Morgunblaðið - 14.12.2001, Blaðsíða 37
LISTIR/KVIKMYNDIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2001 37
ER NEFIÐ HREINT?
Fæst í apótekum
og lyfjaverslunum
Nefþurrkur, kvef eða ofnæmi!
STERIMAR er náttúrulegur
nefúði sem losar stíflur
og léttir öndun.
Fyrir 0-99 ára.
Háskólabíó frumsýnir Amélie með Audr-
ey Tautou, Mathieu Kassovitz, Yolande
Moreau, Dominique Pinon
Á DÖGUNUM vann franska
myndin Amélie, helstu evrópsku
kvikmyndaverðlaunin, hlaut Felix
sem besta mynd ársins og Jean-
Pierre Jeunet, besti leikstjórinn.
Jeunet hefur vakið geysimikla at-
hygli á síðasta áratug, allt frá því að
Delicatessen, leit dagsins ljós, árið
1990. Jeunet fylgdi henni eftir með
mjög ólíkum myndum; Borg hinna
týndu barna og Alien: The Resurrec-
tion.
Amélie er af allt öðrum toga, ljóð-
ræn, með keim af ævintýrum
bernskunnar. Björt yfirlitum og
gleðjandi. Titilpersónan er ung
stúlka (Tautou), sem lifir í sínum
þrönga heimi í Parísarborg. Nýbúin
að missa móður sína og eftir fráfall
hennar hefur faðirinn verið henni
fráhverfur. Amélie verður því að
leita skjóls í eigin heimi, sem er eink-
um vinnufélagar hennar á kaffihúsi í
borginni, og sundurleitir nágrannar.
Einn góðan veðurdag finnur
Amélie kassa með leikföngum í íbúð
sinni. Hún finnur einnig eitthvað til
að fást við, dreifa huganum frá grá-
leitum hversdagsleikanum. Hefur
leit að eigandanum sem finnst eftir
ærna fyrirhöfn. Úr fjarlægð hrífst
hún af ósvikinni gleði mannsins er
hann endurheimtir gullin sín og
Amélie fær köllun í lífinu: Hún ætlar
að bæta líf allra þeirra sem hún get-
ur með einhverju móti hjálpað.
Amélie sendir m.a. garðálf föður
síns í hnattferð mönnum til huggun-
ar, bætir og lagar ástamál nágrann-
anna og vinnufélaganna og dag
nokkurn kemst hún á spor undarlegs
náunga sem á eftir að breyta lífi
þeirra til hins betra. Amélie fær
umbun erfiðis síns.
Leikkonan Audrey Tautou, er
Frökkum að góðu kunn, hefur leikið í
vinsælum myndum á síðustu árum,
en hún er aðeins 23 ára gömul.
Mótleikari hennar Mathieu
Kassovitz er hins vegar með þekkt-
ari leikurum og leikstjórum Frans-
manna.
Leikarar: Audrey Tautou (Vénus Beauté;
Dieu est grand, je suis toute petite;
Voyous voyelles). Mathieu Kassovitz
(The Fifth Element, Mon homme). Leik-
stjóri: Jean-Pierre Jeunet (Delicatessen,
Borg hinna týndu barna, Alien 4).
Amélie er engri lík
Amélie leitar skjóls í eigin heimi.
Smárabíó og Stjörnubíó frumsýna
Glass House, með Leelee Sobieski,
Trevor Morgan, Stellan Skarsgård,
Diane Lane, Bruce Dern.
ÞEGAR systkinin Ruby (Sob-
ieski) og Rhett (Morgan), missa
foreldra sína í bílslysi, eru þau
tekin í umsjá bestu vina fjöl-
skyldunnar, hjónanna Erin
(Diane Lane), og Terry Glass
(Skarsgård). Þau lofa systkinun-
um því besta sem völ er á; dá-
semdarlífi í sólbakaðri Kaliforn-
íu, svo þau komist sem fyrst yfir
missinn. Allt sem þau þurfa að
gera er að setjast upp í límósínu
Glasshjónanna og stefna á Mal-
ibuströndina.
