Morgunblaðið - 16.05.2002, Page 10
FRÉTTIR
10 FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KRISTINN H. Gunnarsson, stjórn-
arformaður Byggðastofnunar, segir
að sér komi á óvart sá tónn sem
honum sé sendur í bréfi, sem fimm
starfsmenn Byggðastofnunar á
Sauðárkróki, rituðu Theodóri
Bjarnasyni, forstjóra stofnunarinn-
ar hinn 22. apríl sl. Kristinn telur
að samskipti sín við starfsmenn
stofnunarinnar gefi ekki tilefni til
bréfaskriftanna. Segist hann jafn-
framt hafa efasemdir um að starfs-
mennirnir hafi yfirhöfuð skrifað
bréfið.
Bréfið var birt í heild í Morg-
unblaðinu í gær. Þar kom m.a. fram
að starfsmennirnir vildu vekja at-
hygli forstjórans á því að þeir teldu
starfsaðstæður sínar með öllu óvið-
unandi vegna framkomu stjórnar-
formanns stofnunarinnar, Kristins
H. Gunnarssonar. Í bréfinu eru tal-
in upp nokkur atriði, sem dæmi um
óviðunandi starfsumhverfi. Þar
segir m.a. að í mörgum málum virð-
ist stjórnarformaðurinn vera
beggja vegna borðsins og að hann
virki sem eins konar umboðsmaður
umsækjenda og viðskiptavina
stofnunarinnar.
„Mér kemur dálítið á óvart sá
tónn sem er í bréfinu. Mér finnst
hann vera mjög persónulegur. Sam-
skipti mín við starfsmenn hafa ekki
gefið tilefni til þessara skrifa. Ég
hef því mínar efasemdir um að þeir
hafi yfirhöfuð skrifað bréfið,“ segir
Kristinn. Aspurður vill hann þó
ekki gefa upp hver hann heldur að
hafi skrifað bréfið. „Ég verð að hafa
það hjá mér enda get ég ekki sann-
að neitt í þeim efnum.“
Fullyrðingar út í hött
Um innihald bréfsins segir Krist-
inn að sér finnist efnisatriði þess
óljós. „Og það er athyglisvert að
menn skrifi óljóst um mál sem á að
vera trúnaðarmál til forstjórans
eins,“ bætir Kristinn við. Hann vill
þó benda á að einn þeirra fimm
starfsmanna sem skrifi undir bréf-
ið, Friðþjófur M. Karlsson, for-
stöðumaður rekstrarsviðs, sitji ekki
þá fundi sem fjallað er um í bréfinu.
„Hann situr hvorki lánanefndar-
fundi né stjórnarfundi og getur því
ekki með undirskrift sinni verið að
vitna um atburði sem þar gerðust af
eigin raun. Hann hlýtur að byggja
undirskrift sína á einhverju öðru.“
Í bréfi fimmmenninganna segir
m.a. að atburðir síðustu daga hafi
endanlega fyllt mælinn og „þá sér-
staklega þau vinnubrögð sem við-
höfð voru við afgreiðslu hlutafjár-
beiðna og tilraunir
stjórnarformanns til að breyta
staðfestri fundargerð síðasta
stjórnarfundar sér og umbjóðend-
um sínum til hagsbóta“. Um þetta
segir Kristinn: „Ég veit ekki hverj-
ir umbjóðendur mínir eru og það að
segja að þetta sé mér til hagsbóta
er út í hött. Ég er ekki með neina
umsókn þarna og er ekki aðili að
neinni umsókn enda væri það ekki
eðlilegt.“ Kristinn segir ennfremur
að afgreiðsla hlutafjárbeiðna hafi
verið samþykkt með „einu hljóði í
stjórninni“ eins og fundargerðin
beri með sér á viðkomandi fundi.
