Morgunblaðið - 12.11.2004, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2004 25
MINNSTAÐUR
Sendibíladekk
AGILIS
SNOW-ICE
Keflavík | Tuttugu og fimm nem-
endur skráðu sig til náms á nýrri
flugþjónustubraut við Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja. Námið hefst um
áramót.
Flugþjónustubrautin er sam-
starfsverkefni Fjölbrautaskólans og
Flugþjónustunnar á Keflavík-
urflugvelli ehf. (IGS). Námið tekur
eina önn. Það er bóklegt og síðan
tekur við starfsnám hjá IGS. Það
undirbýr nemendur fyrir vinnu við
innritun og aðra þjónustu við flug-
farþega í Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar. Ólafur Jón Arnbjörnsson,
skólameistari Fjölbrautaskóla Suð-
urnesja, segir að stefnt hafi verið að
því að taka inn tólf nemendur en
vegna góðrar aðsóknar og óska
Flugþjónustunnar hafi verið ákveðið
að tvöfalda þann fjölda. Nú er verið
að taka viðtöl við þá sem innrituðu
sig.
Ólafur Jón segir að margir nem-
endanna komi af Suðurnesjum en
líka alls staðar að af landinu. Kröfur
eru gerðar um þriggja ára nám af
máladeild í framhaldsskóla.
Morgunblaðið/Golli
Innritun Þeir sem sækja nám á flugþjónustubraut Fjölbrautaskóla Suður-
nesja læra meðal annars vinnubrögð við innritun farþega.
Góð aðsókn að nýrri
flugþjónustubraut
SUÐURNES
Reykjanesbær | Gengið hefur verið
formlega frá stofnun sjálfseignar-
stofnunar um Íþróttaakademíu í
Reykjanesbæ og ráðningu Geirs
Sveinssonar, fyrrverandi atvinnu-
manns í handknattleik, sem fram-
kvæmdastjóra.
Fimm stofnanir og fyrirtæki gerð-
ust stofnaðilar að sjálfseignarstofn-
uninni en það eru auk Reykjanes-
bæjar Sparisjóðurinn í Keflavík,
Eignarhaldsfélag Suðurnesja,
Sjóvá-Almennar og Íslandsbanki. Í
fulltrúaráði er gert ráð fyrir fulltrú-
um sextán félagasamtaka, fyrir-
tækja og stofnana sem tengjast
íþróttum og heilsueflingu. Þá er
unnið að skipun sérstaks ráðgjafar-
hóps.
Í fyrstu stjórn Íþróttaakadem-
íunnar sitja Árni Sigfússon formað-
ur, Hrannar Hólm varaformaður,
Una Steinsdóttir ritari, Geirmundur
Kristinsson og Sigurður Valur Ás-
bjarnarson meðstjórnendur. Í vara-
stjórn eru Geir Newman og Böðvar
Jónsson.
Á morgun verður tekin fyrsta
skóflustunga að húsnæði Íþrótta-
akademíunnar, sem staðsett verður
við Reykjaneshöllina í Njarðvík.
Fasteignafélagið Fasteign hf. byggir
húsið og leigir Reykjanesbæ það fyr-
ir starfsemi Íþróttaakademíunnar.
Íþróttaakademía
undirbúin
Gengið frá
stofnun
sjálfseignar-
stofnunar
Njarðvík | Atlantsolía hyggst reisa
sjálfsafgreiðslubensínstöð við Bið-
skýlið í Njarðvík. Framkvæmdir
hafa verið boðnar út og gert ráð fyrir
að það taki þrjá mánuði að koma
stöðinni upp, að því er fram kemur á
vef Víkurfrétta.
Atlantsolía hefur opnað olíuaf-
greiðslu við Sandgerðishöfn og
hyggst opna bensínstöð þar. Fyrir-
tækið hefur sótt um aðstöðu víðar á
Suðurnesjum.
Atlantsolía við
Biðskýlið
Keflavík | Elís Reynarsson við-
skiptafræðingur hefur verið ráðinn
til starfa sem fjármálastjóri við Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja.
Elís er 45 ára viðskiptafræðingur
frá Háskóla Íslands. Fram kemur á
vef Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
að Elís hefur víðtæka starfsreynslu,
bæði af fjármálastjórnun og starfs-
mannahaldi. Síðast vann hann hjá
Gúmmívinnustofunni í sjö ár og hafði
þar yfirumsjón með fjármálum,
skrifstofu og starfsmannahaldi. Þar
á undan gegndi hann starfi fjármála-
stjóra hjá Fasteignamati ríkisins.
Ráðinn fjár-
málastjóri HSS
♦♦♦
♦♦♦
Fréttasíminn
904 1100