Morgunblaðið - 12.11.2004, Síða 28
28 FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
ÞAÐ er notalegt um helgar að borða
síðbúinn morgunverð eða dögurð
(brunch). Hefð er fyrir því í Banda-
ríkjunum að fjöl-
skyldur fari sam-
an út að borða
slíkan málsverð
og nú hefur
Naustið tekið upp
á því að bjóða til
dögurðar á
sunnudögum.
Anton Viggós-
son mat-
reiðslumaður er
nýtekinn við
rekstri Naustsins ásamt konu sinni
Katrínu Stefánsdóttur. Hann bjó
lengi í Bandaríkjunum og segir að
sig hafi lengi dreymt um að bjóða
Íslendingum upp á ekta banda-
rískan brunch eða dögurð.
„Ég vil að heilu fjöl-
skyldurnar geti komið
hingað á sunnudög-
um, foreldrar með
börnin sín og
ömmur og afar
og notið þess
að borða sam-
an í rólegheit-
um. Fólk get-
ur komið á
milli kl. 11 og
14.30 og fengið
sér ekta dögurð
að bandarískum
hætti.“
Viggó ætlar að
bjóða upp á ommilettubar
þannig að fólk geti valið inni-
haldið í eggjakökuna sína, hann
verður með hlaðborð með hleyptum
eggjum, eggjahræru, skinku, beikoni
og kartöflum, alls kyns öðrum köld-
um kjötréttum, síldarréttum, fersk-
um ávöxtum, grænmeti og nýbökuðu
brauði.
En auðvitað getur fólk svo einnig
búið til sinn eigin dögurð heima.
Viggó segir að galdurinn við að búa
til góða eggjaköku eða ommilettu sé
að hafa gott hráefni og góða pönnu.
„Góð panna er lykilatriði, með tef-
lon-húð og svo á ekkert að vera að
blanda mjólk út í eggin. Best er
þriggja eggja
ommiletta með því
grænmeti eða kjötmeti
úti í sem hver og einn
velur sér.
Hér gefur Viggó lesendum
uppskrift að nokkrum réttum
sem henta á borðið heima. Hann
mælir auk þess með kaldri skinku,
síldarréttum og ferskum ávöxtum og
grænmeti á borðið.
Eggjabrauð (french toast)
Samlokubrauði er velt upp úr hrærð-
um eggjum sem búið er að setja smá-
vegis af kanil út í. Brauðið er síðan
steikt á pönnu báðum megin, skorið
horn í horn og flórsykri stráð yfir.
Eggs Benedict
Ristaðar samlokubrauðsneiðar
hringskornar með glasi
Steikt skinka eða hamborgarhryggj-
arsneiðar
hleypt egg
Hollandaise sósa
Skinkan er léttsteikt á pönnu og
sett á brauðið. Þá er hleypt egg sett á
beikonið og að lokum sósan. Þetta er
svo borið fram með pönnusteiktum
kartöflum og öðrum réttum sem eru
á hlaðborðinu.
Hollandaise-sósa
500 g smjör
5 eggjarauður
1 sítróna
örlítið af salti
tabasco
vatn
Bræðið smjörið við vægan hita og
takið af og látið standa. Hafið hreina
handþurrku tilbúna á borði. Setjið
um 1–1½ lítra af vatni í pott og látið
koma upp suðu. Eggjarauðurnar eru
settar í kúpta skál með ¼ bolla af
vatni, þær eru síðan þeyttar vel yfir
pottinum með heita vatninu þar til
þær eru orðnar léttar og ljósar. Setjið
eggjarauðuskálarnar á handþurrk-
una til að þær séu stöðugar og hellið
smjörinu rólega út í eggjarauðurnar
og hrærir stöðugt í á meðan uns allt
smjörið er komið í en alls ekki vatnið
sem er í smjörinu.
Þá bragðbætið þið með safanum úr
sítrónunni, saltinu og tabasco.
Þessi sósa er svolítið vandmeðfarin
upp á að hún skilji sig ekki. Þess
vegna má smjörið ekki vera of heitt
þegar það er sett út í. Ef sósan skilur
sig er hægt að setja pínulítið vatn í
aðra skál og ausa sósunni rólega yfir í
MATARKISTAN | Hlaðborð með ferskum ávöxtum, eggjakökum, beikoni og grænmeti
Dögurður fyrir
alla fjölskylduna
Sígilt: Pönnusteiktar kartöflur og beikon.
Morgunblaðið/ÞÖKTilheyrir: Ferskir ávextir á hlaðborðið.
Matreiðslumeist-
arinn: Anton
Viggósson. Ommiletta: Galdurinn við að búa
til góða eggjaköku er að eiga réttu
pönnuna.
„MEGINNIÐURSTÖÐUR þessara
rannsókna eru í stuttu máli þær að
ef við skoðum spilahegðun unglinga
þá hafa flestir þeirra einhvern tíma
spilað peningaspil, eða yfir 90%,“
segir Daníel Þór Ólason aðjúnkt í
sálfræði.
