Morgunblaðið - 14.12.2001, Side 20

Morgunblaðið - 14.12.2001, Side 20
LANDIÐ 20 FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Þjónusta í 40 ár! Skólavörðustíg 7, RVÍK, Sími 551-5814 Stærsta töskuverslun landsins Nýkomnar margar gerðir af ítölskum leðurtöskum, tvílitar og einlitar! Verð kr: 11.600.- Verð kr: 10.500.- Verð kr: 9.800.- Verð kr: 10.500.- Verð kr: 11.500.- Verð kr: 9.800.- Verð kr: 11.800.- Verð kr: 10.800.- Vandaðar ítalskar leðurtöskur ÁRIÐ 1991 fékk Kristján Björn Óm- arsson frá bænum Grund í Villinga- holtshreppi hugmynd að nýju elds- neytiskerfi. Þetta byrjaði er hann var að eiga við og stilla blöndungana á mótorhjólinu sínu. Var Kristján orð- inn nokkuð þreyttur á því og einnig að þeir vildu vanstillast fljótlega aftur. Hann velti líka fyrir sér hversu illa bensínið blandaðist saman við loftið. Svo var það dag einn úti á sjó milli jóla og nýárs 1991 að hugmyndinni að nýju eldsneytiskerfi laust niður í huga hans. Kristján hafði engar vífilengjur á hlutunum heldur útbjó á Skoda-bif- reið sem hann hafði nýjan blöndung með um margt gjörólíkum eiginleik- um en sá gamli. Síðan hefur þetta þróast í nýja gerð eldsneytiskerfis fyrir smávélar með nýjum útfærslum og mismiklum breytingum sem allt hefur fengist alþjóðlegt einkaleyfi fyrir. Um miðjan nóvember sl. hlaut þetta verkefni önnur verðlaun í sam- keppni á vegum Evrópusambandsins um bestu evrópsku uppgötvanir og nýjungar á vegum sprotafyrirtækja. Í samtali við Morgunblaðið kvaðst Kristján Björn ekki hafa farið hátt með þessar uppfinningar og þróun- arvinnu fyrstu árin til að kveikja ekki í keppinautum. „Ég pældi í hvað þetta var ófullkomið og þetta small allt í einu og virkaði strax þarna í Skod- anum á sínum tíma. Hann eyddi minna eldsneyti, aflið jókst og meng- un var minni. Enda hafði nánast eng- in þróun verið á þessu sviði vélbún- aðar (blöndunga) síðustu áratugina.“ Síðan hefur beina innspýtingin rutt sér til rúms og leitt til mikilla fram- fara í bílvélum með mun betri nýtingu eldsneytis og minni mengun. Smávélamarkaður setið eftir Hins vegar hefur smávélamarkað- ur ýmiss konar algerlega setið eftir. Þar má nefna sláttuvélar, skógar- höggssagir, iðnvélaverkfæri og af- þreyingartæki ýmiss konar. Búið er að herða mjög reglugerðir um lág- marksmengun frá slíkum tækjum. Kristján segir að í dag séu aðeins örfá tæki til sem standa undir kröfum. „Þessar smávélar menga ótrúlega mikið. Algengt er t.d. 4% til 10% CO (kolsýringur) í útblæstri sem er mjög mikil mengun. Staðfest er að með okkar tækni fer þetta hlutfall niður í 0,5%. Óbrunnar eldsneytisleifar, svo- kallað HC, fer úr 500 til 2000 ppm nið- ur í 20 til 350 ppm, mismunandi eftir vélum. HC segir líka til um eldsneyt- isnýtingu en bruni er fullkomnari eft- ir því sem fyrrnefnd tala er lægri. Loks býður þessi nýja tækni einnig uppá nýtingu annarra orkugjafa og ekki þarf neinar umfangsmiklar breytingar á eldsneytiskerfinu til þess. Þar má nefna metangas og alkóhól svo eitthvað sé nefnt.