Morgunblaðið - 16.05.2002, Blaðsíða 33
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2002 33
DIANE Pretty, breska konan, sem
barðist fyrir því að fá að stytta sér
aldur með hjálp eiginmanns síns, lést
í síðustu viku á sjúkraheimili í Luton.
Skýrði eiginmaður hennar, Brian, frá
því á sunnudag.
Pretty var 43 ára og lömuð af völd-
um taugasjúkdóms frá hálsi og niður.
Gat hún ekki talað en þó fær um að
tjá sig með raddhermi. Fyrir hálfum
mánuði hafnaði Mannréttindadóm-
stóll Evrópu ósk hennar um að fá að
deyja með hjálp eiginmanns síns.
Brian Pretty segir, að fyrir 11 dög-
um hafi kona sín farið að þjást af
miklum öndunarerfiðleikum og síðan
fallið í dá sl. fimmtudagskvöld.
Einstök manneskja
„Ég var með Díönu allan daginn
og var að fara heim þegar mér var
sagt, að stundin væri upp runnin.
Fyrir Díönu var baráttunni lokið,
hún er nú orðin frjáls,“ sagði Brian
Pretty.
„Díana var einstök manneskja,“
sagði Deborah Annetts, formaður
samtaka, sem berjast fyrir því, að
helsjúkt fólk fái að ráða sínu bana-
dægri. „Þeir, sem kynntust henni,
gleyma seint góðmennsku hennar og
hugrekki í óbærilegum þjáningum.“
Annetts segir, að bresk lög um
þetta efni séu þau fornfálegustu og
óréttlátustu í Evrópu, og bendir á, að
komið hafi fram í skoðanakönnunum,
að 90% Breta séu hlynnt því, að
dauðvona fólk geti fengið aðstoð við
að kveðja jarðlífið.
„Baráttunni er lokið,
hún er orðin frjáls“
Reuters
Pretty og maður hennar, Brian, ræða við fréttamenn eftir að Mannrétt-
indadómstóllinn hafði hafnað því, að hún fengi að binda enda á líf sitt.
London. AFP.
GRÓA á Leiti var fjarri því að
hafa fundið upp slúðrið. Það á
sér margfalt eldri uppruna, og
má rekja allt aftur til forfeðra
mannanna, sem öfluðu sér upp-
lýsinga sem nota mátti gegn
hugsanlegum keppinautum,
samkvæmt kenningu banda-
ríska sálfræðiprófessorsins
Franks McAndrews. Greinir
blaðið Fort Worth Star-Tele-
gram frá þessu nýverið.
McAndrews telur, að þeir
forfeðra okkar sem höfðu eng-
an áhuga á gróusögum hafi lent
utangarðs í samfélaginu og átt í
erfiðleikum með að finna sér
maka. „Það er ýmislegt í
þriggja milljóna ára þróunar-
sögu mannsins sem hefur
hjálpað fólki að komast af,“
sagði McAndrews. „Fólki sem
borðaði rétta fæðu, fólki sem
stundaði kynlíf og fólki sem
fékk mikilvægar upplýsingar
um það sem var á seyði í um-
hverfi þess vegnaði betur.“
McAndrews gerir grein fyrir
kenningu sinni í ritgerð í maí-
hefti Journal of Applied Social
Psychology.
Líklegt er að forfeður okkar
hafi reynt að bæta stöðu sína í
samfélaginu með því að dreifa
upplýsingum um mikilvægt
fólk, segir McAndrews. „Æsi-
fréttablöð og fjölmiðlar yfirleitt
hafa sömu áhrif. Við erum látin
halda að þetta fólk sé mikil-
vægt vegna þess að við heyrum
mikið um það.“
McAndrew gerði rannsókn
sína með aðstoð rúmlega 100
háskólastúdenta, sem hann bað
um að lesa slúðurblöð og segja
til um hvaða fræga fólk þeim
þætti áhugaverðast. Í ljós kom,
að lesendurnir höfðu helst
áhuga á frægu fólki af sama
kyni og á svipuðum aldri og
þeir sjálfir, og var sú niður-
staða í samræmi við kenningu
McAndrews.
Er slúðr-
ið í gen-
unum?