Morgunblaðið - 16.05.2002, Side 66
UMRÆÐAN
66 FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MÖRGUM Reyk-
víkingnum brá í brún
við lestur greinar eftir
sr. Þóri Stephensen
fyrrverandi staðar-
haldara í Viðey sem
birtist í Morgun-
blaðinu 27. apríl sl.
undir fyrirsögninni:
„Á að eyðileggja Við-
ey?“. Í greininni lýsir
Þórir áhyggjum sínum
vegna aðalskipulags
meirihluta borgar-
stjórnar en sam-
kvæmt því er gert ráð
fyrir höfn í Geldinga-
nesi og göngubrú út í
Viðey úr Gufunesi. Athyglisvert er
að skoða R-listann þar sem eru
vinstrigrænir sem á Alþingi segjast
vilja vinna að umhverfismálum en
eru í borgarmálum í algjörri mót-
sögn við sjálfa sig og ganga í ber-
högg við eigin yfirlýsingar.
Mótmæli að engu höfð
Máli sínu til stuðnings vísar sr.
Þórir til mótmæla Náttúruverndar
ríkisins, Fuglaverndunarfélags Ís-
lands og menningarmálanefndar
Reykjavíkur en mótmælin hafa
engan hljómgrunn
fengið hjá R-listanum.
Sr. Þórir vitnar einnig
til viðhorfskönnunar
sem borgin lét gera
meðal gesta í Viðey og
á nokkrum vinnustöð-
um sumarið 2001. Þar
var fólk m.a. spurt
álits um samgöngu-
leiðir út í eyna. Þótt
svörin hafi verið nokk-
uð mismunandi eftir
því hvort gestir í Við-
ey voru spurðir eða
fólk á vinnustöðum var
niðurstaðan sú að
sterkur meirihluti er á
móti brú. Með sam-
þykkt R-listans um göngutengsl á
milli Viðeyjar og Gufuness hafa
raddir borgarbúa og sérfræðinga
verið hundsaðar.
Tvöfeldni R-listans, sem þykist
vilja vernda og varðveita fjórða
mesta sögustað Íslands, er svo
þrátt fyrir aðvaranir þeirra sem
best þekkja til vísvitandi að eyði-
leggja og gera ráðstafanir sem
munu valda miklum skaða.
Eflum starfið í Viðey
Í stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins
fyrir borgarstjórnarkosningarnar í
vor leggjum við til að staðarhaldari
taki til starfa að nýju í Viðey. Við
ætlum undir forystu hans að nýta
menningarsögulega arfleifð
Reykjavíkur með öflugu starfi í
Viðey.
Fólkið í R-listanum talar í austur
en framkvæmir í vestur. Eru þau
trúverðug? Er þorandi að veita
þeim umboð til þess að stjórna
borginni lengur? Þau gera sér ekki
grein fyrir því hve dýrmætt það er
að eiga þessa eyju og varðveita um-
hverfi hennar og sögu með trygg-
um hætti.
Björgum Viðey!
Guðrún Ebba
Ólafsdóttir
Höfundur er í 3. sæti á framboðslista
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Reykjavík
Vinstrigrænir sem á Al-
þingi segjast vilja vinna
að umhverfismálum,
segir Guðrún Ebba
Ólafsdóttir, en eru í
borgarmálum í algjörri
mótsögn við sjálfa sig og
ganga í berhögg við eig-
in yfirlýsingar.
HVERJUM manni
má vera orðið ljóst að
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir er ekki að
bjóða sig fram til að
gegna embætti borg-
arstjóra næstu fjögur
árin. Flokkur hennar,
Samfylkingin svokall-
aða, er í raun foringja-
laus í landsmálum eftir
að forystu hennar og
einkum formanni hef-
ur ekki aðeins mistek-
ist að afla flokknum
fylgis heldur tekist að
rýja sjálfan sig trausti
með óvæntum og ein-
stæðum aðferðum. Er
nú svo komið, að allir sjá að Ingi-
björg Sólrún og nánustu félagar
hennar hafa sett stefnuna á að gera
Ingibjörgu Sólrúnu að leiðtoga
flokksins eins fljótt og hægt er.
