Morgunblaðið - 23.03.2002, Page 47

Morgunblaðið - 23.03.2002, Page 47
Árný vildi öllum vel, en var sér- staklega barngóð og tókst ótrúlega vel að fylgjast með hverri nýrri kyn- slóð sem á ættarmeiðinn bættist. Næst hjarta hennar stóð dóttirin Jóna Sigríður og hennar fjölskylda. Aldrei þreyttist hún á að ræða um barnabörnin sín mannvænlegu, Stef- án, Þránd og Gauk. Kærleikur henn- ar í þeirra garð var fölskvalaus og með stolti sagði hún nýjustu fréttir af ferðalögum þeirra um víðáttur veraldar, störfum þeirra og skóla- göngu. Formleg skólaganga hennar sjálfrar var ekki löng fremur en margra af hennar kynslóð. Hún hafði þó alla tíð mikla trú á gildi mennt- unar, hvatti unga fólkið til dáða í þeim efnum og lagði sig eftir að skilja í hverju nám og starf hvers og eins var fólgið. Sérstakar mætur hafði hún á kennarastarfinu og vitn- aði í því sambandi oft til ævistarfs föður síns, Stefáns Hannessonar, bónda og kennara, sem hún talaði ævinlega um af einstakri virðingu og hlýju. Með Árnýju hverfur af sjónarsvið- inu kona sem var verðugur fulltrúi þeirrar kynslóðar sem ekki gerði miklar kröfur til efnislegra gæða; kona sem alla tíð gekk til verka af æðruleysi og trúmennsku, kona sem vildi öllum vel og lagði drjúgan skerf til uppeldis og þroskagöngu þeirra fjölmörgu ungmenna sem dvöldu á heimili hennar, systkina hennar og foreldra á langri ævi. Við sem þenn- an hóp skipum stöndum í mikilli þakkarskuld við Árnýju fyrir sam- vistir og samstarf en umfram allt fyrir þann kærleika sem hún veitti svo ríkulega af. Jónu Sigríði og fjölskyldu hennar, systrum Árnýjar, Helgu og Boggu og öðrum ástvinum hennar sendi ég einlægar samúðarkveðjur. Steinunn Helga. Það fækkar enn í litríkum hópi systkinanna frá Litla-Hvammi. Minningar frá þeim gömlu góðu dög- um er hópurinn hittist í gamla bæn- um hjá ömmu og afa, á jólum, afmæl- um eða af engu sérstöku tilefni – birtast ljóslifandi þegar litið er yfir farinn veg. Svo ólík en þó með svo ríkan arf frá sínum foreldrum. Með sterkar skoðanir í pólitík, á mönnum og málefnum. Mikið sem þau gátu verið ósammála, tekist á í orðum. Þótt þung orð féllu á stundum voru allir jafngóðir þegar upp var staðið – þetta voru skoðanaskipti. Árný frænka, sem við kveðjum í dag, var líklega hvað hógværust í þessum umræðum, þótt hún léti stundum meitlaðar setningar frá sér fara sem slógu menn jafnvel aðeins út af lag- inu. Af systkinunum átta frá Litla- Hvammi eru nú aðeins tvær systur á lífi, þær Helga og Vilborg. Árný var einstaklega barngóð og gaf sér alltaf tíma til að hlusta og sinna þeirra erindum. Huggunarík orð og hlýr, opinn faðmur voru alltaf til staðar. Oft kom hún á óvart með glettnum tilsvörum og smellnum vís- um sem við rifjuðum stundum upp. Líf hennar var ekki alltaf dans á rósum framan af ævi og átti hún oft við veikindi að stríða. En hún taldi sig gæfumanneskju. Jón maðurinn hennar var miklu eldri en hún, en hún bar mikið traust til hans og sýndi hún honum mikla hlýju og um- hyggju er hann var orðinn lasburða. Þeirra stóra hamingja var yndisleg dóttir er þau eignuðust saman og eins og Árný frænka orðaði það svo fallega: ,,Hún Jóna mín er nú ánægj- an mín og gleðin í lífinu.“ Seinna komu svo dóttursynirnir, sem enn urðu til að auka stolt hennar og gleði, þeir Stefán, Þrándur og Gaukur. Að leiðarlokum er efst í huga þakklæti fyrir kærleiksríka sam- fylgd. Megi hún mæta vinum í varpa er hún nú hverfur á vit ljóssins. Margrét Steina Gunnarsdóttir. Nú ert það þú sem ert á förum en vertu viss hvert sem þú ferð alltaf munt þú finna hlýjar hugsanir mínar nálægt þér. Stefán Úlfarsson. