Morgunblaðið - 16.05.2002, Blaðsíða 60
UMRÆÐAN
60 FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Í HAFNARFIRÐI
eru nú yfir 500 börn á
biðlista eftir leikskóla-
plássi. Biðlistinn hefur
lengst til muna á kjör-
tímabilinu. Úrræða-
leysi núverandi meiri-
hluta í bæjarstjórn
Hafnarfjarðar hefur
verið algert gagnvart
þessari grundvallar-
þjónustu. Horft hefur
verið framhjá þeim
veruleika að foreldrar
hafa í mjög auknum
mæli sóst eftir heils-
dagsdvöl barna sinna á
leikskólunum. Þessu
hefði þurft að mæta
með miklu öflugri uppbyggingu leik-
skólanna. Það hefur hins vegar ekki
verið gert.
Samfylkingin hefur lagt mikla
áherslu á það á kjörtímabilinu að
mæta þessum auknu kröfum með því
að setja þessi mál í forgang. Það eru
hins vegar önnur mál sem hafa fang-
að huga sjálfstæðismanna og fram-
sóknarmanna þetta kjörtímabilið,
svo sem eins og uppkaup mannvirkja
á Norðurbakka, boranir þar og fyll-
ingar fyrir fleiri hundruð milljónir.
Fyrir þessar upphæðir má byggja
nokkra leikskóla.
Forgangsröðunin er skýr hjá
Samfylkingunni. Hún
snýr að fólkinu sem býr
í okkar ágæta bæ og
þjónustunni við það. Að
skólunum, leikskólun-
um, húsnæðismálum og
félagsmálum almennt.
Það er alveg skýrt að
Samfylkingin mun ekki
unna sér hvíldar fyrr
en biðlistar við leik-
skólana verða uppurn-
ir. Í allra næstu framtíð
lítur áælun um leik-
skólabyggingar svona
út:
1. Þegar í sumar
verður hafin bygging
fjögurra deilda leik-
skóla við Haukahraun í stað Hraun-
kots. Framkvæmdatími verði stutt-
ur og börnum Hraunkots gefinn
kostur á vist innan hverfis í bráða-
birgðahúsnæði á byggingartíma í
sátt við starfsfólk og foreldra.
2. Haldið verður áfram uppbygg-
ingu leikskóla í Áslandi og á Völlum.
3. Leikskólarnir Hvammur og
Smáralundur verða stækkaðir.
Þetta eru skýr markmið okkar
samfylkingarfólks. Hins vegar má
benda á að engir leikskólar eru í
byggingu í Hafnarfirði í dag.
Að ofangreindu má sjá að stefna
Samfylkingar er skýr þegar kemur
að uppbyggingu leikskólanna.
Að þessum verkefnum loknum
verður hafist handa á ný, því stöðug
uppbygging í leikskólamálum er
nauðsynleg vegna aukinnar kröfu
foreldra um heilsdagsvist. Þeirri
þörf mun Samfylkingin mæta með
sífelldri endurnýjun og nýbygging-
um. Engir þessara leikskóla verða
byggðir í einkaframkvæmd. Hafnar-
fjarðarbær mun eiga þessa leikskóla.
Við viljum vaka yfir velferð fólks
og þörfum þess í góðu samstarfi við
bæjarbúa. Samfylkingin veit hvað
hún vill, hvað fólkið vill og efnir gefin
fyrirheit.
Biðlistar heyri sögunni til
Jóna Dóra
Karlsdóttir
Hafnarfjörður
Forgangsröðunin er
skýr hjá Samfylking-
unni, segir Jóna Dóra
Karlsdóttir. Hún snýr
að fólkinu sem býr í
okkar ágæta bæ og
þjónustunni við það.
Höfundur er bæjarfulltrúi
Samfylkingarinnar í Hafnarfirði.
FRAMTÍÐARSÝN
Reykjavíkurlistans
miðar að því að skapa
lifandi borg sem svarar
nútímakröfum um
blómlegt mannlíf. Sýna
þarf stórhug. Hann
birtist meðal annars í
glæsilegu tónlistarhúsi í
miðborginni. Ekki
vegna þess að bygging-
ar einar og sér séu
töfralausn heldur vegna
þess að það er mikil-
vægt tákn um metnað-
arfulla menningar-
stefnu í miðborginni.