Hún mun augljóslega hverfa í
landsmálapólitíkina næsta vor og
skilja borgarstjórnina eftir í hönd-
um þeirra sem verða fljótastir að
grípa hana. Það er að segja, ef R-
listinn nær meirihluta í kosning-
unum í lok mánaðarins. Og blasir
þá við borgarbúum sú spurning
hvað tekur við eftir að Ingibjörg
Sólrún kveður og þakkar fyrir sig.
Fjórir menn koma helst til álita og
má telja víst að einhver þeirra yrði
næsta borgarstjóraefni okkar
Reykvíkinga.
Fyrsti kosturinn og sá líklegasti
er vitaskuld Alfreð Þorsteinsson,
enda myndi það hafa minnstar
breytingar í för með sér þar sem
hann stýrir nú þegar næstum öllu
því sem hann kærir sig um í borg-
inni. Hann er meira að segja þegar
svo valdamikill að það
kom engum á óvart og
þótti ekki tiltökumál
þegar hann á dögun-
um lét Orkuveitu
Reykjavíkur næstum
kaupa Landssíma Ís-
lands án þess að nefna
það við svokallaðan
borgarstjóra fyrir-
fram. Hann lætur
Orkuveituna, sem
hann fer algerlega
með sem einkafyrir-
tæki sitt, byggja risa-
stóra líkamsræktar-
stöð sem reka átti í
samkeppni við einka-
stöðvar. Og þegar
menn gera sig líklega til að ræða
ótrúlegt tap og fjáraustur í furðu-
fyrirtæki hans, Línu.Net, þá bara
auglýsir hann Perluna til sölu og er
ekki til viðtals um önnur málefni á
meðan.
Alfreð hefur með öðrum orðum
gríðarleg ítök innan R-listans og er
því allra manna líklegastur til að
taka við af Ingibjörgu Sólrúnu, ef
hann aðeins kærir sig um. Mikill
áhugi hans á beitingu valds síns
bendir ekki sérstaklega til að hann
myndi fela öðrum borgarstjóraemb-
ættið. En fari svo að R-listinn sigri
í vor og að Alfreð feli öðrum að
sitja í stóli borgarstjóra þá eru þrír
menn líklegastir til að hljóta náð
fyrir augum Alfreðs.
Fyrstan má nefna Stefán Jón
Hafstein, sem af ókunnum ástæðum
hefur oft verið nefndur erfðaprins
R-listans. Að vísu eru það einkum
nánustu stuðningsmenn Stefáns
Jóns sem hafa útnefnt hann til
þessa prinsstarfs en engu að síður
ættu borgarbúar ekki að útiloka að
Stefán Jón geti þó í krafti stöðu
sinnar sem formaður einhvers sem
fræðimenn kalla „Framkvæmda-
stjórn Samfylkingarinnar“ krækt
sér í ýmsa feita bita og jafnvel orðið
borgarstjóri í afleysingum.
Dagur B. Eggertsson er annar
hugsanlegur kostur, en hann er að
vísu enn lausari við reynslu en Stef-
án Jón og er þá talsvert sagt. Hann
hefur það hins vegar sér til ágætis
að hafa jafnvel enn meira sjálfs-
traust en áðurnefndur Stefán Jón
Hafstein, svo það er aldrei að vita
nema hann grípi gæsina og reyni að
skipa sig borgarstjóra.
Loks má nefna Helga Hjörvar,
núverandi forseta borgarstjórnar,
en hann hefur átt mikið og einstakt
samstarf við Alfreð í Orkuveitunni.
Óhætt er að segja að hann hafi
reynst Alfreð drjúg hjálp við að
eyða hátt í 2 milljörðum króna í
Línu.Net og ætti því vafalaust
nokkurn stuðning Alfreðs ef til
kæmi.
En hver tæki við af Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur ef R-listinn
ynni sigur í vor skiptir út af fyrir
sig litlu máli. Sá sem myndi ráða
ferðinni yrði Alfreð Þorsteinsson.
