska lagið á aftur á móti eftir
að koma á óvart. Söngleikjadrottn-
ingin Haldor er frábær flytjandi og
lagið á eftir að fá atkvæði þeirra
sem vilja hlusta á kraftmikla
söngvara.
Sumarsmellur kvöldsins verður
gríska lagið „Die for you“ sem flutt
er af grísk-sænska systkinadúettn-
um Antique. Lagið er næstsíðast í
röðinni og er að mínum dómi besta
danslag keppninnar. Lagið er pínu-
þjóðlegt, að mestu sungið á grísku
en viðlagið er á ensku og virkar
það ótrúlega vel.
Sigurvegararnir
DANMÖRK!!! Ég tel ekkert geta
komið í veg fyrir að Danir sigri á
ný. Þetta er síðasta lag keppn-
innar, flutt af ofurviðkunnanlegu
fólki, grípandi og eitt af fáum lög-
um sem höfðar til fólks óháð aldri
og þjóðerni. Hin fagra Signe kem-
ur syngjandi inn á sviðið í miðju
lagi og Parken á eftir að springa.
Góða skemmtun!
Hverjir vinna
og hverjir tapa?
Nusa Der-
enda á
sumarslag-
arann í ár
að mati
Reynis.
Kanadíska
söngkonan
Natasha
St. Pier
sem syng-
ur fyrir
Frakkland.
Evróvisjónkeppnin
er í kvöld. Reynir Þór
Sigurðsson er í
Kaupmannahöfn
og spáir í spilin.
Evróvisjón
Rollo & King syngja danska lagið sem Reynir spáir sigri.
FÓLK Í FRÉTTUM
68 LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