Morgunblaðið - 16.05.2002, Síða 30
ERLENT
30 FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
• Bakarí/kaffihús. Rótgróið bakarí með góða veltu, fjórir útsölustaðir,
eigið húsnæði. Upplýsingar á skrifstofu, hafið samband við Ólaf.
• Veitingahús í miðbæ Reykjavíkur, góð velta, traust fyrirtæki,
upplýsingar einungis á skrifstofu.
• Gistiheimili, nýkomið á sölu arðvænlegt gistiheimili, fastir leigjendur,
gott verð.
• Skemmtistaður, einn elsti skemmtistaður bæjarins. Leyfi fyrir 300
manns, hagstæð, góðir möguleikar við kaup.
• Verkfærasala, heildsala og innflutningur, þekkt merki, góð
viðskiptaskrá, hafið samband við Ólaf.
• Sólbaðsstofa í Kópavogi, hlutur í nýrri sólbaðsstofu. Góð aðstaða,
miklir möguleikar á veltuaukningu.
• Heilsustúdíó til sölu, gott tækifæri, auðveld kaup.
• Söluskáli, miðsvæðis í Reykjavík.
• Útgáfa, til sölu netfyrirtæki sem sér um útgáfu uppl.bæklings í 55
þús. eint.
• Skemmtistaður í hjarta Reykjavíkur, á tveimur hæðum, lifandi tónlist,
vaxandi kúnnahópur.
• Bar í miðbæ Reykjavíkur, einn af vinsælli stöðunum, góð og trygg
velta. Upplýsingar einungis á skrifstofu.
• Veitingastaður við Laugaveginn, með austurlenska rétti, góð velta,
gróið fyrirtæki.
• Verslunarhúsnæði á besta stað í Hafnarfirði er til leigu, samtals 365
fm. Hafið samband við Ólaf.
• Prentverk, prentsmiðja í góðum rekstri, upplýsingar einungis á
skrifstofu.
Fjöldi fyrirtækja á skrá, leitið upplýsinga í s. 533 4030
FYRIRTÆKI - SÖLUSKRÁ
Sölumaður: Ólafur A. Guðmundsson
NÝ skoðanakönnun sýnir að næsta
víst er að Fianna Fáil-flokkurinn
vinni öruggan sigur í þingkosningum
sem fram fara á Írlandi á morgun, og
að Bertie Ahern verði áfram for-
sætisráðherra. Sýnir könnun dag-
blaðsins The Irish Times að Fianna
Fáil fengi um 45% atkvæða sem jafn-
vel myndi tryggja flokknum hreinan
meirihluta á þingi. Helsta stjórnar-
andstöðuflokknum, Fine Gael, er
ekki spáð nema 21% atkvæða.
Skoðanakönnunin var gerð á
mánudag og birt í gær en á þriðju-
dag höfðu hins vegar farið fram
kappræður stjórnmálaleiðtoga í
sjónvarpssal. Segir í frétt The Irish
Times að þar hafi Michael Noonan,
leiðtogi Fine Gael, óumdeilanlega
staðið sig betur en Ahern.
Noonan var því í gær bjartsýnn á
gott gengi. Sjónvarpskappræðurnar
voru sagðar hafa verið afar harðar
en þar þurfti Ahern m.a. að svara
ásökunum um að spilling hefði við-
gengist í stjórnartíð Fianna Fáil og
samstarfsflokksins, Framsækna
demókrataflokksins.
Sótt að
Ahern í sjón-
varpskapp-
ræðum
INNFLYTJENDUR í nokkrum
borgum á Ítalíu efndu til verkfalls
í gær til að að mótmæla mjög um-
deildu lagafrumvarpi, sem nú er
verið að ræða á ítalska þinginu.
Er það á þá leið að tekin verði
fingraför af öllum innflytjendum
til landsins.
AP
Innflytjendur
á Ítalíu í verkfalli
JIMMY Carter, fyrrverandi forseti
Bandaríkjanna, hvatti til þess op-
inberlega á þriðjudagskvöld að
Bandaríkjastjórn aflétti fjörutíu
ára gömlu viðskiptabanni á Kúbu.
Um leið hvatti Carter Fidel Castro
Kúbuforseta til að leyfa Mary Rob-
inson, framkvæmdastjóra Mann-
réttindastofnunar Sameinuðu þjóð-
anna, að heimsækja landið og hann
hrósaði þeim Kúbumönnum sem
barist hafa fyrir auknu lýðræði.
Carter, sem var í heimsókn á
Kúbu, þeirri fyrstu sem nokkur
forseti eða fyrrverandi forseti
Bandaríkjanna hefur farið í til
Kúbu um áratugaskeið, flutti ávarp
í fyrrakvöld sem sjónvarpað var til
allra íbúa eyjarinnar. Var Castro
sjálfur viðstaddur fæutning ávarps-
ins og hlýddi á orð forsetans fyrr-
verandi.
Carter sagði í ræðu sinni að sér
hefði borist til eyrna að þjóðþingi
Kúbu hefði nýlega borist áskorun
frá nokkrum lýðræðissinnum, þar
sem farið var fram á verulegar
efnahagslegar og stjórnarfarslegar
umbætur. Fylgdi undirskriftalisti
áskoruninni og höfðu um ellefu
þúsund manns ritað nafn sitt á
listann.
