Morgunblaðið - 14.12.2001, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 14.12.2001, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2001 43 arða úr einu skuldaformi í annað. Slíkar aðgerðir lúta lögmálum fjár- málamarkaðarins og eiga ekki að valda uppnámi. Ég tel að það sé nægilega skýrt talað í þessum efn- um,“ segir hann. Spurður hvort gengi krónunnar mundi styrkjast í framhaldi af samkomulaginu sagði Ari að enginn gæti vitað um það hvernig gengið kæmi til með að þróast frá degi til dags. „Það sem ég geri mér vonir um er að þetta framlag geti stuðlað að því að menn telji það sennilegra en áður að það verði friður á vinnu- markaði, efnhagslegur stöðugleiki og verðbólga minnki. Það hlýtur að hafa áhrif á væntingar manna til framtíðar. Það er lykilatriði,“ sagði Ari. Forsendur fyrir hækkun á gengi krónunnar hafa styrkst Seðlabankinn fagnar samkomu- laginu í yfirlýsingu sem birt var í gær. ,,Með því hefur dregið úr óvissu í launa- og verðlagsmálum. Bankinn telur jafnframt að forsend- ur fyrir hækkun á gengi krónunnar hafi styrkst og líkur aukist á að verð- bólgumarkmið bankans náist,“ segir í yfirlýsingu Seðlabankans. ,,Vaxtabreytingar Seðlabankans hafa áhrif á verðbólgu með töf. Vaxtastefnan getur því úr þessu ekki haft afgerandi áhrif á hvort vísi- tala neysluverðs verður undir verð- lagsviðmiðun aðila vinnumarkaðar- ins í maí nk. Viðmiðunin samrýmist hins vegar nokkurn veginn verð- bólguspá Seðlabankans frá því í byrjun nóvember síðastliðins. Hærra gengi og áhrif lægra græn- metisverðs á verðlag auka líkur á að verðlagsviðmiðunin náist. Til lengri tíma ráðast verðlags- horfur af aðhaldi peningastefnunnar í samspili við eftirspurn í þjóðarbú- skapnum. Mikilvægt er að fjárlög voru samþykkt með sama afgangi og fjárlagafrumvarp gerði ráð fyrir þrátt fyrir verri horfur í efnahags- málum. Afar brýnt er að fram- kvæmd fjárlaga gangi eftir. Seðla- bankinn telur mikilvægt að lánamál ríkissjóðs á næsta ári stuðli við ríkjandi aðstæður að hærra gengi krónunnar og verðbólgumarkmiði bankans. Til að svo geti orðið þarf að gæta jafnt að langtímaáhrifum lán- töku ríkissjóðs á innlenda eftirspurn og verðbólgu sem og skammtímaáhrifum hennar á gengi krónunn- ar. Nýgert samkomulag aðila vinnumarkaðarins stuðlar að því að sú hjöðnun verð- bólgu sem spáð hefur verið á næsta ári gangi eftir. Í nóvember sl. spáði Seðlabankinn því að verðbólga yrði rúm 4% frá upphafi til loka næsta árs. Styrkist gengið á næstunni, eins og allar forsendur eru til, gæti verð- bólga orðið minni. Gangi þessi þróun eftir mun hún að öðru óbreyttu skapa forsendur fyrir frekari lækk- un vaxta,“ segir í yfirlýsingu Seðla- bankans. Spurður hvað samkomulagið muni kosta atvinnulífið sagði Ari að það væri tilraun til þess að hafa áhrif á verðlag og það kæmi ekki til neinna breytinga á samningi nema að slíkt næðist. „Ef svo er er verið að festa aðra prósentuna af tveimur sem atvinnurekendur eru skuld- bundnir til þess að greiða á móti sér- eignasparnaði starfsmanns. Með því að gera það án sparnaðar starfs- manns getur það kostað í kringum hálft prósent og launabreyting 1. janúar 2003 er 0,4% hærri en hún átti að vera,“ segir hann. Segir yfirlýsingu ríkisstjórnar gegna lykilhlutverki Ari sagði að yfirlýsing ríkisstjórn- arinnar gegndi lykilhlutverki og kæmi til með að styðja að samkomu- lag næðist. „En það reynir líka á rík- isstjórnina að stuðla að því áfram að markmið náist. Efnahagsstjórnin á tímabilinu hefur að sjálf- sögðu áhrif á að þetta náist eða ekki,“ sagði hann. Ari sagði að þó að mönnum fyndist að yfir- lýsing ríkisstjórnarinnar vegna samkomulags ASÍ og SA hefði al- mennt yfirbragð væri um að ræða stefnumörkun sem væri mikilvægt að staðið yrði við, um aðhald í rík- isfjármálum svo hægt yrði að stuðla að stöðugleika og lægri vöxtum. „Hvað varðar stefnumörkun í lánamálum er ekki við því búist að rætt sé um slík mál með glanna- legum hætti þegar verið er að flytja til dæmis milljarða eða tugi millj- félagi, sem hafa mikil áhrif og