Morgunblaðið - 16.05.2002, Síða 8
FRÉTTIR
8 FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtándi árgangur Óperublaðsins
Styðja og
styrkja starfið
VINAFÉLAG Ís-lensku óperunnarer félagsskapur
sem heldur úti öflugu
kynningar- og stuðnings-
starfi fyrir Íslensku óp-
eruna. Nýlega kom t.d. út
fyrra tölublað 15. árgangs
Óperublaðsins. Soffía
Karlsdóttir er formaður fé-
lagsins og svaraði hún
nokkrum spurningum.
– Þetta er afmælisár-
gangur Óperublaðsins, er
eitthvað gert til hátíðar-
brigða?
„Já, það er rétt, Óperu-
blaðið er búið að slíta
barnsskónum, orðið fullra
fimmtán ára og hefur átt
mikilli velgengni að fagna
frá því að Styrktarfélag, nú
Vinafélag, Íslensku óper-
unnar hóf að gefa það út 1987.
Blaðið hefur tekið stórstígum
breytingum undanfarið og hefur
líklega sjaldan státað af jafn ríku-
legu efni og nú. Blaðið hóf göngu
sína undir ritstjórn Árna Tómasar
Ragnarssonar læknis og núver-
andi ritstjóri þess er Margrét
Sveinbjörnsdóttir, kynningarstjóri
Íslensku óperunnar. Ritnefndina
skipa Ingjaldur Hannibalsson,
Ólafur Jóhannes Einarsson og ég.“
– Hvert er efni blaðsins?
„Það má segja að við höldum
upp á afmæli blaðsins með því að
tileinka það rúmlega hundrað og
sextíu ára afmæli óperunnar Hol-
lendingsins fljúgandi. Aðaláhersl-
an er lögð á þessa rómantísku
óperu Wagners sem frumsýnd var
um síðustu helgi sem samstarfs-
verkefni Íslensku óperunnar,
Þjóðleikhússins, Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands og Listahátíðar í
Reykjavík. Þar er meðal annars að
finna viðtöl við nokkra af aðstand-
endum uppsetningarinnar. Steinn
Jónsson læknir og diva óperunnar,
Magnea Tómasdóttir, velja sér
draumasöngvara í Hollendingnum
fljúgandi, burtséð frá því hvort
þeir eru lífs eða liðnir, og Viðar
Pálsson sagnfræðingur skoðar
Wagner-hátíðina í Bayereuth í lok
keisaratímans og í Weimar-lýð-
veldinu. Annar sagnfræðingur rit-
ar í blaðið, Magnús Lyngdal
Magnússon, sem hefur hlýtt á
nokkrar útgáfur af Hollendingn-
um og segir lesendum frá niður-
stöðu þeirrar pælingar. Ekki er
hægt að minnast á Óperublaðið
nema geta Halldórs Hansen lækn-
is sem hefur ritað efni í nánast
hvert blað frá því að það hóf göngu
sína. Einhver sagði að Óperublaðið
mætti vel nefna Læknablaðið þar
sem greinar eftir lækna eru áber-
andi en það er áberandi hve marg-
ir úr þeirri stétt eru forfallnir óp-
eruaðdáendur. Við höfum til allra
heilla getað virkjað þennan áhuga
læknastéttarinnar blaðinu og les-
endum til hagsbóta með því að fá
þá til að skrifa í blaðið. Fyrir utan
þá tvo lækna sem ég hef þegar
nefnt ritar Valgarður Egilsson um
uppáhaldsóperuna sína, sem aldrei
hefur verið skrifuð.“
– Hver er dreifingin
og upplagið?