“ Þess má geta að í „birgðum“ er í dag til meira af metangasi en olíu og er met- angas mun hreinni orkugjafi en olía þegar því er brennt. Vegna þessara hertu reglna um lágmarksmengun telja Kristján og fé- lagar nú lag til markaðssetningar. „Þessi smávélamarkaður er gífurlega stór. Bara í Bandaríkjunum er salan um 20 milljónir véla. Árleg heimsvelta er áætluð 4,3 milljarðardala. Það er því eftir miklu að slægjast þótt ekki næðist nema brot af markaðinum.“ Albrunatækni Á íslensku hefur uppfinningu Kristjáns verið gefið heitið fjölblendir vegna þess eiginleika að geta notast við mismunandi eldsneytistegundir. Á ensku hefur þetta verið kallað „Tot- al Cobustion Technology“, skamm- stafað TCT. Þó stefnan sé á þennan tiltekna smávélamarkað í byrjun er tæknilega engin fyrirstaða að nýta þennan útbúnað á allar (bensín)vélar og tæki allt frá bifhjólum til flugvéla. Að sögn Kristjáns hefur víða verið basl erlendis hjá smávélaframleið- endum að mæta hertum mengunar- reglum. Hefur eina svarið hjá mörg- um verið að hanna nýjar vélar frá grunni sem er afar kostnaðarsamt fyrir viðkomandi fyrirtæki. Í kerfi Kristjáns og félaga þarf hins vegar í flestum tilvikum engu að breyta í vél- búnaði til þess að TCT passi. Telur hann að langflestar vélar geti með þeirra tækni mætt þessum nýju hertu mengunarreglum án verulega aukins kostnaðar. En hann vill skiljanlega síður lýsa í smáatriðum hvernig hans kerfi virkar. Uppbygging er allt öðru- vísi en í blöndungum og á nánast ekk- ert skylt við þá. Hans tækni blandar og ýrir eldsneytinu betur saman og þar af leiðandi verður bruni mun betri. Kristján og félagar í Fjölblendi ehf. eru nú í samstarfi við stóran véla- framleiðenda erlendis og gera sér góðar vonir um að samningar náist á næstu mánuðum. Hann sagði stærsta þáttinn vera verð og hversu miklu betri hin nýja vara sé, borið saman við vöruna sem leysa á af hólmi. Hann kvað þetta hvorki flókna smíð né dýra í sjálfu sér. En mikil þróunarvinna væri að baki til að einfalda smíðina. „Einn hlutinn er steyptur í álprófíl og meginparturinn steyptur úr plasti. Síðan þarf ekki að kosta miklu til þró- unar því mest hefur þetta nú verið sjálfboðavinna fram að þessu og lítil yfirbygging.“ Hann gat um gott samstarf við ISO TÆKNI í Hafnarfirði sem er vel tækjum búið með tölvustýrðum (CNC) smíðavélum og góðri aðstöðu. Er Fjölblendir undir sama þaki á Dalshrauni 9 í Hafnarfirði. Einnig hafa margir einstaklingar og nokkur fyrirtæki komið að þessu verkefni. Vildi Kristján koma á framfæri sér- stöku þakklæti til allra hluthafa sem keypt hafa hlut í fyrirtækinu og þar með sýnt ómetanlegt traust og bið- lund en uppfinningu sem þessari tek- ur eðlilega langan tíma að koma á framfæri. Fjármögnun verkefnisins Fjármögnun á verkefninu til þessa hefur að langmestu leyti verið í formi sölu á hlut í félaginu til einstaklinga og fyrirtækja. Einnig hafa fengist styrkir frá Iðntæknistofnun, um- hverfis- og iðnaðarráðuneytinu og lán frá Nýsköpunarsjóði. Nú stendur fyr- ir dyrum að afla meira fjármagns inn í fyrirtækið, eða 50 til 60 milljóna króna. Verður það notað til að ná samningum við vélaframleiðendur og undirverktaka, til aukinnar kynning- ar og kaupa á betri tækjum til aðlög- unar TCT að fleiri vélargerðum. „Því miður eru mestar líkur í dag á að TCT verði framleiddur og settur saman í Taívan. Hérlendis vantar mannskap og verkkunnáttu. Það virð- ist hreinlega vera hálfgerð minni- máttarkennd gagnvart svona verk- efnum. Því þarf að auglýsa upp hátækniframleiðsluiðnað hérlendis.