Morgunblaðið - 14.12.2001, Qupperneq 69
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2001 69
* 2 l fylgir með
Hörpuskel, rækjur, túnfiskur
Allt í hátíðarmatinn
STÓR HUMAR
*Ef verslað er fyrir 1.500 kr. eða meira
Fiskbúðin Vör
Höfðabakka 1, 110 Reykjavík, sími 587 5070
Verið velkominn!
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
ist eftirfarandi athugasemd frá
Oddnýju Thorsteinsson:
„Í minningargrein um Ólaf
Briem, sem birtist í Morgun-
blaðinu 12. desember sl. stendur,
að Pétur Benediktsson hafi verið
sendiherra Íslands í Moskvu á
þessum árum (1957–1958), þegar
Ólafur þarfnaðist aðstoðar við að
komast á bannsvæðið Kislovodsk
í Kákasus til að kvænast þar
Katrínu sinni og hafi „reynst Óla
mikil hjálparhella“.
Hið rétta er, að það var Pétur
Thorsteinsson, sem var sendi-
herra Íslands í Moskvu á þessum
árum (1953–1960) og seinna
skrifaði Ólafur Briem Pétri
Thorsteinssyni sendiherra bréf,
þar sem hann þakkaði honum
með fögrum orðum alla aðstoð
hans sér veitta í þessu erfiða
máli.“
Athugasemd –
Pétrum ruglað saman
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá stjórn og
skólamálanefnd Félags grunnskóla-
kennara í tilefni fyrstu niðurstaðna
PISA – 2000-rannsóknarinnar, al-
þjóðlegrar rannsóknar á frammi-
stöðu 15 ára nemenda í lestri, stærð-
fræði og náttúrufræði.
„Niðurstöður rannsóknarinnar
leiða í ljós að 15 ára nemendur á Ís-
landi standa sig marktækt betur í
lestri en jafnaldrar þeirra gera að
meðaltali í löndum OECD. Dreifing
getu í lestri er verulega minni á Ís-
landi en í flestum öðrum OECD-
löndum. Það þýðir að fáir nemendur
á Íslandi eru mjög slakir í lestri,
samanborið við önnur OECD-lönd,
en jafnframt að frekar fáir eru af-
burðagóðir.
Frammistaða íslenskra 15 ára
nemenda í stærðfræði er einnig
marktækt betri en jafnaldra þeirra
að jafnaði í löndum OECD. Í nátt-
úrufræði er frammistaðan aftur á
móti svipuð og að meðaltali í OECD-
löndunum í heild.
Þessar niðurstöður undirstrika að
á Íslandi ríkir jafnrétti til náms og
að nemendum sem eiga á brattann
að sækja í námi er vel sinnt hér á
landi. Um leið staðfesta þær að
halda beri áfram á sömu braut í að
tryggja nemendum sem eiga erfitt í
námi þann stuðning sem þeir þurfa.
Alltaf þurfa að vera fyrir hendi sér-
deildir og sérskólar til að mæta þörf-
um þeirra nemenda sem ekki fá not-
ið kennslu í heimaskóla við sitt hæfi.
Niðurstöðurnar sýna jafnframt að
ekki hefur verið hugað nægilega að
þörfum þeirra nemenda sem eiga
auðvelt með nám. Auka þarf fjár-
veitingar til að sinna þeim betur og
jafnframt til námsefnisgerðar.
Ekki er nóg að nemendur eigi lög-
um samkvæmt kost á að ljúka
grunnskólanámi fyrr en almennt
gerist í lok 10. bekkjar. Þetta þarf að
vera raunhæfur kostur. Bæta þarf
tengsl grunnskóla og framhalds-
skóla, þannig að grunnskólanemend-
ur sem lokið hafa námi í ákveðnum
greinum eigi greiða leið að námi í
þeim greinum á framhaldsskólastigi
þó að grunnskólanámi sé ekki að
fullu lokið. Hér þarf sérstaklega að
gæta þess að möguleikar nemenda í
dreifbýli séu hinir sömu og þeirra
sem búa nálægt framhaldsskólum.
Þó að 15 ára nemendur á Íslandi
standi sig marktækt betur í lestri en
jafnaldrar í öðrum OECD-löndum
er það verulegt áhyggjuefni að 30
prósent þeirra segjast ekki lesa sér
til skemmtunar. Úr þessu má bæta
með samræmdu átaki heimila og
skóla og í því sambandi skal bent á
mikilvægi þess að nemendur eigi
jafnan greiðan aðgang að bókasöfn-
um skólanna. Notkun nemenda á t.d.
bókasafni, tölvum, rannsóknarstof-
um og Netinu hefur meiri áhrif á
námsgetu nemenda en húsnæði
skólans.
Stjórn og skólamálanefnd Félags
grunnskólakennara bendir að lokum
á eftirfarandi úr niðurstöðum rann-
sóknarinnar:
Hæfir og menntaðir kennarar eru
meðal verðmætustu auðlinda skól-
ans. Hæfni og menntun kennara
endurspeglast í námsárangri nem-
enda.
