Morgunblaðið - 16.05.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Í SVARI borgarstjóra Reykjavíkur
við fyrirspurn borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins, sem lagt var fram í
borgarráði, kemur fram að með vilja-
yfirlýsingu heilbrigðisráðherra og
borgarstjóra um fjölgun á hjúkrunar-
rýmum í Reykjavík um 284 á árunum
2003–2007, hafi sameiginleg viljayfir-
lýsing Reykjavíkurborgar, Frumafls
hf. og sjálfseignarstofnunarinnar
Markarholts, um að stofna félag til að
reisa hjúkrunarheimili við Sogamýri,
fallið úr gildi.
Yfirlýsingin sem felld var úr gildi
kvað á um að hlutur Reykjavíkur-
borgar í hjúkrunarheimilinu yrði
40%, hlutur Frumafls hinn sami og
Markarholt átti að leggja fram 20%.
Ríkið hefði lagt fram 40% af stofn-
kostnaði þannig að félagið hefði skipt
með sér 60%. Þessi yfirlýsing var
undirrituð 26. apríl sl. en var felld úr
gildi með viljayfirlýsingu ráðherra og
borgarstjóra á mánudaginn. Skv.
þeirri yfirlýsingu ætlar ríkið að leggja
fram 70% af byggingarkostnaði við
hjúkrunarheimilið í Sogamýri en
Reykjavíkurborg 30%. Í Sogamýri
verða 100 hjúkrunarrými, jafnmörg
verða í nýju hjúkrunarheimili og af-
gangurinn bætist við hjá hjúkrunar-
heimilinu Eir, Hrafnistu og á Drop-
laugarstöðum. Borgarráð hefur
samþykkt yfirlýsinguna en fram-
kvæmdir eru háðar því að nægilegt fé
fáist á fjárlögum.
Rekstur ekki í hendi fyrirtækja
Fyrirætlanir Reykjavíkurborgar
skv. fyrri yfirlýsingunni vöktu nokkra
athygli, sérstaklega þar sem Vinstri-
grænir höfðu á Alþingi lagst eindreg-
ið gegn áþekkum samningi ríkisins
við Frumafl um byggingu hjúkrunar-
heimilis við Sóltún. Árni Þór Sigurðs-
son, formaður skipulags- og bygg-
inganefndar Reykjavíkurborgar og
efsti maður á Reykjavíkurlistanum,
sagðist í samtali við Morgunblaðið
ekki telja ástæðu til að tjá sig um efni
fyrri yfirlýsingarinnar enda væri hún
fallin úr gildi.
Hann segir að borgarstjórnar-
meirihlutinn og heilbrigðisráðherra
hefðu haft meiri áhuga á að vinna að
byggingu hjúkrunarheimila skv. yfir-
lýsingunni frá því á mánudag og því
hefði fyrrnefnt samkomulag náðst.
Hann segir viljayfirlýsinguna mjög
mikilvægt skref í þá átt að anna eft-
irspurn eftir á hjúkrunarrýmum fyrir
eldri borgara í Reykjavík. „Hins veg-
ar vitum við að þörfin er gríðarleg í
mikil í Reykjavík og á höfuðborgar-
svæðinu og hún mun vaxa á komandi
árum. Þannig kann vel að vera að það
þurfi að gera meira en þetta,“ segir
hann. Aðspurður um hvort til greina
komi að leita til einkaaðila um þátt-
töku, líkt og hefði verið gert skv. vilja-
yfirlýsingu borgarinnar við Frumafl
og Markarholt, segir Árni að afstaða
Vinstri-grænna sé vel þekkt í þeim
efnum. Að hans mati eigi opinberir
aðilar að sinna slíkum rekstri. Það
eigi þó ekki við um ýmis félagasam-
tök, s.s. Sjómannadagsráð og Rauða
krossinn, sem hafi rekið hjúkrunar-
heimili með góðum árangri. Gera
verði skýran greinarmun á slíkum
samtökum og fyrirtækjum sem hafi
einvörðungu gróðasjónarmið í huga.