Miðborgin á að vera
samastaður allra Reyk-
víkinga. Blómlegur veitingahúsa-
rekstur, kraftmikið næturlíf og
skemmtileg kaffihúsastemmning úti-
loka alls ekki að miðborgin verði öfl-
ugt verslunarsvæði og perla í frí-
stundum fjölskyldufólks að degi til.
Krydd í borgarlífið
Borgaryfirvöld eiga ekki að draga
af sér við að styðja skemmtilegar
hugmyndir til að krydda borgarlífið.
Mér finnst menningarnótt, nýafstaðin
vetrarhátíð, Ljós í myrkri, og sólbaðs-
ströndin í Nauthólsvík góð dæmi um
verkefni sem vel hafa tekist. Og
menning á alls staðar við. Götulista-
menn má hvetja til að vera á kreiki á
góðviðrisdögum í Reykjavík. Ljóð og
myndir eiga heima í strætó. Listahá-
tíð á að vera árleg en með nýju sniði.
Gera má „Rokk í Reykjavík“ að ár-
legri tónlistarhátíð í samvinnu við
hagsmunaaðila í ferðaþjónustu eða
helga danstónlist eina nótt á ári. Í
Nauthólsvík mætti fara að dæmi Ís-
firðinga og halda sólskinskaffi einu
sinni á ári. Lykilatriði er þó að við
framkvæmd slíkra viðburða á
Reykjavíkurborg ekki að reyna að
draga vagninn ein síns liðs heldur
fyrst og fremst styðja við framtak og
frumkvæði einstaklinga, félagssam-
taka og hópa sem hafa
kraft til að setja
skemmtilegan lit á um-
hverfi sitt. Þetta er mið-
borgin.
Útivistarperlur
Hinu má heldur ekki
gleyma að stór hluti lífs-
gæðanna við að búa í
Reykjavík er hve
skammt er í sannkallað-
ar útivistarperlur í
borginni sjálfri og nán-
asta umhverfi hennar.
Þessi náttúruparadís
vegur án efa einna
þyngst á metunum þeg-
ar fjölmargir ákveða hvort Reykjavík
sé borg þar sem þeir vilji búa og ala
upp börn frekar en annars staðar í
heiminum. Elliðaárdalurinn, Elliða-
vatn, Heiðmörk, Hengilssvæðið, Blá-
fjöll og Reykjanesið, þarf að hafa um
þetta fleiri orð? Eins brýnt og það er
að taka til hendinni í miðborginni held
ég að gæta verði aðhaldssemi við að
hrófla við náttúrunni á þessum svæð-
um. Þar þarf öll uppbygging að stefna
að því að veita aðgang að þessum
perlum með eins litlu raski og nokk-
urs er kostur. Reykjavík hefur aldrei
haft upp á jafnmargt að bjóða. Með
framtíðarsýn og dirfsku getur borg-
arbragurinn orðið enn skemmtilegri.
Reykjavíkurlist-
inn vill skemmti-
legan borgarbrag
Dagur B.
Eggertsson
Reykjavík
Reykjavík hefur aldrei
haft upp á jafnmargt að
bjóða, segir Dagur B.
Eggertsson, og sókn-
arfærin eru alls staðar.
Höfundur er læknir og skipar 7. sæti
Reykjavíkurlista.
SVO virðist sem það
séu bara tvær stórar
blokkir í Reykjavík.
Önnur þeirra stendur
fyrir skuldir Reykja-
víkurborgar en hin sýn-
ir fram á hagnað þeirra
fjárfestinga sem borgin
hefur lagt út í. Báðar
eru að sjálfsögðu kost-
aðar af stóru framboð-
unum tveimur sem
berjast nú um völdin í
Reykjavíkurborg.
Hverju er verið að
gleyma? Jú, það býr
örugglega fólk í þessum
blokkum, fólk sem
byggir borgina, – ann-
ars væri slagurinn enginn. F-listi
frjálslyndra og óháðra er skipaður
Reykvíkingum sem búa hér og starfa
og vænta þess auðvitað að þeir sem
ráða borginni hlusti á rödd þeirra.
Áherslur okkar varða breytta for-
gangsröðun. Sem dæmi má nefna
bættan hag barnafjölskyldna, eflingu
almenningssamgangna og stuðning
við aldraða og öryrkja.
Við höfum ekki áhuga á pólitísku
framapoti eða hentistefnu stóru
flokkanna, sem breyta um áherslur
eftir því hvernig vindurinn blæs í hin-
um og þessum skoðanakönnunum.