„Óperublaðið er gefið
út tvisvar á ári og dreift
ókeypis til félaga í
Vinafélagi Íslensku óperunnar,
sem eru nú um 700. Auk þess er
blaðið selt á öllum helstu blaðsölu-
stöðum landsins. Upplagið er 2.000
eintök.“
– Segðu okkur aðeins frá því
hvað Vinafélagið er að fást við í
dag …
„Vinafélagið er félagsskapur um
700 einstaklinga, sem kýs sér fimm
manna stjórn. Tveir úr þeirri
stjórn eiga einnig sæti í stjórn Ís-
lensku óperunnar samkvæmt sam-
þykktum hennar. Daglegur rekst-
ur félagsins er í höndum
Óperunnar. Megintilgangur fé-
lagsins er að styðja og styrkja
starf Óperunnar með fræðslu og
kynningarstarfi á óperulist með
hliðsjón af verkefnum Óperunnar
og í samstarfi við hana, en einnig
að vinna að því að auka áhuga og
þekkingu á óperulist á Íslandi al-
mennt. Vinafélagið býður fé-
lagsmönnum sínum ýmis fríðindi,
s.s. forkaupsrétt að aðgöngumið-
um á sýningar og tónleika Óper-
unnar, þeir fá Óperublaðið sent
ókeypis, auk afsláttar af þátttöku-
gjaldi á námskeið sem félagið
stendur fyrir sjálft eða í samstarfi
við aðra. Vinafélagið hefur staðið
fyrir námskeiðum í samstarfi við
Endurmenntun Háskóla Íslands
um óperur sem verið er að taka til
sýninga, síðast Hollendinginn
fljúgandi eftir Richard Wagner og
næsta haust verður námskeið um
Rakarann í Sevilla eftir Rossini
sem frumsýna á í Óperunni næsta
haust. Meðal helstu nýjunga sem
félagið hyggst gangast fyrir eru
skipulagðar óperuferðir erlendis. Í
Óperublaðinu er sagt frá fyrstu
ferðinni sem fyrirhuguð er í nóv-
ember á þessu ári. Ferðinni er
heitið til New York þar sem farið
verður á 2–4 óperusýningar; Aidu,
La Traviata, Il Trovatore og Fide-
lio ýmist í Metropolitan-óperunni
eða New York City
Opera. Gist er á góðu
hóteli frá fimmtudegi til
sunnudags. Verðið er
afar hagstætt en með í
ferðinni verður farar-
stjóri sem á líklega Íslandsmet í
óperuáhorfi.“
– Er framtíðin björt?
„Framtíð Vinafélagsins er björt,
enda ljóst að aðsókn að óperum fer
vaxandi og áhugi fólks á listgrein-
inni hefur aukist til muna. Vina-
félagið hyggst efla starfsemi sína á
næstu árum og má segja að það
átak hefjist næsta haust með öflun
nýrra félaga.
Soffía Karlsdóttir
Soffía Karlsdóttir er fædd í
Reykjavík 1962. Stúdent frá MR.
Hefur 8. stig í söngnámi, rekstr-
ar- og viðskiptanám frá Endur-
menntun HÍ og nemur nú rekstr-
arfræði við HÍ. Hefur verið í fjöl-
miðlun, m.a. hjá Rás 1. Var áður
hjá Íslensku óperunni, við rit-
stjórn og kynningarmál, einnig
hjá Reykjavík – menningarborg.
Er nú kynningarstjóri hjá Lista-
safni Reykjavíkur og stjórnar-
maður í Íslensku óperunni. For-
maður Vinafélagsins og í ritnefnd
blaðsins. Gift Gunnari J. Árna-
syni listheimspekingi og eiga þau
Árna Frey, Sunnefu og Júlíu.
Tvisvar á
ári og dreift
ókeypis
NÁMSMENN sem leigja íbúðir hjá
Gistiheimilinu Felli í Garðabæ fá ekki
húsaleigubætur vegna þess að gisti-
heimilið er skilgreint sem iðnaðar-
húsnæði. Námsmennirnir hafa þess
vegna ekki fengið leyfi til að skrá lög-
heimili sitt í húsinu. Arnór Hannes-
son, eigandi gistiheimilisins, segist í
mörg ár hafa barist fyrir því að fá
þessu breytt en hann komi alls staðar
að lokuðum dyrum.