“ Kristján taldi lag til þess, því mikil þróun væri í tækni með tölvustýrðum smíðavélum CNC (Computer Num- erical Control) og samsetningu á hlut- um með vélmennum. Kristján segir sumt í uppbyggingu risanna erlendis hafa verið að breyt- ast síðustu ár á þann veg að þeir leiti til sérhæfðra undirverktaka í fram- leiðslu á hinum ýmsu verkþáttum í sinni framleiðslu. Svo sé öllu safnað saman á einn eða fleiri staði og sett saman. Mest sé þetta að þakka þess- ari nýju CAD- og CNC-tækni sem er stöðugt að verða ódýrari. Einnig hafi hagkvæmari flutningar á milli landa áhrif þar á. Þar með fjölgar smærri verktökum sem eru farnir að fram- leiða ýmsa íhluti og setja saman með vélmennum sem þarf nokkra þekk- ingu og hugvit til að forrita. Hugs- anlega væru þarna stór tækifæri fyrir Íslendinga. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Kristján Björn Ómarsson við nýjan keyrslubekk fyrir smávélar sem útbúinn var hjá fyrirtæki hans, Fjölblendi ehf. Kristján Björn með nýja „próto- týpu“ af uppfinningu sinni. Hannaði og smíðaði nýtt eldsneytiskerfi Í haust hlaut Kristján Björn Ómarsson Ný- sköpunarverðlaunin 2001 auk verðlauna Evrópuráðsins fyrir hönnun eldsneytiskerf- is fyrir smávélar. Valdimar Guðjónsson, fréttaritari Morgunblaðsins, fræddist um verkefnið og framtíðaráform Kristjáns. Gaulverjabær Íslenskur uppfinningamaður Fréttir af landsbyggðinni eru einnig á blaðsíðu 71. KRISTJÁN Björn Ómarsson er 32 ára gamall. Foreldrar hans eru Óm- ar Breiðfjörð úr Reykjavík og Sig- ríður Kristjánsdóttir ættuð frá Vill- ingaholti. Hann stundaði sveita- störfin fram að 15 ára aldri en þá fór hann á sjóinn og er vélstjóra- menntaður. Hann var á sjó og starf- aði sem vélstjóri til ársins 1996 en hefur síðan þá unnið að uppfinningu sinni. Hann kvaðst vera sem mest í sveitinni á Grund í Villingaholts- hreppi þar sem hann er fæddur og uppalinn. „Ég hefði alveg viljað starfa meira heima á Grund en ekkert þriggja fasa rafmagn er í sveitinni og því ekki hægt að vera með öflug- ar smíðavélar.“ Hann sagði þessa vöntun á almennilegu rafmagni víða vera hamlandi á landsbyggðinni. Honum verður tíðrætt um að- stöðumun frumkvöðla hérlendis samanborið við nágrannalönd. „Í Noregi veit ég um stað úti í sveit þar sem 80 manns eru að framleiða vöru fyrir Lockeed-verksmiðjurnar og fleiri. Þar eru til staðar öflugar CMC-smíðavélar og ýtarlegar upp- lýsingar og teikningar koma allar í gegnum tölvu.“ Kristján taldi vanta hérlendis að- gang að öflugum smíðavélum til að gera frumgerðir og prófunar- aðstöðu. Tækjum Iðntæknistofn- unar líkti hann við „dótakassa“ mið- að við það fullkomnasta í dag. Einnig taldi hann mörg af tækjum Háskólans algjörlega úrelt. Þetta ásamt vandamálum við fjármögnun ylli því að uppfinningamenn flyttu flestir úr landi. Hefði viljað starfa meira heima á Grund

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.