Morgunblaðið - 16.05.2002, Qupperneq 63
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2002 63
ÞAÐ mætti halda að
Garðabær væri eyland
ef ætlunin er að ferðast
til nágrannasveitar-
félaganna, öðruvísi en
með bíl.
Engar viðunandi
stígatengingar eru til
Hafnarfjarðar og Kópa-
vogs. Sjálfstæðismenn í
Garðabæ hafa ekki enn
svarað því hvenær verð-
ur ráðist í að tengja bæ-
inn við göngustígakerfi
nágrannasveitarfélag-
anna.
Þriðju kosning-
arnar án lausnar
Á aðalskipulagi er gert ráð fyrir
stígum til Kópavogs meðfram Hafn-
arfjarðarvegi, stíg og undirgöngum
undir Arnarnesveg í Hæðarhverfi á
móts við Smárann og stíg meðfram
golfvellinum í Vetrarmýri upp í efri
byggðir Kópavogsbæjar og þá til
Seljahverfis og Breiðholtshverfa. En
það er ekki nóg að teikna strik á blað
ef ekki er ætlunin að framkvæmdir
fylgi í kjölfarið.
Meirihluti sjálfstæðismanna hefur
hingað til ekki haft vilja til að leiða
þessi stígamál til lykta við nágranna-
sveitarfélögin. Það er búið að tala um
þessa stíga síðan í sveitarstjórnar-
kosningunum 1994, þ.e.a.s. Sjálf-
stæðisflokkurinn er að fara í sínu
þriðju kosningar án raunhæfrar
lausnar og skýrra svara um hvenær
á að fara í framkvæmdir.
Nú á því herrans ári 2002 lofa
sjálfstæðismenn því að útbúa fljót-
lega stíg meðfram Hafnarfjarðar-
vegi að austanverðu, í landi Jóns
Ólafssonar, sem lægi upp á Arnar-
neshæð og þar yfir Arnarnesveginn
á umferðarljósum og
síðan niður norðan-
verða Arnarneshæðina
og yfir aðra mikla um-
ferðaræð eða Fífu-
hvammsveginn á
göngubraut. Gott og
vel, en þessi lega er
furðuleg með tilliti til
þeirra miklu umferð-
aræða sem fara þarf
yfir, því ekki er ætlun-
in að vera með undir-
göng. Þessi tillaga fel-
ur í sér að stígurinn
liggur í gegnum land í
einkaeign, sem Garða-
bær hefur engan af-
notarétt á í dag og
hvorki samningur né samningsdrög
liggja fyrir við landeigandann. Eða
svo fullyrti bæjarstjóri á síðasta
bæjarstjórnarfundi.
Ég trúi því ekki að óreyndu að
kjósendur láti bjóða sér slík vinnu-
brögð enn og aftur.
Þetta er ekki eini stígurinn sem
tilfinnanlega vantar. Nauðsynlegt er
að tengja gönguleiðir saman með
öruggum hætti milli Hæðarhverfis
og Smárahverfis. Ekki síst eftir að
Smáralind var opnuð.
B-listinn hefur skýra stefnu
Við sem stöndum að B-lista
óháðra og framsóknarmanna viljum
sjá þessar tengingar gerðar sem
allra fyrst. Bæjarbúar eiga fulla
kröfu á því. Stígur verði lagður með-
fram ströndinni, sem tengist stíg
neðan Sunnuhlíðar í Kópavogi vest-
an Hafnarfjarðarvegar, sem lægi yf-
ir Kópavogslækinn á göngubrú sam-
hliða núverandi brú og síðan yfir
Arnarnesið og tengist þar nýlögðum
stíg hjá dælustöðinni. Með þessari
legu verður til örugg leið yfir í Kópa-
vog.
Jafnframt verði stígur lagður
norðan golfvallarins í Vetrarmýr-
inni. Með tilkomu hans opnast
skemmtileg leið inn að stígakerfi
Reykjavíkur í Elliðaárdal.
Einnig þarf að tengja göngustíg-
ana til Hafnarfjarðar. Við viljum
hraða því að gera útivistarstíga í
Gálgahraun eins og gert er ráð fyrir
á aðalskipulagi. Þar eigum við úti-
vistarparadís sem stór hluti bæjar-
búa hefur aldrei komið í.
Kæru kjósendur. B-listi óháðra og
framsóknarmanna hefur skýra
stefnu í þessum málum. Ég vona að
ég þurfi ekki að skrifa fjórða kaflann
í þessari framhaldssögu árið 2006.
Er ekki kominn tími til að breyta eft-
ir 36 ára valdatíma sjálfstæðis-
manna?
Er Garðabær eyland?
Eyþór Rafn
Sigurþórsson
Höfundur er verkfræðingur og skip-
ar 7. sætið á B-lista óháðra og fram-
sóknarmanna í Garðabæ og hefur
setið í skipulagsnefnd Garðabæjar
síðan 1994.
Garðabær
Sjálfstæðismenn í
Garðabæ, segir Eyþór
Rafn Þórhallsson, hafa
ekki enn svarað því hve-
nær verður ráðist í að
tengja bæinn við göngu-
stígakerfi nágranna-
sveitarfélaganna.
Frá
Miðjarðarhafinu
í apótekið þitt
„Pharmaceutical - Grade“
ólífuolía í gelhylkjum með
vítamínum, jurtum og/eða
steinefnum.
Heilsuleikur
Þú gætir unnið ferð til
Spánar!
Aðeins í Plúsapótekunum
www.plusapotek.is
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
mbl.isFRÉTTIR
Einfalt að innleiða, auðvelt að aðlaga og öruggt
í notkun. Á veginum til vaxtar verður þú að geta
brugðist við breytingum, nýtt þér styrkleika þína
og gripið sóknartækifærin þegar þau gefast.
Sjáðu hvernig Navision getur hjálpað þér að
fullnýta tækifærin á www.navision.is
Navision Attain er ný kynslóð viðskiptahugbúnaðar frá
Navision, byggð á hinu vinsæla kerfi Navision Financials
Söluaðilar Navision Attain á Íslandi eru: Element HSC Landsteinar Ísland Maritech Strengur Tölvuþjónustan á Akranesi
Eau de toilette. Ferskur austurlenskur ilmur
Body mist. Ferskleiki skógarins
Bath and body oil. Dularfullur, heitur ilmur
Body lotion. Viðarilmur
Kertið. Kryddaður ilmur
HIMNESK UPPLIFUN
NÝR ILMUR