Morgunblaðið - 14.12.2001, Síða 6

Morgunblaðið - 14.12.2001, Síða 6
FRÉTTIR 6 FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ að kaupa brauð og farið að smyrja.“ Inga Jóna segir að þær hafi svo verið mættar um hálfáttaleytið strax morguninn eftir í slysavarn- arhúsið Líkn á Hellissandi. „Við buðum upp á súpu og smurt brauð um morguninn en í hádeginu eld- uðum við mat sem var í boði frá klukkan hálfeitt til fjögur því að björgunarmennirnir komu inn á svo mismunandi tímum. Eftir matinn héldum við áfram að smyrja brauð og hella upp á kaffi og þegar við fórum heim um kvöldið skildum við eftir nægt brauð og kaffi fyrir nótt- ina,“ segir Inga Jóna en meirihluti björgunarsveitarmanna hættir leit yfirleitt um fimmleytið á daginn þegar farið er að skyggja. Slysavarnardeildirnar hafa, að sögn formannanna, unnið sem ein þessa daga sem leit hefur staðið yf- ir; slysavarnardeildin Helga Bárð- ardóttir sá þó að mestu um að sinna björgunarsveitarmönnunum í slysa- varnarhúsinu Líkn um helgina en slysavarnardeildin Sumargjöf kom inn í þá vinnu í vikunni. Þá hefur sú síðarnefnda verið með bækistöð í húsi sínu Mettubúð í Ólafsvík þar Þ AÐ þurfti enginn að taka með sér nesti eða fara út í sjoppu sem kom hingað í leit,“ segir Ingi Hans Jónsson, fulltrúi í svæðisstjórn björgunarsveita á Snæfellsnesi, þegar hann lýsir því ósérhlífna starfi sem tugir kvenna í slysavarnardeildinni Helgu Bárð- ardóttur frá Hellissandi annars veg- ar og slysavarnardeildinni Sum- argjöf frá Ólafsvík hins vegar hafa unnið síðustu daga á meðan leit hef- ur staðið yfir að skipverjum Svan- borgar SH-404 sem fórst við Skála- snaga sunnan við Öndverðarnes á föstudagskvöld fyrir viku. „Þær hafa rekið mötuneyti í björgunarmiðstöðinni Líkn á Hellis- sandi – þaðan sem leitinni er stjórn- að – fyrir á annað hundrað manns og borið á borð heilu hlaðborðin í örþreytta björgunarmenn. Jólasmá- kökurnar sem þær voru búnar að baka heima hjá sér eru meira og minna komnar í vömbina á okkur björgunarmönnunum,“ segir Ingi Hans ennfremur og segir starf þess- ara kvenna ekki síður merkilegt en þeirra manna sem gengið hafa fjörur á Snæfellsnesi síðustu daga. Staðið vaktina frá föstudagskvöldi Slysavarnardeildin Helga Bárð- ardóttir er skipuð rúmlega fimmtíu konum og slysavarnardeildin Sum- argjöf er skipuð rúmlega sextíu konum. Formenn þessara deilda, þær Sigrún Ólafsdóttir, sem er for- maður Sumargjafar, og Inga Jóna Guðlaugsdóttir, sem er formaður slysavarnardeildar Helgu Bárð- ardóttur, segja í samtali við Morg- unblaðið að konur frá þessum deild- um hafi staðið vaktina; tvær til þrjár í einu í þrjá til fjóra tíma í senn, alla daga frá því að Svanborg SH-404 fórst við Skálasnaga á föstu- dagskvöld. Þær hafi séð til þess að ávallt væri til kaffi, smurt brauð, kex og kökur í björgunarmiðstöð- inni Líkn. Einnig hafi þær eldað heitan mat í hádeginu og séð til þess að nóg væri af mat fyrir nóttina þegar þær fara heim á kvöldin. Um 140 björgunarsveitamenn víða af landinu tóku þátt í leitinni þegar mest var um helgina og segja formennirnir að þær hafi t.d. fengið inn til sín um 50-60 manns í einu holli í hádegismat á sunnudag. „Við byrjuðum vaktina strax á föstudagskvöldið,“ segir Inga Jóna, „og komum með mjólk og kaffi til björgunarsveitarmanna þá um kvöldið en um leið og ég frétti hvers eðlis slysið var var rokið út í búð til sem bæjarbúum er boðið upp á kaffi og meðlæti. „Um helgina komu margir til okkar til þess að fá nánari fregnir af leitinni,“ útskýrir Sigrún og segir það í raun einstakt að upplifa þann samhug sem ríkir í Ólafsvík þessa dagana. „Það má eiginlega segja að allir sem vettlingi geta valdið hafi komið færandi hendi; fyrirtæki hafa gefið mat og búðir verið opnaðar fyrir okkur snemma morguns eða seint á kvöldin. Þá hafa margar konur komið með skonsur, pönnu- kökur, smákökur og heimabakað brauð.