Það sama hafi verið uppi á teningn-
um á fundi sem haldinn hafi verið 7.
maí. „Fullyrðingar í þessu máli eru
því út í hött og má túlka sem árásir
á alla stjórnina.“ Kristinn ítrekar
að það sé stjórn stofnunarinnar
sem taki ákvarðanir sem tengjast
stofnuninni; það sé hennar hlutverk
samkvæmt lögum. „Stjórnin tekur
sínar ákvarðanir sem starfsmenn
verða að una.“ Kristinn leggur hins
vegar áherslu á að leiða eigi þessi
mál sem mest til lykta innan stofn-
unarinnar. „Ég held að framhaldið
eigi að vera þannig að starfsmenn
geri mér grein fyrir því hvað þarna
liggur að baki, þeir skulda mér
skýringar á því, en síðan eigum við
að leiða þessi mál sem mest til lykta
innan stofnunarinnar, innan stjórn-
arinnar. Það getur ekki verið heppi-
legt að útkljá svona mál í fjölmiðl-
um.“ Kristinn bætir því við að hann
sé ekki viss um að það sé í þökk
starfsmanna stofnunarinnar að
bréfið hafi birst í fjölmiðlum. „Ég
er eiginlega viss um að það sé í
þeirra óþökk.“
Ekki náðist í Guðjón Guðmunds-
son, varaformann stjórnar Byggða-
stofnunar, Gunnlaug Stefánsson, og
Orra Hlöðversson, stjórnarmenn í
stjórn stofnunarinnar. Aðrir stjórn-
armenn, þ.e. Örlygur Hnefill Jóns-
son, Drífa Hjartardóttir og Arn-
björg Sveinsdóttir, vildu ekki tjá
sig um þessi mál opinberlega þegar
Morgunblaðið leitaði eftir því í gær.
Kristinn H. Gunnarsson, stjórnarformaður Byggðastofnunar
Efast um að starfsmenn
hafi skrifað bréfið
HARALDUR Sturlaugsson, framkvæmdastjóri
HB á Akranesi, segir að margir séu að átta sig á
hversu mikilvægt sé að auðlindagjaldið haldist í
viðkomandi sveitarfélagi. Það hafi sýnt sig á þeim
miklu viðbrögðum sem hann hafi fengið undan-
farna daga við grein sinni þess efnis, sem er á
heimasíðu HB og greint var frá í Morgunblaðinu á
sunnudag.
Í greininni segir Haraldur að auðlindagjaldið sé
staðreynd, með því sé verið að leggja sérstakan
skatt á sjávarútveginn og ekki þýði að deila um
það, en hann leggur til að þessi landsbyggðar-
skattur, eins og hann nefnir svo, verði nýttur til
uppbyggingar á þeim stöðum þar sem hann er tek-
inn. Hann hvetur jafnframt sveitarstjórnarmenn
til að fylgja þessu eftir.
Sameiginlegt hagsmunamál
Að sögn Haraldar hefur hann fengið mikil við-
brögð við grein sinni, fyrst og fremst frá lands-
byggðarfólki, og þau komi ekki á óvart, því um
sameiginlegt hagsmunamál sé að ræða. „Það
skiptir alla miklu máli að þetta fjármagn sé ekki
flutt í burtu suður. Miðað við afkomuna í dag og að
skatturinn sé komin að fullu til framkvæmda er
hann um 5 krónur á þorskígildistonn eða um 20
milljarðar á 10 árum,“ segir hann og bætir við að
þetta sé mikið áhyggjuefni vítt og breitt um landið.
„Í þessu sambandi verður að líta á að landsbyggð-
in verður að eiga sömu möguleika og höfuðborg-
arsvæðið til þess að frumþörfum í þjónustu sé full-
nægt. Það verður ekki gert með að því að byrja á
nýju sjóðasulli og skömmtunarkerfi. Ég trúi ekki
öðru en að menn skilji að það er mikil blóðtaka fyr-
ir byggðirnar að missa þessa peninga.“ Í Morg-
unblaðinu í gær kemur fram að í skýrslu auðlinda-
nefndar, sem skilaði af sér 1999, sé m.a. lagt til að
350 til 500 milljónum af því sem veiðigjaldið skil-
aði, yrði árlega varið til uppbyggingar atvinnulífs í
öðrum atvinnugreinum en sjávarútvegi í þeim
byggðarlögum sem fyrst og fremst hafa treyst á
sjávarútveg. Jafnframt var haft eftir Árna M.