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARS 2002 47 ✝ Pétur Guð-mundsson fædd- ist á Snartarstöðum í Lundarreykjadal 30. ágúst 1908. Hann lést 11. mars síðastliðinn. Hann var sonur hjónanna Þórdísar Péturs- dóttur og Guðmund- ar Guðmundssonar, bónda, en þau bjuggu á Snartar- stöðum alla sína bú- skapartíð. Systkini Péturs voru: Sólveig, f. 1906, d. 1997, Guðrún, f. 1914, d. 1983, Jón, f. 1915, d. 1972, Ásta f. 1918, Þórður f. 1919, d. 1994, og Árni, f. 1924, d.1974. Pétur ólst upp á Snartarstöð- um við hefðbundin sveitastörf en reri nokkrar vetrarvertíðar frá Grindavík. Hann réðst að Skarði í Lundar- reykjadal til Árnyj- ar Árnadóttur sem þá var orðin ekkja eftir Þorstein Tóm- asson. Bjó Pétur með Árnýju meðan hún lifði en eftir það með Málfríði Sigurðardóttur sem einnig er látin. Um 1955 eignað- ist Pétur hálflend- una á Skarði, Skarð 2, og byggði þar upp. Hann bjó þar til ársins 1984 að hann fór til dvalar á Dvalarheimili aldraðra í Borg- arnesi. Útför Péturs fer fram í dag frá Lundarkirkju og hefst at- höfnin kl. 13.30. Bláir eru dalir þínir byggð mín í norðrinu heiður er þinn vorhiminn hljóðar eru nætur þínar létt falla öldurnar að innskerjum – hvít eru tröf þeirra Þöglar eru heiðar þínar byggð mín í norðrinu. Huldur býr í fossgljúfri saumar sólargull í silfurfestar vatnsdropanna. Sæl verður gleymskan undir grasi þínu byggð mín í norðrinu því sælt er að gleyma í fangi þess maður elskar Ó bláir eru dalir þínir byggð mín í norðrinu. (Hannes Pétursson) Látinn er háaldraður heiðursmað- ur, Pétur Guðmundsson frá Skarði í Lundarreykjadal. Hann elskaði dal- inn sinn heitum ástum. Hin síðustu misseri var heilsa hans léleg og oft á tíðum var hann „út úr heiminum“ eins og sagt er, þegar maður kom í heimsókn til hans á Dvalarheimilið í Borgarnesi. Þá sagði ég gjarnan sem svo: Mikil óhemja veiðist af laxi í Grímsá. Hún er bara að verða hæst! Þá brást ekki að einskonar sigurbros færðist yfir andlit gamla mannsins og hann sagði: Er það, já? hann gladdist líka þegar maður sagði að hann væri fínn og snyrti- legur. Þetta voru einu orðin sem maður vissi að hann skildi til fulls síðustu mánuðina. Nú er bið hans lokið og hann fær hvíld sína í fangi byggðarinnar sem ól hann og elsk- aði. Það eru innan við tuttugu ár síð- an ég kynntist Pétri Guðmunds- syni. Þá var móðir mín komin á Dvalarheimilið. Þar kynntust þau Pétur og urðu nánir vinir, kærustu- par eins og mamma sagði. Þessi vin- átta þeirra Péturs var móður minni mikils virði og samband þeirra var afar hlýtt og gott. Mamma dó fyrir þrem árum. Þá var Pétur orðinn veikburða og því er hvíldin kær. Pétur Guðmundsson var höfðing- legur maður. Hann var teinréttur, jafnvel á efstu árum, hæglátur og prúðmenni hið mesta og það var gott að eiga vináttu hans. Mér er sagt, að hann hefði verið vinsæll og vel látinn jafnan og heimili hans þekkt sómaheimili og þar var gott skjól manna og málleysingja. Hann fæddist í Lundarreykja- dalnum og bjó þar öll sín mann- dómsár. Ungur maður reri hann samt nokkrar vertíðir frá Grindavík og minntist hann þess jafnan með gleði. Frá því um 1955 var hann svo bóndi á Skarði í um þrjátíu ár. Pétur átti jeppann sinn, M-158, í nokkur ár eftir að hann fór á Dval- arheimilið. Ók hann svo lengi sem sjón og heilsa leyfði. Þar kom að því varð að hætta. Það gerðist með þeim hætti að vel lýsti manninum. Þannig var, að Pétur lenti í því að aka í