við einfaldlega treystum því að þeir taki þátt í þessari vegferð,“ segir Grétar. – Er verið að skapa nýja þjóðar- sátt? ,,Menn mega kalla þetta þjóð- arsátt og ef þetta tekst þá má kannski segja að svo hafi verið. En það sem við vorum að staðfesta hér er það sem fjölmennur fundur for- manna aðildarfélaga Alþýðusam- bandsins var í raun efnislega að samþykkja sl. mánudag með rífandi meirihluta,“ segir Grétar. Stuðla að friði á vinnumarkaði Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, kveðst gera sér vonir um að samkomulagið á milli ASÍ og SA geti stuðlað að friði á vinnumarkaði, efnhagslegum stöð- ugleika og minni verðbólgu. Ari kvaðst ánægður með niðurstöðuna og að það skyldi vera jafn víðtæk sátt um hana og raun ber vitni. Hann benti á að mikil áhersla var lögð á að niðurstaðan yrði trúverðug sem gæti þess vegna haft áhrif á væntingar til framtíðarþróunar fyrir fleiri heldur en þá sem að máli komu. „Mér sýnist á viðbrögðunum að það hafi tekist,“ sagði Ari og kvaðst bjartsýnn á að samkomulagið héldi. Ari sagði að launaliðurinn væri upp- segjanlegur í maí með þriggja mán- aða fyrirvara, í stað febrúar áður. Hann sagði að breytingar á samn- ingum, atriði er lúta að lífeyrismál- um, meiri hækkun launa 1. janúar 2003 og breytingar á trygginga- gjaldi, væru háðar því að samkomu- lagið héldi. sem þýðir % á næstu ta ári verði ins undir ta trúverð- m raunhæft ræða þrí- lst í því að nars vinna msetningu ess að það fjárhæðir deyrisinn- jafnframt ttir til að þannig að ukist ekki. ð lækkun kaðinum,“ skipti hvað numörkun í samstarfi rhæðirnar m á gjald- lla t“ ndi líkur á ð okkur í ptir okkur áli,“ sagði ina reynir öld og þau ssu og við um að þau . Við mun- Samtök at- lega gera eta, en svo essu sam- rinnar um samstilltar aðgerðir til að ná tökum á verðbólgu komi með a vegferð“ Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson mulags ASÍ og Samtaka atvinnulífsins í gær. F.v. Hannes G. Sigurðsson, aðstoð- A, Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, Finnur Geirsson, formaður SA, Grétar Þor- steinsson, forseti ASÍ, og Halldór Björnsson, varaforseti ASÍ. Mikilvægt að aðgerðir verði trúverðugar HÉR fer á eftir í heild yfirlýsing sem ríkisstjórnin gaf út í gær vegna samkomulags Alþýðu- sambands Íslands og Samtaka at- vinnulífsins: 1. Stöðugleiki í efna- hagsmálum „Efnahagsstefna ríkisstjórn- arinnar sem meðal annars er lögð til grundvallar í fjárlögum ársins 2002 miðar að því að tryggja stöðugleika í efnahagsmálum, styrkja undirstöður atvinnulífsins og stuðla að bættum lífskjörum. Mikilvægt er að þessi sjónarmið séu einnig höfð að leiðarljósi við ákvarðanir í launa- og verðlags- málum. Ríkisstjórnin lýsir stuðn- ingi við þau markmið sem aðilar vinnumarkaðarins hafa náð sam- komulagi um. 2. Aðhald í ríkisfjármálum Ríkisstjórnin telur afar mik- ilvægt að áfram verði fylgt að- haldssamri stefnu í ríkisfjár- málum. Í fjárlögum fyrir árið 2002 er gert ráð fyrir sama af- gangi og ákveðinn var í fjárlaga- frumvarpinu þrátt fyrir að staða efnahagsmála hafi heldur færst til verri vegar að undanförnu. Með þessari ákvörðun eru send afar skýr skilaboð til allra aðila um að meginmarkmið stjórnvalda í efnahagsmálum nái fram að ganga. Áform ríkisstjórnarinnar um sölu ríkisfyrirtækja, upp- byggingu stóriðju og fyrirhug- aðar breytingar á skattalegu um- hverfi einstaklinga og atvinnulífs styðja þessi markmið. 3. Lánamál ríkissjóðs Stefnan í lánamálum ríkissjóðs tekur einkum mið af almennri þróun efnahagsmála, og mun taka tillit til markmiða samkomulags aðila vinnumarkaðarins, og stöð- unni á innlendum lánamarkaði. Þetta getur falið í sér breytingar á lánasamsetningu ríkissjóðs án þess að um aukningu heild- arskulda verði að ræða. Rík- issjóður hefur á þessu ári aukið lántökur sínar á erlendum mark- aði í því skyni að styðja við gengi krónunnar og hamla gegn verð- bólgu. Á innlendum lánamarkaði verður áfram stefnt að því að styrkja vaxtamyndun og auka skilvirkni markaðarins. Á árinu 2002 verður þannig horft jafnt til áhrifa lánamála ríkissjóðs á gengi krónunnar og langtímaáhrifa á innlenda eftirspurn og verðbólgu. 