Árni Þór Sigurðsson um rekstur hjúkrunarheimila
Opinberir aðilar eiga
að sjá um reksturinn
EIGINKONUM utanríkisráðherranna, sem setið hafa
fund Atlantshafsbandalagsins undanfarna tvo daga,
var boðið á reiðsýningu í Reiðhöllinni í gærdag. Að sýn-
ingunni stóðu nokkrir einstaklingar en þar sýndi Gull-
gengið svokallaða, hópur ungra knapa á aldrinum 8–15
ára, listir sínar á hestum. Knaparnir eru víðsvegar að
af landinu og vöktu fyrst athygli á sýningu í Skauta-
höllinni síðastliðið haust. Sýndu þau samhæfðar æfing-
ar á hestum, svokallaða mynsturreið, sem vakti mikinn
fögnuð viðstaddra. Því næst sýndi Sigurbjörn Bárðar-
son stóðhestinn Markús og kynntu þeir félagar gang-
tegundir íslenska hestsins. Að því loknu bauðst eig-
inkonunum að ræða við ungu knapana og kynnast
hestunum betur. Segir Sigurbjörn að þær hafi verið
mjög áhugasamar um sögu íslenska hestsins og sögðust
hrifnar af sýningu Gullgengisins.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eiginkonum ráðherra
boðið á reiðsýningu
HALLDÓR Jón-
björnsson háseti á
rækjubátnum Dögg
ÍS sem sökk um 2 sjó-
mílur norðaustur af
Arnarnesi við Ísa-
fjarðardjúp á þriðju-
dagskvöld, telur að
ekki hafi verið bráð
hætta á ferðum þótt
skipskaðann hafi bor-
ið brátt að. Tveir voru
um borð, Halldór og
Guðjón Kjartansson
skipstjóri og var verið
að sigla bátnum frá
Súðavík í slipp á á
Ísafirði.
„Lekinn byrjaði á
hliðinni,“ sagði Halldór en sagðist
ekki átta sig nákvæmlega á því
hvað báturinn sökk á löngum tíma.
„Þegar báturinn var að sökkva, fór-
um við í flotgallana og fleygðum
björgunarbátnum út. Það gekk
ágætlega. Við fengum ágætis tíma
til koma okkur út og
ég myndi ekki segja
að við höfum verið í
bráðri hættu.“ Skip-
verjar horfðu því
næst á bátinn sökkva
en þeim var síðan
bjargað um borð í
björgunarskipið
Gunnar Friðriksson
frá Ísafirði klukkan
21.20. „Þetta er bara
enn önnur lífsreynsl-
an,“ sagði Halldór að-
spurður um hvernig
hafi verið að lenda í
atvikinu. Hann telur
ekki ólíklegt að lek-
ann megi rekja til at-
viks á Ísafjarðardjúpi fyrir hálfum
mánuði þegar bátinn rak í slæmu
veðri og hafi hann hugsanlega tekið
niðri með þeim afleiðingum að gat
hafi komið á hann. „Það er mjög
líklegt að eitthvað hafi gefið sig
þá,“ sagði Halldór.
Tveir skipverjar björguðust er
Dögg ÍS sökk á Ísafjarðardjúpi
Voru ekki í
bráðri hættu
að mati háseta
Halldór
Jónbjörnsson
TÆPLEGA tvítug belgísk stúlka
hefur verið dæmd í tveggja mánaða
fangelsi fyrir að smygla rúmlega
kílói af hassi og um 65 grömmum af
amfetamíni til landsins. Hassið hafði
hún falið í sólum stígvéla sinna og
stungið því niður með fótleggjum en
tollverðir stöðvuðu hana á Keflavík-
urflugvelli.
Stúlkan hefur setið í gæsluvarð-
haldi frá því hún var handtekin 13.
apríl sl. Gera má ráð fyrir að Útlend-
ingaeftirlitið vísi henni úr landi þeg-
ar afplánun er lokið.