Mathiesen sjávarútvegsráðherra að upphafleg rök
fyrir gjaldinu hafi verið þau að það ætti að fara til
almennings en stjórnvöld hafi ekki ákveðið hvern-
ig gjaldinu verði varið. Haraldur segir að hann hafi
haldið að tími skömmtunar væri liðinn. Í um-
ræðunni hafi komið fram að auðlindagjaldið þýddi
t.d. 200 milljónir króna frá Vestmannaeyjum á ári
til ráðstöfunar í aðra málaflokka eins og landbún-
aðarráðuneytið og iðnaðarráðuneytið. „Þetta eru
úreltar aðferðir,“ segir hann og bendir á að al-
menningur í Vestmannaeyjum eigi að njóta þess-
ara fjármuna því þaðan komi þeir.
Áhrif á lánakjör
Í máli Haraldar kemur fram að ekki þýði að
deila við dómarann þó að dómurinn sé vondur.
Auðlindagjaldið sé staðreynd og við slíkum stað-
reyndum verði að bregðast, en þó ekki sé farið að
innheimta það enn, hafi ákvörðunin þegar haft
mikil áhrif. Greiningardeildir verðbréfafyrirtækj-
anna, sem greini fyrirtæki til lengri tíma, munu
t.a.m. breyta sínum greiningum og það bitni mest
á fyrirtækjum á landsbyggðinni sem séu í sam-
keppni við fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu. Þetta
geti fljótlega haft áhrif á lánakjör fyrirtækja í
sjávarútvegi. „Við getum ekki setið aðgerðarlaus
og eins og ekkert hafi í skorist,“ segir Haraldur.
Haraldur Sturlaugsson um ráðstöfun tekna af auðlindagjaldi
Mikill stuðningur við að
gjaldið nýtist heima í héraði
ÞESSA dagana er Rauði kross Ís-
lands að koma upp sérstöku al-
þjóðlegu merki á þeim byggingum
sem verða notaðar sem fjöldahjálp-
arstöðvar á neyðartímum. Alls eru
á annað hundrað stöðvar starf-
ræktar á landinu og er ástæða
merkingar sú að almenningur í
landinu viti hvert á að leita að-
stoðar á neyðartímum.
Fjöldahjálparstöð er skjól fyrir
fólk sem þarf að yfirgefa heimili sín
skyndilega. Þar er fólk skráð og því
veitt allra nauðsynlegasta aðhlynn-
ing. Fjöldahjálparstöðvar eru yf-
irleitt skólar sem deildir Rauða
kross Íslands og almannavarna-
nefndir hafa valið á alls 159 stöðum
á landinu.
Rauði kross Íslands annast
Fjöldahjálpar-
stöðvar merktar
Herdís Sigurjónsdóttir, neyðarvarnafulltrúi Rauða kross Íslands, býr
sig undir að setja upp skilti á fjöldahjálparstöð.
fjöldahjálp samkvæmt samningi við
Almannavarnir ríkisins sem end-
urnýjaður er á fimm ára fresti og
lauk þeirri endurskoðun nýlega. Í
samningnum felst m.a. að Rauði
kross Íslands veitir félagslega
hjálp, annast skráningu og aðstoðar
við uppbyggingu eftir að fyrsta
áfallið er gengið yfir. Ef fólk hefur
misst heimili sín þarf að finna því
húsnæði, útvega fatnað og hugs-
anlega veita fyrstu fjárhagsaðstoð.
Við þetta starf nýtur Rauði kross Ís-
lands góðs af víðtæku stuðningsneti
um tvö þúsund íslenskra sjálf-
boðaliða og alheimshreyfingar
landsfélaga Rauða krossins.
Skiltið er 20 x 30 cm og á því er
alþjóðlegt merki almannavarna og
merki Rauða kross Íslands.