ógöngur og olli hann þá ein- hverju tjóni. Hann brást við með óvenjulegum og skörulegum hætti. Hann mun hafa farið til sýslumanns með ökuskírteinið sitt, lagt það inn og lýst sig reiðubúinn til þess að bæta tjón það sem hann olli. Hefi ég fyrir satt að þar með væri málið dautt. Ég og fjölskylda mín erum þakk- lát fyrir að hafa átt vináttu Péturs Guðmundssonar. Tvívegis kom hann í heimsókn til okkar í Ólafsvík og nokkrum sinnum kom hann með okkur upp í Lundarreykjadal og við eyddum þar góðum degi. Hann var ekki margmáll þessa daga en hvert orð hans vitnaði um hvar hugur hans dvaldi flestum stundum. Við systkinin og fjölskyldur okk- ar kveðjum Pétur hlýjum kveðjum og munum geyma minningu hans. Með honum er genginn góður mað- ur sem ekki mátti vamm sitt vita. Hann á vísa góða heimkomu og sæl verður honum gleymskan undir grasi dalsins eina, Lundarreykja- dals. Ástu, systur Péturs, og öðrum að- standendum hans færum við sam- úðarkveðjur. Helgi Kristjánsson. Í minningunni er alltaf sól og blíða í sveitinni og söngur og góð- vild í kringum Pétur. Líður að kveldi og sólin sest að lokum í lífi hvers og eins. Þakka þér fyrir allt. Er geng ég á góðviðrisdegi um gróna og aflagða vegi þar grasþekjan blómskrúðug breiðist í blæþýðum andvara greiðist. Þá heyri ég minningamál. Því forðum hér fetaði þjóðin þá framvindu staðfestir slóðin. Hér órofinn aldanna niður mér ómar sem hljóðlátur kliður. Ég hlýðı́á það minningamál. Í liðins tíma takti, hér tónninn mig vakti. Tónn sem var sleginn við skeifunnar stál. Ég heyri hófatakið mig heillar jafnan andartakið. Heillar það minningamál. (Kristján frá Gilhaga.) Sigrún Halldórs. Með þessum fáu og fátæklegu orðum ætla ég að minnast vinar míns, Péturs Guðmundssonar frá Skarði í Lundarreykjadal. Pétri kynntist ég fyrst eftir að föður- amma mín, Ingibjörg Helgadóttir frá Þursstöðum, gerðist vistmaður á Dvalarheimili aldraðra í Borgar- nesi og hitti hann þar fyrir. Pétur gerði umskiptin auðveldari fyrir hana því einlæg vinátta tókst með þeim og eftir að heilsu hennar og hreyfanleika hrakaði, þá var það Pétur sem var hennar stoð og stytta. Umhyggja hans í hennar garð var takmarkalaus, heilshugar og sönn. Fyrir þetta kann ég honum bestu þakkir. Í Pétri kynntist ég góðum og grandvörum manni og auðvelt var að eiga við hann sam- ræður um menn og málefni en skemmtilegast var að heyra hann tala um lífið í dalum, ekki síst um Grímsá sem stóð honum nærri hjarta. Eitt ferðalag sem við áttum saman upp í Lundarreykjadal, heim að Skarði og í kirkjuna að Lundi, kemur einnig upp í hugann, þar var hann á heimavelli. Pétur reyndist mér og fjölskyldu minni afar vel og skipar í hugum okkar sérstakan sess þar sem geymdar eru góðar minningar um gott fólk. Góður Guð varðveiti minningu Péturs Guðmundssonar í hugum ástvina hans. Kristján Freyr Helgason. PÉTUR GUÐMUNDSSON 0 1         /2. / -7.37=3# +$ 6+ >$ *&)3 6 3    8  +""     2 3       %         )   3   !!# / )""&$ #$  ,+!#) *& #$  *##  * "*"  &(" *& #$   > 2  "*"  ") *& #$  2  !"# *&"!". 4 ) 1   $       )   -   5        1      %01/4% 02  *& ,?  1     6$  6 "#"   7  $ 8    (   ,!"",@ "#$  $6""; $6""#$  0  ,./.% &(*" 2  ,!"",@ "#$  =+!"/ 7"% &(*"  3;,@ "#$  % &(/ 7"% &(*" ,("/ 7"% &(#$  ,A$&"(*" *&+! - #.     1< 0,%<  ' )%  3"" -+3  B   &     #   -  " ". /         2<9  ; :;<< :    -+7)   2 3  2        2  )", &#$   "6# &*" $", &*"  6 3"##$  2  + ", &*" +!& $"#$  $6"" , &*" 0).< #$        "!"*&""!".

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.