Sálfræðiskor Háskóla Íslands
hefur með stuðningi Happdrætti
Háskólans hafið athuganir á um-
fangi og alvarleika spilavanda í ís-
lensku samfélagi og mun Daníel
fjalla um rannsóknir á unglingum í
erindi sem hann flytur í dag, föstu-
dag.
Hann byggir fyrirlestur sinn á
tveimur rannsóknum sem hann og
samstarfsfólk hans gerðu á algengi
spilavanda meðal unglinga. Annars
vegar er um að ræða rannsókn sem
gerð var á meðal 750 unglinga í
framhaldsskólum, á aldrinum 16 til
18 ára, og hins vegar umfangsmikilli
rannsókn á um 3.500 unglingum í 8.
til 10. bekk í grunnskólum Reykja-
víkur. Þess ber að geta að svarhlut-
fall var mjög gott í síðari
rannsókninni, en hún
nær til um 77% af öllum
unglingum á þessum
aldri í Reykjavík.
Um tvö prósent ung-
linga í verulegum
spilavanda
„ Síðustu 12
mánuði fyrir könn-
unina höfðu á bilinu 70% til
80% unglinga spilað eitthvert
peningaspil og á bilinu átta
til tíu prósent spila vikulega
eða oftar. Algengustu pen-
ingaspilin hjá báðum hóp-
unum eru skafmiðar, spila-
kassar og lottó. Einnig er
talsvert um það að unglingar
leggi peninga undir í spilum
eða leikjum. Í þessum rann-
sóknum höfum við lagt fyrir
mælitæki sem metur spilavand-
ann, en þetta eru erlend mæli-
tæki sem við höfum þýtt og
forprófað,“ segir Daníel Þór
meðal annars um nið-
urstöður þessara tveggja
rannsókna.
Að sögn Daníels
Þórs mun hann í
fyrirlestrinum
fjalla um algengi
spilavanda í þess-
um tveimur hóp-
um, en samkvæmt
niðurstöðum
rannsóknanna má
skipta hópunum í
fjóra flokka:
1. Þá sem spila eng-
in peningaspil.
2. Þá sem spila pen-
ingapspil án vandkvæða.
3. Þá sem spila pen-
ingaspil og eiga í nokkr-
um vanda, (áhættuhóp-
ur).
4. Þá sem spila peningaspil
og eiga í verulegum vanda.
Um þriðjungur unglinga á
aldrinum 13 til 15 ára spila
engin peningaspil og um
fimmtungur þeirra sem eru á
aldrinum 16 til 18 ára. Flestir
sem spila peningaspil gera það
án vandkvæða, en um milli 3,2% til
3,7% teljast vera í áhættuhópi og
um 2% þessara unglinga eiga við
verulegan vanda að stríða vegna
peningaspila.
Daníel Þór segir að ef hóparnir
eru skoðaðir eftir kyni sýni nið-
urstöður beggja rannsóknanna að
spilavandi sé fyrst og fremst vanda-
mál meðal drengja, þar sem að á
bilinu 3,4% til 3,7% drengja á þess-
um aldri eiga við spilavanda að
stríða en aðeins um 0,3% stúlkna.
„Þetta er fyrst og fremst vandi á
meðal drengja. Það er nánast engan
spilavanda að finna á meðal stúlkna
á þessum aldri,“ segir Daníel Þór
um kynjaskiptinguna hvað þetta
varðar.
Fylgni milli hegðunarvanda
og spilavanda
„Við höfum ennfremur skoðað
ýmislegt fleira í tengslum við spila-
vanda unglinga, meðal annars
tengsl spilavanda og neyslu áfengis-
og vímuefna. Þar hefur komið í ljós
að eftir því sem krakkarnir eru í
meiri spilavanda því líklegri eru þau
til að reykja, drekka áfengi og neyta
fíkniefna. Þar er klárlega um sterk
tengsl að ræða. Það segir þó ekki að
spilavandi orsaki áfengis- eða vímu-
efnavanda eða öfugt. Við vitum bara
Spilavandi fyrst og
fremst meðal drengja
Rúmlega 90% unglinga hafa spilað eitthvert pen-
ingaspil en algengustu spilin hjá unglingum eru
skafmiðar, spilakassar og lottó. Einnig er talsvert
um það að unglingar leggi peninga undir í spilum
eða leikjum. Á bilinu átta til tíu prósent unglinga
spila vikulega eða oftar.
Allt til músaveiða
og fl ugnaveiða
Rafmagnsfl ugnabanar, límborðar,
fl ugnaljós o.fl .
Verslunin er staðsett á Selfossi
Opið mán.-fi m. 9-13,
föstudaga 9-18 og laugardaga 11-14
Gagnheiði 59 • meindyravarnir@meindyravarnir.is
www.meindyravarnir.is • s: 482 3337 & 893 9121
UNGLINGAR | Í Reykjavík eiga um 85 til 90 unglingar 13–15 ára við verulegan spilavanda að stríða