Morgunblaðið - 14.12.2001, Blaðsíða 71
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2001 71
Eyjarslóð 9 (út á Granda) Sími 588 2759
HEILDSÖLUVERÐ
Á ÖLLUM VÖRUM
LAUGARDAGINN 15. DES
kl.11 - 18
Mini Quiches 1,5 kg
12 Mini Krem kex
12 Eclairs Chocolat/Café
40 Mignardises (NÝTT)
Foret Noire
Quorn Pieces,
Quorn Mince
og margt fleira
Verið velkomin
Hátíðargleraugu
Hver einasta umgjörð
frá Daniel Swarowski
eyewear er lítið
meistaraverk.
Umgjarðirnar eru
23 kt. gullhúðaðar
með handsettum
kristöllum.
Gleraugnasalan,
Laugavegi 65 - Sími 551 8780
TEKIN var fyrsta skóflustungan
að íþróttahúsi og auknu kennslu-
rými við Grunnskólann í Vík á
fimmtudag. Hreppsnefnd Mýrdals-
hrepps tók fyrstu skóflustunguna í
sameiningu með sérhannaðri
skóflu sem Smári Tómasson hann-
aði og smíðaði.
Athöfnin hófst með fundi sveit-
arstjórnar fyrir framan grunnskól-
ann. Helga Þorbergsdóttir oddviti
flutti ávarp og síðan var væntanleg
framkvæmd blessuð af Haraldi M.
Kristjánssyni prófasti. Þá lék
Lúðrasveit tónskólans undir stjórn
Zoltán Szklénár tvö lög.
Það er byggingarfélagið Klakk-
ur sem byggir húsið sem verður
rúmir 1.000 fermetrar úr stein-
steypu og stálgrind og hannað af
Alark arkitektastofu. Það á að
hýsa íþróttahús og þegar það er
fullbúið flyst allur grunnskólinn
undir eitt þak en hingað til hefur
verið kennt á tveim stöðum, bæði
á Ketilsstöðum og í Vík. Einnig
flytur tónskólinn í þetta nýja hús-
næði. Þá er gert ráð fyrir að sund-
laug rísi síðar. Húsið á að vera
tilbúið haustið 2002.
Það hefur verið langþráður
draumur hjá mörgum Mýrdæling-
um að fá almennilega íþróttaað-
stöðu en hingað til hafa Leikskál-
ar, félagsheimili Mýrdælinga,
gegnt hlutverki íþróttahúss og öll
leikfimikennsla farið fram þar við
ófullnægjandi aðstæður. Húsið
mun fullbúið kosta rúmlega hundr-
að milljónir en á þó ekki eftir að
auka rekstrarkostnað hreppsins
vegna hagræðis sem skapast við
að hafa skólann á einum stað.
Vegna þess hve húsið mun kosta
mikið var ákveðið að hrinda af stað
söfnun til að fjármagna gólfið í
íþróttasalnum og hafa þegar borist
margar góðar gjafir frá einstak-
lingum, fyrirtækjum og félagasam-
tökum. Í tilefni af þessum viðburði
gáfu margar verslanir afslátt og
margir flögguðu íslenska fánanum.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Hreppsnefndin með fyrstu skóflustunguna: Bryndís Harðardóttir, Guðrún Jónsdóttir, Steinþór Vigfússon,
Helga Þorbergsdóttir oddviti, Guðmundur Pétur Guðgeirsson, Svanhvít Sveinsdóttir og Sigurður Harðarson.
Bygging íþróttahúss hafin í Vík
Fagridalur
SVEITARFÉLAGIÐ Árborg
hefur ákveðið að draga sig út
úr viðræðum við Hitaveitu
Suðurnesja og Bæjarveitur
Vestmannaeyja um samein-
ingu hita- og rafveitna. Á
fundi sínum í gærmorgun
staðfesti bæjarráð Árborgar
niðurstöðu vinnufundar bæjar-
stjórnar og stjórnar Selfoss-
veitna þessa efnis og fól bæj-
arstjóra og veitustjóra að
kanna möguleika á öðrum val-
kostum.
Vilja eiga hita-
veituna áfram
„Við viljum kanna betur
þann möguleika að selja raf-
veituna og athuga hvaða verð
má fá fyrir hana en það var
vilji allrar bæjarstjórnarinnar
að eiga áfram hitaveituna,“
sagði Kristján Einarsson, for-
seti bæjarstjórnar Árborgar.
Hann sagði ennfremur að í
frumvarpi að nýjum orkulög-
um sem nú liggja fyrir á Al-
þingi væri gert ráð fyrir að-
skilnaði þessara eininga hjá
veitufyrirtækjum.
Vill
kanna
sölu raf-
veitunnar
Árborg
Dregur sig út úr
viðræðum
um Suðurveitu
Á FYRSTA degi aðventunnar
er jólatré sett upp í Grund-
arfjarðarbæ. Tréð er í mið-
bænum og er til mikillar prýði
og vekur góða jólastemningu
hjá bæjarbúum. Þetta er ár-
viss viðburður sem allir
hlakka til. Það er einnig ár-
viss viðburður að einhvern
tímann á aðventunni fellur
tréð um koll fyrir suðaustan
eða suðvestan ofsaveðrum sem
svo algeng eru á norðanverðu
Snæfellsnesi. Í ofsaveðrinu um
síðustu helgi var komið að
falli trésins þetta árið en strax
og lægði fóru menn af stað,
reistu tréð við aftur og njörv-
uðu það vandlega niður í von
um að það fyki ekki aftur á
þessum jólum.
Árviss viðburður í
Grundarfjarðarbæ
Grundarfjörður
FYRSTU íbúarnir í nýrri 20 íbúða
blokk við Fossveg 6 á Selfossi fengu
íbúðir sínar afhentar 10. desember.
Um er að ræða fyrstu íbúðablokkina
í Fosshverfi við Eyraveg á Selfossi.
„Fyrsta skóflustungan var tekin 9.
apríl á þessu ári og við erum auðvit-
að dálítið roggnir yfir því að geta
staðið við tímasetningarnar,“ sagði
Gísli Ágústsson, einn eigenda JÁ-
verktaka sem byggðu húsið.
Húsið þykir sóma sér vel í hinu
nýja hverfi og vekur athygli þá ekið
er um Eyraveginn en hönnuður þess
er Sigurður Þorvarðarson, Teikni-
stofunni Strandgötu 11 í Hafnarfirði.
Það var Fasteignasalan Bakki á Sel-
fossi sem annaðist sölu íbúðanna í
blokkinni og eru þær allar seldar
sem ásamt öðru þykir bera vott um
þá fjölgun sem er á Selfossi og í ná-
grenni.
Fyrsta íbúðablokkin
risin í Fosshverfi
Morgunblaðið/Sig. Jóns
Hin nýja íbúðablokk þykir sóma sér vel í nýja Fosshverfinu á Selfossi.
Selfoss
Morgunblaðið/Sig. Jóns
Frá afhendingu íbúðanna.
Þröstur Valdimarsson fast-
eignasali, Gísli Ágústsson, JÁ-
verktökum, Sveinn Sigursveins-
son, Gísli Hermannsson, Hólm-
fríður Sigurðardóttir og Elín-
borg Kjartansdóttir.
MENNINGARMÁL