Morgunblaðið - 16.05.2002, Síða 80
80 FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
!
!
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÉG BÝ í góðum bæ – sennilega þeim
besta – að minnsta kosti svo góðum
að þegar ég loksins hef mig í að flytja
frá mömmu vil ég endilega geta búið
áfram í bænum mínum. En það er
ekki nóg að langa, tækifærin þurfa að
vera fyrir hendi og þau hafa ekki ver-
ið gripin í stjórnartíð Sjálfstæðis-
flokksins. Það er eins og enginn þar á
bæ hafi nokkurn áhuga á að laða að
eða halda í ungt fólk sem vill búa í
Garðabæ. Mér finnst þetta vera graf-
alvarlegt mál, ekki bara vegna mín og
mömmu heldur tel ég það vera nauð-
synlegt fyrir lifandi bæjarfélag að þar
vilji og geti búið ungt fólk. Það er því
algjört forgangsmál að auðvelda
ungu fólki að fá húsnæði við sitt hæfi.
Til þess þarf að byggja fleiri litlar
íbúðir sem henta þörfum þeirra sem
eru að byrja að búa. Þetta er alveg
hægt ef viljinn er fyrir hendi, menn
þurfa bara að vera með fullri meðvit-
und þegar útboð á byggingarlóðum
fara fram. Ég get ekki skilið að þetta
ætti að vefjast fyrir nokkrum manni –
nema auðvitað hann sé sjálfstæðis-
maður í meirihluta í Garðabæ.
… malarvellinum
Ég veit að það er endalaust hægt
að deila um hvort íþróttaaðstaðan í
bænum sé góð eða slæm. Það er með
það eins og svo margt í lífinu; það sem
einum finnst of finnst öðrum van. Við
getum þó verið sammála um að
íþróttir hafa svo sannarlega áhrif til
góðs á þá krakka og unglinga sem
þær stunda. Hvort þau verða afreks-
menn eða ekki er ekki aðalatriðið.
Auðvitað er skemmtilegt þegar ein-
hver skarar fram úr en þegar upp er
staðið eru það heildaráhrifin sem
skipta mestu máli og því mikilvægt að
aðstaðan sé góð.
Það er allt í lagi að láta sig dreyma
um ótal grasvelli og 1000 fjölnota
íþróttahallir en á þessari stundu er
líklega rétt að geyma draumana og
brýnast að finna út hvað getur komið
í staðinn fyrir gamla, góða malarvöll-
inn sem geymir bæði sigra og sorgir
og mun heyra sögunni til strax núna í
sumar. Ég sé fyrir mér nýjan völl á
Grundunum eða jafnvel nýja velli og
það er nánast ekkert því fyrirstöðu að
hægt sé að ráðast í framkvæmdir
strax í dag – ég á bæði skóflu og haka
og er til í slaginn. Því miður er ekki
hægt að segja það sama um sitjandi
meirihluta því þar á bæ er enginn vilji
til að skilja þörfina fyrir að fylla skarð
gamla malarvallarins.
og menningunni
Þó svo að íþróttir séu bara af hinu
góða má ekki gleyma því að ungt fólk
hefur fleiri áhugamál og það verður
seint hægt að hrósa sjálfstæðismönn-
um fyrir að hafa lagt mikið til mál-
anna þegar kemur að þeim efnum.
Mér finnst að bæjaryfirvöld ættu að
vera opin fyrir að styðja við bakið á
ungu fólki í bænum sem hefur metn-
að og hugmyndaflug til að lífga upp á
lista- og menningarlífið og þar með
mannlífið allt. Þetta má gera með
ýmsu móti og gæti, ef vel tekst til,
orðið bæjareinkenni og að sjálfsögðu
hin mesta bæjarprýði.
Að lokum langar mig bara til að
spyrja ykkur í fullri einlægni hvort 36
ára valdatími sé ekki miklu meira en
nóg. Ég svara þessari spurningu ját-
andi og vil sjá breytingar en að sjálf-
sögðu breytingar til góðs. Þess vegna
set ég X-ið við Bé og í mínum huga
merkir það jákvæðar breytingar,
bjartsýni og brottflutning að heiman
en hvorki til afa og ömmu í Kópavogi
né tengdó í Hafnarfirði, þó að þau séu
ágæt. Garðabær er einfaldlega bær-
inn minn!
EGILL ARNAR SIGÞÓRSSON,
Löngumýri 16, 210 Garðabæ.
Af mömmu …
Frá Agli Arnari Sigþórssyni:
ÞAÐ ER nú mikið hvað þeir Össur
samfylkingar og Halldór framsókn-
ar eru heillaðir af þessu stórveldi
þarna í austri. Og nú ausa þeir og
þeirra fólk daglega yfir okkur bján-
ana svimandi háum tölum af þeim
peningum sem við eigum að græða á
sölu eyjarinnar. Nú, þessir höfðingj-
ar eru nú líka með hóp af sérfræð-
ingum sem eru á launum hjá okkur,
einmitt við að finna tölur. Og nú um
hríð passa einmitt þessir ESB-
kandídatar að tala aðeins um þá pen-
inga sem ESB greiðir okkur. En
gleyma gjarnan að minnast á þær
fúlgur sem við komum til með að
þurfa að greiða til ESB.
Og jafnvel þótt samfylkingar-
prinsinn kannski á næstunni breyt-
ist í prinsessu þá vonar nú litli prins-
inn að hans hetjuverk gleymist ekki.
En allt snýst þetta um peninga.
Þessir pótintátar þekkja engar göf-
ugri hugsjónir. Og svo að ég þá
minnist á þessa hugsjón þeirra. Ég
er persónulega sannfærður um að ef
þessum ESB-agentum tekst að plata
okkur inní ESB upphefst hér tímabil
fyrir okkur alþýðuna, reynsla sem
okkur hafði aldrei dreymt um. At-
vinnulaust fólk frá Austur- og Suð-
ur-Evrópu mun flytja til gósenlands-
ins Íslands. Ekki 500 manns á ári
eins og nú er, heldur kannski tugir
þúsunda. Fólk með sömu réttindi og
þú og ég. Gott fólk og slæmt fólk
eins og gengur. En eitt kann þetta
fólk sem við kunnum ekki. Það getur
framfleytt sér og sínum fyrir ótrú-
lega lágar peningaupphæðir. Þeir
munu líka fljótt bjóða sig fram á
vinnumarkaðnum fyrir um helming
þeirra launa sem við teljum okkur
þurfa og þegar þeir eru orðnir nógu
margir, já þá geta þeir bara sagt
okkur að vera ekkert að skipta okk-
ur af þessu. Þetta mun gilda jafnt
fyrir sjómenn, bændur, verkamenn
og iðnaðarmenn og raunar allar
stéttir. Jafnvel nágrannar okkar
Danir, sem þó eru ólíkt nær því að
hafa einhverjar ástæður til að geta
haldið sjálfstæði sínu, allt fyrir sam-
runa við ESB. Jafnvel þeir eru nú
loksins að vakna af þyrnirósarsvefn-
inum. En bara of seint. Nú, þessir
framsóknarfylkingaragentar munu
örugglega ætla að vera fluttir til
kjötkatlanna í Brussel nokkru fyrir
þann tíma að við fáum áfallið vegna
sannleikans sem þá mun blasa við
okkur.
Mér er sem ég sjái hóp af þessum
sölumönnum gefa okkur langt nef út
yfir Atlantsála.
KARL JÓNATANSSON,
Hólmgarði 34, Reykjavík.
ESB
Frá Karli Jónatanssyni: