Morgunblaðið - 18.05.2001, Blaðsíða 21
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2001 21
TVEIR ökumenn hafa á skömmum
tíma verið stöðvaður vegna gruns
um ölvun við akstur í Vestfjarða-
göngum. Aðfaranótt miðvikudags
var ökumaður stöðvaður eftir að bíll
hans mældist á of miklum hraða þeg-
ar hann kom út úr göngunum Breið-
dalsmegin. Maðurinn var færður á
lögreglustöðina þar sem tekið var úr
honum blóðsýni. Í ljós kom að hann
hafði ekki ökuréttindi þar sem hann
hafði verið sviptur ökuskírteini ævi-
langt.
Í gær var annar ökumaður stöðv-
aður grunaður um ölvun við akstur.
Ökulag hans vakti athygli lögreglu
vegna þess að hann ók sérstaklega
hægt.
Ölvaðir í
Vestfjarða-
göngunum
BÆJARSTJÓRN Austurs-Héraðs
hefur samþykkt kauptilboð Sigur-
jóns Sighvatssonar og Sigurðar
Gísla Pálmasonar í Eiða. Tilboð
þeirra var lagt fram á bæjarstjórn-
arfundi á miðvikudag og er gert ráð
fyrir að kaupsamningur verði lagður
fyrir bæjarstjórn til formlegrar stað-
festingar þann 6. júní næstkomandi.
Björn Hafþór Guðmundsson bæjar-
stjóri vill ekki segja upp á hvað til-
boðið hljóðaði. Ætla má að það sé
hærra en fyrra tilboð Sigurjóns, sem
hann lagði fram í nóvember síðast-
liðnum og var upp á 35 milljónir
króna.
Mennta- og menningar-
starfsemi aftur á Eiða
Fyrra tilboð Sigurjóns barst eftir
að tilboðsfrestur rann út. „Innan
tímamarkanna bárust tilboð sem
hljóðuðu upp á hærri tölur en tilboð
Sigurjóns, en menn vildu að þarna
kæmist í gang starfsemi sem hæfði
virðuleik staðarins sem mennta- og
menningarsetur,“ segir Björn Haf-
þór. Hann segir að einnig hafi verið
litið til þess að koma þar á fót starf-
semi sem leiði af sér margfeldisáhrif,
sem stuðli að auknum útsvars- og
fasteignatekjum fyrir sveitarfélagið.
„Við höfum ekki viljað selja Eiða á
ákveðnum skammtímahagnaði, held-
ur fá samning sem stuðlar að lang-
tímahagnaði.“
Kaup Austur-Héraðs á Eiðum af
íslenska ríkinu gengu í gegn í febr-
úar síðastliðnum og var kaupverðið
um 28 milljónir króna. Eignirnar
sem Sigurjón og Sigurður Gísli
kaupa eru skólahúsið, heimavistin og
tvær jarðir; Eiðajörðin svokallaða og
Gröf. Aðrar jarðir fylgdu með í kaup-
unum af ríkinu, en sveitarfélagið
mun halda þeim eftir.
Austur-Hérað gerir
kaupsamning um Eiða
Tilboð Sig-
urjóns og
Sigurðar
Gísla sam-
þykkt
GÓÐA veðrið endaði jafn skyndi-
lega og það byrjaði. Á Egilsstöðum
snjóaði í hvössum byljum og ný-
bruma gróðurinn beygði af í kuld-
anum. Þessi glæsilegi hestur birtist
í Egilsstaðatúninu eins og hálfgerð
undravera og nagaði kalsalega nál-
ina af stökustu rósemd. Eins og
hesta er siður sneri hann rassinum
upp í vindinn.
Nýliðinn vetur hefur víðast hvar
verið mildari en sá síðasti sem var
útigangshrossum nokkuð erfiður.Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Vorhret á
Austurlandi
Egilsstaðir
♦ ♦ ♦
Klapparstíg 44,
sími 562 3614
HÚSASKILTI
Pantið fyrir
25. nóvember
til jólagjafa.
HÚSASKILTI
Maítilboð
10% afsláttur