Morgunblaðið - 16.05.2002, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 16.05.2002, Blaðsíða 45
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2002 45 FRÁBÆRIR SPORTSKÓR Á STRÁKA OG STELPUR Margir litir Sumarið er komið! St. 28-35 • kr. 3.995 St. 36-41 • kr. 4.495 10% afsláttur 16.-19. maí STÖÐNUN ríkir á flestum sviðum höfuð- borgarinnar, nánast hvert sem litið er og pólitískur heiðarleiki hefur verið látinn víkja fyrir loddaraskap og tilbúnum sápukúlum. Borgarbúar gjalda þess með sífellt lakari þjón- ustu í samanburði við nágrannasveitarfélög Reykjavíkur. Þjónusta við borg- arbúa fer versnandi Eða hvaða nafni vilja menn nefna uppákom- ur á borð við „trausta“ fjárhagsstöðu borgarinnar, „sölu“ Perlunnar, „UT-væðingu“ linu.nets, „eflingu“ Orkuveitunnar eða aðgerð- ir í átt að „umhverfisvænni“ höfuð- borg? Leikaraskapurinn er þó langt í frá það versta í fari borgarstjórnar R-listans. Öllu verra og alvarlegra mál er sú drungalega stöðnun sem Reykvíkingar gjalda fyrir í sífellt lak- ari þjónustu á sviði t.a.m. öldrunar- og hjúkrunarmála, skólamála, um- ferðar- og skipulagsmála eða um- hverfismála. Kreppupólitík biðraðar- menningarinnar Þannig hefur þjónusta við aldraða dregist saman með þeim afleiðingum að sífellt fleiri bíða viðunandi úrræða og hvorki hefur gengið né rekið varð- andi biðlista leikskólanna, svo sem kunnugt er. Þó hlýtur gatnakerfi borgarinnar að teljast einn gleggsti vitnisburðurinn um kreppupólitík R- listans, með sínum endalausu bíla- röðum og vaxandi umferðarþunga. Innan grunnskólanna verður heldur ekki séð að neinar markvissar um- bætur hafi átt sér stað að frumkvæði R-listans. Eina sýnilega umbóta- starfið á því mikilvæga sviði er það sem Björn Bjarnason leiddi í menntamálaráðherratíð sinni með áherslu á m.a. hina faglegu þætti skólastarfsins og aukin áhrif foreldra á framtíð barna sinna. Lítið fyrir mikið fé Þetta eru aðeins nokkur dæmi af alltof, alltof mörgum um það hvernig þjónustu höfuðborgarinnar við íbúa sína hefur hrakað ár frá ári á sama tíma og skuldir borgarsjóðs hafa átt- faldast á átta ára valdatíma R-listans. Í raun og veru er þessi þróun óskilj- anleg. Hvernig er hægt að gera jafn- lítið fyrir eins mikið fé og raun ber vitni? Skuldasöfnun sveitarfélaga er af ólíkum toga. Áhrif hennar eru já- kvæð þegar um uppbyggingarstarf til framtíðar er að ræða, sem skilar sér aftur í sjóði sveitarfélagsins og telst beinlínis nauðsynleg ef bregðast verður við erfiðum aðstæðum eða ytri áföllum. Ekkert af þessu hefur R-listinn hins vegar þurft að glíma við á mesta góðæristímabili síðustu áratuga og hvað uppbyggingu á þjón- ustu við borgarbúa varðar, þá er hún svo sorglega lítil að ekki er með nokkru móti unnt að gera skulda- söfnuninni skil með vísan til þess. Nágrannasveitar- félög blómstra undir stjórn sjálfstæð- ismanna Vöxtur og viðgangur höfuðborgarinnar hefur m.ö.o. aldrei verið minni eða frumkvæði af hálfu borgaryfirvalda snautlegra. Allt önnur mynd blasir hins vegar við ef litið er út fyrir bæjarmörkin, hjá þeim sveitarfélögum sem sjálfstæðismenn hafa verið í forystuhlutverki undanfarin ár, s.s. í Kópavogi, Garðabæ eða Hafnarfirði. Þar hefur þróun undan- farinna ára einkennst af kraftmikilli uppbyggingu og metnaðarfullri framtíðarsýn. Það eitt að miðja höf- uðborgarsvæðisins er ekki lengur í Reykjavík, að margra mati, segir meira en þúsund orð. Slíkar fullyrð- ingar ættu að vera kjósendum í Reykjavík sterkur hvati til að leysa R-listann undan skyldum valdsins. Við höfum ekki efni á kreppupólitík félagshyggjuaflanna öllu lengur. Áttfaldur loddaraskapur Björg Anna Kristinsdóttir Höfundur er framkvæmdastjóri félagasamtaka í Reykjavík og alþjóðamarkaðsfræðingur. Reykjavík Hvernig er hægt að gera jafnlítið, spyr Björg Anna Krist- insdóttir, fyrir eins mik- ið fé og raun ber vitni?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.