Borgarstjóraefni
R-listans
Svava Björk
Hákonardóttir
Reykjavík
Alfreð, segir Svava
Björk Hákonardóttir,
hefur gríðarleg ítök inn-
an R-listans.
Höfundur er háskólanemi.
SAMFYLKINGIN í
Árborg setur málefni
eldri borgara í for-
grunn stefnu sinnar og
baráttumála. Það er
slæmt að vita til þess
að eldri borgarar eigi
ekki kost á öruggri
höfn að dagsverki
loknu. Við munum
aldrei sætta okkur við
það að gamalt fólk
þurfi að búa við þann
kost að deila herbergi
með öðrum á dvalar-
heimilum.
Erum við góð við
gamla fólkið?
Vissulega erum við það flest og
viljum búa eldri borgurum gott líf.
En við þurfum að gera svo miklu bet-
ur til að nóg sé að gert og Samfylk-
ingin í Árborg mun beita sér af alefli
í málefnum aldraðra.
Stjórnmál snúast um traust og
stjórnmál snúast um fólk. Ég býð
fram krafta mína til að berjast fyrir
réttlátu samfélagi í Árborg og þar
eru mál eldri borgara í fyrsta sæti.
Ég hef að undanförnu kynnt metn-
aðarfulla áætlun Samfylkingarinnar
í málefnum aldraðra í Árborg og á
meðal helstu mála eru:
Að fjölga möguleikum til hvíld-
arinnlagnar.
Að fjölga þjón-
ustuíbúðum og hjúkr-
unarrúmum.
Að koma á fót
akstursþjónustu fyrir
eldri borgara.
Að beita alefli
gagnvart heilbrigðisyf-
irvöldum og fram-
kvæmdavaldinu til að
hraða uppbyggingu
hjúkrunardeildar.
Að tryggja að-
gengi að öflugu fé-
lagslífi eldri borgara.
Ég legg stefnu Sam-
fylkingarinnar í mál-
efnum eldri borgara stolt undir dóm
kjósenda og skora á íbúa Árborgar
að kynna sér þá nýju og kraftmiklu
sýn sem við berjumst fyrir svo sam-
félagið megi verða betra.
Öruggt
ævikvöld í
Árborg
Ragnheiður
Hergeirsdóttir
Höfundur skipar þriðja sæti á lista
Samfylkingarinnar í Árborg.
Árborg
Ég býð fram krafta
mína til að berjast fyrir
réttlátu samfélagi í Ár-
borg, segir Ragnheiður
Hergeirsdóttir, og þar
eru mál eldri borgara í
fyrsta sæti.
YFIRLÝSING hef-
ur verið send frá for-
manni Sjálfstæðis-
félags Gerðahrepps til
kjörnefndar þegar list-
ar voru lagðir fram 4.
maí, að Sjálfstæðis-
félag Gerðahrepps
stæði ekki að neinu
framboði fyrir sveitar-
stjórnarkosningar 25.
maí næstkomandi.
Ástæðan er sú að til er
listi sem heitir H-listi,
listi Sjálfstæðismanna
og annarra frjáls-
lyndra og var í minni-
hluta á síðasta kjör-
tímabili. Stuðnings-
menn þess lista er mikill minni hluti
Sjálfstæðismanna í Garðinum og
hefur meiri hluti Sjálfstæðismanna
mikla skömm á framgangi H-lista
manna síðasta kjörtímabils.
Þar vil ég nefna nokkur mál: Hita-
veitu Suðurnesja var breytt í hluta-
félag á síðasta kjörtímabili, þar
börðust fulltrúar H-listans á móti
því framfaramáli fyrir Suðurnesja-
menn. Þrátt fyrir að hlutafjárvæð-
ing sé eitt af stefnumálum Sjálf-
stæðisflokksins. Bókanir H-lista til
að mynda um tekjuöflun sveitar-
sjóðs eru með slíkum eindæmum að
fáheyrt er og greinar þær sem hafa
birst í blaði allra landsmanna, Morg-
unblaðinu, geta valdið Gerðahreppi
verulegu tjóni. Þegar landsmenn
lesa þessar bókanir gætu þeir haldið
að þetta byggðarlag væri vart á vet-
ur setjandi. Staðreyndin er hins veg-
ar sú að Gerðahreppur er í áttunda
sæti yfir best reknu sveitarfélög á
landinu. Þau sveitarfélög sem þar
eru á undan eru flest með einhverjar
gullkistur til að ausa úr.