Glasshjónin virðast ætla að
standa við orð sín, að gera allt
sem í þeirra valdi stendur til
hjálpar ungmennunum. Ruby
fær nóg af tískufatnaði, Rhett
vídeóleiki og sjónvarp fyrir sig.
Þeim kemur því á óvart að deila
með sér herbergi, en hjónin
segja að það verði aðeins til
bráðabirgða. Og lögmaður
systkinanna (Bruce Dern), full-
vissar þau um að fjárhagslegar
áhyggjur séu víðsfjarri, þau eigi
4 milljónir dala.
Það virðist því ekkert að ótt-
ast, eða hvað? Ruby fer smám
saman að gruna að ekki sé allt
með felldu. Er það hugarburður
eða eru systkinin í lífshættu í
glæstum húsakynnum Glass-
hjónanna?
Leikhópurinn er blanda ungra
og upprennandi leikara, og eldri
fagmanna í fremstu röð. Leele
Sobieski vakti geysilega athygli
í Eyes Wide Shut, síðustu mynd
Kubricks, og hefur haft yfirdrif-
ið nóg fyrir stafni síðan. Hún
fer hér með aðalhlutverkið.
Skarsgård er viðurkenndur, al-
þjóðlegur leikari, sænskur að
ætt og uppruna og leikur ýmist
í Evrópu og Hollywood. Diane
Lane hefur verið áberandi í
Hollywood í áraraðir og á að
baki myndir á borð við The Per-
fect Storm og gamlar Coppola
myndir.
Bruce Dern er eitt af stóru
nöfnunum sem farin eru að taka
því rólega. Ólst upp með Jack
vini sínum Nicholson, hjá B-
myndasmiðnum Roger Corman,
en hefur birst í mýmörgum
hlutverkum í gegnum árin.
Leikarar: Leelee Sobieski (Eyes
Wide Shut, Joy Ride); Stellan
Skarsgård (Óbærilegur léttleiki til-
verunnar, Good Will Hunting, The
Wind); Diane Lane (Rumble Fish,
The Outsiders, The Cotton Club,
The Perfect Storm); Bruce Dern
(Coming Home, The Great Gatsby,
The Family Plot, The King of Marv-
in Gardens) Leikstjóri: Michael
Sackheim (frumraun).
Ekki allt
með felldu
Er Ruby í lífshættu í glæstum húsakynnum Glass-hjónanna?
Sambíóin í Reykjavík og Akureyri, frum-
sýna Rock Star, með Mark Wahlberg,
Jennifer Aniston og Jason Flemyng.
FYRRUM hip hop-tónlistarmað-
urinn og ofurmódelið Mark Wahl-
berg, er kominn á lista með vinsæl-
ustu og dýrustu stjörnum Hollywood.
Ævintýrið hófst er hann sló, mjög svo
óvænt, í gegn sem klámmyndastjarn-
an í Boogie Nights. Hann er alhliða
leikari, síðast sáum við hann sem
ósvikna, alameríska ofurhetju í
Apaplánetunni. Í ljósárafjarlægð frá
klámmyndaleikaranum. Í Rock Star
sýnir hann á sér enn eina hlið.
Chris Cole (Wahlberg), er fæddur
rokkari. Þvert á vilja Emily (An-
iston), vinkonu sinnar, sem er þess
fullviss að hann geti samið og flutt
eigin tónlist og farið út á sólóferil, er
hann tryggur gamla rokkbandinu
sínu. Þá stælir hann Bobby Bears,
forsprakka rokkgrúppunnar Steel
Dragon, goðsögn í rokkheiminum,
sem hefur ofurtök á öllu lífi Cole. Í
einkalífinu er Cole á hinn bóginn ró-
legaheita náungi, heimakær og fjöl-
skylduvænn. Liggur í gamla Dods-
inum sínum og slæst við bróður sinn.
Allt er líkt og vant.
Sú ímynd hverfur gjörsamlega af
Cole er hann treður upp á sviðinu
með rokkhljómsveit sinni, Blood
Pollution; þá verður Cole að Bobby
Bears og heltekur áheyrendur í full-
kominni efirlíkingu í sviðsframkomu
og söng.