LÖGREGLAN í Hafnarfirði hefur
handtekið þrjá menn á þrítugsaldri
vegna innbrots og stórfellds þjófn-
aðar í versluninni 10-11 í verslunar-
miðstöðinni Firðinum aðfaranótt
mánudags. Í gær átti að krefjast
gæsluvarðhalds yfir mönnunum. Að
sögn lögreglunnar var hurð brotin
upp og peningunum stolið úr kassa í
versluninni. Þjófavarnarkerfi versl-
uninnar fór í gang en lögregla greip í
tómt er hún kom á vettvang.
Lögreglan upplýsir ekki hversu
hárri fjárhæð var stolið en segir
hana vera umtalsverða. Mennirnir
þrír sem handteknir voru, eru á þrí-
tugsaldri og hafa allir komið við sögu
lögreglu áður.
Þrír menn í
haldi vegna
þjófnaðar
SAMKVÆMT skoðanakönnun sem
Talnakönnun gerði fyrir vefinn
heim.is dagana 13.–14. maí nýtur
Sjálfstæðisflokkurinn fylgis um
43,2% Reykvíkinga í alþingiskosn-
ingum, ef kosið væri nú, en þetta
hlutfall var 37% í lok mars í sam-
bærilegri könnun. Samfylkingin
fengi 26,2% (28,5% í mars) og
Vinstrihreyfingin – grænt framboð
20% (22%). Framsóknarflokkurinn
fengi 6,9% (10% í mars) og Frjáls-
lyndi flokkurinn um 3,7% (3%).
Könnunin byggðist á 641 svari í
tilviljanaúrtaki kjósenda í Reykja-
vík. Um 3% ætluðu ekki að kjósa, 5%
vildu ekki svara og 15% voru óviss.
Óvissumörk miðað við 95% eru +/-
4,4%.
Sjálfstæðis-
menn með 43%
í Reykjavík
ÍSLENDINGUR sem var með 600
grömm af hassi í fórum sínum var
handtekinn á Keflavíkurflugvelli við
komu til landsins á sunnudag. Hann
var að koma frá Amsterdam og
leiddi leit tollvarða fíkniefnin í ljós.
Fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík tók við rannsókn málsins
og er það talið upplýst.
Hassmál upplýst
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
EMBÆTTI lögreglustjóra í Reykja-
vík hefur fellt niður rannsókn vegna
kæru Félags íslenskra flugumferð-
arstjóra á meintu broti á ákvæðum
laga um leynd og vernd fjarskipta og
brot á lögum um persónuvernd.
Félagið lagði fram kæruna í sept-
ember 2001, en ástæðan var birting
ítarlegs afrits fjarskipta flugumferð-
arstjóra og flugmanna í tengslum við
flugslys í Skerjafirði að kvöldi 7.
ágúst árið 2000. Afrit fjarskipta milli
flugumferðarstjóra og TF-GTI og
samtöl milli flugumferðarstjóra í
flugturninum sjálfum fyrir og eftir
flugslysið birtust í Morgunblaðinu,
Fréttablaðinu og á Stöð 2. Þá var að-
standendum fórnarlamba slyssins
leyft að hlýða á upptökurnar og
skoða radargögn af flugumferð.
Hildur Briem, deildarlögfræðing-
ur hjá Lögreglustjóraembættinu,
staðfestir að málið hafi verið fellt
niður hjá embættinu, en vill ekki tjá
sig um ástæður þess. Hún segir að
málsaðilar geti kært ákvörðunina til
ríkissaksóknara.
Í fréttatilkynningu Friðriks Þórs
Guðmundssonar og Jóns Ólafs
Skarphéðinssonar, aðstandenda
tveggja fórnarlamba slyssins, segir
að Friðrik, fyrir hans hönd og fleiri
aðila, hafi í ljósi þessarar niðurstöðu
óskað eftir að fá á ný að hlusta á téð-
ar upptökur og skoða radargögn.
Rannsókn á
birtingu gagna
felld niður
Flugslysið í Skerjafirði
♦ ♦ ♦