Væntingar kennara til nemenda
og sjálfra sín, skuldbinding kennara
og viðhorf þeirra til kennarastarfs-
ins eru þættir sem hafa afgerandi
áhrif á frammistöðu og námsfram-
vindu nemenda.“
Stjórn og skólamálanefnd Félags grunnskólakennara
Jafnrétti til náms
undirstrikað
JÓLATRÉSSALAN hjá Skógrækt-
arfélagi Hafnarfjarðar heldur
áfram um helgina og verður opið
báða daga, laugardag og sunnu-
dag, frá klukkan 10 til 16. Til sölu
eru furutré og -greinar, barr-
heldin og gróskumikil tré af ýms-
um stærðum. Fer salan fram í að-
alstöðvum Skógræktarfélagsins í
Höfðaskógi við Hvaleyrarvatn og
er öllum boðið upp á súkkulaði og
smákökur.
Jólatréssalan í Höfða-
skógi við Hvaleyrarvatn
SÍON ehf. flutti starfsemi sína ný-
verið að Smiðjuvegi 11 í Kópavogi.
Fyrirtækið hóf fyrir nokkru að flytja
inn pönnur og potta frá danska fyr-
irtækinu Gastrolux en auk þess flyt-
ur Síon inn umhverfisvænar hrein-
lætisvörur og sótthreinsivörur.
Í frétt frá Síon segir að pönnurnar
frá Gastrolux séu húðaðar við mik-
inn hita með glerkeramiki sem geri
mögulegt að steikja mat án fituefna.
Einnig er mögulegt að nota áhöld úr
málmi, tré eða plasti án þess að húð-
in skemmist. Pönnurnar eru ein-
ungis til sölu á skrifstofunni og hjá
sölumönnum fyrirtækisins en ekki í
verslunum.
Á myndinni eru eigendur Síon,
Helga Georgsdóttir og Hafsteinn
Vilhelmsson ásamt Mikael Nielsen,
markaðsstjóra Gastrolux.
Flytja inn pönn-
ur frá Gastrolux
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá Alþýðu-
sambandi Vestfjarða:
„Alþýðusamband Vestfjarða
mótmælir harðlega sem ósönnum
fullyrðingum í frétt frá SA um að
verkalýðsfélög séu dragbítur á af-
greiðslu atvinnuleyfa til útlendinga
utan EES-landa.
Meðmæli verkalýðsfélaga eða
umsögn um umsóknir atvinnurek-
enda þegar þeir ráða starfsfólk frá
þessum löndum er gefin að athug-
uðu máli og með tilliti til atvinnu-
ástands og hvort heimamenn séu
fáanlegir til starfa. Engin önnur
sjónarmið koma þar við sögu.
Vinnumálastofnun félagsmála-
ráðuneytisins hefur ekki þá yfir-
sýn eða tilfinningu sem verkalýðs-
félögin hafa gagnvart þörfinni á
útlendingum til starfa. Aðalatriðið
gagnvart þessum væntanlegu
launþegum hér á landi er þó að
með samþykki sínu eða meðmæl-
um tekur verkalýðsfélagið að sér
að greiða götu þessa fólks og hafa
eftirlit með því að það búi að
minnsta kosti við sömu kjör og
heimamenn. Þessu hlutverki getur
enginn annar sinnt. Getur það ver-
ið að einhverjir vinnuveitendur
vilji vera lausir við þessi afskipti
verkalýðsfélaganna?
Alþýðusamband Vestfjarða
skorar á félagsmálaráðherra og
Alþingi að viðhalda tengslum
verkalýðsfélaganna við ákvörðun
um atvinnuleyfi fyrir útlendinga,
miðað við góða reynslu hingað til.“
Ályktun um atvinnu-
leyfi til útlendinga
SAMTÖK foreldra og annarra að-
standenda samkynhneigðra bjóða
til samverustundar í félags- og
menningarmiðstöð Samtakanna
’78, Laugavegi 3, laugardaginn 15.
desember kl. 16. Þar hittast allir
áhuga- og starfshópar innan Sam-
takanna ’78 til þess að kynna starf-
semi sína og segja frá ávinningum
ársins. Einnig mun kvartett Hólm-
fríðar Jóhannesdóttur flytja nokk-
ur jólalög, en auk hennar skipa
kvartettinn þeir Hreiðar Ingi Þor-
steinsson, Hafsteinn Þórólfsson og
Arnar Þór Viðarsson.
Markmiðið með þessari sam-
verustund er að staldra við og
gleðjast saman í önnum aðventunn-
ar, en fræðast jafnframt um það
öfluga félagsstarf í þágu sýnileika,
mannréttinda og mannvirðingar
sem unnið er í hinum ýmsu starfs-
og áhugahópum á vettvangi Sam-
takanna ’78, segir í fréttatilkynn-
ingu. Jólaveitingar verða á boðstól-
um og allir eru velkomnir meðan
húsrúm leyfir.
