Morgunblaðið - 12.05.2001, Síða 71
NEMENDUR Menntaskólans í
Reykjavík höfðu ærna ástæðu til að
kætast nýverið þegar haldin var í
Ráðhúsinu útgáfuhátíð Skinfaxa og
Skólablaðsins.
Við MR eru tvö nemendafélög,
Skólafélagið og málfundafélagið
Framtíðin, en þau gefa hvort út sitt
blaðið.
„Þetta er búið að vera rosalega
gaman. Þetta hefur verið tímafrekt
og rænt miklum tíma frá náminu en
mér finnst það hafa skilað sér fylli-
lega og er mjög ánægð með árang-
urinn,“ segir Margrét Ögmunds-
dóttir, ritstjórnarmeðlimur
Skólablaðsins, blaðs Skólafélagsins
en ristjórnina skipuðu að auki þau
Tinna Proppé, Anna Ingimund-
ardóttir, Hjördís Ólafsdóttir og
Tryggvi Sveinsson.
Þetta er í 76. sinn sem Skólablað-
ið kemur út og er blaðið 196 síður,
veglegt og glæsilegt. Útgáfa þess
hefur þó ekki gengið áfallalaust
fyrir sig, töf varð í prentsmiðju en
jafnframt ollu ljósmyndir í blaðinu
fjaðrafoki: „Það var tískuþáttur í
blaðinu þar sem við vildum vekja
athygli á því hvernig tískuheim-
urinn er kominn út í öfgar,“ segir
Margrét. „Við vildum vekja athygli
á því að oft er lögð minni áhersla á
hvernig manneskjunni líður og
meiri á hvernig hún lítur út. Þetta
fór þó fyrir brjóstið á sumum og við
hörmum það mjög.“
Elsta skólablað landsins
Skinfaxi, blað Framtíðarinnar,
var ekki síður veglegt í ár.
„Við höfum unnið að þessu allan
vetur og byrjuðum undirbúninginn
strax síðasta sumar,“ segir Alex-
andra Kjeld ritstjórnarmeðlimur.
„Við ákváðum strax í upphafi að
leggja áherslu á innihaldið og gefa
út vandað blað.“ Ásamt Alexöndru
eiga þau Gunnar Páll Baldvinsson,
Steinþór Rafn Matthíasson, Hlín
Finnsdóttir og Hrafnhildur Braga-
dóttir heiðurinn að 103. árgangi
Skinfaxa en þess má geta að Skin-
faxi er elsta skólablað landsins.
„Það er mjög gaman að gera
þetta,“ segir Alexandra. „Og maður
lærir af því að vinna svona stórt
verk og setja sér krefjandi mark-
mið. Það er líka mjög gaman að sjá
afraksturinn. Þetta er blað nem-
enda, gert af nemendum sem inni-
heldur vönduð viðtöl, smásögur og
innsendar greinar um allt frá
stjórnmálum til kynþáttafordóma
og heimspeki til tónlistar.“
Skólablaðinu og Skinfaxa er
dreift til nemenda og kennara
Menntaskólans og jafnframt til
bekkja í 10. bekk grunnskóla og til
annarra framhaldsskóla.
Skinfaxi og Skólablaðið komu út í Menntaskólanum í Reykjavík
Mikil blaðaveisla í MR
Ritstjórn Skólablaðsins: Margrét H. Ögmundsdóttir,
Tinna H. Proppé, Tryggvi Sveinsson, Hjördís M.
Ólafsdóttir og Anna H. Ingimundardóttir.
Morgunblaðið/Kristinn
Ritstjórn Skinfaxa: Hrafnhildur Bragadóttir, Hlín
Finnsdóttir, Alexandra Kjeld, Steinþór Rafn Matth-
íasson og Gunnar Páll Baldvinsson.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2001 71
Sími 461 4666 samfilm.is
FYRIR 990 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Sýnd kl.8 og 10..
B.i.16. Vit nr. 223Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit nr. 233
Sýnd kl.2, 4 og 6 Vit nr. 231
Sýnd kl. 2 og 4. ísl tal
Vit nr. 213
Hún þurfti bara mánuð til að
breyta lífi hans að eilífu"
Keanu Reeves (Matrix) og Charlize Theron
(Cider House Rules, Men of Honor)
í rómantískri gamanmynd um mann
sem hélt hann hefði allt.
Frumsýning
Keflavík - sími 421 1170 - samfilm.is
FYRIR 990 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Sýnd kl. 2, 4 og6. Íslenskt tal. Vit nr. 231 Sýnd kl. 2, 4 og 6. ísl tal Vit nr. 213
Sýnd kl. 8 og 10.15. Sýnd kl. 8 og 10.15.
betra en nýtt
Sýnd kl. 6.
Sumir menn
fæðast hetjur
JUDE LAW JOSEPH FIENNES
RACKEL WEISZ BOB HOSKINS OG ED HARRIS
Hugleikur
KVIKMYNDIR.IS
Sýnd kl. 10.20.
Sýnd kl. 8
Nýr og glæsilegur salur
Hann var maðurinn sem hóf partýið.
En öll partý taka enda.
byggð á sannsögulegum heimildum
FRUMSÝNING
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20.
Tommi og Jenni sýnd kl. 2.
Lína Langsokkur sýnd kl. 2.
Anastasia sýnd kl. 4.
Álfhóll kappaksturinn mikli sýnd kl. 4.
MAGNAÐ
BÍÓ
Cherry Falls er sýnd í Regnboganum
HROLLUR
Frá Wes Craven, meistara
hrollvekjunnar kemur blóðug og
sexí spennumynd sem kemur
adrenalíninu af stað!
Eftir 100 ár er
Dracula laus og
hann er hungraður.
Engin kona stenst hann og
enginn er óhultur!
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
B.i.16 áraSýnd kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.10. B.i.16 ára
Morðin voru
ólýsanleg.
tilgangurin með þeim
var Hulin ráðgáta.
Frumsýning: Blóðrauðu fljótin
Öskrandi snilld og hrollvekjandi tryllir í
anda Seven og Silence of the Lambs.
Með hinum svala töffara Jean Reno
(Leon, Mission Impossible, Ronin) og
Vincent Cassel (Joan of Arc).
Frá leikstjóra La Haine (Hatur).
Ath ekki fyrir viðkvæma
gagnrýnendur
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15.
JUDE LAW JOSEPH FIENNES
RACKEL WEISZ BOB HOSKINS OG ED HARRIS
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Hugleikur
KVIKMYNDIR.IS
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
byggð á sannsögulegum heimildum
Hann var maðurinn sem hóf partýið.
En öll partý
taka enda.
FRUMSÝNING