Morgunblaðið - 18.05.2001, Blaðsíða 55
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2001 55
Kringlunni - Faxafeni
www.t
k.is
líttu á
6 stk. kr.2.500.-
eða 12 stk. kr. 4.950.-
Hvítvín, rauðvín, bjór, öl, kampavín,
koníak, líkjör.
Ó t r ú l e g t v e r ð !
rúðhjóna-
listarnir
eru hjá okkur
SÉRFRÆÐINGAR frá Leica verða
í Beco, Langholtsvegi 84, til að
kynna framleiðslulínu fyrirtækisins í
dag, föstudag milli kl. 10:00 og 18:00
og á laugardaginn milli kl. 10:00 og
14:00. Ýmsar nýjungar verða kynnt-
ar ásamt því að sérfræðingarnri
veita faglega ráðgjöf og tækniupp-
lýsingar.
Kynning á
vörum í Beco
AÐFARANÓTT sunnudagsins 13.
maí sl. eða um kl. 2 varð árekstur á
gatnamótum Sæbrautar og Holta-
vegar en þar mun hvítri Mazda 323-
bifreið hafa verið ekið aftan á bifreið-
ina PE-003, sem er rauð Renault-
fólksbifreið.
Mazda-bifreiðin fór hins vegar af
vettvangi án þess að hafa tal af öku-
manni hinnar bifreiðarinnar eða til-
kynna um óhappið til lögreglu. Þeir
sem geta gefið frekari upplýsingar
um Mazda-bifreiðina eða tildrög
óhappsins eru beðnir að snúa sér til
lögreglunnar í Reykjavík.
Auglýst eftir
vitnum
SÖNGVINIR, kór aldraðra í Kópa-
vogi, heldur tónleika í Félagsheim-
ilinu á Kirkjubæjarklaustri laugar-
daginn 19. maí nk. og hefjast þeir kl.
17:00.
Stjórnandi er Sigurður Bragason.
Tónleikar
á Klaustri
HALDIÐ verður upp á 20 ára afmæli
Ægisborgar að Ægisíðu 104 föstu-
daginn 18. maí. Afmælishátiðin verð-
ur sett kl. 15:00 og þá verður lagt af
stað í skrúðgöngu um hverfið. Gest-
um og gangandi gefst tækifæri til að
skoða þau fjölmörgu listaverk sem
börnin hafa unnið í tilefni dagsins. Að
sjálfsögðu verður skemmtun af ýmsu
tagi á boðstólum fram eftir degi.
Ægisborg er fjögurra deilda leik-
skóli sem stendur nánast við sjávar-
síðuna og því er tilvalið að nýta sér
umhverfi hans til könnunarleiðangra.
Lögð er áhersla á skapandi starf, tón-
list og frjálsan leik sem helstu leiðir
til að hvetja barnið til að þroska með
sér þá hæfileika sem það býr yfir og
unnið er að ákveðnu þema á hverjum
tíma, segir í fréttatilkynningu.
Leikskólinn
Ægisborg
20 ára í dag
NORSKI trúboðinn Aril Edvardsen
frá Sarons Dal í Noregi verður á Ís-
landi dagana 18. til 20. maí næstkom-
andi. Aril, sem er þekktur víða um
heim, mun boða fagnaðarerindið og
segja frá kristniboðsstarfi sínu. Starf-
ið nær um allan heim fyrir tilstilli
samtaka hans, Troens Bevis Verdens
Evangelisering. Samkomur Arils
verða haldnar í Hvítasunnukirkjunni
Fíladelfíu, Hátúni 2 í Reykjavík.
Troens Bevis-kristniboðssamtökin
beina kröftum sínum að því að boða
fagnaðarerindið þjóðabrotum sem til
þessa hafa ekki notið kristniboðs. Í
því skyni eru styrktir meira en 1.200
innfæddir trúboðar víða um heim og
sjónvarpsþættir sendir um gervi-
hnetti til Evrópu og Norður-Afríku.
Einnig er sent sjónvarpsefni til landa
fyrrum Sovétríkjanna og víða um
Afríku. Þessu starfi er fylgt eftir með
bréfaskólanámskeiðum og eru reknar
25 skólaskrifstofur í 19 þjóðlöndum í
því skyni.
Aril Edvardsen verður á sjón-
varpsstöðinni Omega föstudagskvöld
18. maí kl. 20:00 og síðan predikar
hann á samkomum í Fíladelfíu, Há-
túni 2, laugardagskvöld kl. 20:00 og
sunnudag kl. 16:30. Það eru allir vel-
komnir meðan húsrúm leyfir.
Norskur trúboði
heimsækir Ísland
STOFNFUNDUR undirbúnings-
nefndar fyrir þátttöku í Heimsmóti
ungs fólks og námsmanna í Alsír 8.-
16. ágúst 2001 verður haldinn á
Geysi kakóbar laugardaginn 19. maí
kl. 14:00.