F-listinn stendur fyrir heiðarleika,
hreinskilni og réttlæti fyrir alla. Við
völtum ekki yfir þá sem geta vart
borið hönd fyrir höfuð sér og lofum
þeim svo bót og betrun um leið og við
þurfum atkvæði þeirra. Við látum
ekki flokkapólitík stjórna því að þeir
sem njóta ekki fullra
réttinda í borginni séu
látnir bíða. Við erum
frjálslyndir og óháðir
og látum því ekki
stjórnast af hagsmuna-
tengdum öflum, sem
hafa alltof oft látið hinn
almenna borgara í ann-
að sæti, á eftir völdum
og frama. F-listinn er
málefnaframboð en
ekki borgarstjórnar-
framboð. Það þarf að
færa völdin nær fólkinu
í borginni í stað þess að
láta þau fjarlægjast í
loforðagjálfri stóru
flokkanna. Þjónusta við
borgarana skiptir meira máli en póli-
tísk minnismerki og hagræðing til að
þóknast þeim fáu með ítökin. F-list-
inn er skipaður fólki úr öllum starfs-
stéttum Reykvíkinga, konum og körl-
um. Við vitum hvernig það er að lifa.
Ég styð F-listann, af því að F-listinn
styður fólkið.
Frjálslyndir fyrir
fólkið í borginni
Guðlaug Á.
Þorkelsdóttir
Höfundur er húsmóðir og skipar 22.
sæti F-listans í Reykjavík.
Reykjavík
F-listinn, segir Guðlaug
Á. Þorkelsdóttir, stend-
ur fyrir heiðarleika,
hreinskilni og réttlæti.
Á undanförnum ár-
um og áratugum hafa
verið unnin stórvirki í
umhverfismálum í
Hafnarfirði. Byggðar
hafa verið skólpútrásir
og á síðari árum hafa
verið settir upp
grenndargámar á
nokkrum stöðum í bæn-
um. Ennfremur hefur
fegrunarframkvæmd-
um verið sinnt af mikl-
um metnaði undan-
farna áratugi.
Þrátt fyrir þetta eru
þessar aðgerðir og
framkvæmdir miklu
frekar viðbrögð við
áreiti hverju sinni, en að verið sé að
fylgja skýrri markvissri stefnu eða
áætlun. Þess vegna höfum við í Sam-
fylkingingunni gert það að forgangs-
máli í stefnuskránni sem við ætlum
að framfylgja eftir kosningar, að
mótuð verði skýr stefna í umhverf-
ismálum. Það er þó ekki nóg að hafa
skýra stefnu. Henni verður að fylgja
áætlun um það hvenær og hvernig
einstakir verkþættir verða fram-
kvæmdir.
Þátttaka bæjarbúa
Í íbúðar- og atvinnuhverfum þar
sem vel hefur tekist til við fegrun,
þrifnað og umhverfi, byggist það æv-
inlega á einu lykilatriði. Þátttöku íbú-
anna. Við getum hins vegar ekki
krafist þess af íbúum né fyrirtækjum
að halda umhverfinu hreinu og fögru
nema bæjarfélagið gangi á undan
með góðu fordæmi. Þegar það er
gert, getum við treyst því að fyrir-
tæki og íbúar fylgi í kjölfarið.
Við mótun umhverfisstefnunnar
verður allt undir. Gert verður átak í
að bæta umhverfi, þrifnað og fegrun í
íbúðarhverfum, á atvinnusvæðum og
í bæjarlandinu öllu. Grenndargámum
verður fjölgað, auk þess sem sérstök
áhersla verður lögð á bætta og betri
þjónustu í sorphirðu- og endur-
vinnslumálum. Eins og bæjarbúum
er kunnugt, hefur þjónusta að því er
varðar sorphirðu snarversnað á
þessu kjörtímabili, á sama tíma og
kostnaður hefur hækkað um tugi
prósenta.
Meðal þátta sem sérstaklega verða
settir í forgang eru skipulegar fram-
kvæmdir við gerð göngu- og hjól-
reiðastíga í bæjarlandinu. Þeir verða
síðan tengdir sístækk-
andi stígakerfi höfuð-
borgarsvæðisins. Enn-
fremur verður hugað
sérstaklega að því að
bæta aðgang bæjarbúa
að upplandi Hafnar-
fjarðar, m.a. með stíga-
gerð, kortlagningu og
merkingum.