Engu að síður er Cole rekinn úr
gamla bandinu og heimurinn hrynur
saman. Þegar neyðin
er stærst fær Cole
símhringingu, hann
beðinn um að taka
stöðu Bears í hinni
sögufrægu Steel
Dragon. Hringingin
breytir öllu lífi hans
um aldur og æfi.
Hann fær allt sem
hann óskaði sér. Á
skammri stundur
breytist hann úr
gutlara í ofurstjörnu.
Rokkguðinn sem
hann hefur ætíð
dreymt um. Hvað
gerist þegar ósköp venjulegur strák-
ur fær allt sem hann óskar sér – og
kemst að því að það er ekki nóg?
Leikarar: Mark Wahlberg (Basketball
Diaries, The Perfect Storm, Planet of the
Apes). Jennifer Aniston (Office Space,
The Iron Giants, sjónvarpsþættirnir
Friends); Jason Flemyng (Snatch, The
Body). Leikstjóri: Stephen Herek (Critt-
ers, Mr. Holland’s Opus, 101 Dalmat-
ians).
Úr gutlara í goðsögn
Chris Cole (Mark Wahlberg) er fæddur rokkari.
Laugarásbíó, Sambíóin og Borgarbíó
Akureyri frumsýna Zoolander með
Ben Stiller, Owen Wilson, Milla Jov-
ovich og Jon Voight.
ZOOLANDER (Ben Stiller), er
heimsins mesta karlkyns ofurmód-
el og hefur haldið þeim titli í þrjú
ár samfleytt. Á fjórða árinu kemur
köttur í ból bjarnar sem er hinn ít-
urvaxni Hansel (Owen Wilson).
Zoolander á erfitt með að kyngja
þeim bitra sannleika að vera ekki
lengur manna glæstastur í tísku-
heiminum svo hann hverfur aftur
heim á leið, á æskuslóðirnar, í
New Jersey.
Þar er sýningarmaðurinn kom-
inn af kolanámumönnum að lang-
feðgatali og sá eini sem hefur svik-
ist undan merkjum. Karl faðir
hans (Jon Voight), er satt að segja
ekkert of hrifinn af því að son-
urinn stundi jafn teprulegt
„kvennastarf“ og tískusýningar og
er ekki seinn á sér að reka Zool-
ander niður í kolaryk undirdjúp-
anna. Skaðinn er skeður, kola-
námumenn gera óspart grín að
„kerlingunni“, pabbinn skammast
sín og Zoolander heldur á ný yfir
Hudsonfljótið, til fyrri starfa.
Nú er Zoolander ekki lengur á
toppnum og verður að taka að sér
sýningarstörf fyrir fatahönnuðinn
Mugatu (Will Ferrell), sem er ekki
allur þar sem hann er séður. Án
þess að hafa grænan grun er verið
að misnota hann, gera sýningar-
manninn að hjálpartæki í djöful-
legum áætlunum Mugatus.
Málin þróast því á annan veg
hjá módelinu. Nú þarf hann sann-
arlega að taka á honum stóra sín-
um. Vaska af sér ilmefni og feg-
urðarmálningu og gerast
ofurhetja.
Ben Stiller er í hópi vinsælustu
gamanleikara Hollywood og sýndi
hæfileika sína í myndum eins og
There’s Something About Mary og
Meet the Parents, og hefur að auki
leikstýrt nokkrum gamanmyndum.
Aðalmótleikari hans, Owen Wilson,
er einn „heitasti“ leikarinn af
yngri kynslóðinni í dag, er m.a. í
aðalhlutverki (á móti Gene Hack-
man), í stríðs-
myndinni
Behind Enemy
Lines, sem er
ein af toppmynd-
unum vestra um
þessar mundir.
Leikarar: Ben
Stiller (Empire of
the Sun, Your
Friends and
Neighbours, Keep-
ing the Faith,
Meet the Par-
ents), Owen Wil-
son (Shanghai
Noon, Meet the
Parents, Cable
Guy), Will Ferrell
(Jay & Silent Bob Strike Back), Milla
Jovovich (The Fifth Element, Joan of
Arc). Leikstjóri: Ben Stiller (Reality
Bites, The Cable Guy).
Köttur í bóli
bjarnar
Ben Stiller er heimsins mesta karlkyns ofurmódel.