“ Og þessar „kræsingar“ hafa allar „endað í vömbum leitarmannanna“, eins og Ingi Hans orðaði það. „Og það er ekkert smáræði að halda öll- um þessum mannskap í fæði,“ bætir hann við en í vikunni hafa að jafnaði um þrjátíu til fjörutíu manns gengið fjörur á Snæfellsnesi. Stofnað af sjómannskonum Slysavarnardeildirnar Helga Bárðardóttir og Sumargjöf heyra undir Slysavarnarfélagið Lands- björgu. Að sögn Sigrúnar Þor- steinsdóttur, sviðsstjóra á slysa- varnarsviði Landsbjargar, voru fyrstu slysavarnardeildirnar sem stofnaðar voru hér á landi stofnaðar af eiginkonum sjómanna fyrir um sjötíu árum. Var upprunalegur til- gangur þeirra m.a. að bæta aðbún- að sjómanna og safna fé fyrir björgunartækjum. Síðan hafa þess- ar deildir kvenna þróast í þá átt að efla forvarnir á fleiri sviðum en til sjós, til dæmis að efla forvarnir gegn umferðarslysum og slysum barna ásamt því að styðja við sínar björgunarsveitir, svo sem með fjár- söfnum og með því að sjá um mat í leit og björgun. „Þetta hefur verið mikil vinna síðustu daga,“ segir Inga Jóna og bætir því við að samstarfið og skipulagningin hafi gengið vel. „Allir eru jákvæðir og tilbúnir að leggja sitt af mörkum. Þegar hringt er í konur og þær beðnar um að koma og aðstoða segja þær allar já. Ég hef aldrei unnið að svona starfi áður og kom það mér á óvart hve mikill samhugur er meðal fólks,“ segir Inga Jóna en konurnar í slysa- varnardeildunum munu standa vaktina um helgina verði leit haldið áfram. Tugir kvenna hafa staðið vaktina síðustu daga vegna sjóslyssins við Snæfellsnes Allir eru tilbúnir að leggja sitt af mörkum Morgunblaðið/Alfons Albína Gunnarsdóttir og Sigrún Ólafsdóttir færa björgunarsveitar- mönnum mat. Inga Jóna Guðlaugsdóttir fylgist með. Það eru ekki bara björgunarsveitar- menn á Snæfellsnesi sem staðið hafa vakt- ina síðustu viku. Í grein Örnu Schram kemur fram að tugir kvenna í slysavarn- ardeildum í Ólafsvík og á Hellissandi hafa séð um matseldina á meðan á leit hefur staðið. arna@mbl.is HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt mann til að greiða 11 milljónir króna sekt í ríkissjóð eða sæta ella fangelsi í fimm mánuði fyrir að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti. Í Hér- aðsdómi Reykjaness í júní sl. var ákærði dæmdur til að greiða þrjár milljónir króna í sekt. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa ekki staðið skil á virðisauka- skatti á einu uppgjörstímabili á árinu 1995 og tveimur uppgjörstímabilum á árinu 1996. Ákærði rak fyrirtæki og í öllum tilvikum hafði hann gefið út reikninga vegna sölu tækja til annarra fyrirtækja og bætt við fjár- hæð þeirra virðisaukaskatti þótt ekki væri um skattskyld viðskipti að ræða. Ákærði bar því við að skila- skylda virðisaukaskatts, sem rang- lega hefði verið tilgreindur á reikn- ingi, félli niður ef leiðréttingu yrði komið við gagnvart kaupanda, en hann hefði komið við slíkri leiðrétt- ingu. Væru skil skattsins eftir útgáfu innleggsreikningsins