Morgunblaðið - 12.11.2004, Side 24
24 FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
Á MÁNÁRBAKKA á Tjörnesi sem er nyrsta
býli í Suður-Þingeyjarsýslu og jafnframt
nyrsta kúabú landsins, var nýlega farið í að
fylla fjósið af kúm. Það hafði ekki verið nema
rúmlega hálft áður og var keyptur kvóti til
þess að ná þessari aukningu. Alls er um 32
bása að ræða ásamt geldneytaaðstöðu.
Það eru hjónin Bjarni Sigurður Aðalgeirs-
son og Jóhanna R. Pétursdóttir sem tóku
þessa ákvörðun í sumar en þau hafa nú form-
lega tekið við öllum rekstri á jörðinni af for-
eldrum Bjarna.
Bjarni hefur um langt árabil verið rútubíl-
stjóri og unnið við búið að hluta. Jafnhliða kyn-
slóðaskiptunum á jörðinni í sumar ákvað hann
að hætta því starfi og snúa sér alfarið að bú-
skapnum. Jóhanna hefur verið mikið í fjós-
verkunum, en hún er frá Vopnafirði og flutti í
Mánárbakka árið 1989. Þau hjón eru ekki al-
veg ein við þetta því börn þeirra tvö, þau Máni
Snær og Sunna Mjöll, eru líka farin að taka
þátt í því sem þarf að gera og hafa gaman af.
Langt frá mjólkurbúi
Hér áður fyrr voru kúabú á flestum bæjum
á Tjörnesi en þeim fækkaði eins og í öðrum
sveitum. Í nokkur ár voru búin fimm að tölu en
svo hætti búið í Mýrarkoti fyrir nokkrum ár-
um og í sumar hætti búið á Ísólfsstöðum, en
þaðan kemur kvótinn sem Bjarni og Jóhanna
keyptu. Kúabúin á Tjörnesi eru því orðin þrjú,
það er að segja í Ytri-Tungu og á Ketils-
stöðum, auk Mánárbakka.
Mjólkursamlagið er orðið langt frá síðan
hætt var að vinna mjólk á Húsavík og er tölu-
vert mikið lengra að sækja mjólkina frá Akur-
eyri. Bíllinn kemur tvisvar í viku, en Bjarni
segist ekki hafa neinar áhyggjur af fjarlægð-
inni frá samlaginu. Vegalengdir vaxi mönnum
ekki í augum í dag og fjósið á Tjörnesi hafi
ákveðið gildi fyrir byggðina. Framtíðin verður
auðvitað að skera úr um það hver þróunin í
mjólkurflutningunum verður, en kúabændur
hafa styrk hver af öðrum og segir Bjarni að
það skipti sig miklu að framleiðsla haldist í
Reykjahverfi sunnan Húsavíkur því ekki sé
svo langt til sín þaðan.
Tjörnesingar skipta áreiðanlega Norður-
mjólk á Akureyri miklu máli en hjá þeim eru
bæði frumutala og gerlatala lægst á fram-
leiðslusvæðinu og þó víðar væri leitað. Því er
einungis um úrvalsmjólk að ræða. Þessi mjólk-
urgæði felast í því að fjósin eru ekki of stór,
bara það sem hver fjölskylda ræður við og nær
að hafa yfirsýn yfir með góðu móti. Verk-
smiðjuvæðing í fjósum skilar ekki alltaf ár-
angri og gríðarlegur fjármagnskostnaður er
að sliga þau bú.
Gott að vera heima í fjósinu
Bjarni og Jóhanna eru áhugasöm og hafa
tekið til hendinni utanhúss en búið er að mála
veggi og þak á fjósinu. Þá er búið að setja
skjólmön úr jarðvegi fyrir kýrnar rétt hjá og
auk þessa er búið að malbika alveg upp að
byggingunni. Það var gert í tengslum við
framkvæmdirnar við Tjörnesveg og er aðkom-
an að útihúsunum öll önnur.
En hvað segir rútubílstjórinn við því að
þurfa ekki lengur að fara sparibúinn að heim-
an til þess að aka áætlunarbílum. Bjarni hlær
og segist ekkert sakna þess ennþá og örugg-
lega ekkert á dimmum hríðarmorgnum. Betra
sé að hlaupa út í fjós og mjólka kýrnar. Þar sé
notalegur vinnustaður.
Bændurnir sem reka nyrsta fjós landsins fylla alla bása og framleiða aðeins úrvalsmjólk
Fjósið er notalegur vinnustaður
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Samhent Fjölskyldan á Mánarbakka saman komin, með fjósið í baksýn, Jóhanna R. Péturs-
dóttir og Bjarni S. Aðalgeirsson ásamt börnum sínum, þeim Sunnu Mjöll og Mána Snæ.
Fjósum hefur fækkað um nærri helming í Þingeyjarsýslu á tutt-
ugu árum. Það þykir því gleðiefni þegar menn taka sig til og
auka framleiðslu sína. Atli Vigfússon fréttaritari heimsótti
bændur í nyrsta fjósi landsins en þeir eru að auka við sig.
Í fjósverkunum Máni Snær Bjarnason tekur
fullan þátt í störfunum með foreldrum sínum.