Þrjú af sveitarfélögum á Suður-
nesjum hafa verið í gjörgæslu fé-
lagsmálaráðuneytis
undanfarin ár. Þar
hegða stjórnarand-
stæðingar sér ekki með
slíkum ósköpum eins
og hér í Garði enda
menn sem vilja byggð-
arlagi sínu allt hið
besta. Sem betur fer
eru öll þessi byggðar-
lög nú komin úr gjör-
gæslu og fjárhagur
þeirra í fínu lagi eftir
hlutafjárvæðingu Hita-
veitu Suðurnesja.
Gerðahreppur lét
teikna hús fyrir safna-
og menningatengda
ferðaþjónustu við
Garðskaga sem er einn af fallegustu
stöðum á Suðurnesjum en þar er lítil
aðstaða fyrir mikinn fjölda ferða-
manna sem koma þar árlega. Þessu
var minnihlutinn algörlega á móti,
þeir gengu um og hæddust að því að
verið væri að bruðla 700.000 þúsund-
um í þetta. Málið var ekki verra en
það að nú hefur borist styrkur úr
ríkissjóði upp á þrjár miljónir til að
halda málinu áfram. Þarna gæti ver-
ið um nýja atvinnugrein að ræða fyr-
ir Gerðahrepp.
Gerðahreppur hefur látið teikna
íbúðir fyrir aldraða við Garðvang
sem er inni á lóð Garðvangs, lóð sem
er það stór að hún mun duga fyrir
Garðvang næstu hundrað ár. Þetta
er framkvæmdastjóri Garðvangs
Finnbogi Björnsson og fulltrúi H-
listans í hreppsnefnd sem næst bú-
inn að eyðileggja fyrir Gerðahreppi
og íbúum byggðarlagsins með því að
ganga bónarveg í allar sveitar-
stjórnir sem eiga lóð undir Garð-
vangi með Gerðahreppi og telja
þeim trú um að þetta þrengi að
Garðvangi og skyggi á útsýni úr
garðskála. Ég sat sem áheyrandi á
hreppsnefndarfundi þegar deili-
skipulag var samþykkt. Þar hélt
Finnbogi harmþrungna ræðu um að
hann yrði að gæta hagsmuna vist-
manna á Garðvangi. Þetta hljómar í
eyrum flestra Garðmanna sem
hreinn brandari. Skyldi Finnbogi
hafa verið að gæta hagsmuna Garð-
manna með þessu eða Garðvangs
sem mundi hafa mikinn styrk af
þessari framkvæmd í betri nýtingu á
þjónustuliðum.
Nei, númer eitt er að koma höggi
á núverandi meirihluta.
Það hefur valdið okkur Garðbúum
mestum vonbrigðum að önnur sveit-
arfélög sem við teljum vini okkar og
félaga skuli láta glepjast af slíkum
málflutningi. Ég ásamt mörgum
öðrum var farinn að linast í samein-
ingarmálum, taldi rétt að á næstu
fimm til tíu árum væri rétt að sam-
einast Reykjanesbæ þegar við vær-
um búnir að koma mörgum fram-
faramálum sem eru okkur hjart-
fólgin í verk en afgreiðsla Bæjarráðs
Reykjanesbæjar kom mér og þeim
sem ég hef rætt þetta við á byrj-
unarreit.
Ég vil að lokum hvetja alla Garð-
menn til að styðja núverandi meiri-
hluta til áframhaldandi stjórnar í
Gerðahreppi, það mun verða okkur
til gæfu.
Yfirlýsing formanns Sjálf-
stæðisfélags Gerðahrepps
Gunnar H.
Häsler
Gerðahreppur
Ég vil, segir Gunnar H.
Häsler, hvetja alla
Garðmenn til að styðja
núverandi meirihluta.
Höfundur er formaður Sjálfstæð-
isfélags Gerðahrepps.
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Silhouette