Heimsmót ungs fólks og náms-
manna var síðast haldið á Kúbu 1997,
en þá tóku 12.000 manns þátt. Það er
undirbúið af World Federation of
Democratic Youth, sem er samband
félaga ungs fólks í öllum heimsálfum.
Kjörorð mótsins er: „Hnattvæðum
baráttuna fyrir friði, samstöðu og
uppbyggingu, gegn heimsvalda-
stefnu“. Á mótinu verða málstofur
um frið og öryggismál, frjálshyggju
og hnattvæðingu, lýðræði, mann-
réttindi og félagslegt réttlæti, rétt-
indi ungs fólks við nám og störf og al-
þjóðlega hreyfingu ungs fólks.
Auk þess verða aðrir fundir og
uppákomur, meðal annars fundir
félagshópa, ýmiss konar afþreying,
íþróttir, tónlist og kvikmyndir.
Netfang hefur verið opnað af und-
irbúningshópnum: heimsmot@mi.is
Heimsmót
ungs fólks
haldið í Alsír
SJÁLFSTÆÐISFÉLAG Kópavogs
varð 50 ára í nóvember 2000 og af
því tilefni hefur það gefið út göngu-
stígakort sem verið er að dreifa inn
á hvert heimili í Kópavogi þessa
dagana. Sjálfstæðisfélagið vill með
þessu korti kynna gönguleiðir í
Kópavogi fyrir bæjarbúum, sér-
staklega þeim sem hafa flutt sig um
set á nýjan stað. Göngustígar hafa
verið að lengjast jafnt og þétt í
Kópavoginum undanfarin ár.
Stjórn Sjálfstæðisfélags Kópavogs
og bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins verða með göngudaga í
sumarbyrjun og verður sá fyrsti
laugardaginn 19. maí. Lagt verður
af stað kl. 10.00 frá Lindaskóla og
gengið um hverfið og niður að tjörn
í Kópavogsdal. Annar göngudagur
verður 26. maí. Þá verður farið frá
stíflunni við Elliðavatn kl. 10.00 og
gengið um Vatnsendahæð.
Nýtt kort um
gönguleiðir í
Kópavogi
HITAVEITA Suðurnesja hf. hefur
fjárfest í nýju símkerfi sem sameinar
tölvu- og símabúnað. Hitaveitan mun
vera fyrst íslenskra fyrirtækja til að
fjárfesta í slíkum búnaði.
Fyrirtækið valdi Cisco CallMan-
ager netbúnað frá Tæknivali hf. sem
byggist á tækni frá stærsta netbún-
aðarfyrirtæki heims, Cisco Systems.
Tæknin kallast AVVID (Architect-
ure for Voice Video and Integrated
Data) og segir í fréttatilkynningu að
með samningnum séu mörkuð þátta-
skil hér á landi á þessu sviði þar sem
almennt sé talið að IP-símkerfi muni
leysa hefðbundnar símstöðvar af
hólmi á næstu árum.
Hitaveitan er með starfsemi á
þremur stöðum, Reykjanesbæ,
Hafnarfirði og Svartsengi og er nú
unnið að því að setja upp eitt heild-
stætt gagnakerfi fyrir bæði síma-
þjónustu og flutning á tölvugögnum
fyrir alla staðina.
Ólafur Jóhann Ólafsson deildar-
stjóri hjá Tæknivali segir þjónustu-
möguleika breytast mikið með IP-
símstöð því símakerfi renni saman
við tölvukerfi. Hann segir að fyrir-
tæki geti þannig dregið úr rekstr-
arkostnaði. Hann segir að einnig sé
hægt að ná sparnaði í línuleigu þar
sem ekki þurfi að gera ráð fyrir
símalögnum. Símkerfið getur annað
allt að 2.500 notendum, sem geta
verið á einum stað, eða mörgum.
Hitaveita Suðurnesja fyrst með IP-símkerfi
Sími og tölva renna saman
í eitt tæki í nýju símkerfi
BSRB hefur sent frá sér ályktun þar
sem mótmælt er harðlega lögum rík-
isstjórnarinnar um bann við verkfalli
sjómanna. „Lögin svipta sjómanna-
stéttina samningsrétti og eru það
skýlaus brot á mannréttindum og
hafa verið færð rök fyrir því að lögin
standist ekki stjórnarskrá Íslands
og alþjóðlegar samþykktir sem lúta
að vinnurétti og mannréttindum. Áð-
ur hefur ríkisstjórnin freklega gripið
inn í þessa kjaradeilu og varð það til
þess að veikja samningsstöðu sjó-
manna.
Þau lög sem nú hafa verið sett á
sjómenn bera þess merki að ríkis-
stjórnin gangi erinda atvinnurek-
enda. BSRB krefst þess að sjómönn-
um verði þegar í stað færður
samningsréttur þannig að þeir geti
samið um kjör sín eins og aðrar
stéttir,“ segir í ályktuninni.
BSRB mót-
mælir lögum
á sjómenn
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