einkaréttar- legt mál milli hans og kaupanda. Í dómi Hæstaréttar segir að virð- isaukaskatti, sem tilgreindur sé á reikningi, skuli skilað í ríkissjóð jafn- vel þótt hann sé of hár eða af við- skiptum, sem ekki eru skattskyld. Hafi fé skipt um hendur vegna greiðslu reiknings verði leiðréttingu gagnvart greiðanda ekki komið við eftir lok uppgjörstímabils nema fyrir milligöngu ríkissjóðs. Í dómnum segir að maðurinn hafi ekki staðið skil á virðisaukaskatti að fjárhæð rúmar 5,3 milljónir króna og teljist brot hans því meiriháttar. Málið dæmdu hæstaréttardómar- arnir Markús Sigurbjörnsson og Árni Kolbeinsson og Arnljótur Björnsson, fyrrverandi hæstaréttar- dómari. Dæmdur í 11 milljóna sekt fyrir skattsvik HEILDARSKULDIR Hafnar- fjarðarbæjar nema tæpum 9 millj- örðum króna nú í árslok 2001 og hafa tvöfaldast frá upphafi þessa kjörtímabils, að því er fram kemur í fréttatilkynningu minnihluta- flokks Samfylkingar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Ný fjárhagsáætlun bæjarins fyrir árið 2002 var tekin til afgreiðslu á fundi bæjarstjórnar á þriðjudag og á fundinum lögðu bæjarfulltrúar Samfylkingar fram breytingatillögur sem ætlað var að spara í rekstri bæjarins, auk þess sem tillögurnar gerðu ráð fyrir niðurskurði í útgjöldum með það að markmiði að stöðva frekari skuldasöfnun bæjarins, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Tillögurnar voru hins vegar felldar af meirihluta Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks, auk þess sem meirihlutinn felldi tillögu minnihlutans um að hafinn yrði undirbúningur að því að koma á fót mötuneytum í grunnskólum bæj- arins og tillögu um 10 milljón króna framlag til að lækka og síð- an afnema æfingagjöld barna 10 ára og yngri hjá íþróttafélögum bæjarins. Í bókun Samfylkingarinnar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar segir m.a. að taka þurfi alla áætlanagerð bæjarins til gagngerðrar endur- skoðunar. „Þannig var í ramma- fjárhagsáætlun meirihlutans frá 1999 áætlað að heildarskuldir í árslok 2001 yrðu um 6,7 milljarðar framreiknað til verðlags þessa árs en eru komnar yfir 8,8 milljarða króna. Meira að segja rammaáætl- un meirihlutans frá því fyrr á þessu ári er orðin marklaus en þar var gert ráð fyrir heildarskuldum í árslok upp á 8,4 milljarða en þær stefna nú hátt í 8,9 milljarða króna. Á nokkrum mánuðum er því komin skekkja upp í hátt í hálfan milljarð króna,“ segir í bókuninni. Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar Samfylk- ingin vill stöðva skulda- söfnun ENDURNÝJA á vopna- geymslur varnarliðsins sem byggðar voru árið 1953, sem hýsa m.a. flugskeyti sem flug- vélar varnarliðsins bera, og hefur forvalsnefnd utanríkis- ráðuneytisins auglýst fyrirhug- að útboð vegna framkvæmd- anna fyrir hönd verkfræði- deildar Bandaríkjaflota. Að sögn Friðþórs Eydal, upplýsingafulltrúa varnarliðs- ins, hafa þessar framkvæmdir staðið til í um tíu ár. Til stend- ur að leggja niður sprengiefna- og skotfærageymslur á svo- kölluðum Patterson-flugvelli á varnarsvæðinu, sem reistar voru í upphafi veru varnarliðs- ins á Keflavíkurflugvelli og teknar í notkun árið 1953. Í staðinn á að reisa nýjar vopna- geymslur vestan við flugvöll- inn. Ekki er um stórar byggingar að ræða en í þeim eru geymd vopn og skotfæri af ýmsum toga, frá handvopnum til flug- skeyta. Vopna- geymslur varnarliðs- ins endur- nýjaðar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.