Morgunblaðið - 16.05.2002, Blaðsíða 68
HESTAR
68 FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
NÝJAR víddir eru að myndast í
mótahaldi með tilkomu styrkleika-
flokkanna og í framhaldinu opnun
mótanna. Líklega hafa aldrei verið
haldin jafnmörg hestamót og sýn-
ingar og þetta árið og aldrei jafn-
mikið um opin mót. Eðlilega hefur
gætt mikillar tregðu við að opna
mótin því menn vilja ekki skerða
möguleika félaga sinna á verðlaun-
um. Með öðrum orðum að fé-
lagsmenn geti keppt í vernduðu um-
hverfi. En nú þegar nokkur félög
hafa opnað flóðgáttir sínar kemur í
ljós tiltölulega lítið af utanfélags-
mönnum mæta til leiks. Þegar til
dæmis öll félögin á höfuðborgar-
svæðinu og jafnvel víðar hafa opnað
mót sín má reikna með skemmti-
legra keppnisumhverfi en verið hef-
ur. Í framhaldinu gera ýmsir því
skóna að bæta megi við keppnis-
flokkum þannig að sem flestir finni
styrleikaflokk við hæfi og getu.
Þátttaka hjá Herði um helgina
var heldur lakari en verið hefur oft
áður en þokkaleg eigi að síður. Ekki
varð þó vart óánægju með að mótið
væri opið. Keppnin var spennandi í
mörgum greinum og greinilegt að
breiddin innan félagsins er að
aukast.
Númi frá Miðsitju hlaut nýlega 9,5 fyrir tölt í kynbótadómi og að sjálf-
sögðu kom ekkert annað en sigur til greina hjá Sigurði Sigurðarsyni í
tölti meistara.
Morgunblaðið/Vakri
Sigurinn var öruggur hjá Kristjáni Magnússyni og Hlökk frá Meiri-
Tungu í fjórgangi annars flokks. Keppinautarnir eru frá vinstri Bettina
og Blesi, Diljá og Prins, Brynhildur og Álmur og Ari og Adam.
Keppnin í fimmgangi meistara var spennandi en lyktir urðu þær að
Friðdóra Friðriksdóttir hafði sigur á Þresti frá Blesastöðum.
Opnun móta
að sanna sig?
Opin mót virðast vera það sem koma skal.
Geysir í Rangárvallasýslu reið á vaðið með
að opna sín íþróttamót og Fákur fylgdi
í kjölfarið og nú síðast Hörður í Kjósar-
sýslu. Valdimar Kristinsson fjallar
hér áfram um mót helgarinnar.
Opið íþróttamót Harðar
haldið á Varmárbökkum
Meistaraflokkur
Tölt
1. Sigurður Sigurðarson, Herði, á Núma frá
Miðsitju, 7,03/7,83
2. Birgitta Magnúsdóttir, Herði, á Óðni frá
Köldukinn, 7,10/7,65
3. Barbara Meyer, Herði, á Streng frá
Hrafnkelsstöðum, 6,47/7,18
4. Elías Þórhallsson, Herði, á Breka frá
Syðra-Skörðugili, 6,17/7,07
5. Guðmar Þ. Pétursson, Herði, á Ými frá
Feti, 6,40/6,78
Fjórgangur
1. Birgitta Magnúsdóttir, Herði, á Óðni frá
Köldukinn, 7,10/7,28
2. Friðdóra Friðriksdóttir, Herði, á Mekki
frá Stokkseyri, 6,90/7,05
3. Barbara Meyer, Herði, á Streng frá
Hrafnkelsstöðum, 6,53/6,94
4. Guðmar Þ. Pétursson, Herði, á Ými frá
Feti, 6,47/6,49
5. Þorvarður Friðbjörnsson, Herði, á Krapa
frá Kaldbak, 6,10/6,44
Fimmgangur
1. Friðdóra Friðriksdóttir, Herði, á Þresti
frá Blesastöðum, 6,10/6,94
2. Súsanna Ólafsdóttir; Herði, á Garpi frá
Torfastöðum, 6,27/6,73
3. Þorvarður Friðbjörnsson, Herði, á Dropa
frá Dalbæ, 5,87/6,71
4. Lúther Guðmundsson, Herði, á Von frá
Neðsta-Bæ, 6,03/6,63
5. Sölvi Sigurðarson, Herði, á Fannari frá
Keldudal, 5,87/6,44
Stigahæsti knapinn: Þorvarður Frið-
björnsson, 170 stig
Íslensk tvíkeppni: Birgitta Magnús-
dóttir, 139 stig
Skeiðtvíkeppni: Sölvi Sigurðarson,
138 stig
Fyrsti flokkur
Tölt
1. Guðmar Þ. Pétursson, Herði, á Hreimi frá
Álftárósi, 6,77/7,65
Úrslit