4. Lækkun á grænmetis- verði og verðkannanir Ríkisstjórnin mun í samræmi við tillögur nefndar fulltrúa stjórnvalda, aðila vinnumarkaðar- ins og bænda beita sér fyrir því að tollar á grænmeti verði felldir niður á nokkrum mikilvægum af- urðum og í öðrum tilvikum lækk- aðir verulega. Í staðinn verða m.a. teknar upp beingreiðslur til framleiðenda. Þessar ráðstafanir munu leiða til verulegrar lækk- unar á grænmetisverði til neyt- enda og stuðla að lækkun verð- bólgu. Þessu verður fylgt eftir með öflugri upplýsingagjöf um verðmyndun á þessum vörum. Verðkannanir ASÍ á öðrum svið- um eru einnig mikilvægar til þess að hafa áhrif á verðlag og verður sú starfsemi efld. 5. Efling starfsfræðslu í atvinnulífinu Ríkisstjórnin mun í samstarfi við Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins beita sér fyrir endurskipulagningu á starfsfræðslu í atvinnulífinu. Markmiðið er bæði að auka fram- boð á starfsfræðslu og tryggja starfsemina. Samhliða því verði þessum málum komið í fastari skorður með skilvirkari samvinnu þeirra aðila sem sinna þessum verkefnum. 6. Lækkun tryggingagjalds Gangi verðlagsmarkmið kjara- samninganna eftir mun rík- isstjórnin beita sér fyrir lækkun tryggingagjalds um 0,27%, eða úr 6% í 5,73%, á árinu 2003. Rík- isstjórnin leggur áherslu á að áfram verði ýtrasta aðhalds gætt í ríkisfjármálum til þess að tryggja stöðugleika í efnahags- málum til frambúðar. Þessi mark- mið verða höfð að leiðarljósi við undirbúning og gerð fjárlaga fyr- ir árið 2003.“ Yfirlýsing ríkisstjórnar- innar vegna samkomulags ASÍ og SA vikum þar sem lög- og samnings- bundin lífeyrisframlög vinnuveit- anda eru samtals 7% eða hærri. Framlag þetta greiðist til sér- eignardeildar þess lífeyrissjóðs sem viðkomandi launamaður á að- ild að, nema launamaður ákveði annað. 3. Almenn launahækkun 1. janúar 2003 Samkomulag er um að almenn launahækkun hinn 1. janúar árið 2003 verði 0,40% hærri en ella. Framangreindar viðbætur við kjarasamninga um viðbótarfram- lag í séreignarsjóði og almenna launahækkun 1. janúar 2003 eru háðar því að verðlagsviðmiðun samkvæmt 1. tl. hér að framan standist í maí 2002 og að ekki komi til uppsagnar launaliðar kjarasamninga. Verði launalið kjarasamninga sagt upp í maí 2002 koma viðbæturnar ekki til framkvæmda.“ gegn 2% viðbótarsparnaði launa- manns og leiðir þessi viðbót ekki til hækkunar á því. Framangreind breyting gildir þó ekki í þeim til- endur greiða 1% framlag í sér- eignarsjóð launamanns án fram- lags af hálfu launamanns. Áfram gildir reglan um 2% mótframlag viðbótarframlagi launamanns. Samkomulag er um breytingar á þessu ákvæði þannig að frá og með 1. júlí 2002 munu vinnuveit- lagi: nds, fyrir nna, ann- tvinnulífs- komist að randi: k sammála ysluverðs maí 2002 a kjara- Standist launaliðir nga upp- ð þriggja við mán- lag ð arasamn- skylt frá a 2% mót- (eða eftir gegn 2% ands Íslands og Samtaka atvinnulífsins     ! "  ! " # $ ! "  " " "" )                   .  /0  1 2!   ! 1 2!   ! /0 3& 3"( "(  +!  8 33 3$  3  3= 8 -+ !*   %%% 8 F+< & 4 &)))S""      .              ( GEIR H. Haarde fjármálaráðherra gaf út yfirlýsingu í gær í tengslum við samkomulag ASÍ og Samtaka atvinnulífsins, um mismunandi kjör starfsmanna ASÍ og opinberra starfsmanna. Yfirlýsing fjármála- ráðherra er svohljóðandi: ,,Að undanförnu hafa farið fram viðræður milli fulltrúa ASÍ og fjár- málaráðuneytisins vegna tiltekinna vandamála sem tengjast mismun- andi kjörum starfsmanna í stéttar- félögum ríkisstarfsmanna og aðild- arfélaga ASÍ. Af hálfu ráðuneyt- isins er fullur vilji til þess að halda þessum viðræðum áfram og freista þess að ná ásættanlegri niðurstöðu. Í ljósi fyrirhugaðrar endurskoðun- ar á lögum um kjarasamninga op- inberra starfsmanna er mikilvægt að ná frambúðarlausn í þessum málum í samráði við Alþýðusam- band Íslands.“ Yfirlýsing fjármála- ráðherra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.