„Þegar Kúbubúar geta nýtt sér
frelsið til að breyta lögum með frið-
samlegum hætti, þ.e. með beinni
atkvæðagreiðslu, mun veröldinni
verða ljóst að það eru Kúbumenn
sjálfir sem ráða örlögum sínum, en
ekki útlendingar,“ sagði Carter.
Sögðu fréttaskýrendur að fæstir
Kúbumenn hefðu heyrt af áskor-
uninni fyrr en Carter greindi frá
henni á þriðjudag.
Carter sagði að Castro ætti að
heimila Alþjóða Rauða krossinum
að skoða aðstæður í fangelsum í
Kúbu og sömuleiðis ætti að gera
Mary Robinson kleift að heimsækja
Kúbu í því skyni að kanna hag
samviskufanga og annarra, sem nú
afplána fangelsisdóma.
Bandaríkin taki
fyrsta skrefið
„Þessar heimsóknir myndu
stuðla að því að ósanngjörn gagn-
rýni [á stöðu mannréttindamála]
yrði hrakin,“ sagði Carter í ávarpi
sínu, sem hann flutti í háskólanum í
Havana.
Carter hefur lengi verið mótfall-
inn viðskiptabanni Bandaríkjanna á
Kúbustjórn. Hann sagði á þriðju-
dag að þjóðirnar tvær hefðu alltof
lengi átt í deilum. Tími væri til
kominn að umbylta sambandi
þeirra. Þar sem Bandaríkin væru
valdamesta þjóð í heimi væri eðli-
legt að gera kröfu um að þau tækju
fyrsta skrefið í þá átt.
Reuters
Jimmy Carter, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, og Fidel Castro Kúbuforseti hlýða á þjóðsöng Kúbu á hafna-
boltavellinum Latinoamericano í Havana á þriðjudagskvöld. Mikill áhugi hefur lengi verið á hafnabolta á Kúbu.
Bandaríkin aflétti við-
skiptabanni á Kúbu
Jimmy Carter
hvetur Fidel
Castro til að
slaka á klónni
Havana. AFP.
SAMKVÆMT niðurstöðum nýrr-
ar, breskrar rannsóknar eru minni
líkur á að kona, sem þjáist af
hjartakvilla fái inni á gjörgæslu en
karl sem er haldinn sama kvilla.
Karlkyns sjúklingar komast fram-
ar í forgangsröðina vegna þess að
læknar eru vanari því að með-
höndla karla með hjartaáfall en
konur, að því er haft er eftir vís-
indamönnum í London á fréttavef
breska ríkisútvarpsins, BBC.
Sífellt eru að koma í ljós fleiri
vísbendingar um að kynjamunur
sé á þeirri meðhöndlun sem veitt
er við hjartasjúkdómum í Bret-
landi, og var greint frá því sl.
sunnudag, að yfir tvöfalt meiri lík-
ur væru á að karlmaður með
hjartasjúkdóm kæmist í hjáveitu-
aðgerð en kona með hjartasjúk-
dóm.
Dr. Rosalind Raine og sam-
starfsmenn hennar greina frá nið-
urstöðum sínum í Journal of
Epidemiology and Community
Health. Telja þau, að konur standi
höllum fæti vegna þess að hjarta-
áföll séu jafnan talin vera sjúk-
dómur er fyrst og fremst hrjái
karla. Sjúklingar sem falla að hinni
stöðluðu ímynd af hjartasjúklingi
séu líklegri til að fá sjúkdóms-
greiningu og meðferð tafarlaust.
Karlar framar
í röðina
AL-QAEDA samtök Osama bin
Ladens hafa enn tiltölulega
óskemmt og dulið kerfi útsendara
„undir feldi“ út um allan heim, að
því er Jean-Luc Vez, yfirmaður
svissnesku alríkislögreglunnar, seg-
ir í viðtali við blaðið Le Temps.
Vopnaða armi samtakanna hafi nú
að mestu verið eytt, og stjórnmála-
armurinn hafi orðið fyrir miklu
áfalli. En milligöngumenn samtak-
anna liggi undir feldi um víða veröld
og ekki sé vitað hverjir þeir séu.
„Þeir eru jafn öflugir og áður,“
sagði Vez.
Le Temps hafði ennfremur eftir
„áreiðanlegum heimildum“ að milli-
göngumenn al-Qaeda, sem aðstoði
við að flytja peninga, bera skipanir
og hjálpi öðrum meðlimum samtak-
anna, væru að öllum líkindum búnir
að koma sér vel fyrir í Sviss. Of
margt fólk er tengist samtökunum
fari um landið til þess að um til-
viljun geti verið að ræða.
Múslímar í Sviss á svartan lista
Svisslendingar bættu nýlega tíu
nöfnum við listann yfir einstaklinga
og fyrirtæki sem talin eru tengjast
al-Qaeda. Þar á meðal eru leiðtogi
múslíma í Tessin-héraði í Suður-
Sviss og ítalsk-kúveitski kaupsýslu-
maðurinn Ahmed Idris Nasreddin,
sem hefur aðsetur í Mílanó. Örygg-
isráð Sameinuðu þjóðanna tilkynnti
í síðasta mánuði að Nasreddin væri
grunaður um tengsl við öfgasamtök,
og var hann settur á svartan lista
hjá ráðinu.
Aðstoðarmenn
al-Qaeda tald-
ir ennþá virkir
Genf. AFP.