Fékk leyfi til að
reka gistiheimili
Arnór hefur í þrjú ár rekið Gisti-
heimilið Fell, en það er staðsett við
Smiðsbúð í Garðabæ. Hverfið er skil-
greint sem iðnaðarhverfi, en Arnór
hefur engu að síður fengið leyfi til að
reka þar gistiheimili. Í húsinu eru 13
íbúðir sem allar eru með eldhúsi og
baði. Íbúðirnar uppfylla því ákvæði
laga um húsaleigubætur, en í þeim
eru gerðar vissar kröfur til húsnæðis.
„Ég keypti á sínum tíma iðnaðar-
lóð, en búið var að byggja þriðjung af
því húsnæði sem átti að vera á lóð-
inni. Ég ræddi um það við bæjar-
stjórann í Garðabæ að ég vildi ekki
halda áfram að byggja á lóðinni nema
að ég fengi leyfi til að reka þar gisti-
heimili með löglegum hætti þar sem
krakkar fengju húsaleigubætur. Ég
fékk leyfið og byggði síðan upp hús í
framhaldi af því. En húsið er hins
vegar alltaf kallað iðnaðarhúsnæði þó
svo að heimilt sé að reka í því gisti-
heimili.
Ég fékk þau svör í félagsmálaráðu-
neytinu að fólk sem byggi á gisti-
heimilum fengi ekki húsaleigubætur.
Ég ákvað þá að fara þá leið að leigja
námsmönnunum beint og fékk meira
að segja bréf um það frá sýslumanni.
Síðan ætlaði ég mér að reka gisti-
heimili fyrir ferðamenn yfir sumar-
mánuðina. Þegar á reyndi reyndist
þessi leið hins vegar ekki heldur fær.
Málið virðist snúast um það að yfir-
völd í Garðabæ skilgreina húsið sem
iðnaðarhúsnæði og þannig er það
skráð hjá Fasteignamati ríkisins,“
sagði Arnór.
Arnór sagði að þrátt fyrir að
Smiðsbúð væri skilgreind sem iðnar-
hverfi væri eitt raðhús við götuna og
þar hefði einnig verið staðsett sam-
býli. Enginn námsmannanna mætti
hins vegar skrá lögheimili sitt á gisti-
heimilinu. Þeir stunda nám í fram-
haldsskólum í Garðabæ og Kópavogi,
iðnskóla og háskólanum í Reykjavík.
„Ég er búinn að berjast í þessu í
mörg ár án árangurs. Raunar þarf ég
ekkert að vera að standa í þessu
vegna þess að ég fæ leiguna greidda,
en mér finnst þetta svo ranglátt
gagnvart námsfólkinu sem hjá mér
býr,“ sagði Arnór.
Gistiheimili í Garðabæ skráð sem iðnaðarhúsnæði
Námsmenn fá ekki
húsaleigubætur
HANN er líflegur að sjá, fyrirbærið
Skuldahali, sem sjá má á myndinni,
en hlutskipti hans er að elta fram-
bjóðendur R-listans fram að kosn-
ingum 25. maí næstkomandi að
sögn Hauks Arnar Birgissonar,
varaformanns Heimdallar. Haukur
segir að Skuldahalinn sé útfærður
af Heimdalli en sé táknrænn fyrir
skuldir Reykjavíkurborgar, sem
hafi verið að aukast eins og ítrekað
hefur verið bent á að hans sögn.
„Skuldahalinn er helsti stuðnings-
maður R-listans og fylgir honum
hvert sem hann fer,“ segir Haukur.
„Skuldahalinn hefur vaxið og dafn-
að hjá R-listanum og þar líður hon-
um best. Á næstu vikum mun
Skuldahalinn elta R-listann um alla
borg út af því að hann kann vel við
sig í þeirri lélegu fjármálastjórn
sem þar er viðhöfð. Umhverfi R-
listans er því fullkomið fyrir
Skuldahalann og því sækir hann í
þá staði þar sem R-listinn fer um.“
Skuldahali
á ferð um
borgina
Morgunblaðið/Jón Svavarsson