Morgunblaðið - 14.12.2001, Qupperneq 64
UMRÆÐAN
64 FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ANNAÐ veifið eru
birtar tölur sem sýna
þróun heilbrigðisút-
gjalda heimila sem hlut-
fall af vergri þjóðarfram-
leiðslu. Þessar tölur sýna
þróunina í grófum drátt-
um en eru engu að síður
harla ónákvæmar. Til
þess að fá glögga mynd
af raunverulegum kostn-
aði heimilanna ákvað
BSRB að fylgja eftir sjö
einstaklingum sem eiga
við sjúkdóma að stríða.
Þessu fólki yrði fylgt eft-
ir í meðferð í eitt ár,
kannaður yrði kostnaður
við að leita læknis, greiða fyrir rönt-
genmyndir og afla lyfja. Haldið yrði
til haga öllum þessum kostnaði yfir
árið. Kostnaður við sömu eða sam-
bærilega meðferð yrði skoðaður á
nokkurra ára bili til þess að sjá hver
þróunin væri. Árin sem urðu fyrir val-
inu voru 1990, 1996 og 2001. Mikil
áhersla var lögð á að tryggja vönduð
vinnubrögð og að dæmin og útreikn-
ingarnir gæfu rétta
mynd af því hvernig
kostnaður sjúklinga í
heilbrigðiskerfinu hef-
ur þróast undangeng-
inn áratug. Verðlags-
tölur fyrri ára voru
færðar yfir á verðlag
ársins 2001 til að gefa
raunsanna mynd af
þróuninni.
Raunsönn dæmi –
beinharðir
peningar
Niðurstaðan var
mjög afgerandi. Í öll-
um tilvikum hafði
kostnaður hins sjúka stóraukist, í
sumum tilvikum hafði hann margfald-
ast. Þannig hafði kostnaður einstak-
lings sem þjáist af lungnaþemdu og
öndunarfærasýkingum hækkað úr
7.632 krónum árið 1990 í 69.702 kr. ár-
ið 2001. Í öðru sjúkdómstilfellinu var
um að ræða einstakling með fjöl-
breytt vandamál, hjaratabilun, sykur-
sýki og fl. Hér hafði kostnaðurinn
hækkað úr 12.555 kr. í 37.825 kr. Í
þriðja dæminu var um að ræða krans-
æðasjúkdóm. Kostnaðarhlutdeild
þessa sjúklings hafði hækkað úr
12.687 kr. í 41.956 kr. Í fjórða dæminu
var barn með eyrnabólgu. Árið 1990
greiddu foreldrarnir 17.524 krónur en
í ár nemur greiðslan 30.539 kr. og enn
skal ítrekað að krónurnar hafa verið
færðar til sama verðlags. Þunglynd-
issjúklingur sem var athugaður borg-
aði 23.697 kr. árið 1990 en 72.055 kr. í
ár. Útgjöld ofnæmissjúklings höfðu
hækkað úr 19.481 krónur í 59.792 kr
og útgjöld gigtarsjúklings höfðu auk-
ist að raunvirði um 20 þúsund krónur,
úr 29.469 í 49.032 krónur.
Sjúklingar borga meira
Sjúklingar segjast sumir greiða
miklu meira en þær tölur sem hér eru
nefndar gefa til kynna. Ekki er ólík-
legt að svo sé. Í fyrsta lagi er lyfja-
kostnaðurinn í þessum dæmum sá
allra lægsti sem er að finna á mark-
aði. Í ljós kom að mikill verðmunur er
á lyfjum annars vegar á milli ein-
stakra dreifingaraðila og hins vegar á
milli höfuðborgarsvæðis og lands-
byggðar. Í öðru lagi eru til miklu al-
varlegri sjúkdómstilfelli en þau sem
tekin voru til athugunar og þar af leið-
andi meiri tilkostnaður. Það sem máli
skiptir hins vegar er að fá góða vís-
bendingu um hvert stefnir, hvernig
þróunin er með tilliti til útgjalda
heimilanna. Auðvitað ætti það að
verða okkur öllum tilefni til að staldra
við þegar þessar niðurstöður liggja
fyrir. Þær sýna að kostnaðarhlutdeild
sjúklinga hefur aukist um mörg
hundruð prósent.
Í könnun sem gerð var á vegum
landlæknisembættisins fyrir fáeinum
árum kom í ljós að efnalítið fólk var
farið að veigra sér við að leita læknis
einfaldlega vegna þess að það hafði
ekki ráð á þjónustunni. Einnig hafa
borist fregnir af því að fólk komi í
apótek til þess að kaupa lyf sam-
kvæmt lyfseðli en snúi frá þegar það
heyri hver kostnaðurinn er. Íslend-
ingar vilja ekki láta mismuna fólki í
heilbrigðisþjónustunni. Það hefur
margoft komið fram.
Íslendingar vilja jöfnuð
Í viðamikilli könnun Félagsvísinda-
stofnunar Háskóla Íslands sem
BSRB lét gera haustið 1998 um við-
horf Íslendinga til velferðarþjónust-
unnar kom í ljós að yfir 70% lands-
manna voru meira að segja
reiðubúnir að greiða hærri skatta til
þess að styrkja þessa þjónustu. Við
gerum okkur nefnilega grein fyrir því
að ef við á annað borð viljum hafa
þessa þjónustu þá þarf að sjálfsögðu
að standa straum af kostnaðinum við
hana. Það er hægt að gera á tvennan
hátt. Annars vegar með sköttum, hins
vegar með notendagjöldum. Nú hefur
verið sýnt fram á að notendagjöldin
hafa stóraukist með þeim afleiðingum
að mismununar er farið að gæta í heil-
brigðisþjónustunni. Við því verður að
bregðast og er af því tilefni skorað á
stjórnvöld að hefjast handa um að
draga úr kostnaðarhlutdeild sjúk-
linga, helst afnema hana með öllu.
Heilbrigðisútgjöld heim-
ilanna margfaldast
Ögmundur Jónasson
Kostnaður
Áhersla var lögð á vönd-
uð vinnubrögð, segir Ög-
mundur Jónasson, og að
dæmin og útreikning-
arnir gæfu rétta mynd af
því hvernig kostnaður
sjúklinga í heilbrigð-
iskerfinu hefur þróast.
Höfundur er formaður BSRB.
Í tilefni af frumsýningu myndarinnar
Hringadróttinssaga (The Lord Of The
Rings) annan í jólum efnir mbl.is til spurn-
ingaleiks. Með því að svara spurningun-
um fimm rétt, áttu möguleika á að vinna
glæsilega vinninga:
Hugarheimur Tolkiens var bók 20. aldarinnar.
Nú verður hann kvikmynd 21. aldarinnar.
Boðsmiðar fyrir tvo á sérstaka forsýningu
myndarinnar 19. desember
Boðsmiðar fyrir tvo á frumsýningu
myndarinnar 26. desember.
Árskort í Laugarásbíó
5.000 kr. inneign í verslunum Símans
10.000 kr. inneign frá Landsbankanum
Glæsilegt Tolkien-safn
Vandaðar vörur merktar kvikmyndinni
15" pizzur frá Domino´s
Ævintýrið lifnar við!
á mbl.is
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Oxygen face