Morgunblaðið - 12.11.2004, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 12.11.2004, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF Classic Rock Ármúla 5 - hjá gamla Hollywood s. 568-3590 Idol-keppnin á breiðtjaldi og boltinn í beinni. Föstudaginn 12. nóv.& Bubbi þrumuskang mun þeyta skífum. Laugardaginn 13. nóv Grímsbæ & Ármúla 15 Stærðir 36 - 50 Glæsilegur fatnaður fyrir allar konur Þú færð skóna hjá okkur HELGIN Það var orðið jólalegt hjáBraga Baldurssyni ogGuðrúnu Erlendsdóttur íbyrjun vikunnar enda eru þau með hugann allan ársins hring við jólaskraut. „Það eru 25 ár síðan ég byrjaði að dunda mér við að saga út jólaskraut og gefa vinum og fjölskyldu og síðan hef ég verið að bauka við þetta með þegar vinnudegi lýkur og skyggja tekur,“ segir Bragi en hann starfar sem vörubílstjóri. „Ég hef alltaf þurft að hafa eitt- hvað fyrir stafni og verið að smíða frá því ég var lítill strákur. Ég rakst svo á hugmynd í dönsku blaði að jólaskrauti og fannst gaman að fást við það þannig að ég hélt áfram að finna mér viðfangsefni í þeim dúr og hef verið að þessu síðan,“ segir hann. Málningarlyktin minnir á jólin En aðstæður til smíðanna voru ekki alltaf mjög þægilegar og það er ekki fyrr en núna síðustu fimm árin að Bragi hefur bílskúr til að vinna í. „Þar sem við bjuggum áður höfðum við ekki aðstöðu fyrir smíðarnar svo ég kom mér upp verkstæði til að vinna í á kvöldin úti á svölum. Þá lokaði ég svölunum með plasti, setti út ofn og á mig grifflur og þannig sagaði ég út þegar það var farið að kólna. Ég málaði svo hlutina inni í stofu áður en Guðrún tók að skreyta þá. Börnin okkar eru uppkomin núna en þau tala stundum um að ilmurinn sem minni þau á jól sé málningarlykt og vísa þá til þess þegar ég var að mála skrautið.“ Bragi segist fást við smíðar flest kvöld nema á sumrin, þá notar hann tímann til að dytta að húsinu og garðinum. „Ég sest út í bílskúr á kvöldin. Það er notalegt að vera með sjálfum sér og skapa eitthvað í höndunum sem maður er ánægður með.“ Guðrún tekur í sama streng, hún segist finna sig í að sitja við borð- stofuborðið og skreyta munina. „Hún glæðir þetta allt lífi,“ segir eig- inmaðurinn. „Ég saga út hluti en þegar Guðrún er búin að fara hönd- um um þá er eins og þeir lifni við,“ bætir hann við. Hann í skúrnum, hún í stofunni Þegar ég impra á því hvort þau verði aldrei leið hvort á öðru í föndr- inu þá brosa þau og benda á að það sé ekki svo auðvelt þar sem hann sé alltaf í skúrnum og hún í stofunni. „Svo er það nú einu sinni þannig að ef við erum ósammála um eitthvað sem snertir jólaskrautið kemur yf- irleitt í ljós að hún hefur rétt fyrir sér. Og þetta meina ég í fyllstu al- vöru,“ undirstrikar hann. Með árunum fór fólk að falast eft- ir munum frá Braga og Guðrúnu og undanfarin ár hafa þau selt skrautið í verslunum úti á landi og t.d. í Firði og í Jólaþorpinu í Hafnarfirði þar sem fjölskyldan skiptist á að taka vaktina þegar líður nær jólum. „Þó að við höfum nú bara byrjað að föndra við þetta jólaskraut að gamni okkar fyrir aldarfjórðungi finnst okkur þetta enn þá skemmti- legt. Við erum í rauninni að hugsa um þetta árið um kring, rekast á hugmyndir og þróa þær áfram og velta fyrir okkur nýju skrauti.“ Fjörutíu mismunandi fígúrur „Nú erum við farin að framleiða fjörutíu mismunandi jólafígúrur. Þar að auki drifum við í að gefa þessu litla fyrirtæki okkar nafnið Hjartans list.“ En Bragi sagar út fleira en jóla- skraut, hann hefur unun af því að búa til endur og gæsir og heimili þeirra prýða mörg listaverk af þeim toga. Hann smíðaði líka leikföng þegar börnin voru lítil og litla barna- barnið er þegar farið að njóta góðs af handlagni afa síns. Þegar ég spyr þau svona að lokum hvort þau eigi sitt uppáhalds- jólaskraut stendur ekki á svarinu hjá Guðrúnu: „Við höldum einhverra hluta vegna mikið upp á marga litla sam- fasta jólasveina sem allir haldast í hendur. Þeir hafa fylgt okkur í rúm- lega tuttugu ár og eru alltaf settir á góðan stað á jólunum.“  HANDVERK | Hjónin hafa föndrað jólaskraut í 25 ár Bragi Baldursson segist hafa dundað sér við smíðar frá því hann man eftir sér. Þegar hann átti ekki bílskúr útbjó hann sér verk- stæði úti á svölum og skar út jólaskraut. Morgunblaðið/Golli Hjónin: Guðrún Erlendsdóttir og Bragi Baldursson. Jólin: Bragi segist allan ársins hring vera að velta fyrir sér hug- myndum að jólaskrauti. gudbjorg@mbl.is Jólasveinarnir: Eru í miklu uppá- haldi hjá Braga og Guðrúnu. Jólakarl: Oft fær hann hugmyndir að skrauti úr dönskum tímaritum. Jólalegt: Jólatréð sómir sér vel í glugga eða hvar sem er. Hann sagar út og hún skreytir Listasmíð: Bragi hefur gaman af því að búa til endur en mikil vinna liggur að baki einni slíkri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.