Pétur Guðgeirsson héraðsdómari
kvað upp dóminn.
Vísað úr
landi vegna
hasssmygls
MORGUNBLAÐINU hefur borist
yfirlýsing frá Eyjólfi Sveinssyni,
útgáfustjóra Fréttablaðsins, í til-
efni fréttar Ríkisútvarpsins í gær
um innheimtuaðgerðir gagnvart
fyrirtækjum sem hann er í forystu
fyrir.
„Vegna fréttar um innheimtuað-
gerðir Blaðamannafélags Íslands
vegna ógreiddra félagsgjalda í
kvöldfréttatíma Ríkisútvarpsins í
gær, 15. maí 2002, finnst mér rétt
að bregða af vana mínum og árétta
nokkur atriði:
Fyrirtæki það sem ég tengist í
dag, Fréttablaðið ehf., skuldar
Blaðamannafélagi Íslands ekki fé-
lagsgjöld vegna starfsmanna sinna,
núverandi eða fyrrverandi. Þar
með er framsetning fréttarinnar
óskiljanleg en í henni var mín per-
sóna tengd aðskiljanlegustu skulda-
málum sem Blaðamannafélagið
væri að sækja. Félög þau sem vísað
var til, önnur en Fréttablaðið,
tengdust sum mér áður en önnur
ekki. Rétt er að taka fram að ég er
hvorki hluthafi, stjórnarformaður
né starfsmaður í neinu af þeim fé-
lögum sem nefnd voru.
Undantekningin er Vísir.is ehf.
þar sem ég er ekki eigandi en hef
tekið að mér að sitja sem stjórn-
arformaður í gegn um þær þreng-
ingar sem Vísir hefur gengið í
gegnum undanfarin misseri eins og
reyndar flest önnur internetfyrir-
tæki. Varla er það tilefni slíkra
upphrópana eða frekari ályktana.
Blaðamannafélagið á ekki í erf-
iðleikum með að ná sambandi við
mig og þarf ekki atbeina yfirvalda
til. Síðast í gær, 4 klukkustundum
fyrir flutning fréttarinnar, sátu
saman á fundi lögmaður minn og
fulltrúi félagsins vegna lánsveðs
sem ég hafði veitt í minni einkaeign
og félagið hafði ákveðið að ganga
að. Þeir sem vilja ná af mér tali
geta fundið mig á skrifstofu minni
á Fréttablaðinu, Þverholti 9,
Reykjavík. Þar hefði Sveinn Helga-
son, fréttamaður Ríkisútvarpsins,
fundið mig í gær ef hann hefði
kært sig um að renna stoðum undir
frétt sína. Líklegast gerði hann það
ekki af ótta við að fréttin yrði þá
ekki eins hasarkennd og æsispenn-
andi.
Það er sorglegt að harðnandi
samkeppni á fjölmiðlamarkaði skuli
setja æ sterkari svip á fréttaflutn-
ing fjölmiðla. Allt frá því að Frétta-
blaðið hóf göngu sína hafa verið
birtar og sagðar fréttir sem ætlað
hefur verið að draga úr trúverð-
ugleika blaðsins sjálfs og fyrirtæk-
isins sem stendur að útgáfu þess.
Eftir því sem Fréttablaðinu hefur
vaxið ásmegin, unnið hylli fleiri les-
enda og eflt stöðu sína á auglýs-
ingamarkaði hefur þessum annar-
legu fréttum fjölgað. Þótt það sé
hvimleitt má þola slíkar fréttir í
DV. En það er óþolandi að frétta-
stofa Ríkisútvarpsins skuli láta
leiða sig út í þennan leik – og það
með aðstoð frá Blaðamannafélag-
inu. Hörð og heiðarleg samkeppni
fjölmiðla um auglýsingatekjur á að
fara fram á markaði – ekki í frétta-
tímum eða dómsölum.“
Yfirlýsing frá Eyjólfi Sveinssyni
Fundað í gær
með Blaða-
mannafélaginu