Morgunblaðið - 14.12.2001, Qupperneq 58
UMRÆÐAN
58 FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Daman auglýsir
Silkitoppar og -bolir
Innigallar og sloppar.
Jólagjöfin fyrir allar
dömur er hjá okkur.
Mikið úrval af glæsilegum
náttkjólum og náttfötum
Laugavegi 32,
sími 551 6477
S
en
d
um
í
p
ó
st
kr
ö
fu
Gjafakort
kvenfataverslun
Skólavörðustíg 14
SKARTGRIPAVERSLUN
FYRST OG FREMST
Sendum myndalista
Trúlofunar-
hringar
Laugavegi 45 ● Sími 561 6660
www.gullkunst.is
15% AFSLÁTTUR
LANGAN LAUGARDAG
Jólagjaf irnar
hjá okkur eru í
glæsi legum
gjafaumbúðum
Bankastræti 8, sími 511 1135
Sérverslun með ítalskar vörur fyrir dömur og herra
www.jaktin.is
LAUGAVEGI 15 • SÍMI 511 1900 • FAX 511 1901
www.watchmaker.org
Mikið úrval
glæsilegra skartgripa.
FUSION
HÁGÆÐA
NÁTTFATNAÐUR
Mikið úrval
Fallegar jólagjafir
Laugavegi 4,
sími 551 4473
Póstsendum
,,ÞAÐ kemur sá
tími að hver fangi
stígur aftur út í þjóð-
félagið“ kom fram í
yfirlýsingu frá föng-
um á fyrirmyndar-
gangi Litla-Hrauns
dagsett 30. október
síðastliðinn. Það eru
orð að sönnu.
Fangelsismál hafa
lítið sem ekkert verið
í brennidepli í um-
ræðu um þjóðfélags-
mál. Sú umræða sem
fer fram er oftast ein-
hliða af hálfu fangels-
isyfirvalda og ef fang-
ar hafa komið frá sér
yfirlýsingum hefur lítið mark verið
tekið á þeim. Í ljósi frétta und-
anfarinnar viku hefur Fangelsis-
málastofnun tekið þá ákvörðun að
loka fyrirmyndargangi á Litla-
Hrauni. Fyrirmyndargangur hefur
verið í notkun síðan 1996. Hann
var settur á laggirnar til að virka
sem hvatakerfi fyrir fanga sem
þóttu sýna fyrirmyndarhegðun. Sú
fyrirmyndarhegðun hefur alla
jafna verið skilgreind þannig að
fangi haldi sig frá fíkniefnum,
stundi vinnu eða nám og sé til fyr-
irmyndar á allan annan hátt. Á
fyrirmyndargangi eru fríðindi sem
ekki eru á öðrum göngum. Mörg-
um finnst eflaust ekki skipta máli
hvort þessi fríðindi séu lögð niður
því fanginn sé einfaldlega í fang-
elsi. En fyrir föngum líta málin
öðruvísi út. Fyrir þá
er þetta spurning um
traust og virðingu.
Hvernig er hægt að
treysta fanga til að
sýna rétta hegðun ef
ekki er byrjað að
treysta honum innan
fangasamfélagsins?
Hver fangi á Litla-
Hrauni er einstakur
en margir þeirra eiga
það sameiginlegt að
eiga við áfengis- og/
eða fíkniefnavandamál
að stríða. Sá fjöldi er
einhvers staðar á
bilinu 80%–90%.
Margir hafa ekki lokið
grunnskólanámi og flestir þeirra
eru á aldrinum 21–30 ára. En
hvert er markmiðið/tilgangurinn
með fangelsisvistinni? Undirrituð
veit að margir fangar spyrja sig
þeirrar spurningar. Skilgreiningin
á fangelsisvist virðist ekki fela í
sér neitt annað en refsingu. En
dómur í fangelsi er, einn og sér,
ein tegund refsingar. Hægt er
einnig að tala um betrunarvist. Sú
hugmynd virðist þýða að fangi
skuli einungis vinna. Hjá Fangels-
ismálastofnun gildir að hver fangi
sem getur skuli vinna. Þetta er
einföldun á flóknum hlut.
Í dag lifum við á 21. öldinni. Þó
telst fangelsi ungt fyrirbæri refs-
inga eða um 500 ára gamalt. Í allri
þeirri umræðu í dag um þörf fyrir
sálfræðinga á leikskólum, skólum
og fyrir einstaklinginn sjálfan, er
ótrúlegt að sálfræðingur hafi ein-
ungis verið ráðinn í fullt starf á
Litla-Hrauni síðan 1996. Það eru
sem sagt aðeins 5 ár síðan þörf
virtist vera á sálfræðingi handa
föngum. Staða sálfræðings hefur
síðan einungis verið að fullu mönn-
uð síðan 1998. Á Litla-Hrauni er
pláss fyrir 87 fanga og aðeins einn
sálfræðingur.
Skýringin sem fengist hefur hjá
Fangelsismálastofnun vegna lok-
unar fyrirmyndargangs er sú að
fangar hafi ekki sýnt þá hegðun
sem ætlast er til af þeim. Hver er
skilgreiningin á þeirri hegðun?
Það þekkist í menntakerfinu að
flokka börn niður eftir aldri og
getu. Ekki er mælt með fleiri
börnum á hverja fóstru en 8 stykki
og bekkir sem telja yfir 20 börn
eru á hættustigi því þá nær kenn-
arinn ekki að sinna öllum jafnt.
Það er ekki hægt að móta hegðun
ef engin er stefnan.
Enginn meðferðargangur er á
Litla-Hrauni þó hátt hlutfall fang-
anna eigi við áfengis-og/eða fíkni-
efnavandamál að stríða. Það þarf
meðferðardeild á Litla-Hraun.
Undirrituð veit ekki fjölda fanga á
hverri deild en þeir eru væntan-
lega á bilinu 10–14 talsins. Á
hverri deild þyrfti að vera sálfræð-
ingur eða félagsráðgjafi sem sæi
um að setja hverjum fanga mark-
Fyrirmyndargang-
ur, sjálfsögð mann-
réttindi fanga
Gerða B.
Hafsteinsdóttir
Litla-Hraun
Skilgreiningin á fang-
elsisvist, segir Gerða B.
Hafsteinsdóttir, virðist
ekki fela í sér neitt ann-
að en refsingu.