Átak í að
vernda fjörurnar
Gera þarf sérstakt
átak í að vernda nátt-
úrulegar fjörur í bæjar-
landinu. Þar þurfa að
koma til varnir gegn
mengun, ágangi fólks
og náttúruafla. Þeir sem hafa fylgst
með hraðri landeyðingu á Hvaleyr-
inni gera sér t.d. grein fyrir því að
verði ekkert að gert, heldur land þar
áfram að eyðast. Hér þarf að grípa til
aðgerða, en þess verður gætt að nátt-
úru og fjöruborði verði raskað eins
lítið og mögulegt er við þær fram-
kvæmdir.
Framkvæmdir við uppbyggingu
skólpútrása verða settar í forgang.
Þar er um að ræða brýnt umhverf-
isverkefni, en ástandið í þessum
málaflokki er langt frá því að vera
ásættanlegt. Nauðsynlegt er að
koma í veg fyrir frekari skólpmengun
í Hvaleyrarlóninu. Jafnframt hyggst
Samfylkingin láta skipuleggja um-
hverfi lónsins sem íþrótta- og útivist-
arsvæði. Þess verður þó gætt, að tek-
ið verði fullt tillit til hins fjölbreytta
og viðkvæma lífríkis sem er á svæð-
inu.
Skipulagsmál eru
umhverfismál
Það hvernig við skipuleggjum
íbúa- og athafnasvæði hefur áhrif á
umhverfið. Hagkvæmnissjónarmið
ein mega ekki ráða för. Það verður að
taka tillit til fagurfræðilegra þátta og
tilfinningalegra. Við höfum of mörg
dæmi um að vaðið hefur verið áfram í
skipulagsmálum, þvert á slík rök og
þvert á yfirlýstan vilja íbúa. Slíkt mál
er í uppsiglingu á Norðurbakkanum,
þ.e. ef bæjarbúar grípa ekki í taum-
ana í komandi kosningum.
Sum umhverfisslys er ekki hægt
að bæta. Önnur er e.t.v. hægt að lag-
færa. Það er til dæmis hægt að „end-
urheimta Hamarinn“. Það felur í sér
að svæðið á horni Suðurgötu og
Lækjargötu verði endurskipulagt og
Dvergshúsið verði rifið.
Endurreisn miðbæjarins
Mjög hefur verið þrengt að mið-
bænum á undanförnum árum. Sam-
fylkingin hyggst beita sér fyrir því að
umhverfi og ásýnd miðbæjarins verði
bætt og stuðlað verði að aukinni um-
ferð bæjarbúa um miðbæjarsvæðið. Í
þessum hugmyndum felst m.a. að
byggt verði nýtt miðbæjartorg á
Thorsplaninu, torg sem mun nýtast
jafnt til útivistar og menningarvið-
burða fyrir Hafnfirðinga á öllum
aldri.
Árið 2008 heldur Hafnarfjörður
upp á 100 ára kaupstaðarafmæli.
Mikilvægt er að undirbúningur verði
hafinn í tíma. Liður í þeim undirbún-
ingi á að vera átak í skráningu forn-
minja, örnefna, búsetuminja og ann-
ars sem hefur þýðingu fyrir sögu
Hafnarfjarðar.
Stöndum vörð um Hafnarfjörð
Öll þau verkefni sem nefnd eru til
sögu hér að framan eru tíunduð í
stefnuskrá Samfylkingarinnar.
Hvert um sig hafa þau mikla þýð-
ingu, en það sem skiptir þó meira
máli er að þau fela í sér heildstæða
sýn um það hvernig við viljum að
bærinn þróist á næstu árum og ára-
tugum. Þess vegna eru stefnumótun-
in og verkáætlunin höfuðatriði, þar
sem unnið verður á forsendum sjálf-
bærrar þróunar, umhverfisátaksins
Staðardagskrár 21 og síðast en ekki
síst – vilja og þátttöku bæjarbúa.
Hafnarfjörður –
hreinn og fagur
Guðmundur
Rúnar Árnason
Höfundur er stjórnmálafræðingur
og skipar 5. sætið á lista Samfylking-
arinnar í Hafnarfirði.
Hafnarfjörður
Í hugmyndunum felst
m.a., segir Guðmundur
Rúnar Árnason, að
byggt verði nýtt mið-
bæjartorg á Thors-
planinu, sem nýtist jafnt
til útivistar og menning-
arviðburða.