LANDIÐ
AUSTURLAND
Seyðisfjörður | Dagar myrk-
urs verða haldnir hátíðlegir á
Austurlandi líkt og á liðnu ári,
en þeir hefjast í næstu viku, 18.
nóvember. Dagskrá verður
fjölbreytt og eru Austfirðingar
hvattir til að taka þátt með
virkum hætti, en einnig er ætl-
unin að fá landsmenn til að
heimsækja Austurland af þessu
tilefni og vera með.
Dagskrá verður í flestum
sveitarfélögum en á vef Seyðis-
fjarðarkaupstaðar má sjá að
slökkt verður á öllum ljósa-
staurum bæjarins
í klukkustund á laugardags-
kvöld og bæjarbúar hvattir til
að gera slíkt hið sama, að
myrkva hús sín. Boðið verður
upp á svokallaða Afturgöngu
og gestir beðnir að mæta með
fjósalugtir, en ýmsar óvæntar
uppákomur verða í göngunni.
Dagar myrkurs
Afturganga
og engin ljós
Bráðavandi leystur fyrst | Bæj-
arráð Fljótsdalshéraðs fjallaði um
skýrslu nefndar um sameiningu
sveitarfélaga á síðasta fundi sínum
um átak vegna eflingar sveitar-
stjórnarstigsins. Samþykkt var sam-
hljóða að skipa viðræðuhóp til að
ræða við nefndina um framhald sam-
einingarmála.
„Bæjarráð samþykkir að Fljóts-
dalshérað muni ekki koma að frekari
ákvörðunum um sameiningu sveitar-
félaga fyrr en búið er að leysa bráða-
vanda sveitarfélaga sem verst eru
sett með aukaframlagi í Jöfnunar-
sjóð á þessu ári og búið verður að
fara yfir tekjustofna og lagfæra þá
til að sveitarfélög geti sinnt núver-
andi verkefnum,“ segir bókuninni.
Eskifjörður | Unnið er að því þessa
dagana að reisa skemmu á Eskifirði
sem mun hýsa Vélaverkstæði Ham-
ars. Skemman sem áður var í Sand-
gerði var tekin niður þar og flutt
austur á land, til Eskifjarðar, „þar
sem mun rísa eitt glæsilegasta véla-
verkstæði á Austfjörðum,“ eins og
Kári Pálsson, annar eigenda Véla-
verkstæðis Hamars, orðaði það.
Skemman er alls um 1.350 fermetr-
ar að stærð og bætir mjög aðstöðu
starfsmanna fyrirtækisins eystra.
Hamar hefur starfað á Eskifirði
um skeið, keypti á sínum tíma véla-
verkstæði Hraðfrystihúss Eski-
fjarðar sem nú heitir Eskja og hef-
ur Hamar veitt félaginu þjónustu.
Þá er Hamar einnig með ýmis önn-
ur verkefni fyrir austan, svo sem
fyrir Impregilo. „Verkefnin eru
næg, það eru miklar hreyfingar
þarna fyrir austan,“ sagði Kári, en
alls starfa um 15 manns hjá félag-
inu. Stefnt er að því að skemman
verði fokheld fyrir jól og að hægt
verði að hefja í henni starfsemi fyrir
vorið. Hamar keypti af Hampiðj-
unni búnað sem notaður er til fram-
leiðslu á Polyice hlerum og verður
honum komið fyrir í nýja húsnæð-
inu. „Við munum þá geta veitt okk-
ar viðskiptavinum þjónustu bæði á
höfuðborgarsvæðinu og fyrir aust-
an,“ sagði Kári. „Við erum að færa
eina stærstu vélsmiðju á Íslandi
austur.“
Vélsmiðjan Hamar ætlar að reisa um 1.350 fermetra skemmu á Eskifirði
Ein stærsta vélsmiðjan flutt austur
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Hornafjörður | Vinnuaðstaða fyrir
háskólanema í fjarnámi hefur verið
opnuð í Nýheimum. Vinnuherberg-
ið er í Frumkvöðlasetrinu og verð-
ur opið hvenær sem fjarnemum
hentar. Sagt er frá opnuninni á
vefnum horn.is og þar er haft eftir
Eyjólfi Guðmundssyni skóla-
meistara að vinnuaðstaða verði fyr-
ir 8-10 manns, aðgangur að tölvum,
prentara og ljósritunarvél og há-
hraðatenging fyrir fartölvur. Að
auki geta fjarnemar fengið vinnu-
aðstöðu í Frumkvöðlasetrinu og í
hópvinnuherbergi FAS.
Vinnuaðstaða fyrir
háskólanema
Djúpivogur | Nemendur leikskólans
Bjarkatúns á Djúpavogi tóku ný-
lega fyrstu skóflustunguna að nýj-
um leiksskóla sem á að reisa við
Hammersminni. Þrátt fyrir rok og
rigningu tókst börnunum að ljúka
ætlunarverkinu með sóma.
Leikskólinn verður 293 fermetr-
ar að stærð og skiptist í tvær deild-
ir. Á teikningunum er meðal annars
gert ráð fyrir sal, listakrók, fata-
klefa og vinnuaðstöðu fyrir starfs-
fólk. Arkís teiknaði skólann og
Svarthamar ehf. byggir.
Börnin hófu
framkvæmdir
Morgunblaðið/Sólný
Skóflustunga Nemendur hefja framkvæmdir, Diljá Ósk Snjólfsdóttir, Ísak
Elísson, Birta Hrönn Ágústsdóttir og Viktoría Brá Óðinsdóttir.