Morgunblaðið - 16.05.2002, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isGuðjón ekki endurráðinn knatt-
spyrnustjóri hjá Stoke / B1
Real Madrid Evrópumeistari í
knattspyrnu í níunda sinn / B3
4 SÍÐUR
Morgunblaðinu
í dag fylgir aug-
lýsingablaðið
LIFUN frá Eddu –
miðlun og út-
gáfu.
Blaðinu verður
dreift á höf-
uðborgarsvæð-
inu.
12 SÍÐUR
Sérblöð í dag
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I , S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í
Íslensk heimili einhver þau skuldugustu … / C1
Bankarnir óhressir með tillögur … / C4
Samskip sækja á Eimskipafélagið / C6
Ómetanleg verðmæti í örnefnum til sjávar / C9
Miklar tekjur af ráðstefnuhaldi / C12
BILL Graham, utanríkisráðherra
Kanada, og Halldór Ásgrímsson, ut-
anríkisráðherra Íslands, opnuðu
formlega sendiráð Kanada á Íslandi
í gær, en Gerard Skinner sendi-
herra afhenti Ólafi Ragnari Gríms-
syni, forseta Íslands, trúnaðarbréf
sitt sem sendiherra Kanada með að-
setur í Reykjavík 27. nóvember sem
leið.
Sendiráðið er að Hallveigar-
stöðum við Túngötu 14 í Reykjavík
og eru þar sex starfsmenn, fjórir ís-
lenskir og tveir kanadískir. Miklar
endurbætur hafa verið gerðar á
húsnæðinu. Gerard Skinner segir að
kostnaður liggi ekki fyrir en hann
sé ekki undir milljón kanadískum
dollurum, um 60 milljónir króna.
Bill Graham flutti stutt ávarp í
móttöku í sendiráðinu í gær og gat
þess að samband Íslands og Kanada
hefði hafist þegar Íslendingar hefðu
fyrst komið til Kanada fyrir meira
en 1000 árum. Hann sagði að það
væri ánægjulegt að taka þátt í opn-
un sendiráðsins, því það væri liður í
gagnkvæmu samstarfi þjóðanna á
mörgum sviðum. Graham notaði
tækifærið og þakkaði Íslendingum
fyrir góðan NATO-fund og góðar
móttökur.
Halldór Ásgrímsson og John
Manley, þáverandi utanríkisráð-
herra Kanada, opnuðu sendiráð Ís-
lands í Kanada í Ottawa 22. maí í
fyrra. Eftir að Halldór og Graham
höfðu afhjúpað skjöld til merkis um
opnun kanadíska sendiráðsins í gær
óskaði Halldór Kanadamönnum til
hamingju með húsnæðið og sagði
ánægjulegt að hafa sendiráðið í
borginni, en umræða um gagnkvæm
sendiráð hafi staðið lengi yfir. Þetta
væri stór dagur fyrir Íslendinga og
stór dagur í samskiptum Íslands og
Kanada sem hefðu verið sérstaklega
mikil frá árinu 2000.
Morgunblaðið/Jim Smart
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra Íslands, og Bill Graham, utanríkisráðherra Kanada, klappa fyrir opnun
sendiráðs Kanada á Íslandi, en til hægri er Gerard Skinner, sendiherra Kanada á Íslandi.
Sendiráð Kanada
opnað í Reykjavík
BORGARENDURSKOÐUN telur
að almennt sé staða bókhaldsmála og
innra eftirlits góð hjá Reykjavíkur-
borg og fyrirtækjum hennar. Þó eru
gerðar athugasemdir, m.a. við bók-
hald Orkuveitu Reykjavíkur og telur
Borgarendurskoðun að nauðsynlegt
sé að efla bókhaldsdeild fyrirtækisins
og koma á virkri innri endurskoðun.
Borgarendurskoðandi telur að hjá
Orkuveitunni sé meðferð virðisauka-
skatts áfátt, vanskilavextir falli á fyr-
irtækið og upplýsingar vanti um
hverjir njóti veitinga og gjafa og af
hvaða tilefni. Þá hafi afstemmingu
lánardrottna verið talsvert ábóta-
vant. Að öðru leyti virðist þau ferli
sem beitt er við innra eftirlit vera í
góðu lagi.
Í skýrslunni kemur fram að tap
Orkuveitunnar nam rúmlega 533
milljónum króna samanborið við tæp-
lega 390 milljóna hagnað árið á und-
an. Umskiptin skýrist helst af miklu
gengistapi, hækkun lífeyrisskuld-
bindinga, tapi af fjárfestingum í
hlutabréfum og áhrifum frá dóttur-
félögum. Hrein eignaaukning í formi
fjárfestinga í fastafjármunum nam
6,8 milljörðum. Lántökur og aukning
skulda nam samtals tæplega 4,8 millj-
örðum. Dótturfélög Orkuveitunnar,
Lína.Net, Tetra-Ísland, Rafmagns-
lína og Hitaveita Þorlákshafnar, voru
öll rekin með tapi að undanskildu síð-
astnefnda fyrirtækinu. Hagnaður
hitaveitunnar nam 9,5 milljónum en
samanlagt tap hinna fyrirtækjanna
nam rúmlega 305 milljónum.
Vantar lista yfir
þátttakendur
Meginatriði skýrslunnar varða
reikningsskil, fjárhagsáætlanir og
endurskoðun reikningsskilanna.
Lögð var áhersla á þrjá þætti við end-
urskoðun reikningsskila ársins 2001,
þ.e. innra eftirlit, launa- og kjaramál
og tekjubókhald. Orkuveitan var ekki
eina fyrirtæki borgarinnar sem
Borgarendurskoðun gerði athuga-
semdir við. Meðal annars var fundið
að því að Bílastæðasjóður greiddi
dráttarvexti og meðferð virðisauka-
skatts væri áfátt, Innkaupastofnun
Reykjavíkurborgar fylgdi ekki nægi-
lega eftir sínum kröfum en nokkuð er
um tveggja og þriggja ára gamlar
kröfur á hendur borgarsjóði og borg-
arfyrirtækjum. Hjá Reykjavíkurhöfn
var skráningu vegna virðisauka-
skatts áfátt og tilefni risnuútgjalda
vantaði og upplýsingar um þátttak-
endur. Á nokkrum stöðum skorti
nokkuð á að starfslýsingar væru til
staðar og bæta mátti viðveruskrán-
ingu. Þrátt fyrir þessar athugasemd-
ir telur borgarendurskoðandi stöðu
bókhaldsmála og innra eftirlits al-
mennt vera góða.
Borgarendurskoðandi telur bókhald
og innra eftirlit gott hjá borginni
Athugasemd-
ir við dráttar-
vexti og risnu
VALGERÐUR Sverrisdóttir, iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra, segir að
staðan innan Byggðastofnunar sé al-
varleg, málið sé í skoðun og ákvörðun
verði tekin í síðasta lagi á aðalfundi
stofnunarinnar seinni partinn í júní.
Eins og Morgunblaðið greindi frá í
gær hafa fimm starfsmenn Byggða-
stofnunar sent forstjóra stofnunar-
innar bréf til að vekja athygli hans á
óviðunandi starfsaðstæðum vegna
framkomu Kristins H. Gunnarssonar,
stjórnarformanns stofnunarinnar. Af-
rit bréfsins var sent til iðnaðar- og
viðskiptaráðherra og varaformanns
stjórnarinnar. Valgerður segir að hún
taki bréfið alvarlega. Byggðastofnun
sé að byggja sig upp á nýjum stað
með nýju starfsfólki og hún telji að
þar hafi tekist vel til. Stofnunin hafi
mikilvægu hlutverki að gegna og þeg-
ar svona persónuleg átök eigi sér stað
sé orkan ekki notuð í rétta hluti. Mál-
ið sé í skoðun, tekið verði á því, en
sjaldan valdi einn þá tveir deili og hún
sé ekki tilbúin að segja á þessari
stundu hvað hún ætli að gera. Í bréf-
inu falla þung orð en aðspurð vill Val-
gerður Sverrisdóttir ekki fullyrða um
það hvort viðkomandi menn geti unn-
ið saman. Það komi í ljós eftir að mál-
ið hafi verið skoðað í heild sinni.
Valgerður Sverrisdóttir um innri
málefni Byggðastofnunar
Ákvörðun í
síðasta lagi á
aðalfundinum
Efast um/10
HARALDUR Örn
Ólafsson fjallgöngu-
maður og ferða-
félagar hans höfðu á
níunda tímanum í
gærkvöldi lokið
þriðjungi leiðarinn-
ar á hátind Everest
úr 4. búðum í Suð-
urskarði eftir að
þeir lögðu af stað
skömmu fyrir
klukkan 17 að ís-
lenskum tíma eða
klukkan rúmlega 22
að nepölskum tíma.
Klifrið sóttist vel
þrátt fyrir mikið
fannfergi á leiðinni
og var snjór sum-
staðar sagður ná
klifrurum í mitti.
Illa gekk að ná sam-
bandi við grunnbúð-
ir þaðan sem Ólafur
Örn Haraldsson
hugðist hringja úr
gervihnattasíma og
segja fréttir af
gangi mála á
klukkustundar fresti
en hann var í tal-
stöðvarsambandi við
son sinn.
Í nótt sem leið
hugðist Haraldur
síðan hringja af
tindi Everest, næði
hann tindinum og var ráð fyrir
gert að Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra talaði við Harald úr
Útilífi í Smáralind.
Haraldur lagði af stað í logni
og stjörnubjörtu veðri og átti
möguleika á að ná tindinum um
hádegi að staðartíma. Þó er ekki
nema hálfur sigur unninn með
því, enda tekur varhugaverð leið-
in niður nokkrar klukkustundir
og er jafnan hætt við óhöppum
þar sem menn eru oftast ör-
þreyttir eftir uppgönguna.
Haraldur og félagar eru fyrsti
leiðangurinn í röð nokkura leið-
angra sem ætluðu að gera atlögu
að tindinum úr 4. búðum. Voru
um 50 manns þar í gær.
Haraldur gerði atlögu að tindi Everest í nótt sem leið
Í mittisdjúpum snjó
áleiðis á tindinn
Haraldur Örn
Ólafsson