Sama dag er hinn árlegi jólabas-
ar félagsins haldinn í menningar-
miðstöðinni á Laugavegi 3 kl. 14–
18. Þar er boðið er upp á lagmeti,
jólasælgæti, rétti á jólaborðið,
smákökur og sykraðar hnallþórur.
Einnig er mikið úrval listmuna til
jólagjafa. Allur ágóði af jólabas-
arnum er til styrktar húsnæðis-
sjóði Samtakanna ’78, segir í frétt
frá Samtökum ’78.
Samverustund á aðventu
SKÁKHÁTÍÐ verður í kvöld, föstu-
dag, kl. 18 í húsakynnum Skáksam-
bands Íslands og Taflfélags Reykja-
víkur Faxafeni 12. Þar verður
kvennaskákmót á ICC, fortíð gegn
framtíð og fjöltefli jólasveinanna í
TG.
Klukkan 20.30 mun framkvæmda-
stjóri Plúsferða leika fyrsta leikinn í
úrslitaviðureign Taflfélagsins Hellis
og b-liðs Taflfélags Reykjavíkur í
bikarkeppni Plúsferða. Skákáhuga-
menn og aðrir geta tippað á úrslit
viðureignarinnar á Lengjunni en í
fyrsta skipti í sögu Lengjunnar
verða viðureignir milli skákliða í bik-
arkeppni Plúsferða á henni. Tafl-
félag Garðabæjar með Jóhann H.
Ragnarsson í broddi fylkingar á
heiðurinn að þessu, segir í fréttatil-
kynningu.
Skákhátíð
í Faxafeni
FRIÐARSAMKOMA verður í
Kaplakrika, Hafnarfirði, laugardag-
inn 15. desember kl. 14. Aðstand-
endur friðarsamkomunnar eru:
Esther Helga Guðmundsdóttir,
Hólmfríður Árnadóttir og Sigur-
laug Guðmundsdóttir.
Markmiðið með samkomunni er
að sýna fram á að hvar sem við er-
um stödd í trúarbrögðum eða
menningu þá eigum við það sameig-
inlegt að vilja lifa saman, í friði,
segir í fréttatilkynningu. Fulltrúar
8 ólíkra trúarbragða taka sérstakan
þátt í dagskránni. Aðgangur er
ókeypis.
Anna Pálína Árnadóttir opnar
samkomuna, Anna Sigríður Helga-
dóttir syngur einsöng, forseti Ís-
lands, Ólafur Ragnar Grímsson,
ávarpar samkomuna, Esther Helga
Guðmundsdóttir stjórnar friðar-
söngvum sem allir geta tekið þátt í
að syngja. Fulltrúar trúarbragð-
anna koma fram, einn í senn, með
ávarp og friðarbæn, hver með sín-
um hætti, Esther Helga leiðir fólkið
í salnum í að syngja friðarbænirnar
og lýkur samkomunni með friðar-
söng.
Friðarsamkoma með þessum
hætti hefur ekki verið haldin áður
hér á Íslandi, segir í tilkynningunni.
Friðarsam-
koma í Kapla-
krika
ÝMSAR uppákomur og tilboð verða í
Austurveri, Háaleitisbraut 68, í dag,
föstudaginn 14. desember.
Í Nóatúni verður opnað hangikjöts-
hús með norðlensku hangikjöti o.fl.,
og verður fólki boðið að smakka.
Kvenfataverslunin Meyjarnar
verður með tilboð á fatnaði, og við-
skiptavinum hannyrða- og gjafavöru-
verslunarinnar Mánagulls verður
kennd rósagerð. Landsbanki Íslands
verður með kynningu á vörum og
þjónustu bankans milli kl. 14 og 17,
Lyf og heilsa verður með vörukynn-
ingu og hjá Hans Petersen verður op-
ið til kl. 21, segir í fréttatilkynningu.
Austurver í
jólaskapi
Elstu starfandi rakarar
í Reykjavík
Mishermt var í blaðinu í gær að
Rakarastofa Leifs og Kára væri
elsta starfandi rakarastofa Reykja-
víkur og var það samkvæmt upplýs-
ingum frá Reykjavíkurborg. Hið
rétta er að Leifur og Kári munu vera
elstu starfandi rakarar í Reykjavík.
Í Morgunblaðinu hinn 18. maí sl.
var greint frá Hárgreiðslustofunni
Nikk, við Kirkjutorg 6 í Reykjavík,
sem á upphaf sitt að rekja til ársins
1901. Sömuleiðis var sagt frá Mið-
bæjar-hárgreiðslustofunni við
Tryggvagötu sem um þær mundir
fagnaði 70 ára afmæli sínu.
Það er því ljóst að aðrar rakara-
stofur í borginni eru eldri en stofa
þeirra félaga og eru hlutaðeigandi
beðnir velvirðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT