Morgunblaðið - 18.05.2001, Blaðsíða 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2001 27
LÖGFRÆÐINGAR Wojciech
Jaruzelskis, hershöfðingja og
fyrrverandi leiðtoga pólsku
kommúnistastjórnarinnar, til-
kynntu í gær, að þeir hefðu sagt
af sér sem verjendur hans.
Jaruzelski er sakaður um að
hafa gefið her- og lögreglu-
mönnum skipun um að skjóta á
starfsmenn skipasmíðastöðvar í
Gdansk, sem efndu til mótmæla
gegn kommúnistastjórninni
1970. Voru 44 menn skotnir til
bana og rúmlega 1.000 særðir.
Verjendur Jaruzelskis sögðu
af sér eftir að dómarinn hafði
hafnað ósk þeirra um að máli
gegn honum yrði látið niður
falla. Jaruzelski neitar því, að
um sé að ræða úthugsað bragð
til að vinna tíma.
Kabila leyfir
stjórnmála-
flokka
JOSEPH Kabila, forseti
Kongó, nam í gær úr gildi bann
við starfsemi stjórnmálaflokka í
landinu. Var það eitt af þeim
skilyrðum, sem sett voru fyrir
friðarviðræðum milli stjórn-
valda, stjórnarandstöðuhópa og
skæruliða. Faðir Josephs,
Laurent Kabila, bannaði stjórn-
málaflokka er hann komst til
valda í maí 1997 en hann var
myrtur í janúar sl. Joseph tók
þá við af honum og hefur síðan
reynt að koma á friði í landinu.
Hefur honum orðið nokkuð
ágengt í því, meðal annars hafa
skæruliðar dregið sig til baka
frá víglínunni milli þeirra og
stjórnarhersins og hleypt að
um 1.500 friðargæsluliðum frá
Sameinuðu þjóðunum.
Clinton at-
aður eggi
EGGI var kastað í Bill Clinton,
fyrrverandi Bandaríkjaforseta,
er hann var að skoða gamla
borgarhlutann í Varsjá í gær.
Brugðust pólskir og bandarísk-
ir öryggisverðir skjótt við og
sneru eggjakastarann í götuna.
Var um að ræða 19 ára gamlan
mann, sem líklega var að mót-
mæla kapitalismanum með því
að kasta í Clinton. Hann er nú á
fyrirlestraferð um Evrópu.
Falsa vega-
bréf
í áróðurs-
skyni
TALSMAÐUR taívansks
stjórnmálaflokks, sem berst
fyrir sjálfstæði eyjarinnar,
sagði í gær, að maður nokkur
hefði komist til fjögurra landa á
vegabréfi, sem flokkurinn hefði
sjálfur gefið út. Fremst á það
var letrað gylltum stöfum „Lýð-
veldið Taívan“ og hefði það ver-
ið tekið sem gott og gilt í Hond-
úras, Belize og El Salvador og
einnig í fjórða landinu, sem ekki
var nefnt á nafn. Fyrrnefnd
þrjú ríki hafa viðurkennt Taív-
an en ekki sem Lýðveldið Taív-
an, heldur sem Lýðveldið Kína.
Stjórnvöld á Taívan hafa þó
ekki lýst yfir sjálfstæði lands-
ins.
STUTT
Verjendur
Jaruzelsk-
is segja
af sér
ÆÐSTU ráðamenn Evrópusambandsins (ESB)
og Rússlands ræddust við í Moskvu í gær og
sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem
m.a. er varað við uppgangi ofstækisafla á Balk-
anskaga og hvatt til friðarviðræðna Ísraela og
Palestínumanna. ESB vill að Rússar samþykki
að evran verði framvegis notuð í viðskiptum
sambandsins og Rússlands í stað dollarans.
Javier Solana, æðsti talsmaður ESB í utan-
ríkis- og varnarmálum, og Göran Persson, for-
sætisráðherra Svíþjóðar, gagnrýndu báðir á
blaðamannafundi að loknum viðræðunum hern-
að Rússa í Tsjetsjníu en Svíar gegna for-
mennsku í ráðherraráði ESB þetta misserið.
Hvatti Persson til þess að stjórnvöld í Kreml
rannsökuðu ásakanir mannréttindahópa um að
rússneskir hermenn hefðu myrt óbreytta borg-
ara. „Þannig yrði hægt að efla á ný trúnaðar-
traust,“ sagði Persson.
Vladímír Pútín, forseti Rússlands, sagði við
upphaf viðræðnanna að tengsl Rússlands og
Evrópusambandsins hefðu oft sannað gildi sitt.
„Grundvöllur þeirra er sameiginlegar rætur
siðmenningar, auk viðskipta og efnahags- og
menningarlegra samskipta milli Evrópuland-
anna og Rússlands er varað hafa í hundruð
ára,“ sagði forsetinn.
Forveri Pútíns í embætti, Borís Jeltsín, lagði
mesta áherslu á samskiptin við Bandaríkin en
Pútín hefur lagt sig fram um að rækta sam-
skiptin við Evrópusambandið, Kína og Indland.
Hefur hann sagt nauðsynlegt að koma í veg
fyrir að Bandaríkin verði of einráð á vettvangi
heimsmálanna, mynda verði „mótvægi“ gegn
þeim.
Evrópusambandið ítrekaði á fundinum stuðn-
ing sinn við að Rússar fengju aðild að Heims-
viðskiptastofnuninni, WTO. Rússar selja mikið
af gasi og olíu til aðildarríkja ESB og vill
sambandið nú fá að greiða fyrir vöruna í evr-
um. Samþykkt var að ræða málið frekar en
Romano Prodi, forseti framkvæmdastjórnar
ESB, sagði hugmyndina afar mikilvæga og að
„jafnt Evrópusambandið og Rússland“ myndu
hagnast á breytingunni. Evrópuþjóðirnar
myndu auka viðskiptin við Rússa og fjárfesta
meira í landinu. Rússneskir embættismenn
vildu aftur á móti lítið tjá sig um tillöguna.
Rússar fái greitt fyrir gas í evrum
Moskvu. AP, AFP.